Dagur - 17.11.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 17. nóvember 1989
spurning vikunnar
Hvað finnst þér
skemmtilegast að gera?
Jósep Svanur Jóhannsson
kjötiðnaðarmaður:
Láta mér líða vel. Ég man nú
ekki eftir öðru í svipinn.
Rós Ingimarsdóttir
afgreiðslustúlka:
Borða góðan mat.
Stefán B. Jónsson nemi:
Spila körfubolta.
Magnús Sverrisson
kjötiðnaðarmaður:
Horfa á íþróttakappleiki og rifja
upp gömul prakkarastrik í góð-
um hópi.
Sveinn Anton Jensson nemi:
Vinna við tölvu.
Fræðslu- og kynningardagurinn fer fram í húsnæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri, í Amaró húsinu að Hafn-
arstræti 99. Mynd: kl
Heilsugæslustöðin
á Akurevri
- býður til kynningar- og fræðsludags
Á morgun laugardaginn 18.
nóvember ætlar starfsfólk
Heilsugæslustöðvarinnar á
Akureyri að bjóða til kynning-
ar- og fræðsludags á heilsu-
gæslustöðinni. Dagskráin byrj-
ar kl. 14.00 og stendur til kl.
17.00. Margt forvitnilegt verð-
ur á dagskránni sem miðast við
hinn almenna borgara og ættu
flestir að finna eitthvað við sitt
hæfi. Kynningin fer þannig
fram, að á öllum þremur hæð-
um stöðvarinnar í Amaróhús-
inu verður eitthvað um að
vera. Á þriðju hæð verður sýnt
myndband um forvarnir í heil-
brigðismálum á sama tíma og
fluttir verða fyrirlestrar um
krabbameinsleit, reykingar
kvenna, brjóstagjöf á Akur-
eyri, áhrif fjölskyldutengsla á
heilsuna og slysin og samfélag-
ið svo eitthvað sé nefnt á hin-
um hæðunum. Að Iokum verð-
ur gestum boðið upp á vöflu-
kaffí í kaffistofu staifsfólks.
í gær var byrjað að dreifa inn á
öll heimili sem tilheyra svæði
Heilsugæslustöðvarinnar á Akur-
eyri, nýjum bæklingi sem fjallar
um starfsemi stöðvarinnar. Bækl-
ingurinn er hugsaður sem upp-
flettirit sem finna á fastan stað á
heimilinu þegar á þarf að halda,
því hann hefur að geyma nytsam-
ar upplýsingar um alla þá þjón-
ustu sem veitt er á vegum HAK.
Þar er að finna símatíma heimilis-
lækna, símatíma einstakra
deilda, upplýsingar um hvernig
brugðist er við ef upp koma bráð
veikindi eða slys, um vaktþjón-
ustuna, heimahjúkrun og fleira.
Starfsfólki Heilsugæslustöðv-
arinnar á Akureyri er umhugað
um að íbúar á þjónustusvæðinu
séu vel að sér um starfsemina
sem þar fer fram. Þess vegna
m.a. býður það til þessa kynning-
ardags á morgun og hvetur alla
sem það geta að koma. Til þess að
forvitnast aöeins nánar um hvað
gestir fá að fræðast um var slegið
á þráðinn til nokkurra fyrirlesara
og þeir beðnir að gefa örlitlar
upplýsingar um hvað þeir ætla að
fjalla um.
5. HÆÐ
Stærsta heilsugæslustöðin
á landinu
Ingvar Þóroddsson er yfirlæknir
Heilsugæslustöðvarinnar á Akur-
eyri. A 5. hæð kl. 14.15-14.55
ætlar hann ásamt Konny K.
Kristjánsdóttur hjúkrunarfor-
stjóra að svara spurningunni:
„Hvað er heilsugæslustöð?“ „Ég
ætla að fjalla um hlutverk heilsu-
gæslustöðva út frá tveimur sjón-
arhornum. Annars vegar frá
sjónarhorni laganna, hins vegar
frá sjónarhorni neytandans,"
sagði Ingvar um erindi sitt. Um
síðara atriðið vísaði Ingvar í
bæklinginn nýja þar sem segir:
„Heilsugæslustöð er þjónustu-
stofnun fyrir íbúa viðkomandi
heilsugæslusvæðis. Þjónustan er
fólgin í heilsuverndar- og lækn-
ingastarfi, sem unnið er vegna
heilbrigðra og sjúkra, sem ekki
dveljast á sjúkrahúsum. Stofnun-
in sinnir samfelldri og alhliða
heilsbrigðisumsjá íbúanna, ann-
ast heilsuvernd og sjúkdómafor-
varnir, sinnir bráðum veikindatil-
fellum og útvegar íbúunum sér-
hæfða læknisþjónustu þegar þörf
er á.“
Heilsugæslustöðin á Akureyri
er langstærsta heilsugæslustöðin
á landinu og þjónar um 17 þús-
und íbúum í 12 sveitarfélögum.
Að meginhluta er stöðin staðsett
í Amaró-húsinu á Akureyri en
nokkur starfsemi er sömuleiðis
enn í Hafnarstræti 104 sem fljót-
lega mun flytjast og sameinast
hinni starfseminni. Þá hefur
HAK útibú á Grenivík.
Samræmdar slysavarnir
Þegar Ingvar hefur lokið erindi
sínu á 5. hæð, tekur Ólafur Hergill
Oddsson héraðslæknir við og
flytur hugleiðingar sínar um slys-
in og sveitarfélagið. „Ég mun
kynna hugmyndir um slysavarnir
heima í héraði til viðbótar og
uppfyllingar við slysavarnir á
landsgrundvelli. Rætt verður um
umferðarslys, heimaslys, vinnu-
staðaslys, sjóslys og yfirleitt öll
slys sem kunna að verða á svæði
heilsugæslustöðvar. Ég mun
skýra frá hugmyndum um sam-
ræmdar slysavamir í Heilsugæslu-
umdæminu og ég mun skýra frá
dæmum frá Svíþjóð þar sem slík-
ar tilraunir hafa gefist vel. Þetta á
fullt erindi til almennings og
verður ekki sett upp á flókinn
hátt. Fjallað verður um ýmis
öryggisatriði svo sem grindur á
eldavélar, borða sem hindra að
skápar falli fram yfir sig og palla
fyrir börn að stíga á til að ná upp
í t.d. vaska svo eitthvað sé
nefnt.“
Eftir hugleiðingar Ólafs mun
Valgerður Jónsdóttir deildar-
hjúkrunarfræðingur við heima-
hjúkrun kynna stuðningshóp við
aldraða og ættingja þeirra. Þar
verður örugglega á ferðinni fræð-
andi fyrirlestur.
4. HÆÐ
Konur í meiri hluta þeirra
sem leita til
fjölskylduráögjafa
Fjölskylduráðgjöf er tiltölulega
ný þjónusta sem boðið er uppá á
vegum Heilsugæslustöðvarinnar
á Akureyri. Ráðgjöfin tók form-
lega til starfa 1. september á síð-
asta ári. Þar fer fram fræðsla um
heilbrigð samskipti og forsendur
fyrir andlegri, félagslegri og
líkamlegri heilsu er stöðugt
áhersluatriði. Auk þessa er lögð
áhersla á beint fyrirbyggjandi
starf og aukna fjölskylduvernd
meðal annars með skipulegri
fræðslu fyrir verðandi foreldra
um mikilvægi fjölskyldunnar og
heilbrigðrar tengslamyndunar
við barnið frá upphafi. Þá er lögð
áhersla að samhæfa starfið við
aðra starfsemi stöðvarinnar og
situr fjölskylduráðgjafi reglulega
fundi með fulltrúum ungbarna-