Dagur - 29.12.1989, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 29. desember 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, Sl'MI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
KARL JÓNSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Afdráttarlaus afstaða
forsætisráðherra
Viðtal það sem Dagur átti við Steingrím Her-
mannsson, forsætisráðherra, um stóriðjumál í
Degi í gær hefur vakið verðskuldaða athygli.
Þar kveður forsætisráðherra upp úr með það
að álver utan suðvesturhorns landsins sé álit-
legasti kosturinn í stóriðjumálum íslendinga,
þegar um er að ræða sjálfstætt álver með nýj-
um eignaraðilum. Forsætisráðherra vill sem
sagt gera skýran greinarmun á því hvort ráð-
ist verði í stækkun álversins í Straumsvík, þ.e.
hreinni viðbót við gamla álverið með eignar-
aðild sömu aðila, og hugmyndum um sjálf-
stætt álver með nýjum eignaraðilum. Þarna
kveður við nýjan tón í þeirri umræðu sem
fram hefur farið um byggingu nýs álvers hér á
landi undanfarna mánuði. Fram til þessa hef-
ur viðræðunefnd íslendinga í þessu máli ein-
blínt á Suðurnes sem hinn eina rétta stað
undir nýtt stóriðjuver. Það var auðvitað eðli-
legt meðan sá möguleiki var til umræðu að
stækka álverið í Straumsvík. En eftir að eig-
endur þess drógu sig út úr hinum svokallaða
Atlantal-hópi, gerbreyttust allar forsendur án
þess þó að sjáanleg stefnubreyting yrði hjá
viðræðunefndinni. Hún hélt sínu striki með
Reykjanesskagann efstan á óskalistanum.
í fyrrnefndu viðtali við Dag bendir Stein-
grímur Hermannsson forsætisráðherra á að
yfirlýsingar Jóns Sigurðssonar iðnaðarráð-
herra um byggingu tveggja álvera séu óraun-
hæfar: „Við eigum nóg með að hugleiða
byggingu eins álvers þó við förum ekki að
ráðast í byggingu tveggja slíkra stóriðjufyrir-
tækja á þessari stundu,“ segir forsætisráð-
herra um það atriði. Hann telur að tveir staðir
komi til greina fyrir nýtt álver: Eyjafjörður og
Reyðarfjörður, enda hafi þessir staðir verið
taldir álitlegastir fram að þessu, þegar um er
að ræða stóriðju utan höfuðborgarsvæðisins.
Ástæða er til að fagna þessari afdráttar-
lausu afstöðu forsætisráðherra í þessu stór-
máli. Steingrímur Hermannsson hikar ekki
við að skipa sér í ört vaxandi hóp þeirra sem
vilja að nýtt álver verði reist utan suðvestur-
hornsins, og það þótt Steingrímur sé þing-
maður Reyknesinga. Skilaboð forsætisráð-
herra til annarra þingmanna eru ótvíræð:
Ákvörðunin um staðsetningu nýs álvers er
hafin yfir hreppapólítík Gg hagsmunagæslu
þingmanna fyrir sitt kjördæmi. Ákvörðuniii
varðar þjóðarhag. Ef nýtt álver verður reist á
suðvesturhorninu mun það hafa mjög alvar-
legar afleiðingar í för með sér gagnvart
byggðajafnvægi í landinu. Þess vegna skal
það reist utan þess svæðis. BB.
Ásgeir Leifsson:
Verkefoi um auðlindanýtingu
- til að laða að erlenda og innlenda prfestingaraðila
Alþjóðleg samskipti fara nú ört
vaxandi í heiminum. ísland er
staðsett utan við hringiðu þessara
mála en það er mjög mikilvægt
að einangrast ekki.
Rekstur fyrirtækja í iðnaðar-
ríkjunum hefur gengið afar vel
undanfarin ár og eru þau mörg
með fullar hendur fjár eftir góð
ár og eru að leita eftir fjárfesting-
armöguleikum sem eru á þeirra
kjörsviði. Þessi staða er ekkert
einsdæmi heldur eru mörg
alþjóðleg fyrirtæki í þessari
aðstöðu.
Ef á að lokka slík fyrirtæki til
Þingeyjarsýslna þá verður verk-
efnið að vera nokkuð stórt og
með útflutning í huga. Það verð-
ur væntanlega að nýta auðlindir
héraðsins.
Það væri mikill akkur í að fá
fjársterka aðila til að fjárfesta í
sýslunni því fjármagn þar er af
skornum skammti.
*
Ymsar auðlindir
Það eru ýmsar auðlindir í Þing-
eyjarsýslum s.s. jarðhiti (há- og
lághitasvæði), vatnsorka, vikur
(t.d. Öskjuvikur), gjall, kísilgúr,
leir, perlusteinn, áhugaverð
setlög, vannýtt beitarlönd, dug-
legt og gott starfsfólk, heitt og
kalt vatn, fjölbreytt og fögur
náttúra, afurðir, aukaafurðir og
úrgangur sláturhúsa, margskonar
sjávarfang, afþreyingarmöguleik-
ar s.s. fiskveiði í ám og vötnum.
Það liggur beint við í atvinnu-
uppbyggingu að athuga hvað er
nýtilegt í næsta nágrenni.
Auk þess liggur fyrir innri upp-
bygging í vegakerfi, flugvöllum
og höfnum, skóla- og heilsugæslu-
kerfi. Flugsamgöngur góðar
o.s.frv. Þó er ekki til nein úttekt
á þessum möguleikum: Magni,
eiginleikum og þróun. Ástæða er
til að taka saman á skipulegan
hátt fyrirliggjandi gögn um þessi
mál og geta til um eyðurnar.
- Það þarf að geta um nýting-
armöguleika.
- Það þarf að vinna upp fýsileg
verkefni.
- Það þarf að finna takmark-
andi þætti við nýtingu þeirra en
ljóst er að vinnsla og útflutningur
byggingarefna er orðinn þó
nokkur atvinnuvegur á Suður-
landi og Reykjavík.
- Sveitarfélög þurfa að móta
stefnu um hvað þau myndu bjóða
nýjum fyrirtækjum t.d. í lóðum,
aðstöðugjöld.
- Þá þarf að taka saman yfirlit
um staðarkosti og búa til bækling
til að senda völdum fyrirtækjum
og starfsmönnum þeirra.
Verktakar í
einstökum þáttum
Væntanlega færi best á því að
héraðsnefndir Þingeyjarsýslna
veittu verkefninu forstöðu, en
Byggðastofnun, Iðnþróunarfélag
Þingeyinga og einstök sveitarfé-
lög eða þessir aðilar í sameiningu
eða hver fyrir sig yrðu þátttak-
endur.
Þá færi vel á því að Iðnþróun-
arfélag Þingeyinga stjórnaði
framkvæmd verkefnisins, en
Byggðastofnun, Iðntæknistofnun
íslands, Orkustofnun og e.t.v.
fleiri yrðu verktakar í einstökum
verkþáttum.
Þar sem ríkið er eigandi flestra
auðlindanna er eðlilegt að það
myndi kosta athugun þeirra að
mestu eða verulegu leyti. Þannig
væri hugsanlega hægt að fá styrk
frá umhverfismálaráðuneyti, iðn-
aðarráðuneyti og Byggðastofnun
í slík verkefni.
Verkefnið mætti vinna í eftir-
farandi þrepum:
1. Forverkefni:
- Taka saman fyrirliggjandi
gögn og raða saman.
- Gera athugun á hvernig ætti
að standa að úttekt og hvað hún
kostaði.
2. Úttekt:
- Gera skipulegt yfirlit um
auðlindir svæðisins (magn, gæði,
aðgengileika.)
- Gera grein fyrir innri upp-
byggingu (,,infrastructure“)
svæðisins á skipulegan hátt.
- Gera grein fyrir þróun t.d.
atvinnumála, fólksfjölda, fjölda
ferðamanna, samgangna svæðis-
ins og einstakra byggðarlaga.
- Gera grein fyrir hvað ein-
stök sveitarfélög hafa að bjóða'
nýjum fyrirtækjum.
3. Vinnsla á fýsilegu verkefni
til að bjóða fjárfestingaraðilum.
4. Gera bækling eða bæklinga
fyrir sýsluna, eða einstök eða
fleiri sveitarfélög þar sem staðar-
kostum er lýst og senda völdum
fyrirtækjum og aðilum innan
þeirra.
Ásgeir Leifsson.
Höfundur er iðnráðgjafi á Húsavík.
i
lesendahornið
r-
Miðbær Akureyrar:
Nýtt bflastæði til fyrirmyndar
„Ein er sú framkvæmd í miðbæ
Akureyrar sem farið hefur hægt
og hljótt í haust og sumar en það
er gerð bifreiðastæða sunnan við
BSO. Ég er einn þeirra sem
reglulega þarf að leggja leið mína
í miðbæinn og þá jafnframt að
finna stæði fyrir bílinn. Eftir að
þetta nýja stæði kom er yfirleitt
vandalaust að finna bílastæði og
það sem meira er; skipulagið á
þessu stæði er til fyrirmyndar og
gerir að verkum að auðvelt er að
aka í gegnum stæðið og jafnframt
þarf maður ekki að óttast að
lenda á næsta bíl því svigrúmið er
nægt. Skipulagsdeild bæjarins á
hrós skilið fyrir góða skipulagn-
Gestur er góður
útvarpsmaður
Húsmóðir hringdi
„Af gefnu tilefni vil ég taka frarn
að þáttur Gests Einars Jónasson-
ar, Umhverfis landið á áttatíu, er
að mínu mati mjög góður og er
ég algjörlega ósammála karl-
manni sem kvartaði yfir þætti
hans í lesendadálki Dags 28. des-
ember sl.
Lagaval Gests finnst mér mjög
gott og hann er sjálfur áheyrileg-
ur útvarpsmaður.
Hins vegar finnst mér ástæða
til að kvarta undan Stefáni Jóni
Hafstein, kollega Gests á Rás 2.“
ingu og umhverfisdeild fyrir
skjótan og smekklegan frágang.
Sjallinn:
Léleg
loftræsting
Lesandi hringdi og vildi kvarta
yfir lélegri loftræstingu í Sjallan-
um. Hann kvaðst hafa farið í
Sjallann á annan í jólum og var
ekki fyrr kominn inn er hita-
svækja skall á honum. Að sögn
lesandans var húsið yfirfullt, hvar
sem fæti var borið niður, og loft-
ræstingin var annað hvort engin
eða gerði ekkert gagn. Þá var
mikill troðningur við fatahengið,
en hitinn var verstur og munu
gestir hreinlega hafa flúið út
vegna loftleysis og svækju. Yfir
þessu vill Sjallagesturinn kvarta
og er því hér með komið á fram-
færi.
Fer eitthvað fleira í taugam-
ar á honum en Gestur Einar
Lesandi hringdi.. og vildi mót-
mæla lesendabréfi karlmanns í
lesendahorni Dags í gær þar sem
icvartað var yfir Gesti Einari Jón-
§ssyni í útvarpsþættinum
Umhverfis landið á 80. „Það er
alveg ljóst að það fer eitthvað
fleira í taugarnar á þessum manni
en bara Gestur Einar. Ég held að
hann sé bara að þjóna lund sinni,
nema að hann sé einn af þeim
mönnum sem ekki ber við að
rökstyðja það sem hann segir.
Hann notar þarna orð eins og
kjaftaþvæla og kjaftavaðall en
þetta er engin rökstudd gagnrýni.
Maðurinn hellir úr skálum reiði
sinnar og ég mótmæli þessari
lélegu röksemdafærslu. Ef hann
gerir sig að dómara í ibálum sem
hann þykist hafa vit á þá má
benda honum á að nota betri rök
og skemmtilegra orðaval, þó ekki
væri nema í tilefni jólanna.
Reyndar hlusta ég lítið á
útvarp, því miður, en þá sjaldan
sem ég hlusta á Gest þá hugsa ég
sem svo að þarna fari einn okkar
besti og liprasti maður í þessu.“