Dagur - 27.10.1989, Page 12
Suimudaginn 29. október
Fjölskylduborð Bautans
Borð hlaðið allskyns
krásum, heitum
og köldum.
Verð kr. 1.200,-
Maki og börn 11-13 ára kr. 600,-
börn yngri en 11 ára kr. 300,-
Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga:
Leitar eftir fyrirgreiðslu
hjá sjóðum og Byggðastofiiun
Útgerðarfélag Norður-Þingey-
inga, sem gerir út togarann
Stakfell ÞH, hefur leitað til
Byggðastofnunar, Hlutafjár-
og Atvinnutryggingasjóðs með
fyrirgreiðslu. Forsvarsmenn
ÚNÞ voru á dögunum í við-
ræðum við fulltrúa þessara
sjóða og segir Sigurður Frið-
riksson, framkvæmdastjóri
ÚNÞ, að ekki sé á þessu stigi
hægt að spá fyrir um til hvers
þær lciða.
„Við eigum vissulega í erfið-
Vöruhús KEA
endurskipulagt
- öllum starfsmönnum sagt upp störfum
Fyrir dyrum stendur endur-
skipulagning á Vöruhúsi KEA
á Akureyri og hefur öllum
starfsmönnum þess verið sagt
upp störfum. Uppsagnirnar
taka gildi frá og með 1.
nóvember. Starfshópur hefur
unnið að undanförnu að end-
urskipulagningu á rekstri
Vöruhússins en samkvæmt
upplýsingum Magnúsar Gauta
Gautasonar, kaupfélagsstjóra,
er markmiðið með endur-
skipulagningunni að gera
Vöruhúsið betur í stakk búið
til að mæta harðnandi sam-
keppni og samdrætti í kaup-
mætti.
Samkvæmt tillögum sem lagð-
ar hafa verið fram er gert ráð fyr-
ir breyttri stjórn á Vöruhúsinu og
er liður í því ráðning nýs vöru-
hússtjóra. Auk þess er gert ráð
fyrir breyttu vöruframboði og
endurskipulagningu á flestum
þáttum í starfseminni.
Næstu vikur verður unnið við
frekari útfærslu á tillögum starfs-
hópsins. Stefnt er að því að gera
starfsmönnum grein fyrir framtíð
Vöruhúss KEA fyrir lok næsta
mánaðar og hverja unnt verður
að endurráða. Stefnt er að fækk-
un starfsmanna sem talin er vera
ein af forsendunt fyrir hagræð-
ingu í rekstri Vöruhússins.
Starfsmannahald KEA mun
aðstoða þá sem ekki hljóta
endurráðningu við atvinnuleit.
JÓH
leikunt og erurn að reyna að
vinna okkur út úr þeim með öll-
um mögulegum ráðum. Við vilj-
um reka okkar mál þar sem við
eigunt að reka þau en ekki í fjöl-
miðlum. Umræða fjölmiðla hefur
nær undantekningarlaust aukið á
vanda þeirra fyrirtækja sem eiga í
erfiðleikum," segir Sigurður.
Hann segir það rangt að ÚNÞ
sé komið í þrot. „t>að er hins veg-
ar rétt að við eigum í erfiðleikum
með rekstrarfjármuni og skamm1
tímaskuldir eru of háar. En þrátt
fyrir það á þetta fyrirtæki eins og
mörg önnur viðreisnarvon ef rétt
er á málum lialdið. Pað er auðvit-
að rnikið í húfi að vel takist til
með að koma rekstri fyrirtækisins
á réttan kjöl og að því er unnið
hörðum höndum bæði hér heima
og hjá aðilum í Reykjavík. Ég
held að ég geti óhikað sagt að
þeir rnenn sem við ræddum við
syðra hafi 99% tekið vel í okkar
málaleitan. Því er ég bjartsýnn á
að viðunandi lausn finnist,“ segir
Sigurður Friðriksson. óþh
Ghmusamband Islunds hefur í vikunni kynnt glímu í grunnskólum á Akur-
eyri. Að lokinni kynningunni fór fram glímukeppni sem í tóku þátt bæði
istelpur og strákar. Stúlkurnar gáfu ekkert eftir og hér sjást þær Hildur
Gylfadóttir og Áshildur Valtýsdóttir glíma. Mynd: kl
Stefnir í gott ár hjá þurrkverksmiðjunni Laugafiski hf.:
„Fyrirtækið er stóriðja miðað
við íbúatölu í Reykdælahreppi“
- segir Lúðvík Haraldsson, framkvæmdastjóri
„Þessi rekstur hefur gengið vel
á þessu rúma ári sem liðið er
síðan Laugafiskur var stofnað.
Það sem af er þessu ári lofar
mjög góðu, við höfum verkað
hér um 2200 tonn blautum
hausum síðan um áramót og
við reiknum með að brúttó-
veltan í ár verði um 50 milljón-
ir króna,“ segir Lúðvík Haralds-
son, framkvæmdastjóri þurrk-
verksmiðjunnar Laugafisks hf.
á Laugum í Reykjadal.
Eigendur Laugafisks eru Fisk-
iðjusamlag Húsavíkur, Útgerðar-
félag Akureyringa, Kaldbakur á
Grenivík, Byggðasjóður og
Reykdælahreppur. Laugafiskur
var stofnað eftir gjaldþrot Stokk-
fisks hf. en í millitíðinni tók
Fiskiðjusamlag Húsavíkur rekst-
urinn á leigu. Húseignirnar
keypti Laugafiskur hf. af Byggða-
sjóði sem þær hafði eignast eftir
uppboð á Stokkfiski. Nokkur
fyrirtæki eru nú starfandi í hausa-
þurrkun hér á landi en Laugafisk-
ur er þeirra stærst.
Starfsmenn við Blönduvirkjun höfnuðu nýjum kjarasamningi:
„Mönnum þótti leiðrétting á
töxtum hreinlega ekki nog“
- segir Valdimar Guðmannsson, formaður Verkalýðsfélags A-Húnavatnssýslu
Starfsmenn á virkjunarsvæði
Blönduvirkjunar felldu
nýgerðan samning milli Lands-
virkjunar, Yinnuveitenda- og
Verktakasambandsins annars
vegar og hins vegar verkalýðs-
félaganna í Húnavatnssýslum
og á Suðurlandi, ASÍ, VMSÍ
og Landssambands rafiðnað-
armanna. Stjórn- og trúnaðar-
mannaráð verkalýðsfélags A-
Húnavatnssýslu fundaði um
atkvæðagreiðsluna í gærkvöldi
en formaður félagsins lagði til
fyrir fundinn að niðurstaða at-
kvæðagreiðslu starfsmanna
yrði staðfest og samningurinn
því felldur.
Allir starfsmenn á virkjunar-
svæði Blöndu greiða til Verka-
lýðsfélag A-Húnavatnssýslu,
óháð því í hvaða verkalýðsfélagi
þeir eru. Niðurstaða talningar-
innar var á þann veg að 76 voru á
móti, 48 samþykktu samninginn
en 3 skiluðu auðu. Strangt til tek-
ið hafa aðeins atkvæðisrétt um
samninginn þeir starfsmenn sem
eru í þeitn verkalýðsfélögum sem
aðild eiga að samningnum en
ákveðið var að allir starfsmenn
við Blönduvirkjun fengju að
greiða atkvæði.
„Það var ekkert eitt atriði sem
menn voru óánægðir með. Samn-
ingurinn er flókinn en í honum
náðist leiðrétting þannig að mun-
ur væri á taxta í byggð og taxta
við virkjanir. Þessi munur var hér
áður og á að verða en starfs-
mönnum þótti þessi leiðrétting
hreinlega ekki nægilega mikil.
Sumir eru auk heldur hræddir við
tveggja ára samning,“ sagði
Valdimar Guðmannsson, for-
maður Verkalýðsfélags A-Húna-
vatnssýslu.
Starfsmenn við Blönduvirkjun
eru stærsti hópur þeirra er nýja
samninginn varðar og jafnframt
þeir fyrstu sem um hann greiða
Fimm rúöur voru brotnar í
suðurhlið Iþróttahallarinnar á
Akureyri í fyrrinótt. Lögregl-
unni var tilkynnt um skemmd-
irnar í gærmorgun en ekki hef-
ur tekist að hafa hendur í hári
skemmdarvarganna enn.
í gær var ekið á kyrrstæðan bíl
á Akureyri. Atvikið átti sér stað í
atkvæði. Nú fer í hönd helgarfrí á
heiðinni en á mánudag verður
fundur með Verkalýðsfélagi
A-Hún. og trúnaðarmönnum
starfsmanna þar sem ákvörðun
verður tekin um næsta skref.
Draupnisgötu milli kl. 15 og 15.30
en um er að ræða bíl af gerðinni
Audi sem ber skráningarnúmerið
A-505 og er svartur að lit. Vinstri
framhurð bifreiðarinnar var
dælduð. Sá er skemmdunum olli
hefur ekki gefið sig fram og biður
rannsóknarlögreglan hugsanlega
sjónarvotta að gefa sig fram.
JÓH/EHB
„Öll okkar framleiðsla fer á
Nígeríumarkað. Við framleiðunt
fyrsta flokks vöru og höfunt unn-
ið okkur sess á markaðnum.
Ástæðan er fyrst og fremst sú að
þessi vara okkar er mjög jöfn að
gæðum,“ segir Lúðvík.
„Þetta fyrirtæki er stóriðja
miðað við íbúatölu í Reykdæla-
hreppi. Við teljum okkur vera að
komast á beinu brautina og fáum
við 2-3 góð ár í viðbót þá erurn
við á grænni grein."
Lúðvík segir að Laugafiskur
skili 13-15 ársstörfum. Mestir
toppar koma í vinnsluna síðari
hluta vetrar og yfir sumarmánuð-
ina. Hráefni til vinnslunnar kem-
ur fyrst og fremst frá eignaraðil-
unum. Þurrkaðir hausar eru
sendir á markað í Nígeríu viku-
lega og í flestum tilfellum skipað
út á Húsavík.
„Maður er auðvitað alltaf
hræddur um að lægð komi í
markaðinn í Nígeríu, líkt og
gerðist hér fyrr á árunt. Hér á
landi er verið að framleiða meira
af þessari vöru en selst og að auki
erum við að keppa við Norð-
menn á þessum markaði. En á
meðan markaðurinn er opinn þá
selur Laugafiskur, við yrðum þeir
síðustu sem yrðu að hætta og þeir
fyrstu sem kæmust inn aftur. Það
er ljóst.“ JÓH
JÓH
Akureyri:
Rúðubrot og ákeyrsla