Dagur - 10.01.1990, Side 12
MðUR
Kodak
Express
Gædaframköllun
Akureyri, miðvikudagur 10. janúar 1990
Veðurofsinn á landinu í gær:
Eyfírðingar sluppu
afivel úr klóm Kára
★ Tryggðu filmunni þinni
íbesta ^Peáíomyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, simi 23324.
Shhhhhhhhh
Hvassviðriö sem gekk yfir
landið síðasta sóiarhring virð-
ist ekki hafa valdið miklu tjóni
á Eyjafjarðarsvæðinu, a.m.k.
var það óverulegt síðdegis í
gær. Lögreglan á Akureyri
hafði þó fengið mörg útköll
vegna hluta sem voru á ferð og
flugi, enda fóru vindhviðurnar
upp í 72 hnúta, eða vel yfir 12
vindstig. Ahrif suðvestanáttar-
innar voru mest í Glerárhverfi.
Að sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni á Akureyri fuku kyrrstæðir
bílar til á svelli, lauslegir hlutir
fóru af stað, gámur fauk við skipa-
afgreiðslu KEA, en ekki var um
neitt stórtjón að ræða í þessum
tilvikum. Síðdegis í gær hafði spá
um brjálaða vestanátt og élja-
gang ekki ræst á Akureyri og
óvíst um framhaldið.
Á Sauðárkróki rauk hann hins
vegar upp að vestan um miðjan
dag og þar brotnuðu nokkrar
rúður í húsum. Á Siglufirði var
líka kominn éljagangur síðdegis.
Þar þeyttu snarpar vindhviður
hlutum af stað. Fiskkassi fauk á
bíl, útihurð fauk af húsi og lög-
reglumenn gómuðu tunnur sem
voru á fleygiferð um bæinn. Stál-
víkin kom til Siglufjarðar áður en
veðrið brast á með 75-80 tonn
eftir stutta útiveru.
Tíðindalaust var í Ólafsfirði en
á Dalvík fuku plötur af vinnuskúr
í gærmorgun. Þar lygndi um
miðjan dag en síðan rauk hann
aftur upp síðdegis.
Býsna hvasst var á öllum þess-
um stöðum en lögreglumenn
voru sammála um að þeir hefðu
búist við meiri látum í veðrinu.
Lögreglan var þó enn í viðbragðs-
stöðu.
Á Þórshöfn var hið þokkaleg-
asta veður í gær en nokkrar trufl-
anir á útvarpssendingum. Þá
voru töluverðar rafmagnstruflan-
ir á landinu í gær eftir að Hraun-
eyjarfossvirkjun og Sigölduvirkj-
un duttu út. Rafmagnslaust varð
á Austfjörðum en á Norðurlandi
urðu aðeins smávægilegar trufl-
anir. Þá voru flugsamgöngur
lamaðar. SS
„Mamma sjáðu hvað pabbi er duglegur að byggja."
Mynd: KL
Presthólahreppur eitt þriggja sveitarfélaga á Norðurlandi á
gjörgæslu vegna fjárhagserfiðleika:
Fékk 18 mÉjóna króna lán úr Lána
sjóði sveitarfélaga fyrir áramót
- Jöfnunarsjóður sveitarfélaga í ábyrgð fyrir láninu
Presthólahreppur er eitt
þriggja sveitarfélaga á
Norðurlandi sem félagsmála-
Vegir varasamir:
Gqothrun og hálka
í Olafsflarðarmúla
AUir vegir á Norðurlandi töld-
ust færir í gær, samkvæmt upp-
lýsingum frá vegaeftirliti Vega-
gerðar ríkisins á Akureyri.
Margir vegir voru þó varasam-
ir yfirferðar sakir hálku og
hvassviðris. Ekki var ráðlegt
að leggja í Olafsfjarðarmúlann
því þar var mikið grjóthrun og
vegurinn mjög háll.
Fært var frá Akureyri til
Reykjavíkur og einnig frá Akur-
eyri allt austur til Vopnafjarðar. í
Möðrudal var þó varla fólksbíla-
færi en jeppum og stórum bílum
fært til Egilsstaða og Vopnafjarð-
ar.
„Það er hálka og hvassviðri á
öllum þessum leiðum. Fólk virð-
ist hafa tekið mark á viðvörunum
því það hefur verið óvenju lítið
um ferðalög, enda varla ráðlegt
að ferðast við þessar aðstæður,"
sagði vegaeftirlitsmaður í samtali
við Dag í gær. SS
ráðuneyti hefur haft auga með
um hríð vegna erfiðrar fjár-
hagsstöðu. Hin eru Hofsós-
hreppur og Siglufjörður. Að
málefnum Presthólahrepps
hefur verið unnið á vegum
ráðuneytis, Byggðastofnunar
og Sambands íslenskra sveitar-
félaga og í desember var
ákveðið að úthluta sveitarfélag-
inu 18 milljóna króna greiðslu-
erfíðleikaláni úr Lánasjóði
sveitarfélaga. Að sögn fram-
kvæmdastjóra Sambands
íslenskra sveitarfélaga mun
lánveiting sem þessi úr sjóðn-
um vera einsdæmi.
Fjárhagserfiðleikar Presthóla-
hrepps hafa lengi verið miklir,
sem fyrst og fremst helgast af
þrengingum í atvinnulífi í
hreppnum. Stærsta atvinnufyrir-
tækið, Kaupfélag Norður-Þing-
eyinga, hefur átt í miklum erfið-
leikum og þá ber að geta áfalla
sem fiskeldisfyrirtækið Árlax hf.
varð fyrir á síðasta ári, sem síðar
leiddu til gjaldþrots fyrirtækisins.
Skipbrot burðarása í atvinnulíf-
inu hefur komið illa við hrepps-
kassann og á síðasta ári varð ljóst
að til þyrfti að koma fjárhags-
aðstoð með einum eða öðrum
hætti. Ýmsu var velt upp í því
sambandi en niðurstaðan varð að
veita sveitarfélaginu 18 milljóna
króna greiðsluerfiðleikalán til
eins árs úr Lánasjóði sveitar-
félaga. Að baki láninu er ábyrgð
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Að sögn MagnúsarE. Guðjóns-
sonar, framkvæmdastjóra Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, eru
lán úr Lánasjóði sveitarfélaga
yfirleitt fjárfestingarlán til langs
tíma, t.d. til skólabygginga og
gatnagerðar. Sjóðnum er einnig
heimilt að veita rekstrarlán.
„Þetta lán til Presthólahrepps er
nokkuð sérstakt vegna greiðslu-
erfiðleika sveitarfélagsins. Ég
held ég megi fullyrða að lán af
Húsavík:
Hús og hestar fuku, bflar skemmdust
og 23 rúður brotnuðu í flugstöðumi
allt í einum byl
Hvassan byl gerði á Húsavík
og í nágrenni um kl. 15 i gær-
dag og varð þá nokkurt tjón á
mannvirkjum og bifreiðum.
23 rúður í flugstöðinni á
Húsavíkurflugvelli brotnuðu i
þessuin eina byl, er hann reif
upp grjót úr flugstöðvarhlað-
inu og þeytti í rúðurnar eins
og byssukúlum. Engar
skemmdir urðu þó inni í flug-
stöðinni þar sem það var að-
eins ytra glerið í rúðunum
sem brotnaði. Trappan, sem
notuð er við Fokkervélarnar
á vellinum, tókst á loft og
fauk 100 metra út í hraunið.
Tjón varð á Húsavík í liörð-
um byl á sama tíma, vegavinnu-
skúr í Haukamýri fauk langa
leið og niður í gil þar sem hann
fór í mask. Heyhlaða í Hauka-
mýri, sem gerð var úr hálfum
olíutanki, fauk niður í fjöruna,
neðan við bakkann. Sjónarvott-
ur taldi að hestar í Haukamýr-
inni hefðu fokiö í bylnum, án
þess að þá sakaði við lendingu.
Þrettán metra langur flutninga-
vagn fauk á hliðina syðst í
Húsavíkurbæ og bátur sem stóð
uppi í Laugarholti, brá sér milli
lóða án leyfis frá eigendum.
Rusl fauk á glugga íbúðarhúss í
Laugarholti svo hann brotnaði,
og einnig var vitað urn skemmd-
ir á tveim bifreiöum. Allskonar
rusl og dót fór á flugaferð í
bylnum, en ekki var vitað um
meiri skemmdir af völdum
veðursins á Húsavík síðdegis í
gær. IM
þessum toga úr Lánasjóði sveit-
arfélaga er einsdæmi," segir
Magnús.
Hann segir að ákveðinn hafi
verið einn gjalddagi af þessu láni
og eigi það að greiðast upp í des-
ember á þessu ári. „Ráðherra
fyrir hönd Jöfnunarsjóðs er
ábyrgur fyrir greiðslu þessa
láns.“
„Þetta er greiðsluerfiðleikalán
til eins árs. Það verður síðan að
koma í ljós hvernig sveitarfélag-
inu gengur að greiða af því,“ seg-
ir Ingunn St. Svavarsdóttir,
oddviti Presthólahrepps. óþh
Skólastarf í gær:
Kennsla víða
felld niður
Kennsla var felld niður í
grunnskólum Akureyrar eftir
hádegi í gær og einnig í Tón-
listarskólanum á Akureyri. Þá
var engin kennsla í Hrafnagils-
skóla í gær vegna veðurofsa og
hálku á vegum. Skólastarf
raskaðist víða.
í gærmorgun herti vind á
Akureyri og fljótlega fóru að ber-
ast tilkynningar frá grunnskólan-
um. Skólastjóri Barnaskóla
Akureyrar kom því á framfæri til
foreldra að sækja börn sín, þau
yrðu ekki send ein heim, og síðan
varð ljóst að öll kennsla yrði felld
niður í grunnskólunum eftir
hádegi.
Ingólfur Ármannsson, skóla-
og menningarfulltrúi Akureyrar-
bæjar, sagði að ákveðið hefði
verið að fella niður kennslu
vegna veðurhæðar og mikillar
hálku á götum og gangstéttum.
Einnig var tekið tillit til þess að
yngstu nemendurnir sækja skól-
ana yfirleitt eftir hádegi. SS