Dagur


Dagur - 12.04.1990, Qupperneq 11

Dagur - 12.04.1990, Qupperneq 11
'Fimmtudacjur 12: apríi 1990 - DAGUR — 11 ^ Á nýafstaðinni sjávarútvegssýningu í Boston: Aherslan á aukna hagræðingu fyrir neytandann - rætt við Sigurð P. Sigmundsson um sýninguna og möguleika á frekari vinnslu sjávarafla hér heima Þúsundir fiskkaupenda flykkj- ast í marsmánuði á ári hverju til Boston í Bandaríkjunum til að fylgjast þar með alþjóðlegri sýningu á sjávarafurðum og nýjustu tækni í vinnslu sjávar- afla sem þar fer fram. Sýning þessi þykir í hvert sinn mjög merkilegur atburður. Þarna gefst fiskframleiðendum möguleiki á að koma vöru sinni á nýja markaði og jafn- framt kynna sínar nýjungar. Síðast en ekki síst gefst þarna samkeppnisaðilum kjörið tækifæri til að bera saman vör- ur sínar. Sjávarútvegssýningin í Boston 1990 er nýafstaðin. Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Iðnþróun- arfélags Eyjafjarðar, var á sýn- ingunni og kynnti sér þar sér- staklega hvaða möguleikar eru fyrirsjáanlegir fyrir íslenska fiskverkendur hvað varðar fullvinnslu á sjávarafla. „Umræðan um aukna vinnslu sjávarafla hefur verið töluverð hér heima undanfarið enda sjá menn að það gengur ekki til lengdar að auka ferskfiskútflutn- inginn jafnt og þétt. Stefnan hlýt- ur að vera að auka sölu sjávar- afurða í neytendapakkningum þó svo ennþá sé við nokkra erfið- leika að etja, s.s. háa tolla sem veikja samkeppnisstöðuna. Menn telja þó að nteð innri ntarkaði Evrópu árið 1992 kunni að opnast nýir möguleikar þar sem þessir tollar geti hugsanlega verið felldir niður. Hingað til hafa flestir verið hver í sínu horni að þreifa sig áfram á þessari braut, t.d. Hvaleyri í Hafnar- firði, Marska á Skagaströnd og frystihúsin á Dalvík og í Hrísey en vöruþróun er dýr og því hafa flestir litið frekar á ferskfiskút- flutninginn sem vænlegri kost til að auka tekjur. Á þessu hlýtur að verða breyting í framtíðinni,“ segir Sigurður þegar hann er spurður um möguleikana á frek- ari vinnslu sjávarafla hér á landi. í framhaldinu víkur hann að Boston-sýningunni og segir að þar hafi hann sérstaklega horft til þess hvað aðrar þjóðir eru að gera í markaðssetningu sinni, t.d. þjóðir eins og Ný-Sjálendingar sem bjóða fiskkaupendum að mörgu leyti svipaða vöru og ís- lendingar. Margar nýjar hugmyndir „Ég vildi sjá hvernig útlendingar framreiða sínar vörur, bæði hvað varðar umbúðir og matreiðslu. Þarna fékkst gott yfirlit, vörurnar koma hvaðanæva að úr heimin- um, frystar, ferskar og tilbúnir réttir. Á því sviði er greinilega mikið að gerast enda hefur flest fólk lítinn tíma til eldamennsk- unnar og framleiðendur reyna greinilega að höfða til þess.“ Aukin hagræðing fyrir neyt- andann. Þetta segir Sigurður rauða þráðinn í þeim tilbúnu Fish Toppees Fish Toppers The Dístinctíve Flmor Hluti af kynningarbæklingum á íslenska fiskinum. Greinilegt er aö fjöl- breytnin fer mjög vaxandi. út á við. Fjölbreytnin sé meiri og minna lagt upp úr raspi og deigi en áður. Mikil þróun framundan í vinnslunni hér heima Sigurður segir að hér heima sé líkleg á næstu árum veruleg þró- un í vinnslu sjávarafla. „Maður horfir auðvitað fyrst og fremst til stærri aðilanna í þessu efni, þeir hafa jú mesta fiskinn, góða þekk- ingu og eru best í stakk búnir til að leggja fjármagn í vöruþróun. Sá tími hlýtur að koma fyrr en seinna að húsin hafi sínar eigin vöruþróunardeildir enda höfum við ekki efni á að sleppa þeim þætti, sé til lengri tíma litið. Minni aðilarnir eiga líka sína möguleika með sérhæfingu, t.d. á heimamarkaði, enda getur góð vara náð langt hér á markaði þrátt fyrir að hann sé lítill. Mín skoðun er sú að þessi þróun eigi að gerast santhliða, bæði þróun stærri aðilanna fyrir útflutning og sérhæfing ntinni aðilanna fyrir heimamarkaðinn," segir Sigurð- ur. Hann segist ekki í vafa um að nýir aðilar hér heima geti náð langt inn á erlenda markaðinn þrátt fyrir að þar sé mikil sam- keppni fyrir. Samvinna við er- lend fyrirtæki er nauðsynleg í því efni. „Við teljum okkur eiga bcsta fiskinn og ef við getum ekki komið honum í fremstu röð á markaðnum þá er hann ckki bestur. Svo einfalt er þetta." Áratugur heilsunnar Sem fyrr horfa fiskseljendur mjög til Bandaríkjamarkaðar. Sigurður segir að í fyrirlestrum sem hann sótti samhliða sýning- unni hafi komið fram að seljend- ur helgi þessunt áratug hollust- unni og gæðum enda aukist krafa neytandans um ómengaða vöru stöðugt. Staða íslands í þessu máli sé sterk enda hafið hér minna mengað en víðast annars staðar í heiminum. „Sjávarútvegurinn þarf samt sem áður að vera mjög á verði og við verðunt að leggja rnikið upp úr því að halda ímyndinni um hreinan sjó við íslands. Gæðin eru greinilega það sem er núnter eitt í þessari samkeppni og þar eigum við að standa ágætlega að vígi. Þrátt fyrir að fleiri fiskteg- undir komi inn á þessa markaði og samkeppnin aukist þá er staða okkar sterk. Áfram verður þó að fylgja þróuninni og kröfunt neyt- I andans,“ segir Sigurður. JOH Önnur hliöin á bás Útflutningsráðs íslands. Næstur á myndinni er bás Sæ- plasts á Dalvík. Dæmi um pökkun á fiski í neytendaumbúðir. í Boston mátti sjá margar nýjungar í pökkun á fiski fyrir neytendur. Hér er fiskurinn tilbúinn til steikingar, kryddaður og í tilheyrandi sósu. Allt miðar að því að gera matreiðsluna sem fljótlegasta. réttum sem sýndir hafi verið á sýningunni. Af nýstárlegum hug- ntyndum nefnir hann m.a. vac- umpakkaðar fisksteikur þar sem fiskurinn getur bæði verið hrár eða soðinn í pakkningunni með eða án sósu. Mikið er lagt upp úr að á umbúðunum komi fram allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir neytandann s.s. um meðferð og uppruna. Mismunandi meðferð á laxi vakti líka athygli þar sem allskonar kryddtegundum er beitt. Nefna má reyktan lax sem bættur er með kryddi, þurrkaður og framreiddur sem snarl. Sigurður segist jafnframt hafa tekið eftir að breyting sé nú að verða á framleiðslu íslensku fyrirtækjanna í Bandaríkjunum Þannig skapa keppinautar okkar á mörkuðunum ímynd hins lireina og ómcngaða í bæklingum sínum. Heilbrigði og hollusta er það sem fiskseljendur leggja áherslu á á næstu árum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.