Dagur - 29.12.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 29. desember 1989
fréttir
Nú árið er liðið í aldanna skaut:
Bremiur á Norðurlandi
Sem fyrr hafa norðlenskir brennuvargar látið hendur standa fram úr ermum og safnað í veg-
legar brennur um allt Norðurland. I þessu brennuyfirliti verður getið þeirra brenna sem
Dagur fékk upplýsingar um í gær. Það skal tekið fram að á Siglufirði hafði lögreglu ekki bor-
ist í gær ósk um leyfi fyrir gamlársbrennu. Það verður því að teljast ólíklegt að gamla árið
verði brennt út þar í bæ. Hins vegar er ákveðið að Kiwanis-menn á Siglufirði standi fyrir
óþh/IM/kj
þrettándabrennu.
Akureyri
Á Akureyri hefur einungis verið
gefið leyfi fyrir tveimur bálköst-
um. Annar þeirra er vestan Hlíð-
arbrautar, norðan við Gúmmí-
vinnsluna, en hinn er sunnan og
vestan við Reynilund.
Að brennuimi vestan Hlíðar-
brautar standa nokkrir einstakl-
ingar. Þeirra á meðal er Helgi
Þórsson, sendibílstjóri, og sagði
hann í samtali við Dag að hann
vonaðist til að brennan yrði hin
veglegasta. Meðal annars sagði
hann að þrír bátar yrðu settir í
bálköstinn á morgun, laugardag.
Ákveðið er að kveikja i brenn
unni kl. 20 á ganrlárskvöld.
Ef veður leyfir verður kveikt í
brennunni í Lundarhverfi kl. 20 á
gamlárskvöld. Nokkrir eldhressir
strákar í Lundarskóla hafa veg og
vanda af brennunni og njóta þeir
aðstoðar foreldra. Þar á meðal er
Dröfn Friðfinnsdóttir. Að henn-
ar sögn hefur Olíufélagið Skelj-
ungur sýnt þann rausnarskap að
gefa olíu til að tendra eld í brenn-
unni.
Dalvík
Á Dalvík er búið að hlaða bál-
köst og eins og áður er hann austur
á Sandi. í>ær upplýsingar fengust
að til stæði að kveikja í honum á
slaginu kl. 17 á gamlársdag.
Grímsey
Grímseyingar hafa þann sið að
brenna út garnla árið og sá siður
verður í heiðri hafður í ár. Bál-
kösturinn, sem tendrað verður í að
þessu sinni, stendur austan við
félagsheimilið í eynni. Áætlað er
að kveikja í honum um kl. 20 á
gamiárskvöld.
Ólafsfjörður
Að þessu sinni verður gamlárs-
brenna þeirra Ólafsfírðinga vestan
við ósinn en hún hefur gjarnan
verið staðsett austan óssins. Ef
allar áætlanir standast verður
kveikt í brennunni kl. 20 á gaml-
árskvöld.
Hrísey
Hríseyingar hafa haft þann ágæta
sið að brenna út gamla árið og á
því verður engin breyting í ár.
Bálkösturinn er fyrir ofan þorpið
og stefnt er að því að kveikja í
honum um kl. 16 á gamlársdag.
Brenna þeirra Hríseyinga er svo
snemma á ferðinni til þess að
mönnum gefist færi á að bregða
sér í hrein áramótafötin og fara í
kirkju kl. 18.
Egilsstaðir
Á Egilsstöðum verður áramóta-
brenna við Árhvamm, og er það
Björgunarsveitin Gró sem fyrir
brennunni stendur.
Þórshöfn
Ungir menn á Þórshöfn standa
fyrir áramótabrennu sem staðsett
er innan við þorpið. Kveikt verð-
ur í brennunni um kl. 20.
Vopnafjörður
Nokkrir ungir Vopnfirðingar
hafa sótt um leyfi fyrir brennu
uppá Háahrauni við þorpið.
r
arsveitin sér um. Það eru ungl-
ingar í bænum í samráði við
bæjarstarfsmenn sem sjá um
söfnun í brennuna.
Blönduós
Á Blönduósi verður brennan
staðsett á Miðhóli sem er innan
við Blöndu. Kveikt verður í
henni kl. 20.30 og á eftir verður
flugeldasýning sem Hjálparsveit
skáta hefur umsjón með. Það eru
Kiwanismenn sem sjá um söfnun-
ina eins og undanfarin ár.
Skagaströnd
Á Skagaströnd verður brennan
staðsett á Fellsmelum sem eru
undir hlíðum Spákonufells. Kveikt
verður í henni kl. 20.00. Það
eru félagar í Ungmennafélaginu
Fram sem umsjón hafa með
söfnuninni.
Hvammstangi
Áramótin:
Húsvíkingar nenna ekki
að búa til brennu
AUar líkur benda til þess að
engin áramótabrenna verði á
Húsavík að þessu sinni, en
tvær brennur hafa yfirleitt ver-
ið við bæinn mörg undanfarin
gamlárskvöld. Orsökina fyrir
brennuleysinu má rekja til
áhugaleysis fólks fyrir vinn-
unni við að safna efni og hlaða
köst, en fjölmenni hefur yfir-
leitt komið að áramótabrenn-
um Húsvíkinga.
í fyrra söfnuðu ungir Húsvík-
ingar efni og hlóðu brennur, bæði
utan og sunnan við bæinn. Árið
áður og mörg ár þar á undan sá
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi
um brennu norðan við bæinn,
gegn greiðslu frá Húsavíkurbæ. í
fyrra ákvað Bæjarstjórn að hætta
að greiða fyrir vinnuna og einnig
að hætta að halda áramóta-
dansleiki sem bæjarbúum væri
boðið til. Bærinn hefur annast,
og er tilbúinn að annast, véla-
vinnu fyrir þá aðila sem vinna
vilja að uppsetningu á brennu og
búið er að losa gott efni í brennu
norðan við bæinn, en enginn
sjálfboðaliði hefur sýnt áhuga á
að drífa í málunum.
Sömu sögu er að heyra af
brennu sunnan við bæ. Maður
sem bar ábyrgð á brennunni í
fyrra var tilbúinn að aðstoða
unga fólkið einnig í ár, en það
sýndi að þessu sinni engan áhuga
á að safna efni í brennu. IM
Kópasker
Ungt fólk á Kópaskeri hefur
safnað efni í áramótabrennu sem
staðsett er rétt norðan við
þorpið, að öllum líkindum verð-
ur kveikt í brennunni um tíuleyt-
ið á gamalárskvöld.
Sauðárkrókur
Á Sauðárkróki er brennan stað-
sett syðst á Nöfunum fyrir ofan
bæinn. Kveikt verður í henni
kl. 20.30 og um kl. 21.00 verður
svo flugeldasýning sem Björgun-
Á Hvammstanga er brennan
staðsett fram á Höfða og verður
kveikt í henni kl. 20.00. Það er
Björgunarsveitin á staðnum sem
sér um brennuna eins og síðustu
ár.
Hofsós
Á Hofsósi er brennan staðsett
hjá íþróttavellinum. í henni
verður kveikt kl. 20.00. Á eftir
verður svo flugeldasýning. Það
eru unglingar í bænum sem safna
í brennuna en Björgunarsveitin
er þeim innan handar.
Nýársfagnaði Sjallans aflýst:
„Ekki hægt að hafa þetta
ódýrara og varla betra“
- segir Sigurður Thorarensen, framkvæmdastjóri
Fyrirhuguöum nýársfagnaöi
Sjallans hefur verið aflýst
vegna dræmrar þátttöku. Sjall-
inn haföi auglýst mikinn fagn-
að undir yfirskriftinni „Á hál-
um ís“ með Spaugstofumenn
sem helstu skemmtikrafta og
Rósu Ingólfsdóttur sem veislu-
stjóra. Verð fyrir mat og
skemmtun var 4900 krónur,
eða mun lægra en á skemmti-
stöðum í Reykjavík, en það
dugði ekki til.
Sigurður Thorarensen, fram-
kvæmdastjóri Sjallans, sagði að
vissulega væri þetta dapurleg
niðurstaða en annað hefði ekki
verið hægt að gera. Hann sagði
Hið árlega
jólatré
verður haldið í félagssalnum að Bjargi,
Bugðusíðu 1, föstudaginn 29. des. kl. 16.00.
ÆUir velkomnir.
Nefndin.
að það væri dýrt að halda
skemmtun sem þessa og til þess
að hún gæti borið sig hefðu pant-
anir þurft að vera mun fleiri.
Nýársfagnaður er lokað sam-
kvæmi og þéttskipaður salur er
helsta forsendan fyrir því að hægt
sé að halda skemmtun af þessari
stærðargráðu.
Aðspurður kvaðst Sigurður
ekki vita ástæðuna fyrir þessari
dræmu aðsókn í miða á nýárs-
fagnaðinn. „Það var ekki hægt að
hafa þetta ódýrara og varla betra.
Maður hefur auðvitað heyrt
skýringar á borð við þær að fólk
sé auralaust og að það sé vinnu-
dagur daginn eftir og ég hugsa að
það síðarnefnda sé líkleg skýring
í mörgum tilvikum,“ sagði
Sigurður. Með öðrum orðum,
fólk óttast timburmennina.
Hann sagði að Sjallinn myndi
fá Spaugstofumenn norður eitt-
hvert laugardagskvöldið í sára-
bætur. Á nýárskvöld verður hús-
ið lokað en dansleikur á gamlárs-
kvöld og þar mun Stuðkompaní-
ið koma fram af þessu tilefni eftir
árs hlé. SS
Ted Amason
er látínn
Theódór Kristján Árnason
(Ted Árnason), fyrrverandi
bæjarstjóri í Gimli í Kanada,
vinabæ Akureyrar, andaðist á
annan dag jóla, 71 árs að aldri.
Útför hans verður gerð frá
heimabæ hans, Gimli, 4. janúar
nk. Ted Árnason lætur eftir sig
eiginkonu, Majorie Árnason,
og þrjú börn.
Hans verður nánar getið síð-
ar í Degi. óþh
Ted Árnason, fyrrverandi bæjar-
stjóri í Gimli, vinabæ Akureyrar.
Verslunar-
tími iffii
áramótín
KjörhudirKEA
Laugardagur
30. desember
HrísalundurS kl. 10-14
KEA Nettó kl. 10-14
KEA Sunnuhlíð kl. 10-20
Byggðavegur 98 kl. 10-20
Sunnudagur
31. desember
gamlársdagur
Byggðavegur 98 kl. 9-13
Þriðjudagur
2. janúar
Byggðavegur 98 kl.16-20
KEA Sunnuhlíð kl. 16-20
Aðrar kjörbúðir verða
lokaðar þennan dag vegna
vörutalningar
Byggingavöru-
deildogRat'•
lagnadeild
Þessar deildir verða lokað-
ar vegna vörutalningar
þriðjudaginn 2. janúar,
miðvikudaginn 3. janúar
og fimmtudaginn 4. janúar
VöruhúsKEA
verður lokað vegna vöru-
talningar þriðjudaginn
2. janúar og miðvikudag-
inn 3. janúar