Dagur - 29.12.1989, Qupperneq 13
Föstudagur 29. desember 1989 - DAGUR - 13
hvað er að gerast
Akureyri:
Alþýðubankamótið
í bridds á morgun
Gal-Gopar litu við á kafTistofu Dags í gær og tóku lagið. Frá vinstri „geliðmaðurinn“ Óskar, „Konnarinn“ Stefán,
„altmúlíg-maðurinn“ Atli, „frekjan“ Vilberg og bóndinn fyrrverandi, Þorsteinn. Mynd: kl
Gal-Gopar skemmta Eyfírð-
ingum í Freyvangi í kvöld
í kvöld veröur haldin jóla-
skemmtun í Freyvangi sem Eyfirð-
ingar ættu ekki að láta fara fram
hjá sér. Skemmtunin hefst kl.
22.00 en inn á borð ritstjórnar
hefur borist fréttatilkynning frá
fimm félögum sem kalla sig Gal-
Gopa og ætla þeir að skemmta
gestum í kvöld af sinni alkunnu
snilld.
Söngsveitin Gal-Gopar er skip-
uð eftirtöldum mönnum, sam-
kvæmt „leikskrá." „1. tenór skal
telja Óskar Pétursson (alræmdan
gleðimann frá Álftagerði). Ann-
ar tenór er Stefán Birgisson
Konnari (og ekki orð um það
meir). Fyrsti bassi Vilberg Jóns-
son (sem heimtaði að vera með).
Annar bassi Þorsteinn Jósepsson
(fyrrum bóndi en nú frístunda-
sellóleikari). Þá er ótalinn Atli á
Þórustöðum (sem blæs í lúður,
útsetur, semur texta og syngur
sópran eða annað eftir þörfum).
Þá hefur verið samið við Dísu í
Klauf og Kammersveit Önguls-
staðahrepps um að annast undir-
leik.
Reyndar hefur einnig verið
orðað við Emilíu að fara með
gamanmál en hún bannaði að
setja það í auglýsinguna. Nú, að
loknum söng mun svo kammer-
sveit Öngulsstaðahrepps leika til
kl. 03.00 en hún er svo skipuð:
Séra presturinn lemur húðir.
Ólafsflörður:
Herrakvöld K-deildar
- haldið í kvöld
í kvöld, föstudagskvöldið 29.
desember, verður haldið herra-
kvöld knattspyrnudeildar Leift-
urs í Sandhóli, húsi Slysavarna-
félagsins í Ólafsfirði.
Tilgangur herrakvöldsins er að
létta karlmönnum lundina í
svartasta skammdeginu, sérstak-
lega þeim sem vilja styrkja Leift-
ur. Ákveðið er að fá frægan
mann til að flytja ræðu kvöldsins
en ekki er gefið upp hver hann
er. Sjón er sögu ríkari. Þá verða
ýmis skemmtiatriði úr léttari
deildinni.
Eiríkur blómabarn á Rein
plokkar bassa.
Reynir öðlingur í Hólshúsum
leikur á konsertflygil.
Vaka syngur.
Birgir Karlsson leikur á gítar.“
Vitaskuld hvetja þessir hug-
prúðu félagar alla til að láta sjá
sig á þessari óborganlegu
skemmtun!
Hið árlega Alþýðubankamót í
bridds verður haldið í Félags-
borg á morgun, laugardag.
Það eru Bridgefélag Akureyr-
ar og Bridgeklúbbur Hlíðar-
bæjar sem standa að mótinu
ásamt Alþýðubankanum á
Akureyri.
Alþýðubankamótið er öllum
opið og verður spilað um silfur-
stig. Um er að ræða tvíntennings-
mót með Mitchell-fyrirkomulagi
og verða spilaðar tvær lotur. Þau
pör sem hreppa þrjú efstu sætin á
ÓlafsQörður:
Áramótaball í
Tjamarborg
Ólafsfirðingar ætla að fagna nýju
ári með tilheyrandi húllumhæi í
Tjarnarborg á gamlárskvöld.
Áramótadansleikur hefst þar kl.
24 og stendur að öllum líkindum
til kl. 04 á nýársnótt.
Fyrir dansi leikur hljómsveitin
Miðaldamenn, sem er skipuð val-
inkunnum Siglfirðingum og
Ólafsfirðingum.
Að þessu sinni sér íþróttafélag-
ið Leiftur um áramótadansleik-
inn og hafa þeir Leiftursmenn
gefið út þá yfirlýsingu að ef ekki
verði betri aðsókn á áramóta-
dansleikinn í ár en undanfarin ár
verði þessi sá síðasti sem félagið
standi fyrir. óþh
Hótel Höfn á Siglufirði:
Dúndrandi stuð í kvöld
og aftur á nýársnótt
Stórdansleikur verður haldinn í
kvöld, föstudaginn 29. desember,
á Hótel Höfn á Siglufirði. Hljóm-
sveitin Miðaldamenn leikur fyrir
villtum dansi sem hefst kl. 23 og
stendur til 03. Aldurstakmark er
18 ár og stendur Björgunarsveitin
Strákar á Siglufirði fyrir dans-
leiknum.
Á gamlárskvöld verður aftur
blásið til leiks á Hótel Höfn. Þá
verður haldinn áramótadansleik-
ur sem hefst stundvíslega kl. 12 á
miðnætti. Nýja árið verður dans-
Fimm áramótadansleðc-
ir á Norðurlandi vestra
Á Sauðárkróki er áramótadans-
leikur frá kl 24.00 til 04.00 sem
Knattspyrnudeild Tindastóls sér
um og á nýársdag er dansleikur
frá kl. 23.00 til 03.00 í umsjá
Kvenfélags Sauðárkróks. Það er
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar sem sér um fjörið báða
dagana.
Á Hofsósi er áramótadansleik-
ur í félagsheimilinu frá miðnætti
til 04.00. Það er félagsheimilið
sem heldur dansleikinn en Gaut-
arnir leika fyrir dansi.
Dansað í Víkurröst
Dalvíkingar fagna nýju ári á við-
eigandi hátt með villtu dansiballi
í Víkurröst á nýársnótt. Blásið
verður til leiks klukkan tólf á
miðnætti í þann mund er nýtt ár,
1990, birtist á sjónvarpsskjá allra
landsmanna. Hljómsveitin Gall-
erí sér um fjörið. Dansleikurinn
stendur til kl. 04 á nýársnótt.
Á Hvammstanga er áramóta-
dansleikur í félagsheimilinu frá
00.30 til 04.30. Það er Kvenfélag-
ið á staðnum sem sér um dans-
leikinn en hljómsveitin er frá
Sauðárkróki og heitir Nítró.
Á Skagaströnd verður áramóta-
dansleikur frá 00.30 til 04.30 í
Fellsborg. Það er félagsheimilið
sem sér um hann. Hljómsveit
skipuð heimamönnum mun leika
fyrir dansi.
Á Blönduósi verður áramóta-
dansleikur haldinn milli 00.30 og
04.30 á vegum félagsheimilisins.
Það verður hljómsveitin Ottó
sem sér um fjörið.
að inn undir dillandi tónaflóði frá
siglfirsku hljómsveitinni Max.
Aldurstakmark 16 ár.
mótinu hljóta hvert um sig bikara
að launum svo og fjórar veislu-
máltíðir á Hótel Stefaníu á Akur-
eyri. Það er Alþýðubankinn á
Akureyri sem gefur bikara til
mótsins, auk farandbikars. í
verðlaun fyrir 4.-6. sæti á mótinu
eru fjórar veislumáltíðir á Hótel
Stefaníu og þá verða veitt bóka-
verðlaun fyrir 7.-10. sæti. Auk
þess verður efsta pari eftir hvora
lotu veitt bókaverðlaun.
Sem fyrr segir verður mótið
haldið á morgun, laugardag, í
Félagsborg á Akureyri og hefst
kl. 10.00 árdegis. Æskilegt er að
keppendur mæti tímanlega til
skráningar. Keppnisgjald er kr.
2.000 á par. Kaffi verður á boð-
stólum allan daginn, og er það
innifalið í keppnisgjaldinu.
AramótaböUí
Bleika fflnum
og SjaJlanum
Tveir áramótadansleikir verða á
Akureyri, í Sjallanum og Bleika
fílnum. í Sjallanum spilar hin
góðkunna akureyrska hljómsveit
Stuðkompaníið fyrir dansi á
gamlárskvöld. Forsala aðgöngu-
miða á dansleikinn verður í dag,
föstudaginn 29. desentber kl. 17-
19.
í Bleika fílnum verður einnig
mikil gleði. Eins og í Sjallanum
sjá heimamenn um að skemmta
fólki, hljómsveitin Glaumar
verður á sviðinu og spilar takt-
fasta nýársmúsík.
Félagið Ólund:
Uppákoma á Uppamim
Næstkomandi þriðjudagskvöld,
2. janúar 1990, kl. 22 mun félagið
Ólund standa fyrir uppákomu á
Uppanum. Þar munu átta ungir
Akureyringar, misungir að vísu,
lesa upp úr bókinni Rifbein úr
síðum, sem inniheldur ljóð þeirra
og sögur.
Höfundarnir eru þau Hannes
Sigurðarson, Helga Kvam,
Ásmundur Ásmundsson, Hlynur
Hallsson, Pétur Eyvindsson,
Heiðar Ingi Svansson, Hádegi og
Stefán Þór.
Félagið Ólund gaf bókina út á
ársafmæli sfnu 3. desember sl.
Bókin er 86 blaðsíður og spannar
hún mjög vítt svið skáldskapar
hvað varðar efnistök, stíl og
úrvinnslu.
Rifbein úr síðum er gefin út í
200 tölusettum og árituðum ein-
tökum og kostar aðeins 800
krónur. Þetta er fyrsta íslenska
bókin sem gefin er út án þess að
beinlínis sé stuðlað að fækkun
trjáa því hún er fjölrituð á endur-
unninn pappír.
Þá er bara að fagna nýju ári og
skella sér á Uppann að kvöldi
annars dags ársins 1990 og hlýða
á ljóð, sögur og óskilgreindan
skáldskap.
Hrísey:
Menn faðmast og kyssast
í Samkomuhúsinu á nýársnótt
Hríseyingar munu halda sitt
árlega nýársdiskótek í Samkomu-
húsinu á nýársnótt. Skífuþeytar-
inn sest við fóninn fljótlega upp
úr miðnætti og sér um að Hrísey-
ingar fái nóg af dillandi sömbum
iog rokki fram á nótt.
Tíðindamaður Dags í Hrísey
orðaði það svo að nýársdiskótek-
ið væri jafnan fjölsótt og þar
föðmuðust heimamenn og kysst-
ust og óskuðu hvorir öðrum
gleðilegs nýs árs.