Dagur - 30.11.1989, Blaðsíða 1
Stéttarsamband bænda átelur ríkisstjórn vegna loðdýrasamþykktar:
Hlutur landbúnaðarráðherra
í þessu máJi er hörmulegur
- segir Hákon Sigurgrímsson, framkvæmdastjóri Stéttarsambandsins
„Þessi niðurstaða er botninn á
því sem menn höfðu áttu von
á. Landbúnaðarráðherra hefur
látið hrekja sig úr einu í annað.
Hans hlutur í þessu máli er
alveg hörmulegur,“ segir
Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda, um stuðningsaðgerðir
sem ríkisstjómin hefur sam-
þykkt við loðdýraræktina.
Hákon segir vinnubrögðin í
þessu máli mjög svo gagnrýn-
isverð. Hann segir ámælisvert að
með málið hafi verið verslað milli
Alþýðuflokksins og Alþýðu-
bandalagsins. „Við teljum að
þingið hefði átt að fjalla um til-
lögur þingmannanefndarinnar og
þannig hefðu þær fengið lýð-
Fyrstu fregnir af loðnuleit Hafrannsóknar-
stofnunar segja útlitið dökkt:
„Trúi ekki að þetta
komi frá fiskifræðingum“
- segir Ástráður Ingvarsson hjá loðnunefnd
„Ég trúi ekki að þetta komi frá
fiskifræðingum. Hingað hafa
margir hringt í dag og lýst
furðu sinni á þessari frétt.
Enda finnst mér lítil fræði þó
þeir hafi verið búnir að vera 5
vikur á sjó að hægt sé að segja
að stofninn sé hraninn eða ekki.
Ég trúi þessu ekki og held mig
áfram við að kraftur fer í veið-
arnar um helgina þrátt fyrir all-
ar svartar eða gráar skýrslur,“
sagði Ástráður Ingvarsson
starfsmaður loðnunefndar í
gær.
ness og sömuleiðis landaði Þórð-
ur Jónasson EA 450 tonnum
síðla dags í gær. JÓH
ræðislega umfjöllun," segir
Hákon.
í yfirlýsingu frá Stéttarsam-
bandi bænda í gær segir að
aðgerðir sem ríkisstjórnin hafi
samþykkt um stuðning við loð-
dýraræktina séu með öllu ófull-
nægjandi og hreinlega ákvörðun
um að leggja hana niður. Á það
er bent að hrun loðdýraræktar-
innar sé ekki einasta mikið áfall
fyrir landbúnaðinn heldur fyrir
atvinnulíf landsmanna í heild og
veruleg hætta sé á að það eigi eft-
ir að draga kjarkinn úr þeim sem
reyni að fitja upp á nýjungum í
atvinnulífinu.
„Stéttarsambandið minnir enn
fremur á að hundruð fjölskyldna
í landinu munu verða fyrir gífur-
legu fjárhagslegu og félagslegu
áfalli vegna þessarar ákvörðunar
ríkisstjórnarinnar og krefst þess
að þessu fólki verði með ein-
hverjum hætti komið til aðstoð-
ar,“ segir orðrétt í lok yfirlýsing-
ar Stéttarsambands bænda. óþh
Guðað á lærdómsglugga.
Mynd: KL
Guðmundur G. Pórarinsson, alþingismaður,
sem sæti á í ráðgjafarnefnd um orkufrekan iðnað:
EyjaQörður er besti kosturinn
fynr 185 þús. tonna álbræðslu
tel ekki heppilegt að byggja sjálfstæða álbræðslu í Straumsvík
Mikill fjöldi fólks hafði sam-
band við loðnunefnd í gær í kjöl-
far fréttar RÚV um mjög lítinn
árangur af loðnuleitarleiðöngrum
rannsóknaskip Hafrannsókna-
stofnunar. 'Astráður segir að
almennt hafi fólk verið mjög
slegið yfir tíðindunum en margir
efast um sannleiksgildið.
í fyrrinótt var veiðin lítil enda
fór veður versnandi á loðnumið-
unum. Nokkrir bátar fóru inn í
gær með frá 150-800 tonna afla.
Þórshamar tilkynnti fullfermi og
landaði á Þórshöfn. Súlan fór
með 640 tonn í fyrrinótt til Krossa-
Stjórnarandstöðuflokkarnir á
Alþingi; Sjálfstæðisflokkur,
Kvennalisti og Frjálslyndir
hægri menn, lögðu í gær á
Alþingi fram vantrauststillögu
á ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar. Farið er fram á
þingrof og nýjar kosningar.
Sameinað þing kemur því sam-
an í kvöld vegna afgreiðslu
málsins. Þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins héldu uppi miklum
fyrirspurnum utan dagskrár á
Guðmundur G. Þórarinsson,
alþingismaður og einn nefnd-
armanna í ráðgjafarnefnd um
orkufrekan iðnað, telur að ef
ákvörðun verði tekin um bygg-
ingu sjálfstæðrar 185 þúsund
tonna álbræðslu eigi að stað-
setja hana utan suðvestur-
hornsins. Hann segir þá ekki
nema tvo staði koma til greina,
Eyjafjörð eða Grundartanga.
„Það er auðvitað hlutverk
þingmanna að horfa á hagsmuni
þjóðarinnar í heild og mér virðist
þingi í gær, og kröfðust svara viö
því hvernig umboð utanríkisráð-
herra hefði til könnunarviðvið-
ræðna við EFTA og Evrópu-
bandalagið, en ráðherrann held-
ur utan í dag. Kröfðust þeir þess
að utanríkismáladeild þingsins
kæmi saman til fundar vegna
málsins.
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, sagði í gær að
stjórnarandstaðan væri að reyna
að slá sjálfa sig til riddara með
þessum tillöguflutningi. „Þetta
að ef ákveðið verður að byggja
sjálfstætt álver sem verður ekki í
neinni samvinnu við ÍSAL þá tel
ég ákaflega freistandi að færa þau
atvinnutækifæri út um land. í því
sambandi tel ég að Eyjafjarðar-
svæðið komi helst til greina. Ef
við gerum ráð fyrir að í slíku
álveri vinni á bilinu 7-800 manns
er ljóst að í næsta nágrenni þarf
að vera 10-15 þúsund manna bær
eða sveitarfélag. Ég tel því að
beri að ræða við hugsanlega aðila
að sjálfstæðu álveri um að stað-
kemur til af því að afgreiðsla
sumra mála hefur tekið lengri
tíma en æskilegt hefði verið. En
það er enginn brestur í stjórnar-
samstarfinu, menn hafa lagt sig
fram um að finna leiðir til sam-
komulags og ég óttast ekki að
það sé langt undan.
Þetta upphlaup stjórnarand-
stöðunnar er í beinu framhaldi af
því hvernig hún er búin að láta í
allt haust, þingmenn hennar hafa
reynt að skapa ágreining og blása
setja það utan Straumsvíkur-
svæðisins," segir Guðmundur.
Hann sagði að staðsetning
sjálfstæðrar álbræðslu utan suð-
vesturhornsins hafi verið rædd
lítillega við forsvarsmenn hol-
lenska fyrirtækis Hoogoven
Aluminium en hugmyndin hafi
ekki borið á góma í viðræðum við
sænska aðilann Graangers.
„Fyrstu viðbrögð Holllending-
anna voru þau að þeir hefðu mið-
að allar sínar áætlanir við
Straumsvík. Hins vegar má segja
upp mál sem enginn grundvallar-
ágreiningur er um.
Stjórnarandstaðan, aðallega
Sjálstæðisflokkurinn, hefur lagt
fram óraunhæfar tillögur um
lægri skattekjur ríkisins án þess
að vilja benda á neinar leiðir til
niðurskurðar á móti. Hugmyndir
þeirra varðandi EFTA og EB
viðræðurnar eru einnig óraun-
hæfar, því utanríkisráðherra hef-
ur unnið í samræmi við vilja allra
stjórnarflokkanna,“ segir Guð-
mundur Bjarnason. EHB
að staðsetning álbræðslu skipti þá
ekki höfuðmáli. Aðalatriðið er
stofnkostnaðurinn. “
Á þessari stundu liggur ekki
fyrir ákvörðun um byggingu sjálf-
stæðrar álbræðslu hér á landi. Að
öllum líkindum skýrast málin á
fundi forráðamanna tveggja
áðurgreindra fyrirtækja með
forsvarsmönnum Alusuisse í
Zurich í byrjun desember. Guð-
mundur segir að tónninn í
sænsku og hollensku aðilunum sé
ótvírætt sá að þeir hafi fullan hug
á byggingu sjálfstæðrar álbræðslu
hér á landi. Hins vegar sé spurn-
ing hvað Alusuisse-menn geri.
„Tveir aðilar hafa ekki fjárhags-
legt bolmagn til þess að ráðast í
byggingu 185 þúsund tonna
álbræðslu. Ef Álusuisse fellst
ekki á að fara í sjálfstætt álver
þarf að fá einn eða tvo aðila með
Hollendingunum og Svíunum því
hér er um að ræða 40-50 millj-
arða fjárfestingu. Lauslegar við-
ræður hafa verið við aðra aðila að
undanförnu og það er ekki úti-
lokað að innan tíðar liggi fyrir
samþykki nokkurra þeirra að
taka þátt í fjármögnun sjálfstæðr-
ar álbræðslu ef Alusuisse vill ekki
taka þátt í henni. Ef hins vegar
Alusuisse ákveður að vera með
eru yfirgnæfandi líkur á að nýtt
álver verði staðsett í Straums-
vík,“ segir Guðmundur G. Þór-
arinsson. óþh
Vantrauststillaga flutt á ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar:
Engíim brestur í stjómarsamstarfinu
- segir Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra