Dagur - 30.11.1989, Síða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 30. nóvember 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÚLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Málaimðlun, sem leiðir
til Qöldagj aldþrots
Á ríkisstjórnarfundi í fyrradag voru samþykktar til-
lögur Steingríms J. Sigfússonar, landbúnaðarráð-
herra, um opinberan stuðning við loðdýraræktina í
landinu. Þessar tillögur eru niðurstaða viðræðna
ráðherra við forystumenn Alþýðuflokksins, sem
lýst höfðu sig ancivíga hugmynd þingmannanefnd-
ar um hvernig taka bæri á þessu máli. Niðurstaða
ríkisstjórnarinnar ber það með sér að um málamiðl-
un er að ræða. Stuðningurinn sem í tillögunum felst
er í raun hvorki fugl né fiskur. í tillögunum er gert
ráð fyrir að fela Byggðastofnun að greiða 25 millj-
óna króna jöfnunargjald á loðdýrafóður á næsta ári.
Loðdýrabændur verða að sækja um að fá jöfnunar-
gjaldið greitt og verður það sérstaklega metið
hverjir fá og hverjir ekki. Þá var samþykkt að heim-
ila landbúnaðarráðherra að leggja fram frumvarp
um allt að 280 milljóna króna ríkisábyrgð vegna
skuldbreytinga lausaskulda loðdýrabænda.
Það segir sig sjálft að þessar aðgerðir duga
skammt til að koma atvinnugreininni til bjargar.
Ljóst er að lausaskuldir loðdýrabænda nema um
700 milljónum króna nú þegar og 280 milljóna króna
skuldbreytingarheimild nægir engan veginn. Sama
gildir um jöfnunargjald það sem samþykkt var að
greiða á loðdýrafóður. Einar E. Gíslason, formaður
Sambands íslenskra loðdýraræktenda, hefur sagt
að samþykkt ríkisstjórnarinnar sé mikið reiðarslag
fyrir loðdýrabændur og hafi í för með sér að um 160
bændur verði að hætta búrekstri og verði jafnvel
gj&ldþrota. Það eru um 80% þeirra sem greinina
stunda í dag. í Degi í gær var haft eftir Símoni
Ellertssyni, framkvæmdastjóra Fóðurstöðvarinnar
á Dalvík, að ef ofangreindar tillögur ríkisstjórnar-
innar yrðu staðfestar á Alþingi, lægi fyrir að loð-
dýrarækt og vinna kringum hana á Dalvík og í Svarf-
aðardal legðist niður. „Þau störf sem þar með yrðu
lögð niður svara til þess að 200 atvinnubærra
manna á Akureyri misstu atvinnuna, “ sagði Símon
ennfremur.
Ummæli þessara tveggja manna lýsa vel alvöru
málsins. Þær vonir sem bundnar voru við björgun-
araðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar hafa að veru-
legu leyti brugðist. Það er rétt mat hjá fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra loðdýrarrækt-
enda að gangi stjórnvöld ekki lengra í aðstoð sinni
við loðdýraræktina, mun það þýða fjöldagjaldþrot í
greininni. Hrun loðdýraræktarinnar yrði gífurlegt
áfall fyrir atvinnulíf í sveitum landsins, svo ekki sé
minnst á þann mannlega harmleik sem gjaldþrot
flestra loðdýrabænda og fjölskyldna þeirra yrði.
í ljósi þessa ber Alþingi skylda til að íhuga málið
betur og leita nýrra leiða til að koma atvinnugrein-
inni til bjargar. Samþykkt ríkisstjórnarinnar ber það
sem fyrr segir með sér að um málamiðlun er að
ræða. Því verður ekki trúað að óreyndu að meirihluti
sér fyrir því á Alþingi að þorri loðdýrabænda verði
hreinlega „gerður upp“. í það stefnir að óbreyttu.
BB
Jóhannes Geir Sigurgeirsson:
Skattamál á vflligötum
Nú fer fram mikil umræða um
álagningu virðisaukaskatts sem á
að taka gildi um næstu ármót.
í þeirri umræðu er tekist á um
hvaða form eigi að vera á skattin-
um. Hvort leggja eigi á eitt þrep
- líklegast 26% - og endurgreiða
hann síðan að hálfu á nokkrar
algengar matvörur eða hann
verði strax í upphafi í tveim
þrepum.
Nú síðast hafa Alþýðuflokks-
menn ályktað sem svo að stofn-
anir samstarfsflokkanna hafi
lagst gegn því samkomulagi sem
gert var við stjórnarskiptin í
haust, sem byggðist á einu þrepi
og endurgreiðslum. Þetta er
rangt, miðstjórn Framsóknar-
flokksins hefur ályktað að staðið
skyldi við samkomulagið, en um
leið, við nánari skoðun, komist
að raun um að lægri skattlagning
á matvæli verði aldrei varin öðru-
vísi en með tveggja þrepa skatti
og skattinum breytt í það korf
fyrir árslok 1990.
Við álagningu söluskatts á öll
matvæli fyrir tveimur árum var
því lofað að hann ætti ekki að
hækka matarverð, hann væri ein-
ungis lagður á til þess að tryggja
öruggari innheimtu og yrði
endurgreiddur á helstu matvæli.
í gögnum frá hagdeild fjár-
málaráðuneytisins kemur hins
vegar fram að ef endurgreiðslum
á virðisaukaskatti, sem eru í
frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta
ár, ,yrði jafnað út á öll matvæii
þýddi það í raun að lægra þrep
yrði 23% á móti 26% í almennu
þrepi.
Þetta sýnir svart á hvítu hver
þróunin hefur verið síðustu tvö
árin. Jafnframt sýnir þetta að
eina raunhæfa leiðin til þess að
verja matvörur fyrir því að þró-
unin verði í þá átt að þær beri all-
ar með tímanum virðisaukaskatt
af fullum þunga er að þar verði
tvö þrep á lokastigi.
Þessar upplýsingar draga einn-
ig fram svo ekki verður um villst
þá þróun sem hefur átt sér stað
undanfarin ár. Skattlagningin
hefur verið að færast frá aðflutn-
ingsgjöldum á vörum, sem marg-
ar hverjar verða að teljast til lúx-
usvarnings, og á almennar
neysluvörur.
Þessa þróun verður að stöðva.
Fyrsta aðgerð í þá átt ætti að vera
sú að nú við afgreiðslu á breyt-
ingum á lögum um virðisauka-
skatt verði samið um að fyrir lok
næsta árs verði komið á lægra
þrepi sem næði til innlendrar
búvöru, grænmetis og fisks. í
framhaldi af því verði leitað leiða
til þess að færa skattlagninguna
enn frekar af matvöru, sem vegur
þyngst í útgjöldum þeirra sem
minnst mega sín, og til þeirra
sem meiru hafa úr að spila.
Það er mikil hundalógik hjá
krötum að halda því fram að við
sem viljum tvö þrep á virðisauka-
skattinn höldum því fram að það
tryggi meiri lækkun matarverðs
en endurgreislur, á þeim tíma
þegar skatturinn verður lagður á.
Því hefur enginn haldið fram.
Tvö þrep eru hins vegar eins og
hér hefur verið sýnt fram á með
því að vísa í reynsluna af sölu-
skattinum, eina leiðin til þess að
draga trygga varnarlínu gegn því
að skatturinn leggist á skömmum
tíma með fullum þunga á allan
mat.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Höfundur cr þingmaöur fyrir Framsóknar-
flokkinn í Noröurlandskjördæmi eystra.
Móðir og barn:
Ný hjálparsamtök opna
Ivrstu íbúö sína
Hjálparsamtökin Móðir og barn
hafa nýlega hafið starfsemi sína.
Tilgangur samtakanna er að
vinna á félagslegan hátt að vel-
ferð barnshafandi kvenna, ein-
stæðra mæðra og barna þeirra,
fyrst og fremst með húsnæðisað-
stoð. Samtökin starfa sem sjálfs-
eignarstofnun samkvæmt skipu-
lagsskrá, sem staðfest hefur verið
af forseta íslands og með stjórn-
arráðsbréfi. í stjórn Móður og
barns eiga sæti sex manns, þrjár
konur og þrír karlar.
Undirbúningsstarf vegna stofn-
unar þessarar hefur staðið yfir
alllengi; hefur m.a. verið rætt við
aðila í húsnæðis- og félagsmála-
kerfinu, opinbera aðila og félaga-
samtök, auk þess sem leitað hef-
ur verið til fyrirtækja og einstakl-
inga um fjárstuðning. Samtökin
hafa látið gera merki fyrir Móður
og barn, og hefur María Mar-
geirsdóttir hannað það. Mynd af
merkinu fylgir hér með.
Það er markmið samtakanna,
þegar til lengri tíma er litið, að
koma á fót mæðraheimili í eigin
húsnæði, enda er þörfin fyrir slíkt
heimili augljós og knýjandi. Skv.
könnunum er ótryggt húsnæði og
há leigugjöld stærsta vandamál
einstæðra foreldra. Á síðustu
áratugum hefur einstæðum
mæðrum fjölgað mjög, og þrátt
fyrir viðleitni stjórnvalda til að
bæta úr kjörum þeirra er sívax-
andi sá hópur, sem á í húsnæðis-
erfiðleikum, ekki síst nú á tímum
samdráttar og minnkandi at-
vinnu.
í byrjun hefur verið ákveðið,
að starfsemi Móður og barns
verði í leiguhúsnæði, og koma þá
bæði einstaklingsíbúðir og sam-
býli til greina. Fyrsta íbúðin var
tekin á leigu um síðustu mánaða-
mót, og hefur fyrsti skjólstæðing-
ur samtakanna fengið það hús-
næði. Unnið verður að því á
næstunni að fá fleiri íbúðir á leigu
á sanngjörnum kjörum. Allt starf
samtakanna er unnið í sjálfboða-
vinnu.
Það er trú þeirra, sem að þess-
ari stofnun standa, að unnt sé að
aðstoða fjölmargar ungar mæð-
ur, sem eiga í húsnæðiserfiðleik-
um eða horfa fram á erfiða tíma
við að framfleyta sér og börnum
sínurn. Með starfi Móður og
barns verður skjólstæðingum
tryggður öruggur samastaður og
unnið gegn því, að hinar smæstu
og viðkvæmustu fjölskylduein-
ingar tvístrist. Stofnunin mun
greiða niður að verulegu leyti
leigu á íbúðum og liðsinna við-
komandi mæðrum á margvísleg-
an hátt, m.a. með ráðgjöf og
aðstoð varðandi atvinnumál,
félagsleg réttindi o.fl.
Stjórn Móður og barns mun á
næstunni leita til almennings og
stjórnvalda um stuðning við þetta
málefni. Áheit og gjafir til stofn-
unarinnar eru skattfrjáls.
Aðalfundur Hjarta- og æðaverndarfélags Akureyrar og
nágrennis hefst kl. 17.30 í kvöld:
Fræðsluftmdur á vegum félagsins og
Háskólans haldinn að loknum aðaiftmdi
Aðalfundur Hjarta- og æða-
verndarfélags Akureyrar og
nágrennis verður haldinn í
Háskólanum á Akureyri v/
Þingvallarstræti, í dag fímmtu-
daginn 30. nóvember og hefst
kl. 17.30 í stofu 16. Á fundin-
um fara fram venjuleg aðal-
fundarstörf og lagabreytingar
og vill stjórn félagsins hvetja
alla félaga til þess að mæta vel
og tímanlega.
Að loknum aðalfundi verður
haldinn fræðslufundur á vegum
félagsins og Háskólans á Akur-
eyri og er fundarefnið; næringar-
kvillar í velferðarsamfélagi. Dr.
Inga Þórsdóttir flytur erindi en
að því loknu verða umræður og
fyrirspurnir. Fræðslufundurinn
sem hefst kl. 20 í stofu 24, er öll-
um opinn og vill stjórn félagsins
hvetja almenning til þess að
mæta á hann.
Hjarta- og æðaverndarfélag
Akureyrar og nágrennis hefur
haldið fræðslufundi á Dalvík og í
Ólafsfirði á þessu ári, þar sem
fjallað var um áhættuþætti
hjarta- og æðasjúkdóma.
Aðal baráttumál félagsins er
að koma á fót endurhæfingu fyrir
hjartasjúklinga en félagið hefur á
undanförnum árum gefið tæki á
lyfjadeild FSA, nú síðast full-
komna trampmyllu, sem er þrek-
prófunartæki. Hjarta- og æða-
sjúkdómar verða mörgum að
aldurtila og vill stjórn félagsins
því sinna fyrirbyggjandi þáttum í
baráttunni gegn þessum sjúk-
dómum.
Formaður Hjarta- og æða-
verndarfélags Akureyrar og ná-
grennis er Gunnlaugur Jóhanns-
son. -KK