Dagur - 12.01.1990, Side 11
íþróttir
Föstudagur 12. janúar 1990 - DAGUR - 11
-
firlingur Kristjánsson og KA-liðið mæta Valsmönnum í 1. deildinni í hand-
knattleik.
íþróttir helgarinnar:
Allt á ftillu
í boltaíþróttunuin
Það verður mikið um að vera í
boltaíþróttunum um helgina.
Leikið verður í 1. og 2. deild-
inni í handknattleik og Urvals-
deildinni í körfuknattleik. Síð-
an er leikur í unglingaflokki í
körfuknattleik á Sauðárkróki.
Keppnin í 1. deildinni í hand-
knattleik hefst á laugardaginn.
KA leikur við Val á Akureyri kl.
16.30. KA-menn eiga harma að
hefna frá síðustu viðureign en þá
misstu Akureyringarnir niður
forskot undir lok leiksins. Það
verður því hart barist í Höllinni á
laugardaginn.
íþróttir
helgarinnar
Handknattleikur:
Föstudagur:
2. deild karla...I>ór-Selfoss í fþrótta-
höllinni kl. 20.30.
2. deild kvenna..Þór-Selfoss ( íþrótta-
höllinni kl. 21.45
Laugardagur:
1. deild karla...KA-Valur í fþróttahöll-
inni kl. 16.30
Sunnudagur:
3. deild karla...ÍH-Völsungur í Hafnar-
firði kl. 14.00
Körfuknattleikur;
Föstudagur:
Unglingaflokkur..Tindastóll-ÍBK á
Saudárkróki kl.20.00.
Sunnudagur:
Úrvalsdeildin...t>ór-ÍBK í fþróttahöll-
inni kl. 20.00
Úrvalsdcildin...Valur-UMFT í Reykja-
vík kl. 20.00
Knattspyrna:
fslandsmótið innanhúss, 2., 3. og 5.
deild í Reykjavík.
Handboltinn byrjar hins vegar
á föstudagskvöldið er Þórsarar
ieika við Selfoss í 2. deild karla
og Þórsstelpurnar við Selfoss
strax á eftir. Strákarnir unnu
nauman sigur á FH-b í síðasta
leik og verða að taka sig saman í
andlitinu til að vinna sigur á Sel-
fyssingunum. Róðurinn verður
erfiður hjá stelpunum því Sel-
fyssingar eru efstir í deildinni. En
Þórsstelpurnar munu ekki gefa
eftir baráttulaust. Leikurinn hjá
strákunum hefst kl. 20.30 og hjá
stúlkunum strax á eftir.
Unglingaflokkur Tindastóls
leikur við ÍBK í bikarkeppninni á
Sauðárkróki í kvöld kl. 20.00.
Þetta er fyrsta umferð keppninn-
ar og má búast við hörkuleik.
Liðin áttust við fyrr í vetur í
íslandsmótinu og sigraði þá
Tindastóll í hörkuleik.
í Hafnarfirði spila Völsungarn-
ir í 3. deildinni í handboltanum
við ÍH. Leikurinn hefst kl. 14.00
í íþróttahúsinu við Strandgötu.
Um helgina fer fram íslands-
mótið í innanhússknattspyrnu í
Laugardalshöllinni í Reykjavík,
2., 3. og 5. deild. Þar eru m.a. lið
Þórs, KA, KS, HSÞ-b, Einherja
og Hvatar. í 3. deildinni eru
Reynir og Kormákur.
Pórsarar:
Aðalfúndur
knattspyraudefldar
Aðalfundur knattspyrnudeild-
ar Þórs verður haldinn
fímmtudaginn 18. janúar n.k.
á Hótel Norðurlandi (norður-
sal) og hefst kl. 20.30.
A fundinum verða venjuleg
aðalfundarstörf og önnur mál.
Þórsarar eru hvattir til að fjöl-
menna á fundinn.
Takið þátt
í kjörinu
Þá birtum við aftur kosninga-
seðilinn fyrir íþróttamann
Norðurlands árið 1989. Þegar
eru bréfín farin að berast inn á
íþróttadeildina og nú hafa yfír
20 íþróttamenn hlotið eitt eða
fleiri atkvæði. Lesendur eru
hvattir til að senda seðilinn inn
sem fyrst því best er að fá
atkvæðin inn sem fyrst.
í fyrra hlaut Guðrún H. Krist-
jánsdóttir skíðakona frá Akur-
eyri titilinn „íþróttamaður
Norðurlands," en einnig hafa þau
Halldór Áskelsson knattspyrnu-
rnaður frá Akureyri, Daníel
Hilmarsson skíðamaður frá Dal-
vík og Kári Elíson kraftlyftinga-
maður frá Akureyri hlotið titil-
inn.
Fimm íþróttamönnum verður
veitt viðurkenning og auk þess
hlýtur „íþróttamaður Norður-
lands 1989“ glæsilegan farandbik-
ar til varðveislu í eitt ár.
í dag og næstu daga verður
þátttökuseðill í blaðinu og eiga
lesendur að skrifa fimm nöfn á
hann og senda blaðinu fyrir 20.
janúar næstkomandi. Þrír þátt-
tökuseðlar verða dregnir út og
hljóta eigendur þeirra hljóm-
plötuvinning að launum. Það er
því til einhvers að vinna um leið
og höfð eru áhrif á val „íþrótta-
manns Norðurlands 1989“.
Lesendur eru hvattir til að
bregðast skjótt við og senda blað-
inu seðilinn útfylltan til blaðsins
fyrir 20. janúar.
íþróttamaður
Norðuriands 1989
Nafn íþróttamanns: Iþróttagrein:
1.
2.
3.
4.
5.
Nafn: Sími:
Heimilisfang:_____________________________________
Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1989
c/o Dagur, Strandgötu 31, 600 Akureyri.
Skilafrestur til 20. janúar 1990.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Kjötiðnaðar-
stöðvarslagur
Magnús Sigurólason hafði ekki mikiö í Rúnar Sigurpálsson í
getraunaleiknum að gera. Rúnar er nú orðinn sá allra þrautseig-
asti sem hefur verið í þessum leik. Hann heldur því áfram og
skorar nú á starfsfélaga sinn hjá Kjötiðnaðarstöð KEA, Jónberg
Hjaltalín, og verður athyglisvert hvort Rúnari tekst að „slátra"
Jónbergi eins og öðrum andstæðingum fram að þessu.
Það var enginn með 12 rétta í síðustu viku og potturinn þvi
tvöfaldur þessa vikuna. Augu Norðlendinga flestra beinast að
leik Nottingham Forest og Millwall en þar leikur Þorvaldur
Örlygsson og spurning hvort honum tekst að skora aftur fyrir
Forest-liðið. Sjónvarpsleikurinn er hins vegar viðureign Sout-
hampton og Everton en vonandi tekst Bjarna Fel. að fá leik með
Þorvaldi og félögum í Forest.
Rúnar: Jón:
Charlton-Aston Villa 2 Charlton-Aston Villa 2
Coventry-C. Palace 2 Coventry-C. Palace 1
Man. Utd.-Derby 1 Man. Utd.-Derby 1
Nott. For.-Millwall 1 Nott. For.-Millwall 1
Q.P.R.-Norwich X Q.P.R.-Norwich X
Southampton-Everton 1 Southampton-Everton 1
Tottenham-Man. City 1 Tottenham-Man. City 1
Wimbledon-Arsenal 2 Wimbledon-Arsenal 2
Blackburn-Leeds X Blackburn-Leeds 2
Ipswich-Sheff. Utd. 1 Ipswich-Sheff. Utd. 2
Plymouth-West Ham X Plymouth-West Ham 2
Swindon-Oldham 1 Swindon-Oldham X
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Utsala
í fullum gangi
Mikill
afsláttur