Dagur - 30.11.1989, Qupperneq 9
Fimmtudagur 30. nóvember 1989 - DAGUR - 9
Almanak Þroska-
hjálpar komið út
Zontakonur selja hurðakransa
í dag munu konur í Zontaklúbbnum Pórunn hyrna hefja sölu á hurðakrönsum í göngugötunni á Akureyri.
Hér er um að ræða kransa til að hengja á hurðir um jólin og hafa konurnar unnið kransana sjálfar. Krans-
arnir verða seldir í göngugötunni í dag, á morgun föstudag og á laugardag.
bœkur
Sprek úr flöru
Bókaútgáfan Hildur hefur sent
frá sér bókina Sprek úr fjöru eftir
Jón Kr. Guðmundsson á Skálds-
stöðum.
Sprek úr fjöru er fyrsta bók
höfundar, sem um langt skeið
hefur stundað fræðistörf varð-
andi ættfræði og þjóðlegan fróð-
leik, jafnfram landbúnaðarstörf-
um.
í .þessari bók eru ellefu frá-
söguþættir um margslungin örlög
genginna kynslóða einkum úr
byggðum Breiðafjarðar innan-
verðum. Bókin er 96 blaðsíður
að stærð.
Sumarið
fyrir inyrkur
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér skáldsöguna Sumarið fyrir
myrkur eftir Doris Lessing.
Helga Guðmundsdóttir þýddi.
Sagan segir frá Kate Brown
sem er hálffimmtug læknisfrú og
fjögurra barna móðir. í tvo ára-
tugi hefur hún dyggilega sinnt
hlutverki móður og eiginkonu,
en þá rennur upp sumar sem býð-
ur upp á annars konar ábyrgð og
óvænt ævintýri. Kate segir skilið
við gamalgróið hlutverk, gömlu
fötin sín og frúargreiðsluna og
leggur af stað í leit að frelsi. En
hvar er frelsið að finna?
I kynningu Forlagsins segir
m.a.: „Sumarið fyrir myrkur
hlaut frábæra dóma gagnrýnenda
þegar hún kom fyrst út, árið
1973. Doris Lessing á stóran les-
endahóp meðal Islendinga og
með sanni má segja að Sumarið
fyrir myrkur sameini marga bestu
kosti skáldkonunnar."
Sumarið fyrir myrkur er 275
bls. og er gefin út bæði í bandi og
sem kilja. Ragnheiður Kristjáns-
dóttir hannaði kápu.
Syngjum dátt
og dönsum
sem um jól
Skjaldborg hefur sent frá sér
bókina Syngjum dátt og dönsum
sem um jól, eftir Maya Angelou.
Maya Angelou er fædd árið
1928 í St. Louis, Missouri. Eftir
skilnað foreldra sinna fór hún og
bróðir hennar sem hún dáði
umfram alla aðra í fóstur til
ömmu þeirra, eiganda sveita-
verslunar sem var miðdepill lífs-
ins í svertingjahverfinu í Stamps,
Arkansas. Átta ára gamalli var
Mayu nauðgað af sambýlismanni
móður hennar, og næstu fimm
árin var hún mállaus. Þegar þau
systkinin voru komin á tánings-
aldurinn fluttust þau til móður
sinnar í Kaliforníu og inn í veröld
sem var skörp og eftirminnileg
andstæða tilverunnar í Stamps.
Þegar Maya var sextán ára og
hafði nýlokið grunnskólanámi
eignaðist hún son sinn, Guy.
Næstu árin var hún frammi-
stöðustúlka, söngvari, leikkona,
dansmær, baráttukona fyrir mál-
stað svertingja, ritstjóri og
móðir. Hún hefur eins og hún
sjálf segir, „lifað rússíbana-
lífi . . .“
KRISTfN STÐNSDÓTTtR
♦*
Stjörnur og
strákapör
- eftir Kristínu
Steinsdóttur
Vaka-Helgafell hefur gefið út
bókina Stjörnur og strákapör eft-
ir Kristínu Steinsdóttur. Bókin er
sjálfstætt framhald bókanna
Franskbrauð með sultu og Fallin
spýta, en fyrir þá fyrrnefndu fékk
Kristín Steinsdóttir íslensku
barnabókaverðlaunin 1987.
I Stjörnum og strákapörum
fylgjumst við með ævintýrum
Lillu og Kötu og vina þeirra í
Reykjavík. Sagan iðar af lífi og
gleði en undir yfirborðinu býr þó
alvara lífsins. Áfi Lillu er kominn
til Reykjavíkur til að leita sér
lækninga og áhyggjurnar láta á
sér kræla. En Lilla leitar eigin
leiða til að hjálpa afa sínum.
Kristín Steinsdóttir, rithöfund-
ur, býr á Akranesi og kennir þar
við Fjölbrautarskólann. Hún
hlaut viðurkenningu í sagna-
keppni móðurmálskennara 1983
og ásamt systur sinni Iðunni hlaut
hún 1. verðlaun í leikritasam-
keppni Ríkisútvarpsins 1986.
Út er komið listaverkaalmanak
Landssamtakanna Þroskahjálpar
fyrir árið 1990. Almanakið er
unnið í samvinnu við félaga í
íslenskri grafík, eins og fimm
undanfarin ár, og prýða það
þrettán grafíkmyndir eftir
íslenska listamenn, ein fyrir
hvern mánuð, auk forsíðumynd-
ar. Allar eru þær litprentaðar,
nema tvær sem eru svarthvítar.
Listamennirnir eru: Sigrún
Eldjárn, Kristjana Samper, Edda
, Jónsdóttir, Ingunn Eydal, Daði
Viðtalstímar
bæjarfulitrúa
í kvöld fimmtudaginn 30.
nóvember 1989 kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Björn Jósef
Arnviðarson og Heimir Ingi-
marsson til viðtals á skrifstofu
bæjarstjórnar, Geislagötu 9, 2.
hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem
aðstæður ieyfa.
Síminn er 21000.
Guðbjörnsson, Jón Reykdal,
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir,
Þórður Hall, Eyþór Stefánsson,
Richard Valtingojer, Ingiberg
Magnússon, Jónína Lára Einars-
dóttir og Jenný Guðmundsdóttir.
Eins og nafnið bendir til er
almanakið jafnframt happ-
drættismiði sem er í gildi allt árið
og eru vinningar dregnir út mán-
aðarlega. í vinning eru að þessu
sinni þrír bílar af gerðinni Mazda
323, 1300, 16v LX og 9 Sony
myndbandsupptökutæki, samtals
að verðmæti kr. 3 milljónir.
Þroskahjálp hefur þann hátt-
inn á að gefa ekki út fleiri alman-
ök en ætla má að seljist. Sl. fjög-
ur ár hefur upplagið nær selst upp
og er ekki annars að vænta en að
svo verði einnig nú. Því eru sára-
litlar líkur á að vinningar komi á
óseld almanök.
Landssamtökin Þroskahjálp
hafa nú starfað í 13 ár, en þau
voru stofnuð 1976 í því skyni að
sameina í eina heild þau félög
sem vinna að málefnum fatlaðra
sem ekki geta barist fyrir hags-
munum sínum sjálfir. Eru nú í
samtökunum 26 aðildarfélög um
land allt, bæði foreldra- og
styrktarfélög og fagfélög þeirra
sem hafa sérhæft sig í kennslu og
þjálfun fatlaðra.
Almanakshappdrættið er meg-
in fjáröflunarleið Þroskahjálpar
og vænta samtökin þess að fólk
taki vel á móti sölumönnum
þeirra sem ganga munu í hús um
land allt næstu vikurnar.
Landssamtökin Þroskahjálp.
Hinn árlegi köku- og munabasar verður í
Laugaborg, laugardaginn 2. des. kl. 15.00.
Hefst á kaffisölu.
Kökur og munir seldir kl. 15.30.
Kvenfélagið Iðunn.
Viðskiptavinir
athugið!
Vöruafgreiðsla okkar á Akureyrarflugvelli
verður opin laugardaginn 2. des. frá kl. 09-14.
Laugardaginn 9. des. frá kl. 09-16.
Laugardaginn 16. des. frá kl. 09-20.30.
Laugardaginn 23. des. frá kl. 09-21.30.
FLUGLEIDIR fS