Dagur


Dagur - 12.04.1990, Qupperneq 2

Dagur - 12.04.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 12. apríl 1990 Afmælishátíðahöldin á Húsavík: Samsýning 10 listamanna opnuð í kvöld Upphaf hátíðahaldanna vegna 40 ára afmælis Húsa- víkurbæjar verða með þeim hætti að haldin verður sam- sýning á verkum 10 lista- manna í Safnahúsinu á Húsavík dagana 12.-22. apríl nk. Porvaldur Vestmann, for- maður afmælisnefndar, mun opna sýninguna með ávarpi í dag 12. apríl kl. 20:30. Á sýningunni, sem er á veg- um Húsavíkurbæjar, verða 50 myndlistarverk unnin með vatnslitum, pastel, akrýl, olíu og blandaðri tækni, auk þess eru þar ofin verk úr ull og hrosshári. Höfundar þessara verka eru: Auður Helgadóttir, Hallfríður Jónasdóttir, Hólm- fríður Bjartmarsdöttir, Kári Sigurðsson, Oddný Magnús- dóttir, Ríkarður Þórhallsson, Sigurður Hallmarsson. Trausti Ólafsson og Þorvaldur Daði Halldórsson. Tíundi listamað- urinn er Sigurður Þórólfsson, gull- og silfursmiður. Húsavíkurbær býður öllum bæjarbúum og gestum, að vera við opnun sýningarinnar fimmtudaginn 12. apríl kl. 20:30, eða síðar ef betur hentar. Sýningin er opin alla daga kl. 14-17. KS Aðalfundur KEA: Einndagurí stað tveggja áður Aðalfundur Kaupféiags Ey- fírðinga yerður haldinn laugardaginn 28. apríl og stendur hann að þessu sinni í einn dag. Fulltrúar á fund- inum eru liðlega 260 og koma þeir úr 25 deildum á félagssvæðinu. Fundurinn verður í Félags- borg á Gleráreyrum og hefst kl. 9.30. Þetta er í fyrsta skipti í áratugi sem aðalfundur KEA er ekki haldinn í Samkomu- húsinu á Akureyri. Lengi hefur tíðkast að fund- urinn standi í tvo daga en stendur sem fyrr segir í einn dag nú. Þessi breyting er svip- uð því sem gerst hefur hjá ntörgum öðrum kaupfélögum á landinu. JÓH fréttir Frá útibússtjóraskiptum íslandsbanka á Húsavík. Á myndinni eru f.v. Björn Björnsson, Helga B. Bragadóttir, Örn Björnsson, Tryggvi Pálsson, Jóhannes Siggeirsson, Kári Arnór Kárason, Sveinn H. Skúlason, Kristján Oddsson og Sverrir Jónsson. Mynd: IM Húsavík: Útibústjóraskipti hjá íslandsbanka Nýr útibústjóri Islandsbanka á Húsavík, Órn Björnsson, var settur inn í embætti í síðustu viku og var fráfarandi úti- bústjóra, Kára Arnóri Kára- syni jafnframt þakkað fyrir vel unnin störf í hófí sem haldið var í bankanum af þessu til- efni, en þar voru mættir nokkrir bankastjórar og sérfræðingar frá aðalbanka íslandsbanka. Örn Björnsson mun næstu vik- urnar einnig gegna áfram starfi sínu sem útibústjóri íslands- banka á Blönduósi, en ekki hefur verið ráðið nýr maður í þá stöðu enn. Rekstur útibús íslandsbanka á Húsavík hefur gengið mjög vel frá áramótum, að sögn Kára Arnórs, og hafa innlán aukist um 25%, er það mesta aukning hjá útibúi íslandsbanka, sem alls eru 37. Þegar er ljóst að hið nýja húsnæði bankans er of lítið og komu sérfræðingar bankans í húnæðismálum á miðvikudaginn til að skoða möguleika á breyt- ingum, stækkun eða nýju hús- næði fyrir útibúið. IM Samþykkt þingflokks Alþýðubandalagsins um hugsanlega byggingu álvers: Álveri verði valirni staður utan höfuðborgarsvæðisins - svo ekki komi til enn frekari byggðaröskunar Þingflokkur Alþýðubandalagsins minnir á að enn eru engar for- sendur fyrir hendi til að unnt sé að meta hvort hagkvæmt sé fyrir íslendinga að ganga til samninga við erlenda aðila um byggingu tvö hundruð þúsund tonna álvers hér á landi. Meðan meginatriði væntanlegra samninga liggja ekki fyrir er tvímælalaust óhyggilegt að hefja virkjunarframkvæmdir enda hlyti það að veikja samn- ingsaðstöðu íslendinga að binda nokkur hundruð milljóna króna í nýjum virkjanaframkvæmdum án þess að orkuverð hafi verið ákveðið. Á þessu stigi málsins telur þingflokkur Alþýðubandalagsins brýnast að ríkisstjórnin marki þá stefnu, að hugsanleg bygging þessa risafyrirtækis stuðli ekki að enn frekari byggðaröskun í land- inu og þess vegna verði því valinn staður utan höfuðborgarsvæðis- ins. Jafnframt þarf að kanna bet- ur en gert hefur verið, hvernig i bridds f! Bridgefélag Akureyrar: Sveit Magnúsar heldur efsta sætinu - á Minningarmótinu um Alfreð Pálsson Sveit Magnúsar Aðalbjörns- sonar hefur enn örugga forystu að loknum tveimur spilakvöld- um á Minningarmóti Bridge- Bridgefélag Siglufjarðar: Norðurlandsmótið framundan Dagana 20., 21. og 22. apríl n.k. verður Norðurlandsmót í sveitakeppni í bridds haldið á Siglufírði. Mótið hefst að Hótel Höfn kl. 16.00 á föstu- deginum og áætluð mótslok um miðjan dag á sunnudag. Spilað verður eftir „Monrad“ kerfi, 9 umí'erðir með 16 spilum á milli sveita. Þátttökugjald verður kr. 7000.- pr. sveit. Þátttökutilkynningar þurfa að berast fyrir 15. apríl til Jóns Sig- urbjörnssonar í heimasíma 96- 71411 (vinnusíma 71350) eða Sig- urðar Hafliðasonar í heimasíma 96-71650 (vinnusíma 71305). félags Akureyrar um Alfreð Pálsson. Nú er lokið 8 umferð- ium á 11 en mótinu lýkur í Fé- dagsborg n.k. þriðjudagskvöld. Sveit Tryggva Gunnarssonar heldur enn öðru sætinu en sveit Soffíu Guðmundsdóttur hefur skotist upp í þriðja sætið fyrir síðasta spilakvöldið. Annars er röð efstu sveita þessi: stig 1. Magnús Aðalbjörnsson 311 2. Tryggvi Gunnarsson 270 3. Soffía Guðmundsdóttir 260 4. Jakob Kristinsson 246 5. Stefán Vilhjálmsson 228 6. Hilmar Jakobsson 215 -KK íslendingar gætu sjálfir átt aðild að rekstrinum og tryggt forræði sitt og hagsmuni þannig að viðun- andi sé. Þingflokkur Alþýðubandalags- ins telur einsýnt að leita verði allra leiða til að efla atvinnulíf í landinu eftir nokkurra ára sam- dráttarskeið og telur sjálfsagt að kanna alla tiltæka kosti í því skyni. Jafnframt minnir þing- flokkurinn á að auk byggðasjón- armiða hlýtur endanleg afstaða til nýrra stóriðjuframkvæmda að ráðast af því fyrst og fremst, hvaða verð fæst fyrir orkuna, hvort iðjuverið greiðir skatta með eðlilegum hætti og lýtur íslenskum dómstólum og hvernig mengunarvörnum og umhverf- isvernd verður háttað. rrn ÓlafsQörður: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráði hefur borist bréf frá Árskögshreppi, þar sem segir aö á fundi í hreppsnefnd Árskógshrepps fyrir skömmu, hafi verið rædd hin alvarlega staða sem nú blasir við í útgerð báta á Norðurlandi. Bæjarráð Ólafsfjarðar tekur sterklega undir með hrepps- nefnd Árskógshrepps og hefur falið bæjarstjóra aö senda þingmönnum ályktun um þetta mál. ■ Bæjarráði hefur cinnig bor- ist bréf frá Fjórðungssam- bandi Norðlendinga, þar sem segir aö á fundi sambandsins fyrir skörnmu, hafi verið ákveðið að mynda starfshóp um athugun á hagkvæmni varðandi stofnun héraðsveitna á Norðurlandi og til að vinna að milliliðalausum viðskiptum Landsvirkjunar og almenn- ingsveitna f landinu. ■ Bæjarstjóri lagöi fram þá hugmynd á fundi bæjarráðs nýlega, að Ólafsfjarðarbær stæði að gerð heimildarmynd- ar um Múlaveg ásamt öðrum aðilum. Var bæjarstjóra falið að kanna málið nánar hjá öðrum aðilum. ■ Á fundi bæjarráðs nýlega var samþykkt tillaga frá Ósk- ari Þór Sigurbjörnssyni um að fela bæjarstjóra að skrifa stjórn Sparisjóðs Ólafsfjarðar og óska eftir aðstöðu fyrir minjasafn á efstu hæð Spari- sjóðsins. Jafnframt var lagt til að hækka framlag til safnahúss um kr. 200.000.-. ■ Á fundi stjórnar Iðnþróun- arsjóðs nýlega, kont fram að þrjár umsóknir hafa borist um aðstöðu í Iðngörðum. Þær eru frá Fiskmar hf., Hauki Sigurðssyni og Ríkharði Sig- urðssyni. Var formanni falið að ræða nánar við þessa aðila. ■ Á fundi félagsntálaráðs kom fram að grundvöllur fyrir hádegisopnun Leikhóla væri brostin og leggur ráðiö til að ekki verði haft opið í hádéginu eftir 30. júní. n.k. ■ Félagsmálaráð samþykkti einnig að loka Leikhólum í 4 vikur í sumar, frá og með 16. júlí til 13. ágúst. ■ Hafnarstjórn hefur borist fyrirspurn um smíði flot- bryggju. Tréver hf. hefur gert tilboð í þessa smíði og er það innan við eðlileg mörk Hafna- málastofnunar. Hafnarstjórn saniþykkti að taka tilboði Trévers hf. Snjómokstur um páska I hönd fara dagar sem búast má við mikilli umferð á þjóð- vegum landsins. Vegagerð ríkisins hefur sent út yfírlit yfír snjómokstur um páskana og kemur þar fram hvaða daga verður aukamokstur vegna hátíðarinnar. Á leiðunum Akureyri-Borg- arnes og Dalvík-Ólafsfjörður verður mokað í dag, á laugardag, mánudag, miðvikudag og föstu- dag í næstu viku. Á leiðinni Sauðárkrókur-Siglufjörður gilda sömu mokstursdagar, utan að þar verður mokað á þriðjudegi í næstu viku í stað miðvikudags. Leiðirnar Akureyri-Húsavík, Akureyri-Grenivík, Húsavík- Mývatn og Húsavík-Vopnafjörð- ur verða ruddar í dag, laugardag, mánudag, miðvikudag og föstu- dag í næstu viku. JÓH

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.