Dagur - 29.12.1989, Blaðsíða 16
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Akureyrarbær:
Fjárhagsáætlun tilbúin
seinna en venjulega
„Fjárhagsáætlun Akureyrar-
bæjar verður örugglega seinna
á ferðinni en venjulega þar
sem ýmislegt tengt virðisauka-
Húsavík:
_ Ásmundur
íþróttamaður
ársins
Ásmundur Arnarsson, knatt-
spyrnu- og handboltamaður,
var valinn Iþróttamaður ársins á
Iþróttahátíð Völsungs í Iþrótta-
höllinni á Húsavík í gærkvöldi.
Regína Sigurgeirsdóttir var
valin Völsungur ársins, en þá
nafnbót hlýtur ungmenni sem
þótt hefur sýna góða ástundun
í leik og starfí innan félagsins.
Heiðursviðurkenningar fyrir
góð og óeigingjörn störf í þágu
félagsins til margra ára hlutu þrír
félagar; Birgir Lúðvíksson,
Steingrímur Birgisson og Helgi
Bjarnason.
Dagur mun síðar birta myndir
frá afhendingu viðurkenninganna
og fleiri myndir frá hátíðinni,
sem fór vel fram og lauk með
flugeldasýningu Kiwanisklúbbs-
ins Skjálfanda. IM
ir.
„Við vildum vera heiðarlegir
við starfsmennina og segja þeim
að atvinna væri tryggð út vertíð-
ina. Það er óvenjulegt að gefa
rúma fjóra mánuði í fyrirvara, en
janúar og febrúar verða notaðir
til að skoða málin. Það er ljóst að
þegar við lendum í svona hráefn-
isvandræðum er ekki hægt að
reka verksmiðjuna með öllum
þessum mannskap.“
Sigfús segir að eiginfjárstaða
Krossaness sé allgóð, milli eitt og
tvö hundruð milljónir króna.
Verksmiðjan fékk 180 milljóna
króna lán í sumar til 10 ára. Af
þessu láni verða greiddar um 17
milljónir króna í vexti á næsta
ári, en engin afborgun. En sú
staðreynd að haustvertíðin brást
þýðir tap fyrir Krossanes upp á
tugi milljóna króna.
Að sögn Sigfúsar mun sú staða
ekki koma upp að Akureyrarbær
þurfi beinlínis að borga með
verksmiðjunni á næsta ári, jafn-
vel þótt loðnuveiðar bregðist
einnig eftir áramót. Slíkt þýðir
þó að eigið fé verksmiðjunnar
brennur upp. „Eitt vandamálið
er það hvað afkastagetan er lítil,
það erum við að skoða. Vinnu
við að útbúa Krossanes sem
gæðamjölsverksmiðju er nánast
lokið og þar að auki er búið að
byggja nýtt hús yfir starfsemina,“
segir Sigfús. í uppsagnarbréfi til
starfsmannanna er talað um að
dýrar fjárfestingar og loðnuleysi
séu meginorsök þeirra vandræða
sem nú steðja að Krossanesi.
EHB
skattinuin og öörum nýmælum
er ekki komið á hrcint ennþá,“
segir Sigfús Jónsson, bæjar-
stjóri.
Sigfús segir að bæjarstjórnin
standi frammi fyrir óvenjulegum
aðstæðum að þessu sinni hvað
gerð og undirbúning fjárhags-
áætlunar varðar. Byrjað verður
að vinna að undirbúningi hennar
á bæjarráðsfundi í næstu viku, en
ekki verður nema einn reglulegur
bæjarstjórnarfundur seint í janú-
armánuði. Tveir fundir verða í
bæjarstjórn í febrúar, og verður
síðari umræða um fjárhagsáætlun
líkast til á seinni fundinum.
„Venjulega er stefnt að síðari
umræðu á fyrri febrúarfundinum,
en ég sé ekki fyrir mér hvort það
tekst nú,“ segir bæjarstjóri.
EHB
Hjálparsveit skáta selur flugelda á flmm stöðum á Akureyri, m.a. í Lundi, sjálfum höfuðstöðvunum. Þar verður
flugeldasýning i kvöld. Mynd: K.L
Saxast á eigið fé Krossanesverksmiðjunnar:
Eina vonin að loðnuveiðamar taki kipp
- lítil afkastageta meðal vandamálanna - segir Sigfús Jónsson stjórnarformaður
Útlit er fyrir að Krossanes-
verksmiðjan verði í framtíð-
inni rekin sem vertíðarverk-
smiðja, þ.e. loðnubræðsla sem
starfar svo til eingöngu á með-
an loðnuvertíð stendur yfír.
Hér er um stefnubreytingu að
ræða í rekstrinum frá því sem
áður var.
„Við stöndum frammi fyrir
mikilli óvissu í hráefnisöflun og
einnig því að framkvæmdir við
Krossanes eru búnar og nánast
búið að byggja verksmiðjuna
upp,“ segir Sigfús Jónsson,
bæjarstjóri Akureyrar og stjórn-
arformaður Krossaness hf. „Við
þurfum því ekki að hafa 20
manns allt árið í vinnu en verðum
að ákveða hvort eigi að fastráða
lágmarksmannskap og ráða
verkamenn á loðnuvertíðina,"
segir Sigfús.
Verði þessi áform að raunveru-
leika verður Krossanes svonefnd
vertíðarverksmiðja en ekki heils-
ársverksmiðja. Sigfús segir að
með gæðamjölsframleiðslu hafi
ætlunin verið að reka verksmiðj-
una af fullum krafti sjö til átta
mánuði á ári, en þegar loðnan
bregðist svo gjörsamlega sem nú
sé útlit fyrir breytist allar áætlan-
Stapavíkin SI 5 í
síðustu veiðiferðinni
- siglir til Þýskalands en verður síðan lagt í lok janúar
yfir á bátinn Guðfinnu Steins-
dóttur ÁR 10 frá Þorlákshöfn, en
áhugi hefur verið á að fá þann bát
keyptan til fyrirtækisins.
Hafsteinn Ásgeirsson, útgerð-
armaður og aðaleigandi bátsins,
segir að þrátt fyrir viðræður um
nokkurra vikna skeið hafi ekkert
komist á hreint um sölu eða
kaup. Ein hugmyndin var sú að
skipta á Stapavíkinni og Guð-
finnu Steinsdóttur ÁR, en hvort
af því verður er alveg óljóst. Haf-
steinn segir að Stapavíkin sé í
mjög lélegu ástandi og rándýr
klössun standi fyrir dyrum á tog-
aranum, og líklega standi ekki
aðrir möguleikar opnir en að
leggja Stapavíkinni og úrelda
skipið.
Stapavíkin siglir til Þýskalands
með aflann úr þessari síðustu
veiðiferð fyrir Þormóð ramma,
áður en henni verður lagt. Til
greina kemur að togarinn fari
beint til veiða aftur eftir sölutúr-
inn, og kemur hann þá inn til
Siglufjarðar um 30. janúar. Þá
mun áhöfnin að hluta til ráða sig
á hina tvo togara Þormóðs
ramma, Stálvík og Sigluvík.
EHB
Ásmundur Arnarsson.
Stapavíkin SI 5 lagði í gær af
stað í veiðiferð sem verður að
öllum líkindum sú síðasta fyrir
Þormóð ramma hf. á Siglu-
fírði. Togarinn er kominn
mjög til ára sinna, byggður
1966 í Hollandi, og er talinn í
lélegu ásigkomulagi. Samninga-
viðræður standa þó enn yfír
um hugsanlega sölu togarans
til Þorlákshafnar í skiptum fyr-
ir 127 tonna bát þaðan.
Heimildamenn Dags segja að
Þormóður rammi hf. hafi leitað
fyrir sér með hvort leyfi fengist til
flutnings á kvóta Stapavíkurinnar
æfingar og keppni í svigi og stór-
svigi og staðið sig mjög vel. Með-
al annars keppti hann nýverið á
sterku móti ytra og náði 15. sæti
af 120 keppendum. Þarna voru á
ferðinni sterkir skíðamenn. Á
gamlársdag keppir Kristinn á
stórsvigsmóti í Gallevare í Finn-
landi og þá tekur hann þátt í 4-5
mótum þar í landi á fyrstu dögum
næsta árs. Hann er væntanlegur
heim til Ólafsfjarðar um miðjan
janúar. óþh
Kristinn Björnsson.
Ólafsflörður:
Krístíim valinn
íþróttamaður ársins
Kristinn Björnsson, 17 ára
skíða- og knattspyrnugarpur,
var valinn íþróttamaður ársins
í Ólafsfírði í hófí sem haldið
var í Tjarnarborg sl. miðviku-
dagskvöld.
Kristinn er vel að þessum
heiðri kominn. Á þessu ári hefur
hann sýnt miklar framfarir í alpa-
greinum skíðaíþrótta og var
verðskuldað valinn í skíðalands-
liðið, Hann hefur á undanförnum
mánuðum dvalið erlendis við