Dagur - 29.12.1989, Blaðsíða 11
Föstudagur 29. desember 1989 - DAGUR - 11
Iitið um öxl • Iitið um öxl • Iitið um öxl • Iitið
Sverrir Leósson.
„Að haustlodnuvertíðinni
undanskilinni er ekki hægt að
segja annað en að sjávarútveg-
inum hafi vegnað nokkuð vel á
árinu 1989. Arferði hefur verið
viðunandi og afurðaverð sömu-
leiðis,“ sagði Sverrir Leósson,
formaður Útvegsmannafélags
Norðurlands, þegar hann var
beðinn að gera upp árið 1989
fyrir sjávarútveginn.
„Bátaflotinn hefur þó átt við
ákveðna erfiðleika að stríða. Á
því eru ugglaust margar skýring-
ar. Rekstrarkostnaður miðað við
tekjur er hlutfallslega meiri á
vertíðarbátunum en bæði á stærri
og minni bátum.
Afkoma togaranna hefur
almennt verið viðunandi. Þó er
hún nokkuð mismunandi eftir
landshlutum og frá einni útgerð til
annarar. Það eru þó blikur á lofti.
Ég minni á að olíuverð er að
hækka og af því hafa menn nokkr-
ar áhyggjur.“
Sverrir Leósson, formaður Útvegsmannafélags Norðurlands:
Hagstætt ár fyrir sjávarútvegmn
að haustloðnuvertíð imdanskilinni
Sverrir telur að stjórnvöld sýni
sjávarútveginum almennt ekki
nógu mikinn skilning. „Hins veg-
ar tek ég fram að ekki verður ann-
að sagt en að sjávarútvegsráð-
herra og hans ráðuneyti hafi kom-
i ist nokkuð klakklaust frá þessu
ári. Nú eru sterkarlíkur til þess að
frá 1. janúar 1991 verði búið að
taka ákvörðun um fiskveiðistefnu
til lengri tíma litið. Þetta hefur
óneitanlega verið eitt stærsta
hagsmunamál sjávarútvegsins á
þessu ári og hefur fengið mikla og
góða umfjöllun viðkomandi hags-
munaaðila. Málið á hins vegar eft-
ir að fara í gegnum þingið með til-
heyrandi upphrópunum einstakra
manna þar.“
Að sögn Sverris hefur útgerð á
Norðurlandi gengið nokkuð vel á
þessu ári, þrátt fyrir minnkandi
kvóta. Hann segir að svo virðist
sem í ljósi minnkandi afla hafi
mönnum tekist vel að haga segl-
um eftir vindi og halda skútunni á
réttum kili. „Fram hjá því verður
auðvitað ekki litið að þetta er
þriðja samdráttarárið í röð í afla,
sem þýðir að heildartekjurnar
hafa minnkað sem því nemur.
Miðað við þær forsendur sem við
búum við er þó ekki hægt að segja
annað en að afkoman hafi verið
viðunandi,“ segir Sverrir.
„Ef litið er til næsta árs hefur
maður vissan beyg af í fyrsta lagi
olíuverðinu, í öðru lagi komandi
kjarasamningum og í þriðja lagi
háum fjármagnskostnaði. Þá má
ekki gleyma því að við göngum í
gegnum enn eitt samdráttarárið í
afla. Ég held hins vegar að ekki sé
ástæða til að ætla annað en að
afurðaverð verði nokkuð þokka-
legt á næsta ári.
Ef mönnum tekst að ná niður
verðbólgu og vöxtum á næsta ári
og verði gerðir skynsamlegir
kjarasamningar tel ég að menn
eigi að geta haldið nokkuð stöð-
ugri siglingu til ársloka 1990.“
óþh
TF-FBA, eins hreyfils flugvél frá Reykjavík, var nauðlent á túninu norðan við Stóra-Haniar í Eyjafirði þann 6.
júlí. Vélin lenti mjúklega á túninu og þaut þar á ofsahraða fleiri hundruð metra áður en hún stöðvaðist. Flug-
maður og farþegi sluppu ómeiddir. Eins og sjá má á myndinni var flugvélin löðrandi í olíu og því erfitt fyrir flug-
manninn að sjá út um framrúðuna. Þrátt fyrir það tókst lendingin frábærlega.
O Mestu vinningslíkur í happdrœtti hérlendis
© Þriðji hver miði vinnur 1990 218 milljónir dregnar út
Óbreytt miðaverð: 400 kr.
:C-f
IK