Dagur - 17.11.1989, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 17. nóvember 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SIMFAX: 96-27639
Útfararstjórar
atviimulífsins
í nýjasta tölublaði tímaritsins Frjálsrar verslunar er m.a.
að finna athyglisverða grein um „atvinnuveg" sem
stendur með miklum blóma um þessar mundir, þ.e. starf
skiptaráðenda eða bústjóra þrotabúa. Greinin ber yfir-
skriftina „Útfararstjórar atvinnulífsins" og er það nafn
með rentu. í greininni er kastljósinu beint að þeim siða-
og lagareglum sem ríkja þegar gjaldþrot og búskipti eru
annars vegar. Af lestri greinarinnar er ljóst að gildandi
reglur um þau mál eru í senn óljósar og umdeilanlegar
og þegar á heildina er litið hvílir mikil leynd yfir flestu
því sem viðkemur þessum ört vaxandi „atvinnuvegi" á
íslandi. Tekjur skiptaráðenda geta í fyrsta lagi orðið
með ólíkindum háar og ekki í nokkru samræmi við það
sem tíðkast á vinnumarkaðinum almennt. í annan stað
vekur athygli að ísland er eitt fárra landa í heiminum
þar sem skiptastjórar fá greitt í hlutfalli við eignir
búsins, óháð því vinnuframlagi sem þeir inna af hendi!
í grein Frjálsrar verslunar er tekið dæmi af skipta-
stjórum í þrotabúi Hafskips hf. Þeir þrír lögfræðingar
sem hafa gegnt því starfi þáðu samtals 33 milljónir
króna í „þóknun" á 42ja mánaða tímabili. Á verðlagi
dagsins í dag jafngildir það um 50 milljónum króna. Með
öðrum orðum hefur hver þeirra verið með um 400 þús-
und krónur í „þóknun" á mánuði að meðaltali, vegna
vinnunnar við Hafskipsmálið, sem þó var einungis
hlutastarf! Þar fyrir utan voru þessir lögmenn með
almennar lögfræðiskrifstofur í fullum rekstri og þar með
fjölda viðskiptamanna og einnig nokkur búskipti til við-
bótar, m.a. nokkur af stærri gerðinni. Höfundur greinar-
innar treystir sér ekki til að reikna út mánaðartekjur
þessara manna en segir: „Hér er um ótrúlegar upphæðir
að ræða. Enginn véfengir hæfni þessara manna til að
annast flókið verkefni. En getur það samrýmst nútíma-
siðferði að við opinber skipti gjaldþrotabús séu lög-
mönnum í hlutastarfi tryggðar fimmfaldar tekjur
kennara, svo dæmi sé tekið? Hvaða rök liggja á bak við
slík launakjör Þessum spurningum er ekki svarað
í umræddri grein en ljóst er að almenningur hefði fullan
hug á fá svör við þeim.
í lok greinar Frjálsrar verslunar er bent á að fyrirtæki
og einstaklingar, að ógleymdu ríki og sveitarfélögum,
tapi milljörðum króna á ári hverju vegna gjaldþrota.
Drjúgur hluti kostnaðar sem af gjaldþrotum hljótist, sé
vegna hárrar þóknunar til lögmanna. Því megi spyrja
hvers vegna stjórnvöld hafi ekki sett strangari reglur
varðandi þessi mál. Sú spurning er löngu tímabær. Það
er full ástæða fyrir yfirmenn dómsmála í landinu að
kanna þær starfsreglur sem liggja til grundvallar slíkum
ofurtekjum. Kaup og kjör skiptaráðenda í Hafskipsmál-
inu eru ekkert einsdæmi meðal skiptaráðenda, þótt þau
séu e.t.v. í hærri kantinum. Kjör skiptaráðenda þrotabúa
eru þvert á móti nýjasta dæmið um það siðleysi sem hef-
ur verið að ryðja sér til rúms í íslensku athafnalífi hin
síðari ár. Stjómvöldum ber skylda til að láta málið til sín
taka og setja skýrar og afdráttarlausar reglur um laun
„útfararstjóranna". Þau verða að vera í einhverjum
tengslum við raunveruleikann, Það er þau ekki eins og
málum er nú háttað. BB.
Mynd: KL
Skálafell kynnir Skoda Favorit
Bílasýning verður á vegum
Skálafells sf. í Draupnisgötu 4 á
Akureyri, laugardaginn 18.
nóvember. Sýnd verður árgerð
1990 af Skoda Favorit, bíl sem
hefur hlotið miklar vinsældir,
jafnt nérlendis sem víða um
Evrópu. Á Norðurlöndunum er
það samdóma álit bílagagnrýn-
enda að með Skoda Favorit hafi
verið tekið stórt skref fram á við
í tæknilegu tilliti. Bíllinn þykir
bæði ódýr og góður, lipur í akstri
innanbæjar jafnt sem utan.
Nýlega sagði í dönsku bílablaði:
„Skoda Favorit var hannaður
með notagildi og sparaksturseig-
inleika í huga. Þetta tvennt hefur
tekist að sameina í litlum bíl, sem
er samt enginn smábíll.“ Sýning-
in verður opin frá kl. 13-17.
Afmæli Akureyrarkirkju
í dag 17. nóvember eru liðin 49
ár frá vígslu Akureyrarkirkju.
Afmælisins verður minnst næst-
komandi sunnudag. Um morgun-
inn verður barnasamkoma í
kirkjunni og kapellunni. Þær
stundir hafa verið ánægjulegar og
margir, bæði börn og fullorðnir,
tekið þátt í þeim. Klukkan 14
verður hátíðarguðsþjónusta með
fjölbreyttri tónlist. Kór Akureyr-
arkirkju syngur undir stjórn org-
anistans, Björns Steinars Sól-
bergssonar, Norman Denis leikur
á trompet og Waclaw Lazarz á
flautu. Kórinn mun m.a. syngja
nýja útsetningu Jóns Hlöðvers
Áskelssonar á sálminum Skapar-
inn stjarna. Þess er vænst að
mörg sóknarbörn leggi leið sína í
helgidóminn á þessum kirkjudegi
og sýni með því þakklæti sitt.
Eftir messu mun Kvenfélag
Akureyrarkirkju verða með
kaffisölu og basar að Hótel
KEA. Veitingar þeirra hafa ætíð
verið rómaðar og margir fallegir
Dröfn Friðfinnsdóttir opnar
myndlistarsýningu í Gamla
Lundi á Akureyri á laugardaginn
kl. 14. Á sýningunni eru í kring-
um 20 grafíkverk, tré- og dúkrist-
ur, sem Dröfn hefur unnið á
þessu ári.
Þetta er þriðja einkasýning
Drafnar en hún hefur einnig tek-
ið þátt í samsýningum.
Dröfn stundaði myndlistarnám
við Myndlista- og handíðaskól-
ann í Reykjavík á árinu 1962.
Árið 1982 hóf hún nám við
Myndlistaskólann á Akureyri og
lauk því árið 1986. Árin 1987 til
1988 var hún við nám í Lahti í
Finnlandi og síðan þá hefur hún
unnið að listsköpun á vinnustofu
sinni.
og gagnlegir munir verið á boð-
stólum. Fólk er hvatt til þess að
líta við hjá konunum og veita
þeim styrk í starfinu fyrir kirkj-
una okkar kæru.
Mikil er sú blessun, sem sókn-
arfólk hefir sótt til kirkjunnar
jafnt í gleði og sorg. Þakklæti sitt
hefir það sýnt á ýmsan hátt.
Kirkjuhúsið hefir verið fegrað og
búið hinum bestu munum. Lóðin
umhverfis kirkjuna vekur aðdá-
Kirkjukór Grundarkirkju í Eyja-
firði stendur fyrir fjölskyldu-
skemmtun til styrktar orgelsjóði
Sýningin í Gamla Lundi er
opin frá kl. 14-22 um helgar og
kl. 16-21 virka daga. Sýningunni
lýkur mánudaginn 27. nóvember.
Hið árlega Herrakvöld KA verð-
ur haldið laugardaginn 18.
nóvember í KA-heimilinu við
Dalbraut. Að venju verður þar
margt til skemmtunar sem ekki
má tíunda hér.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum verða skemmtiatriðin af
betra taginu; ræðumaður kvölds-
ins er þekktur fyrir annað en að
vera orðvar en hann er Jóhannes
un, safnaðarheimilið er nú svo
vel á veg komið, að hluti þess
verður tekinn í notkun á þessum
tímamótum. En mest er um það
vert, að tryggir kirkjuvinir sæki
kirkju sína á helgum stundum og
myndi lifandi söfnuð, sem lofar
Guð og þakkar honum gæsku
hans. Megi það verða afmælis-
gjöf til Akureyrarkirkju að hún
eignist sem flesta slíka.
Sóknarprestarnir.
kirkjunnar næstkomandi sunnu-
dag. Skemmtunin hefst kl. 14 í
Laugaborg.
Á skemmtuninni verður fjöl-
breytt dagskrá, m.a. söngur
kórsins, spurningakeppni, bingó
og flutningur gamanmáls. Loks
verða kaffiveitingar á boðstólum
og í lok skemmtunarinnar er ætl-
unin að hljómsveit leiki fyrir
dansi og gestir taki snúning þrátt
fyrir að á sunnudegi sé.
Orgelsjóði kirkjunnar barst á
dögunum höfðingleg gjöf þegar
Jón Hallgrímsson fyrrverandi
bóndi í Reykhúsum, og núver-
andi vistmaður á Kristnesi, færði
sjóðnum kr. 100 þúsund að gjöf.
Sigurjónsson ritstjóri á Húsavík.
Miðasala hefur verið í gangi í
vikunni en þó munu einhverjir
miðar vera eftir svo þeir sem ekki
hafa tilkynnt sig geta haft sam-
band við KA-heimilið og fest
kaup á miða. Skemmtunin hefst
kl. 19.30 með fordrykk en því
næst tekur við borðhald. Að því
loknu dagskrá, sem ekki má gera
opinbera, a.m.k. ekki konum!
Myndlist:
Dröfii Friðfinnsdóttir
sýnir í Gamla Lundi
Kirkjukór Grundarkirkju:
Fjölskylduskemmtun
tíí styrktar orgelsjóði
Herrakvöld KA