Dagur - 30.11.1989, Side 11

Dagur - 30.11.1989, Side 11
Fimmtudagur 30. nóvember 1989 - DAGUR - 11 fþrótfir Karfa: Þór-Haukar í kvöld Þórsarar leika í íþróttahöll- inni á Akureyri gegn Hauk- um í Úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í kvöld klukkan 19.30. Báðum liðum hefur ekki gengið sem skyldi að undanförnu og eru sjálfsagt æst í að snúa við spilinu. „Þessi leikur leggst ágætlega í mig. Hins vegar er því ekki að leyna að okkur hefur alltaf gengið illa með Haukana. Þeir eru eldfljótir í hraðaupphlaup- um, með þá Henning Henn- ingsson og ívar Ásgrímsson í fararbroddi, og þá verður að stoppa," sagði Jóhann Sig- urðsson leikmaður Þórs. Jón Örn Guðmundsson get- ur leikið aftur með Þórsliðinu en hann var í leikbanni í síðasta. leik gegn Tindastóli. Það má því búast við Þórsliðinu grimmu í kvöld því þeir hafa harma að hefna frá fyrri leik liðanna í vetur þegar Haukar unnu stórt. Úrvalsdeildin í körfubolta A-riðill: IBK Grindavík ÍR Valur Reynir 10 7 3 969:816 14 11 6 5 899:913 12 11 5 6 812:833 10 11 3 8 834:853 6 10 0 10 695:970 0 B-riðill: UMFN KR Haukar UMFT Þór 11 11-0 994: 882 22 10 8-2 744: 678 16 10 5-5 887: 791 10 11 5-6 956: 938 10 11 3-8 898:1017 6 Einbeitingin verður að vera í lagi þegar gefið er upp eins og sést á þessari mynd af Tómasi Guðjónssyni. Mynd: kl Borðtennis: Gott mót hjá Magna að Hraftiagili Aldursilokkamót Magna í borðtennis fór fram í íþrótta- húsinu að Hrafnagili um síð- ustu helgi. Þátttakendur voru tæplega 90 frá fímm félögum. Sagt var frá mótinu á íþrótta- síðu á þriðjudaginn en við munum nú fjalla nánar um það. Keppni hófst á Magnamótinu með keppni í aldursflokkum á laugardaginn. í flokki 17 ára og eldri sigraði Tómas Guðjónsson en Hrefna Halldórsdóttir í kvennaflokki. En annars varð röðin í einstökum aldursflokkum þessi: Karlar 17 ára og eldri: 1. Tómas Guðjónsson KR 2. Kristján V. Haraldss. Víkingi 3. Hjálmtýr Hafsteinsson KR Stúlkur 17 ára og eldri: 1. Hrefna Halldórsdóttir Víkingi Skíði: Fá Ólafsfirðingar sænskan skíðaþjálfara í vetur? - ekkert gekk að fá innlendan þjálfara Það gengur erfíðjega að ráða skíðakennara á Ólafsfjörð og eru nú forráðamenn UÍÓ að leita hófanna í Svíþjóð með aðstoð Rajsu Nyberg lands- liðsþjálfara. „Við reyndum lengi hér innanlands en feng- um engan hæfan mann og það er því þrautalending að reyna að ráða sænskan skíðaþjálf- ara,“ sagði Björn Þór Ólafsson formaður UIÓ í samtali við Dag. Ungmennafélagið hefur í haust Enn sigrar Njarðvík: Tindastóll sprakk á sprettinum - fjörugur leikur á Króknum Njarðvíkingar héldu sigur- göngu sinni áfram í Úrvals- deildinni í körfuknattleik, er þeir heimsóttu Tindastól á Sauðárkróki á þriðjudags- kvöldið. Leikurinn var æði sveiflukenndur en jafnframt mjög skemmtilegur. Lokatöl- urnar urðu 82:93. Heimamenn byrjuðu af krafti og sýndu stórgóðan leik fyrstu mínúturnar. Varnarleikurinn var í topplagi og fráköstin voru undantekningarlaust eign Stól- anna. Það var helst Teitur Örlygsson sem hélt Njarðvíking- um á floti með þriggja stiga körf- um af hreint ótrúlegu færi. Þegar líða tók á hálfleikinn jafnaðist leikurinn nokkuð og loks náðu gestirnir undirtökun- um fyrir hlé, en þá var staðan 40:46. Stólarnir byrjuðu seinni hálf- leikinn af sama krafti og þann fyrri og eftir 5 mín. höfðu þeir skorað 16 stig gegn 6 stigum Njarðvíkinga og staðan orðin 56:52. En þá tóku Njarðvíkingar kipp og jöfnuðu leikinn. Liðin skiptust nú á að hafa frumkvæðið í leiknum og þegar um fjórar mínútur voru eftir var staðan 80:81. Þá var komið að þætti Friðriks Rúnarssonar Njarðvík- ings. Hann skoraði hverja körf- una á fætur annarri, meðan ekkert gekk upp hjá heimamönnum og skyndilega var staðan orðin 82:93 sem urðu einmitt lokatölur leiks- ins. Njarðvíkurliðið er geysisterkt. Aðall þess er liðsheildin. Þegar hittnin brást hjá einhverjum leik- manni tók bara sá næsti við og skipti engu máli hvort það var varamaður eða ekki. Samt sást það í leiknum að þeir eru ekki ósigrandi, en til þess að sigra þá verður að halda uppi góðum leik allar fjörutíu mínúturnar. Teitur Örlygsson var besti maður Njarð- víkinga í þessum leik. Patrick Releford hitti illa framan af en honum gekk betur þegar líða tók á leikinn og sýndi þá hvers hann er megnugur. Þá átti Friðrik Rúnarsson eftirminnilegar loka- mínútur. Tindastólsliðið sýndi á upp- hafsmínútum hvors hálfleiks hvers það er megnugt. En ein- beitingarleysi á lokamínútunum varð þeim piltum að falli. Það var engu líkara en að menn ætluðu að skora fleiri en eina körfu í hverri sókn. Hefði liðið haldið ró sinni á þessum afdrifaríku mínút- um er ekki gott að segja hver úr- slitin hefðu orðið. Bestu menn liðsins voru þeir Sturla og Bo. Einnig átti Valur ágætan seinni hálfleik. Sturla sýndi það og sannaði að hann er einn besti varnarmaður deildar- innar og átti frábæran leik í vörn- inni. Bo sýndi líka að hann getur leikið. góða vörn. Hann hafði gætur á Releford fyrstu mínút- urnar og sá til þess að hann skor- aði ekki mikið af stigum. Stig Tindastóls: Bo 36, Valur 27, Sturla 10, Sverrir og Eyjólfur 4 hvor, Ólafur 2 og Björn 1. Stig Njarövíkinga: Teitur 30, Releford 26, Friðrik Rúnars 16, Jóhannes Krist- björns og ísak Tómasson 7 hvor, Kristinn Einarsson 5 og Friðrik Ragnars 2. Dómarar voru þeir Árni Freyr og Sigurður Valgeirsson og höfðu þeir ekki alveg nógu góð tök á leiknum. kj unnið að endurbótum á skíða- aðstöðunni í Ólafsfirði og verður m.a. lýsingin í fjallinu stórbætt. „Við erurn því tilbúin að taka við snjónum þegar hann kemur,“ sagði Björn Þór. Formaðurinn segist ekki skilja hve erfiðlega gangi að fá skíða- þjálfara því efniviðurinn sé fyrir hendi á staðnum, en skíðakrakk- ar frá Ólafsfirði stóðu sig mjög vel á mótum í fyrra og er langt síðan Ólafsfjörður hefur átt jafn marga efnilega skíðamenn. Þar að auki sé góð íbúð í boði fyrir þjálfarann í Ólafsfirði. „Ástæðan hlýtur að vera sú að það sé hörguli á nrenntuðum skíðakennurum hér á landi og er það umhugsun- arefni fyrir forsvarsmenn skíða- mála á Islandi," sagði Björn Þór Ólafsson formaður UÍÓ. 2. Hrafnhildur Sigurðard. Víkingi 3. Anna Bára Bergvinsd. Magna 4. Svava Guðjónsdóttir Magna Piltar 15-17 ára 1. Stefán Gunnarsson Magna 2. Axel Eyfjörð Magna 3. Sævar Helgason Þór 4. Gísli Oddgeirsson Magna Stúlkur 15-17 ára: 1. Guðrún Pétursdóttir Magna 2. Hólmfríður Björnsd. Magna 3. Guðrún Guðmundsd. Víkingi Sveinar 13-15 ára: 1. Ársæll Aðalsteinsson Víkingi 2. Benedikt Benediktsson UMSE 3. Steinn Símonarson Magna 4. Guðmundur Halldórss. Magna Meyjar 13-15 ára: 1. Áðalbjörg Björgvinsd. Vfkingi 2. Elín Þorsteinsdóttir Magna 3. Ingibjörg Árnadóttir Víkingi Piltar 13 ára og yngri: 1. Sigurður Jónsson Víkingi 2. Ólafur Eggertsson Víkingi 3. Samúel Georgsson Víkingi 4. Ægir Jóhannsson Magna Telpur 13 ára og yngri: 1. Eva Jósteinsdóttir Víkingi 2. Berglind Bergvinsd. Magna 3. Margrét Hermannsd. Magna 4. Hjördís Skírnisdóttir Magna Á sunnudag var síðan keppt í punktamóti í meistara- og 1. flokki karla. Þar sigraði Tómas Guðjónsson eftir hörkuviðureign við félaga sinn í KR, Hjálmtý Hafsteinsson, 21:20, 19:21 og 21:18. Albrecht Ehmann úr Stjörnunni lenti í 3. sæti. í meistara- og 1. flokki kvenna sigraði Aðalbjörg Björgvinsdótt- ir úr Víkingi. Ingibjörg Árna- dóttir Víkingi lenti í öðru sæti og Hólmfríður Björnsdóttir Magna lenti í þriðja sæti. í 2. flokki karla var Stefán Gunnarsson Magna öruggur sig- urvegari. í öðru sæti lenti Arnþór Gunnarsson Stjörnunni og Sig- urður Jónsson Víkingi lenti í þriðja sæti. Sturla Örlygsson með UMFT. átti góðan leik Opnunartími í desember Laugard. 02. desember kl. 9-16. Laugard. 09. desember kl. 9-18. Mánud. 11. desember kl. 9-21. Þriðjud. 12. desember kl. 9-21. Miðvikud. 13. desember kl. 9-21. Fimmtud. 14. desember kl. 9-21. Föstud. 15. desember kl. 9-21. Laugard. 16. desember kl. 9-21. Fimmtud. 21. desember kl. 9-21. Föstud. 22. desember kl. 9-21. Laugard. 23. desember kl. 9-23. Lokað verður 27. desember v/frís hjá starfsfólki. Opnum aftur 28. desember kl. 9 HAGKAUP Akureyri

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.