Dagur - 30.11.1989, Side 5
Fimmtudagur 30. nóvember 1989 - DAGUR - 5
Gunnar segir sölu á barna- og unglingabókum hafa minnkað mikið,
Bókaforlag Odds Björnssonar:
Erum nokkuð formfastir í útgáfunni
„Það eru engin jól án bóka,“
eru slagorð bókaútgefenda en
nú er kominn sá tími ársins
þegar á markaðinn streyma
tugir, ef ekki hundruð nýrra
bóka af öllum stærðum og
gerðum. Á Akureyri er starf-
andi Bókaforlag Odds Björns-
sonar en á þeirra vegum eru nú
gefnar út sjö nýjar bækur.
Fyrst ber að nefna Ættbók og
sögu íslenska hestsins 5. bindi
eftir Gunnar Bjarnason, ástar- og
spennusöguna Sandkorn tímans
eftir Sidney Sheldon, Bláa voga
eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur
sem nú er ein vinsælasta skáld-
kona landsins. Þá gefur forlagið
Mígrensamtökin
gefa út bók:
Mígrenbyltingin -
meðferð án lyfla
Mígrensamtökin hafa gefið út
bókina „Mígrenbyltingin -
meðferð án lyfja“. Höfundur
bókarinnar, breski læknirinn dr.
John Mansfield, gengur út frá því
að mígren sé í 80-95% tilfella
fæðuofnæmi. Þessi vistfræðilega
nálgun við sjúkdóminn, sem oft-
ast hefur verið afgreiddur sem
móðursýki, er algjör bylting.
Höfundi verður tíðrætt um
sveppasýkingu í þörmum (candida
albicans) og þau áhrif sem rétt
mataræði hefur á heilsufar fólks,
ekki síst mígrensjúklinga. Til-
gangurinn með útgáfu bókarinn-
ar er að hjálpa sjúklingum við að
skilja sjúkdóminn og læra að
umgangast hann þannig að hann
valdi minni skaða en áður.
Árni Benediktsson þýddi bók-
ina. Hún fæst í bóksölum, heilsu-
verslunum og á skrifstofu Mígren-
samtakanna að Borgartúni 27 (í
bakhúsi). Skrifstofan er opin frá
13-15 á þriðjudögum og síminn
er 623620.
segir Gunnar Þórsson
út Grallaraspóar og gott fólk eftir
Guðjón Sveinsson. Hér er á ferð-
ini sex smásögur um lífið í sveit-
inni og þau ævintýri sem börn á
aldrinum 10-14 ára upplifa þar.
Ný saga um Depil hefur nú litið
dagsins ljós og heitir hún Litla
systir Depils og rammíslensk
ævintýrabók sem heitir Maríu-
hænan, gestur í garðinum eftir
Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur.
Að lokum gefur Bókaforlag
Odds Björnssonar út ljóðabók
eftir Braga Sigurjónsson sem
hann nefnir Einmæli. Er þetta
níunda ljóðabók Braga.
Að sögn Gunnars Þórssonar
hjá Bókaforlagi Odds Björnsson-
ar eru hér á ferðinni álíka margar
bækur frá forlaginu og venjulega.
Hann segir bókina alltaf jafn vin-
sæla jólagjöf þó hún hafi þurft að
keppa við myndbandavæðinguna
og aðra afþreyingu undanfarin ár.
„Það er alveg ljóst að áður en
þessir fjölmiðlar komu til sög-
unnar var selt mun meira af bók-
um en nú er gert. Aðspurður um
hvort gefnar væru út öðruvísi
bækur fyrir vikið sagði hann svo
ekki vera. „Við höfum verið
nokkuð formfastir í þessari
útgáfu okkar og þegar ekki eru
gefnar út fleiri bækur en þetta
eru ekki miklar sveiflur í útgáf-
unni.“
Bókaforlagið gefur árlega út
bækur eftir þekkta rithöfunda
eins og Sidney Sheldon og Ingi-
björgu Sigurðardóttur, en Gunn-
ar segir að nú séu þeir eiginlega
alveg hættir að gefa út barna- og
unglingabækur. „Salan hefur
minnkað svo mikið og það er eins
og fólki finnist sjálfsagt að greiða
minna fyrir þessar bækur en aðr-
ar þó það kosti jafn mikið að gefa
þær út og hinar.“
Akureyringar - Nágrannar
Höfum opnað
salatbar, ávaxta-
og grænmetistorg
Gæði og glæsileiki í fyrinúmi
Verið velkomin
HAGKAUP
Akureyri
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Vistheimilið Sólborg óskar eftir
einstaklingsíbúð
eða herbergi
með aðgangi að eldhúsi fyrir sjúkraþjálfara
heimilisins.
Upplýsingar í síma 21755 frá kl. 09.00-16.00 og í
síma 25928 eftir kl. 16.00.
Laufabrauð * Laufabrauð
Erum farin að taka niður pantanir
í kjörbúðum KEA og Brauðgerð KEA,
í okkar vinsæla laufabrauð.
Verslið
þar sem
úrvalið
er mest
M.H. Lyngdal,
Hafnarstræti, sími 23399
Sunnuhlíð, sími 26399.
saiíyo
vörukynning
Föstudag kl. 14.00-19.00
Laugardag kl. 10.00-14.00
Japönsk hágæðavara á góðu verði
14" - 20" - 25" og 33" sjónvörp, venjuleg, stafræn og Svhs,
Hi-Fí stereo, myndbönd, örbylgjuofnar, ferðatæki, bíltæki o.fl. o.fl.
AKURVÍK
ÍS HF. - GLERÁRGÖTU 20 - AKUREYRI - SÍMI 22233