Dagur - 17.11.1989, Síða 5
Föstudagur 17. nóvember 1989 - DAGUR - 5
-I
fréttir
Akureyri:
Gæðastjómunar-
félag stofnað
Ákveðið hefur verið að stofna
„gæðastjórnunarfélag“ á
Norðurlandi, og verður stofn-
fundurinn haldinn á Akureyri
á laugardag. Á fundinum verð-
ur Gæðastjómunarfélag íslands
kynnt, fjallað um gæðastjórn-
unarmál fyrirtækja og upp-
byggingu slíkrar stjórnunar.
Fundurinn verður settur í
Alþýðuhúsinu kl. 14.00. Á
dagskrá eru erindi, m.a. kynna
Halldór Jónsson og Gunnar H.
Guðmundsson Gæðastjórnunar-
félag íslands og Víglundur Þor-
steinsson ræðir um reynsluna af
gæðastjórnun hjá BM Vallá í
Reykjavík. Eftir flutning fram-
söguerinda verða umræður og
fyrirspurnum svarað.
Bréf hafa verið send til mörg
hundruð fyrirtækja vegna fundar-
ins. Ætlunin er að félagið sem
stofnað verður á Akureyri verði í
mjög nánum tengslum við Gæða-
stjórnunarfélag lslands, og hugs-
anlega deild í því félagi.
í lögum Gæðastjórnunarfélags
íslands segir svo í 3. grein, að til-
gangur félagsins sé að efla skiln-
ing á gildi gæðastjórnunar, efla
virkni og samvinnu fagmanna,
stjórnenda og almennra starfs-
manna, og að standa fyrir nám-
skeiðum, hópferðum og umræðu-
hópum.
Markmiðið með gæðastjórnun
í fyrirtækjum er m.a. að stuðla að
betri markaðsstöðu, framleiðni
og afkomu íslenskrar atvinnu-
starfsemi, auk þess sem félagið
beitir sér fyrir útbreiðslu og
kynnningu á þeim starfsaðferð-
um sem hér um ræðir.
Allir áhugamenn um gæða-
stjórnun eru velkomnir á
fundinn. EHB
Hilmar Ragnarsson, yfirverkfræðingur, Alexander Páisson, umdæmisverk-
fræðingur, Brandur Hermannsson, yfirtæknifræðingur, Bergur Halldórsson,
yfirverkfræðingur, Ársæli Magnússon, umdæmisstjóri, og Gísli J. Eyland,
stöðvarstjóri, kynntu stafrænu símstöðina hjá Pósti og síma á Akureyri í
gær. Mynd: KL
Póstur og sími afhjúpaði nýjungar í gær:
Stafrænar símstöðvar
á Akureyri og Dalvík
- bætt þjónusta og
möguleikar á sérþjónustu
í gær tók Póstur og sími í notk-
un tvær nýjar stafrænar sím-
stöðvar á Ákureyri og Dalvík.
Stöðin á Akureyri mun annast
sjálfvirka langlínuumferð á 96-
svæðinu og er auk þess móður-
stöð fyrir útstöðvar í Eyjafirði.
Jafnframt var tekin í notkun
fyrsta útstöðin, sem er á
Dalvík, og annast hún Dalvík,
Svarfaðardal, Árskógshrepp
og Hrísey.
Símnotendur á Dalvíkursvæð-
inu hafa reyndar notið þjónustu
stafræna símakerfisins í nær 11
mánuði með tengingu við Flakk-
arann, sem er flytjanleg símstöð.
Matvörumarkaðurinn á meðal fyrstu verslana
til að taka upp IBM 4684 sölukerfið:
Kerfið skapar meira öryggi
- minnkar einnig vinnuálag verslunarfólks
Fjölmargar matvöru- og sér-
vöruverslanir, eins og Mat-
vörumarkaðurinn á Akureyri,
Nóatún í Reykjavík og Kópa-
vogi, Grund í Grundarfirði,
Vöruval á ísafirði, Plúsmark-
aðirnir í Kópavogi, Hafnarfirði
og Reykjavík hafa fest kaup á
IBM 4684 sölukerfum og fleiri
verslanir fylgja í kjölfarið.
Sölukerfið sem hér um ræðir er
öflugt afgreiðslutæki sem felur í
Menn voru önnum kafnir við undirbúning opnunar Plús-markaðarins þegar
Kristján Logason, Ijósmyndari Dags, leit þar við í vikunni.
Matvörumarkaðurinn færir út kvíarnar:
Opnar Plús-markað
kl. 13 í dag
Ný matvöruverslun, Plús-mark-
aður, opnar kl. 13 í dag að
Fjölnisgötu 4b á Akureyri og
stendur Matvörumarkaðurinn
Kaupangi að honum. Plús-
markaður leggur áherslu á lágt
vöruverð og vörutegundir verða
að sama skapi færri, á bilinu 7-
800, en í Matvörumarkaðnum.
„Ég legg áherslu á að hafa
þarna á boðstólum sem mest af
vörum framleiddum á Akureyri.
Það veitir ekkert af því að halda
utan um fyrirtæki í bænum og
leitast þannig við að styrkja
þau,“ segir Hrafn Hrafnsson,
framkvæmdastjóri Matvöru-
markaðarins.
Hrafn segist ekki fara út í
rekstur Plús-markaðar nema því
aðeins að hann hafi trú á að rúm
sé fyrir hann á matvörumarkaðn-
um á Akureyri. Hann segist
reikna fastlega með að hluti
verslunar í Matvörumarkaðnum í
Kaupangi færist út í hinn nýja
Plús-markað. „Pessi verslun er
ekki endilega hugsuð sem hverf-|
isverslun fyrir dagleg innkaup
fólks í nágrenni hennar. Ég lít
svo á að fólk geri sér ferð í versl-
un sem þessa til að gera stórinn-
kaup.“
Matvörumarkaðurinn hefur
fest kaup á húsi númer 4b við
Fjölnisgötu. Hrafn segir að kaup
á húsinu hafi verið hagstæð og
leiguhúsnæði hefði verið dýrari
kostur.
Starfsmenn verða þrír í Plús-
markaðnum og þannig er unnt
halda þjónustu- og birgðakostn-
aði í lágmarki. Hann verður
opinn alla virka daga frá kl. 13 til
18.30 og á laugardögum frá 10-
14. óþh
sér margvíslega hagræðingu í
verslunarrekstri, skapar meira
öryggi og minnkar vinnuálag
verslunarfólks. Kerfið inniheldur
til að mynda öll reikningsvið-
skipti viðkomandi verslunar, hef-
ur að geyma aðgengilegt yfirlit
um sölu vara og birgðir auk þess
sem viðskiptavinurinn fær ná-
kvæman strimil með heiti og
verði alls þess sem keypt er.
Ljóst er að með notkun kerfisins
verður afgreiðslutími miðað við
hvern viðskiptavin mun skemmri
en verið hefur til þessa.
Verslanir sem greint er frá hér
að ofan munu taka strikamerkja-
lesara í notkun með IBM 4684
sölukerfinu. Strikamerkin, sem
eru nú á velflestum vörum skapa
öryggi og meiri hraða. Með
tölvuálestri geta bæði viðskipta-
vinurinn og verslunareigandinn
verið þess fullvissir að ekki sé um
rangan innslátt að ræða.
Sölukerfið byggir á strika-
merkingum og því verða allar
vörur viðkomandi verslunar að
vera strikamerktar. Verslanir
þurfa sjálfar að strikamerkja þær
vörur sem ekki eru það en það
hefur færst mjög í vöxt að
íslenskir framleiðendur strika-
merki sínar vörur.
IBM 4684 sölukerfið gerir
greiðslukortaviðskipti bæði þægi-
leg og einföld. Fyrirferðalítill
kortalesari les kortanúmerið af
segulrönd kortsins, skráir við-
skiptin á reikning kreditkortafyr-
irtækisins og síðan prentast út
kreditkortaseðill með öllum upp-
lýsingum og viðskiptavinurinn
kvittar til staðfestingar. Með
þessu sparast mikill tími og tryggt
er að allar upplýsingar séu réttar.
Þess má svo geta að kortalesarinn
hafnar vákortum.
Sú nýbreytni mun verða með
tilkomu IBM 4684 sölukerfisins,
að öll skráning er beintengd við
íslensk bókhaldsforrit, þannig að
sjálfvirkur flutningur er í fjár-
hags-, birgða- og viðskiptamanna-
bókhaldi fyrirtækjanna.
Tilgangur Pósts og síma með fær-
anlegri símstöð er fyrst og fremst
sá að losa húsnæði eldri stöðva
fyrir nýjar og komast þannig hjá
viðbótarbyggingum. Flakkarinn
verður nú fluttur til Blönduóss og
tengdur þar í byrjun næsta árs.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var í tilefni að nýju stafrænu
símstöðvunum kom fram að með
tengingu móðurstöðvar á Akur-
eyri opnast ný símaþjónusta fyrir
þá notendur sem bætast við og
tengjast stafrænu símstöðinni.
Hér er um sérþjónustu að ræða
sem Póstur og sími hefur auglýst
í notendahandbók, svo sem sím-
talsflutningur, viðmælandi
geymdur, þriggja manna tal og
margt fleira.
Fyrir símnotendur á Akureyri
og 96-svæðinu sem eru tengdir
eldri gerð símstöðva mun tenging
móðurstöðvarinnar leiða til hrað-
ari afgreiðslu og minni álags-
vandræða. Um 25% símnotenda
verða tengdir stafræna símakerf-
inu á þessum tímamótum í
umdæmi III, sem nær yfir
Norðurlandskjördæmi eystra og
vestra. SS
Hlifum
börnum
viö
tóbaksreyk!
LANDLÆKNIR
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 18. nóvember
Hljómsveitin
KVARTETT
leikur fyrir dansi
★
GLÆSILEGUR MATSEÐILL
Kristján Guðmundsson
leikur fyrir matargesti
Sunnudagsveisla á Súlnabergi
Spergilsúpa, moðsteikt nautainnralæri
og/eða bayonneskinka.
Þú velur meðlætið, salatið og sósurnar sjálfur og
endar þetta á glæsilegu desserthlaðborði.
Allt þetta fyrir aðeins kr. 890.00. Frítt fyrir börn 0-6 ára
Vi gjald fyrir börn 6-12 ára.
Ath! Veislan er bæði í hádegi og um kvöld.
ll
Hótel KEA
Borðapantanir i sima 22200
J