Dagur - 29.12.1989, Qupperneq 7
Föstudagur 29. desember 1989 - DAGUR - 7
Annálsbrot ársins 1989
- nokkur tíðindi á síðum Dags riíjuð upp
Annáll Dags verður með öðru sniði að þessu sinni. í stað þess að taka hvern
mánuð ítarlega fyrir verður megináhersla lögð á stutt viðtöl við fólk í hinum
ýmsu greinum atvinnu- og listalífsins. Við biðjum fólkið að rifja upp minnis-
stæðustu atburði ársins í viðkomandi grein en þó leggjum við hinn hefð-
bundna annál ekki alveg á hilluna því hér kemur stutt yfirlit yfir markverð
tíðindi sem Dagur flutti á árinu 1989.
Janúarmánuður
ýmsum tölulegum
hefst með
upplýsingum
frá árinu áður. Brunaútköllum
fækkaði milli ára á Akureyri, 62
íslendingar létust af slysförum á
árinu 1988, uppsveifla var í fæð-
ingum á Akureyri o.s.frv. Einnig
mátti sjá þau uggvænlegu tíðindi
að Hafnfirðingar væru nú orðnir
fleiri en Akureyringar en grípum
nú niður í nokkur fréttnæm atriði
á síðum Dags.
Janúar
Peningar heimtaðir
fyrir víni
6. janúar: „Ég hef oft verið rænd-
ur allri lífshamingju.“ Pannig var
fyrirsögn viðtals við Ottó Gott-
freðsson, 75 ára gamlan mann á
Akureyri, sem hafði í áraraðir
mátt þola ofsóknir drykkjusjúks
fólks. Fólkið tróð sér upp á hann
með góðu eða illu og heimtaði af
honum peninga fyrir víni. Viðtal-
ið vakti mikla athygli sem von er.
Febrúar
Drykkja unglinga og
Virginía
Lítum næst á febrúar. Valur Arn-
þórsson lætur af starfi kaup-
félagsstjóra KEA og bæjarstjórn
Akureyrar ræðir um drykkju
unglinga. Steingrímur J. vill
banna heimaslátrun, ættfræðing-
ur á Sauðárkróki ræðir fjálglega
um hassneyslu sína en Hótel
Varðborg breytist í Hótel
Norðurland. Grímsey tútnar út
vegna fannfergis.
Af fleiri atburðum í febrúar
rná nefna að 32 farþegar sluppu
með skrekkinn er Fokker vél
hlekktist á við lendingu á Akur-
eyrarflugvelli. Síðan verður allt
vitlaust í kringum sýningu Leik-
félags Akureyrar á leikritinu
Hver er hræddur við Virginíu
Woolf? Leikstjórinn tók pokann
sinn og vildi ekki kannast við
verkið fremur en höfundur tón-
listar og leikmyndahönnuður.
Húsvíkingum fjölgaði á sjómannadaginn er hjónin Hera Hermannsdóttir og
Stefán Sveinbjörnsson tóku að sér fósturbarn sem hlaut nafnið Snorri.
Hann fékk að sofa í bílskúr þeirra hjóna fyrstu nóttina en var síðan fluttur
út í garð vegna þess að mikinn fnyk lagði af honum. Krankleiki herjaði á
Snorra og von bráðar var hann allur.
10. janúar: Færeyska skipið
Tec Venture lenti í miklum hrell-
ingum í Eyjafirði. Fyrst strandaði
skipið við Gáseyri en þegar það
hafði náðst á flot sigldi það á tog-
arabryggju Útgerðarfélags Akur-
eyringa.
13. janúar: Sex hæða verslun-
ar- og skrifstofuhúsnæði verður
byggt í Hafnarstræti. Hér er átt
við stórhýsi sem Byggingafélagið
Lind hugðist reisa á bak við
bókabúðina Huld.
14. janúar: „Ástandið er bágt á
Akureyri,“ segir Ingjaldur Arn-
þórsson, nýráðinn starfsmaður
SÁÁ-N á Akureyri, og á þar við
áfengismálin almennt.
18. janúar: Erlendir loðdýra-
vinir hyggja á herför gegn
íslenskum loðdýrabúskap.
„Hvalveiðar eru geðslegri en loð-
dýrabúskapur,“ er haft eftir
Magnúsi Skarphéðinssyni.
26. janúar: Félagsstofnun stúd-
enta sækir um lóð til byggingar
stúdentagarða á Akureyri og er
.stefnt að því að taka fyrsta áfang-
ann í notkun fyrir næsta skólaár.
„Við verðum að fá peninga,
aniiars getum við ekki framleitt
fóður,“ segir Guðmundur Stefáns-
son, framkvæmdastjóri ístess, en
fjárhagsvandræði fiskeldisfyrir-
tækja voru farin að segja til sín.
Anna Ýr leysti Hallfreð af
hólrni og menn biðu spenntir eftir
bjórnum. Gífurlegt fannfergi var
á Norðurlandi undir lok febrúar
en næst skulum við huga að mars.
Mars
Reyklausir
og kellingalausir
Marsmánuður hefst með forsíðu-
frétt um kókaínsmygl sem tengist
Mývatnssveit, Ákureyri og
Reykjavík. Bjórinn er kominn og
1800 kassar að miðinum voru
seldir í ÁTVR á Akureyri fyrsta
daginn. Tvær konur á Akureyri
vilja stofna jóðl-klúbb og á fundi
um ávana- og fíkniefni kom fram
að neysla á amfetamíni og kókaíni
breiðist ört út.
Leikhússtjóri Leikfélags Akur-
eyrar sagði upp störfum og gaf
upp persónulegar ástæður. Stefán
Gunnlaugsson segir í helgarvið-
tali að það sé meiri grundvöllur
fyrir því að reka atvinnuknatt-
spyrnulið en atvinnuleikhús á
Ákureyri.
Fyrsta alnæmistilfellið greinist
á Akureyri. Á Sauðárkróki var
slitinn hausinn af 20 hænuungum,
4 hænur fótbrotnar og einn hani
lemstraður, auk þess sem hestur
var pirraður.
Apríl
Þá yfir í apríl. Að sjálfsögðu
brá Dagur á leik 1. apríl og m.a.
létu margir blekkjast af „frétt“
um nýjan veitingastað um borð í
Þorsteini EA.
Á Akureyri reyndu margir að
hætta að reykja, en reyklausi
dagurinn var miðvikudaginn 12.
apríl. Engum sögum fer af því
hvort Grímseyingar hafi verið
reyklausir en að sögn Sæmundar
Ólasonar voru þeir alveg „kell-
ingalausir" eftir að stór hluti
eyjarkvenna fór í menningarreisu
til Reykjavíkur.
Séra Pálmi Matthíasson var
kallaður til starfa í Bústaða-
kirkju, en næst lítum viö á maí-
mánuð.
Maí
Kaupfélagið tapar
3. nraí: Nýr kjarasamningur ASÍ
og VSÍ er metinn á um 10-12%
launahækkun.
4. maí: Dagheimilið Krógaból
fær húsnæði í kjallara Glerár-
kirkju.
6. maí: í ársskýrslu Kaupfélags
Eyfirðinga kom fram að 204
milljóna króna tap var á rekstrin-
um árið áður og veltuaukning
milli ára var undir verðbólgustigi.
11. maí: Ólafi H. Oddssyni
hefur verið falið að ræða við þá
20-30 starfsmenn Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri sem
skrifuðu undir bréf til landlæknis-
embættisins þar sem óskað er
rannsóknar á ýmsu í embættis-
færslu Gauta Arnþórssonar, yfir-
læknis á FSA.
12. maí: Sigurður Hróarsson
var ráðinn leikhússtjóri Leik-
félags Akureyrar og hann segist
örugglega hafa gengið oftar á
Súlur og Kerlingu en flestir
bæjarbúar.
19. maí: „Stríðið alls ekki
höfn skilaði rúmlega 18 milljóna
kr. hagnaði á síðasta ári.
Júní
Tómt malbik hjá
fegurðardrottningu
Holskefla verðhækkana heilsaði
landsmönnum í byrjun júní.
Nokkuð fer að bera á uppsögnum
og alvarlegum horfum í atvinnu-
lífinu. Sjómannadagurinn á
Akureyri átti 50 ára afmæli. Kyn-
óð eiginkona hverfur, er titill
sakamálasögunnar 3. júní.
Færeyska flutningaskipið Tec Venture strandaði við Gáseyri þann 7. janúar.
Skipið náðist á flot að kvöldi sama dags með aöstoð Sólbaks EA, togara
ÚA. En þar með var ekki öll sagan sögð því þegar til Akureyrar kom fór
skipið á of mikilli ferð upp að bryggju og skemmdi stálþilið á austurkanti
togarabryggjunnar neðan við ÚA. Tjón vegna árekstursins nam hundruðuni
þúsunda króna.
búið!“ Þetta er fyrirsögn fréttar
um yfirlýsingu útskriftarnema
Verkmenntaskólans á Akureyri.
20. maí: Hallfreður rekur
Önnu Ýr og ryðst fram á ritvöll-
inn á nýjan leik og kveðst hvorki
vera ær né örvita. í Heilsupóstin-
um er fjallað um horgemlinga.
25. maí: Breska fyrirtækið
A&P Appledore gerði úttekt á
íslenska skipasmíðaiðnaðinum
og komst aö þeirri niðurstöðu að
of margar stöðvar eltast við verk-
efnin. Fyrirtækið ráðleggur
stjórnvöldum að taka ekki á sig
tap iðnaðarins og ekki að taka
upp styrkjakerfi til frambúðar.
31. maí: Jökull hf. á Raufar-
Afkoma SÍS var hrikalcg á síð-
asta ári. Sambandið tapaði 1156
milljónum og kaupfélögin rúm-
um milljarði.
Sigurður J. Sigurðsson tók við
af Gunnari Ragnars sem forseti
bæjarstjörnar Akureyrar og
hauskúpur af sauðnautum koma í
leitirnar í Eyjafirði.
Séra Pétur Þórarinsson lilaut
lögmæta kosningu sem sóknar-
prestur í Glerárprestakalli, veru-
legur hallarekstur reyndist vera
hjá Sjálfsbjörg á síðasta ári og
bæjarstjórn Akureyrar vill kanna
möguleika á stóriðju. Afkoma
Kísiliðjunnar í Mývatnssveit var
góð á liðnu ári. Sigurður Thorar-
Stór flutningabíll frá Akureyri rann út af veginum skammt norðan við Mýri í Bárðardal 22. febrúar. Á bflnum voru
þrír snjóbflar í eigu Hjálparsveitar skáta á Akureyri, sem verið var að flytja inn á Nýjadal á Sprengisandi, en þar
stóð til að hafa samæfingu á vegum Landssambands Hjálparsveita skáta.