Dagur - 30.01.1990, Side 5
Þriðjudagur 30. janúar 1990 - DAGUR - 5
itf *r ,
Hér sést hörð bithlíf í efri góm. All-
ar tennur í neðri góm fá góðan
stuðning á hlífinni.
Það köllum við slitgigt í kjálka-
liðum. Þessi atburðarás veldur
oft miklum sársauka í kjálkalið-
um, hreyfigeta kjálkans verður
takmörkuð, tyggingarvöðvar
verða aumir og verki leggur upp í
höfuð, fram í andlit og aftur í
eyru.
Hvað er til ráða?
Það hefur gefist vel að lækna bit-
sjúkdóma með bithlífum bæði
hörðum og mjúkum.
Hörð bithlíf er gerð úr plasti.
Henni er smellt á eigin tennur
eða gervitennur. Hvernig hjálpar
hörð bithlíf? Hún hjálpar þannig,
að hún veitir neðri kjálka stuðn-
ing í samanbiti og öllum hreyf-
ingum. Hún kemur í veg fyrir, að
tennurnar bíti saman í þéttasta
biti og losar kjálkann við að bíta
sífellt saman í óeðlilegri og
^þvingaðri stöðu, misbiti. Smám
isaman stillir kjálkinn sér í þá
s:töðu, sem honum er eðlileg,
eðlisbit. Harðar bithlífar taka
álag af kjálkaliðum. Þær styðja
við kjálkann í öllum hreyfingum.
Bithlífin myndar bil á milli tann-
anna og þá myndast einnig bil á
milli liðflata og liðbrjóskið verð-
ur ekki fyrir eins miklu hnjaski af
liðhausnum. Hörð bithlíf tekur
álag af kjálkalið eins og hækja
tekur álag af t.d. öklalið.
Mjúk bithlíf er úr mjúku plasti.
Hún er gjarnan notuð lianda
fólki, sem sífellt bítur saman
tönnum og spennir um leið vöðva
í höfði og hálsi. Vöðvarnir verða
aumir og valda höfuðverk og
mjúk bithlíf hjálpar þessu fólki til
að slaka á.
Bati - eftirmeðferð
Þegar sjúkdómseinkenni eru
horfin eða verulega hefur dregið
úr þeim með notkun bithlífar, þá
hefur neðri kjálki tekið sér stöðu
í eðlisbiti. Nú þarf oft að laga
tennurnar eitthvað til, svo að þær
starfi t.d. tyggi í eðlisbiti. Það er
gert með bitslípingum, tannrétt-
ingum, smíði á krónum, brúm,
Aðalfundur
Golfklúbbs Akureyrar
verður haldinn að Jaðri miðvikudaginn 31.
janúar kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Hér sjáum við eðlilegan kjálkalið.
Hér hefur liðbrjósk færst úr stað fram fyrir liðhaus. Það hindrar hreyfingar
kjálkans og veldur sársauka í kjálkalið.
Útsaumur
Álafoss hf. býður nú í fyrsta skipt-
ið vélprjónaðar peysur með
útsaumuðu „bróderuðu“ mynstri.
Þessi nýjung hefur hlotið afar góðar viðtökur við-
skiptavina innanlands og erlendis.
Við leitum því að vandvirku og samviskusömu fólki
sem getur tekið að sér að „bródera" peysurnar á
tímabilinu febrúar-apríl n.k.
Hér er um að ræða tilvalið verkefni fyrir einstaklinga
eða félagasamtök hvar sem er á landinu.
Nánari upplýsingar veitir Ása Gunnarsdóttir í síma
96-21900 frá kl. 13.00 til 16.00, frá og með þriðju-
deginum 30. janúar.
/
*
Alafoss hf. Akureyri
pörtum eða gervitönnum. Tak-
markið er, að tennur snertist
jafnþétt á sem flestum stöðum í
munninum í eðlilegri bithæð,
bæði í samanbiti og hreyfingum.
Þegar því marki er náð geta flest-
ir hætt að nota þithh'f.
Lokaorð
Þú skalt spyrja tannlækninn þinn,
hvort samanbit þitt geti verið or-
sökin:
- ef þú þreytist við tyggingu.
- ef þú ert með þrálátan höfuð-
verk, sem leggur upp í gagn-
augu og enni og fram í andlit.
- ef þú gnístir mikið tönnum eða
bítur þeim saman í sífellu.
- ef þú vaknar á morgnana með
samanbitnar tennur og þreytu-
verki í kjálkum.
- ef þú heyrir smelli og finnur til
sársauka í kjálkaliðum.
- ef þú átt erfitt með að opna
munninn og hreyfa til neðri
kjálkann og hann festist stund-
um í einhverri stöðu.
- ef þú finnur fyrir þrýstingi og
verk út í eyrun og læknirinn
þinn finnur ekkert athugavert.
T annverndarvika
Ákveðið hefur verið að árlegur
Tannverndardagur Tannvernd-
arráðs verði næsta föstudag,
þ.e. föstudaginn 2. febrúar. Að
j?essu sinni veröur lögð megin-
áhersla á umfjöllun um matar-
venjur íslendinga. Einkunnar-
orð dagsins verða „Sífellt nart
skemmir tennur“.
Vikan fram að tannverndar-
degi veröur að venju tilcinkuö
tannvernd og hefur tekist gott
samstarf milli Dags og Tann-
læknafélags Norðurlands um
kynningú á þessu þarfa málefni.
Dagur mun f dag og næstu þrjá
daga birta greinar eftir tann-
lækna á Norðurlandi þar sem
fjallað er um tannvernd frá
ýmsum sjónarhornum.
Ritstjóri.
Keppnin um
Herra Norðurland
haldin í Bleika Fílnum
laugardaginn 10. mars
Leit að keppendum er hafin
Valinn verður Herra Norðurland og
kynþokkafyllsti karlmaðurinn á Norðurlandi
sem síðan verður sendur til Reykjavíkur
í keppnina
HERRA ÍSLAND 1990
Áhugasamir sendi mynd og upplýsingar
um aldur, hæð og áhugamál til Bleika Fílsins.
Einnig er tekið við ábendingum
á staðnum eða símleiðis.
Bleiki Fíllinn
Hafnarstræti 100, Akureyri,
símar: 26690 og 25500.