Dagur - 12.01.1990, Qupperneq 12
Akureyri, föstudagur 12. janúar 1990
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Fólksflutningar til höfuðborgarinnar:
Unga fólldð stærsti hópurinn
sem flytur suður á mölina
Umtalsverðir fólksflutningar
hafa átt sér stað á undanförn-
um árum frá landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins. í ný-
útkominni skýrslu Byggða-
stofnunar er því spáð að á
næstu 20 árum geti allt að
50.000 manns tekið sig upp og
flutt suður, sé tekið mið af
fólksflutningum á undanförn-
um árum.
Reynslan erlendis er sú að
vinna sé meginástæða flutninga
fólks frá landsbyggð til höfuð-
borgár. Sé svo einnig hér á landi
hljóti að vera ljóst að staðsetning
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar hf.:
Bekkurinn farinn á
veiðar og vinnsla
hefst í næstu viku
Ólafur Bekkur, togari Ólafs-
firðinga, fór í sinn fyrsta túr á
árinu í fyrradag og er væntan-
legur með fyrsta farminn til
vinnslu í Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar hf. í næstu viku.
Að öllu óbreyttu hefst vinna í
Hraðfrystihúsinu á þriðjudag.
Pað veltur þó á því að hráefni
fáist fyrir þann tíma.
Atvinnuástand í Ólafsfirði á
sama tíma í fyrra var mjög slæmt,
enda lá vinna þá niðri í frysti-
húsinu. Eftir sameiningu Hrað-
frystihúss Ólafsfjarðar og Hrað-
frystihúss Magnúsar Gamalíels-
sonar hófst vinna í Hraðfrystihúsi
Ólafsfjarðar hf. þann 28. mars á
sl. ári. Að sögn Ágústar Sigur-
laugssonar, starfsmanns Ólafs-
fjarðardeildar Verkalýðsfélagsins
Einingar, féll ekki einn einasti
dagur úr í frystihúsinu til 27. des-
ember sl. „Pær aðgerðir sem hér
var gripið til hafa skilað stórkost-
legum árangri og ljóst að At-
vinnutryggingasjóður og Hluta-
fjársjóður hafa bjargað þessu
byggðarlagi," segir Ágúst. óþh
vinnustaða sé lykilatriði í þéttbýl-
ismynduninni.
í skýrslu Byggðastofnunar
kemur einnig fram að langtum
stærsti hópur þeirra sem taka sig
upp og flytja til höfuðborgar-
svæðisins er fólk á aldrinum 20-
24 ára. Næst stærsti hópurinn er
fólk á aldrinum 25-30 ára, eða
15%.
Á sumum sviðum verða inn-
flytjendunum þessir flutningar til
ábata en á öðrum til aukinna
útgjalda. Skýrsluhöfundur kemst
að þeirri niðurstöðu að skattar
verði hærri hjá þeim í Reykjavík
og einnig muni húsnæðiskostnað-
ur stóraukast. Á hinn bóginn sé
ljóst að kostnaður vegna hita-
veitu sé minni á höfuðborgar-
svæðinu og einnig að launin eru
að jafnaði hærri þar en úti á
landi.
Nánar um fólksfiutninga til
höfuðborgarsvæðisins og áhrif
þeirra á bls. 5 og 6 í dag. JÓH
Gengið mót guðshúsi.
Mynd: KL
Ný haustlína frá Álafossi hf. fær góðar viðtökur:
Mohair-peysur, lambsufl, hand-
pijón og mokkaflíkur það nýjasta
Þessa dagana er verið að
kynna nýja haustlínu Alafoss
hf. og segir Jakobína Jónsdótt-
ir, sölumaður, að viðtökur hafi
verið framúrskarandi góðar.
vor- og sumarlína kynnt í fyrsta skipti
Jafnframt því að kynna haust-
línu er að hefjast kynning á vor-
og sumarlínu fyrirtækisins. Að
sögn Jakobínu fer sú kynning
nú fram í fyrsta skipti. Fyrir-
Skelfiskveiðin að heQast af krafti hjá Meleyri:
„Maður er bjartsýnn á framhaldið“
- Bjarmi og Siggi Sveins gerðir út á skelina
Skelfiskvinnsla hefst af krafti
hjá Meleyri hf. á Hvamms-
tanga á næstu dögum. Tveir
bátar verða gerðir út á skelina,
Bjarmi og Siggi Sveins. Mel-
eyri auglýsti fyrir skömmu eftir
fólki í skelfiskvinnsluna og
samkvæmt upplýsingum verk-
stjóra hefur að mestu tekist að
manna vinnsluna.
„Við byrjuðum aðeins á skel-
inni fyrir áramótin og það gekk
alveg ijómandi vel. Maður er því
bjartsýnn á framhaldið,“ segir
Jón Pálsson, verkstjóri hjá
Meleyri.
Hugmyndasamkeppni
Atvinnumálanefndar:
Þrettán tillögur eru
áfram undir smásjáuni
Þrettán hugmyndir í hug-
myndasamkeppni Atvinnu-
málanefndar Akureyrarbæjar
verða ítarlega skoðaðar á
næstu tveim vikum.
Dómnefnd kom saman til
fundar í vikunni og þar var
ákveðið að skoða betur 13 af 35
innsendum hugmyndum. Starfs-
menn Iðnþróunarfélags Eyja-
fjarðar hf. munu fara yfir hug-
myndirnar, meta þær og afla um
þær frekari upplýsinga. Dóm-
nefnd mun halda aftur fund að
hálfum mánuði liðnum og þá
verða væntanlega teknar út 5-6
bestu hugmyndirnar. Þær þrjár
bestu hljóta viðurkenningu og er
gert ráð fyrir að kunngera niður-
stöðu dómnefndar um miðjan
næsta mánuð. óþh
Bjarmi var keyptur frá Dalvík
á síðasta ári. Hann er 51 tonna
stálskip, smíðaður 1973. Bjarmi
er nú í Slippstöðinni á Akureyri
þar sem verið er að lagfæra ýmsa
hluti fyrir skelfiskveiðarnar. Að
öllu óbreyttu verður hann tilbú-
inn í slaginn núna í Iok vik-
unnar.
Hinn skelfiskbáturinn er Siggi
Sveins ÍS-29. Hann er öllu stærri
en Bjarmi, 104 lestir, smíðaður
1987.
Gert er ráð fyrir að um 15
manns vinni við skelfiskinn hjá
Meleyri, þar af 10-12 konur. Á
síðustu döguin hafa konur verið
ráðnar í skelfiskvinnsluna og
koma þær frá Hvammstanga, úr
nærsveitum og dæmi er um konu
alla leið frá Akureyri.
Auk skelfisksins rekur Meleyri
sem fyrr rækjuvinnslu. Innfjarð-
arveiðin er hafin eftir áramótin,
en vegna veðurs hefur heldur lít-
ið veiðst. Að sögn Jóns Pálssonar
má ætla að ef allt gangi að óskum
með bæði rækjuna og skelina
verði allt að 50 manns starfandi
hjá Meleyri á næstu vikum. óþh
tækið leggur nú aukna áherslu
á markaðs- og kynningarstarf
og binda menn vonir við að
það muni skila sér þegar til
lengri tíma er litið.
Haustlínan er í mörgu frá-
brugðin fyrri tískulínum Álafoss
hf. Helsta nýjungin eru mohair-
peysur, sem eru blandaðar
mohair-ull. Þá má nefna peysur
úr lambsull og handprjónaðar
flíkur. Einnig má geta þess að í
fyrsta skipti er nú verið að kynna
mokkaflíkur.
Að sögn Jakobínu eru þessar
nýjungar til að svara kröfum við-
skiptavina. Mörgum hefur fund-
ist sem peysur úr hreinni íslenskri
ull væru of þykkar og óþægilegt
að ganga í þeim. Til að mæta
þessu var ákveðið að koma fram
með mohair-peysurnar og peysur
úr lambsull.
Auk haustlínunnar er verið að
fara af stað með kynningu á vor-
og sumarlínu. Þar er einungis um
að ræða kvenfatnað úr bómull.
Fyrsta skrefið í kynningu á
haustlínu Álafoss var að bjóða til
tískusýningar á Hótel Loftleiðum
í Reykjavík. Á þá sýningu var
boðið fulltrúum verslana sem
selja íslenskan fatnað. Næsta
skref er að útbúa kynningarbækl-
inga og auglýsingar til að ná til
erlendra ferðamanna.
Að sögn Jakobínu hefur geng-
ið heldur illa að selja íslending-
um framleiðslu fyrirtækisins. „Eg
held að helsta skýringin á því sé
að íslendingar halda að gamla
góða lopapeysan líti alltaf eins
út. Fólk virðist lítið vita um
hvað við framleiðum hér,“ segir
iJakobína.
Haustlínan var eins og áður
segir kynnt í Reykjavík en ætlun-
in er að kynna hana víðar um
land. Meðal annars verður hún
kynnt innan tíðar á Akureyri.
Hún er einnig kynnt erlendis,
bæði vestan hafs og austan. Ála-
foss hefur eins og kunnugt er
söluskrifstofur í Bandaríkjunum
og V-Þýskalandi og þá hafa Jap-
anar keypt framleiðslu fyrirtækis-
ins og látið vel af. óþh
Innbrotið í Apótekið í Ólafsfirði:
„Smokkakrækir“ fimdinn
Lögreglan í Ólafsfirði hefur
náð að upplýsa innbrotið í
Apótekið í Ólafsfirði aðfara-
nótt 29. desember sl. Ólafs-
firðingur innan við tvítugt hef-
ur játað á sig innbrotið og stuld
á um 30 þúsund krónum og
nokkrum smokkum.
Lengi vel grunaði lögreglu að
fleiri en einn hefðu verið að
verki. Þrír menn lágu undir grun
en við nánari skoðun kom í ljós
að tveir mannanna gátu ekki hafa
átt þarna hlut að máli. Þriðji
maðurinn bar fyrst á móti að hafa
brotist inn en gaf sig síðan og ját-
aði á sig verknaðinn. Hann hefur
; ekki komið áður við sögu lögregl-
íunnar. óþh