Dagur - 30.01.1990, Síða 16
30300
Flugsamgöngur í gær:
Ferðir felldar niður hjá FN
Flugfélag Norðurlands varð að
aflýsa flugi til ísafjarðar í gær.
Flogið var til Ólafsfjaröar og
Siglufjarðar í gærmorgun en
ekki var hægt að fljúga frá
Ólafsfirði til Reykjavíkur. Þá
varð FN að aflýsa flugi til
Siglufjarðar seinnipartinn í
gær.
Hjá Flugleiðum gengu flug-
samgöngur þokkalega í gær.
Fyrsta vél til Akureyrar var
reyndar sein fyrir vegna ófærðar-
innar og fór vélin suður klukkan
hálf eitt með farþega frá Akur-
eyri, en að öðru leyti gekk flugið
vel. SS
Ofankoma og skafrenningur:
Þungfært á flestum
vegum norðanlands
Miklum snjó hefur kyngt niður
á Norðurlandi að undanförnu
og færð á vegum þung, jafnt á
þjóðvegum sem í þéttbýli. I
gær voru snjóruðningstæki
Vegagerðarinnar keyrð af full-
um krafti en það reyndist tíma-
frekt að ryðja snjóinn vegna
þess hve mikill hann var. Flest-
ar aðalleiðir opnuðust þó, en
ekkert var átt við Ólafsfjarðar-
múla í gær.
Hjá Vegaeftirlitinu á Akureyri
Hjallalundur 18-20:
Allt komið
í samt lag
innan fimm vikna
fengust þær upplýsingar að snjó-
ruðningstæki hefðu verið að
störfum á Öxnadalsheiði í allan
gærdag, en þar var skafrenningur
og tvísýnt hve lengi vegurinn yrði
fær. Þá var rutt frá Akureyri til
Dalvíkur og hliðarvegir einnig.
Fært var austur um og allt til
Vopnafjarðar.
„Hér innan Akureyrar byrjuðu
tvö tæki snemma í morgun og
það er langt frá því að þeirri
vinnu Ijúki í dag,“ sagði Björn
Brynjólfsson, vegaeftirlitsmaður,
í samtali við Dag í gær.
A Norðurlandi vestra var enn
meiri ófærð í gær. Ófært var til
Siglufjarðar vegna veðurs í
gærmorgun en meiningin var að
reyna að opna veginn þangað.
Einnig var ófært til Hofsóss og
víðar á Norðvesturlandi, enda
mikið fannfergi og skafrenning-
ur. SS
Vélsleðamenn efndu til mikillar sýningar í íþróttaliöllinni á Akureyri uni hclgina. Þetta furðutæki var meðal ann-
ars til sýnis. Mynd: KL
Eldsvoði í Smárahlíð 1 á Akureyri:
Hnrð skall nærrí hælum
- enn óljóst með eldsupptök
Miklar skemmdir urðu í elds-
voða sem upp kom í þriggja
hæða fjölbýlishúsi við Smára-
hlíð 1 á Akureyri aðfaranótt
laugardags. Engin slys urðu á
fólki en Tómas Búi Böðvars-
son, slökkviliðsstjóri, orðar
það svo að þarna hafi hurð
skollið nærri hælum.
Slökkvilið var kallað út kl.
03.40 aðfaranótt laugardags.
Þegar að var komið lagði mikinn
reyk frá húsinu og hluti íbúðar á
neðstu hæð var alelda. Eldtungur
stóðu út um svefnherbergis-
glugga og byrjað var að loga í
gluggatjöldum samsvarandi
glugga á annarri hæð.
Greiðlega gekk að ráða niður-
lögum eldsins, að sögn Tómasar
Búa. Þrír voru í íbúðinni sem
eldurinn kom upp í, tvennt full-
orðið og eitt barn.
Mikinn reyk lagði um allt húsið
og af þeim sökum brugðu margir
á það ráð að fara út á svalir og
þaðan niður á rnóður jörð. Með
góðri aðstoð slökkviliðsmanna
gekk þetta giftusamlega.
Miklar skemmdir urðu á íbúð-
inni þar sem eldurinn kom upp.
Þá urðu að sögn slökkviliðsstjóra
miklar skemmdir í öðrum íbúð-
um hússins af völdum reyks.
Eldsupptök eru enn óljós, að
sögn Rannsóknarlögreglunnar á
Akureyri. óþh
Samkomulag tókst síðdegis sl.
föstudag milli byggingafull-
trúa, heilbrigðisfulltrúa og
slökkviliðsstjóra annars vegar
og forráðamanna S.S. Byggis
hins vegar um bílageymsluna í
fjölbýlishúsinu Hjallalundi 18-
20 og var hún opnuð á ný þann
dag.
Bílasalar á Akureyri:
Bflar í dýrari kantimim seljast
best þrátt fyrir meinta kreppu
I samkomulaginu fólst í fyrsta
lagi bráðabirgðalausn á loftræst-
ingu í bílageymslunni. í öðru lagi
féllst verktaki á að fjarlægja hjól-
barða úr kjallaranum og setja þá
í eldfasta geymslu. í þriðja lagi
var ákveðið að ganga betur frá
plastskólplögnum, sem liggja úr
kjallaranum og upp á hæðirnar.
Þá skuldbindur byggingaverk-
taki sig til að ljúka eldvörnum og
loftræstingu á næstu fimm vikum
og mun byggingafulltrúi fylgjast
með að það gangi eftir. óþh
Janúarmánuður hefur ætíð
verið í litlum metum hjá bíla-
sölum og svo er einnig þetta
árið. Salan er dræm, nýir bílar
hreyfast varla en aðeins er
spáð í notaða bíla. Bílasalar á
Akureyri sem Dagur ræddi við
voru yfirleitt sammála um að
þessi vetur hefði endurspeglað
bágt efnahagsástand í þjóðfé-
laginu og bílasala hefði því
dregist saman. En þetta er
lítil hreyfmg á ódýrum og notuðum bílum
ekki algilt.
Bifreiðaverkstæði Jóhannesar
Kristjánssonar er með umboð
fyrir Lada bíla á Akureyri og
sagði Jóhannes að salan hefði
verið jöfn og góð á síðasta ári,
mjög svipuð og árið áður, en bíl-
ar frá landi Perestrojkunnar hafa
verið í sókn hér á landi undanfar-
in ár. Kannski er hér um „týpísk-
an“ kreppubíl að ræða, því Jó-
hannes sagði að Ladan væri ódýr
og tæki ekki eins mikið úr pyngju
launþega og aðrir bílar.
„Það var allt dautt hjá okkur
fram undir miðjan janúar, eins
og vanalega, en síðan hefur kom-
ið dálítil hreyfing. Við vorum að
afgreiða nýja Lödu Sport núna
og það er töluvert spurt eftir
„fjallabílnum" í þessari færð.
Þetta fylgir skammdeginu og nú
fer salan að glæðast," sagði Jó-
hannes.
Þriðji bekkur M.A. mokar snjó frá húsum eldri borgara bæjarins:
Beint í snjómokstur að loknu síðasta prófinu
„Þetta er eitt af mörgu sem við
gerum til fjáröflunar. Sumir
voru nú ekki alltof hrifnir af
þessu í byrjun og fannst þetta
mikil vinna sem ekki fáist
nægilega mikið fyrir. En við
verðum að taka öllu sem okkur
býðst enda gerir margt smátt
eitt stórt,“ segir Sólveig Klara
Káradóttir, nemandi í þriðja
bekk Menntaskólans á Akur-
eyri, um þá fjáröflunarleið
bekkjarins fyrir ferðasjóð að
taka að sér snjómokstur hjá
eldra fólki í bænum í vetur.
Edda Bolladóttir hjá öldrun-
arþjónustu Akureyrarbæjar segir
að samkomulag hafi veriö gert
við 3. bekk M.A. uni 150.000 kr.
greiðslu fyrir mokstur við allt aö
30 hús í vetur. Þeir sem hafi ósk-
að eftir aö fá þessa þjónustu hafi
grcitt 2500 kr. fyrir mokstur í
vetur. „Ég held að krakkarnir
hafi staðið sig mjög vel í þessu og
gert þetta mjög samviskusam-
lega,“ segir Edda.
„Við förum yfirleitt tvö sarnan
og þetta tekur ekki langan tíma í
hvert skipti ef farið er rcgtulega.
Við skiptum húsunum eftir
bekkjum og hver bekkur hefur 3
hús en alls eru þetta núna um 20
hús sern við hreinsum frá,“ segir
Sólveig Klara.
Sólvcig segir að snjóakaflinn
að undanförnu hafi liitt iila á því
'pröf hafi staðið yfir í skólanum.
Hins vegar hafi það vcrið ágæt
tilbreyting að líta upp úr bókun-
um og skreppa í snjómokstur. Og
að loknu síðasta prófinu í skólan-
um í gær fóru nokkrir nemendur
þriðja bekkjar og tóku létta
syrpu í mokstri áður cn tekiö var
til við aðra skemmtan eftir prófa-
törnina. „En við liggjum náttúr-
lega á bæn og biðjum um snjó-
léttan vetur," bætir Sólveig við.
JÓH
Höldur sf. selur bæði nýja og
notaða bíla og virðist vera nokk-
ur samdráttur í báðurn deildum.
Hjörleifur Gíslason, sölumaður,
sagði að staðan í sölu á notuðum
bílum væri hefðbundin rniðað við
árstíma.
„Þetta er heldur minna í vetur
en undanfarin ár. Það er alltaf
eitthvað um skipti á bílum, en
snjósleðarnir vega upp á móti
þessum dauða tíma og það er
töluverð hreyfing á þeim. En
ástandið á Akureyri hefur auðvit-
að sitt að segja hjá bílasölum eins
og í atvinnulífinu almennt,"
sagði Hjörleifur.
Hljóðið var betra í Sigurður
Valdimarssyni. Hann sagði að
dýrari bílarnir seldust vel um
þessar mundir og salan í janúar
hefði verið meiri en í sama mán-
uði í fyrra, t.d. hefði Subaru Leg-
acy fengið mjög góðar viðtökur.
„Bílar sem kosta 1400 þúsund
og þar yfir seljast best núna og
það er miklu meira um stað-
greiðslur. Ódýrir og notaðir bílar
hreyfast ekki. Ég kann ekki skýr-
ingu á þessu, en kannski eru
mennirnir sem eiga peningana að
fara af stað núna," sagði Sigurð-
ur. SS