Dagur - 12.04.1990, Page 24
Akureyri, ílmmtudagur 12. apríl 1990
Opnunartími Bautans og
Smiðjunnar um páskana:
Bautinn opinn alla hátíðisdagana
frá kl. 10.00 til 22.00 og Smiðjan frá kl. 18.00.
Gleöilega páska
Páskaveðrið:
Grundvöllur fyrir
iðandi manniífi
Ekki var veðurútiitið gæfulegt
í gær, víða stormur og snjó-
koma, en á Veðurstofu Islands
voru menn þó svo elskulegir að
spá góðu páskaveðri fyrir
Norðlendinga. Mannlíf ætti
því að geta blómstrað þessa
eftirsóttu útivistardaga.
í dag, skírdag, er spáð hægri
norðan- eða norðvestan átt með
dálitlum éljum. Vægt frost á
Norðurlandi. Ekki afleitt og það
á eftir að batna. Á föstudaginn
langa er gert ráð fyrir hægri
breytilegri átt, björtu veðri og
hitastigi í kringum frostmark.
Horfur á laugardag hljóða upp
á suðlæga átt, skýjað veður en
þurrt að mestu og hita á bilinu 0-
4 stig. Á páskadag er síðan gert
ráð fyrir suðvestan átt, ekki nrjög
snarpri, og líklega verður úr-
komulaust. Hitastigið verður
nálægt frostmarki. SS
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Vill stofiia almenningshluta-
félag til kaupa á togskipi
Bæjarstjórn Húsavíkur sam-
þykkti að vinna að stofnun
almenningshlutafélags sem
hefði það að markmiði að festa
kaup á togskipi og sjá um
rekstur þess, á fundi í bæjar-
stjórn sl. þriðjudag.
Það var Örn Jóhannsson,
bæjarfulltrúi, sem lagði fram til-
lögu þessa efnis. Bæjarstjórn
samþykkti að fela atvinnumála-
nefnd að vinna að framgangi
málsins.
í greinargerð Arnar með tillög-
unni segir að á hana beri að líta
sem ákall um að Húsvíkingar
verði að auka hlutdeild sína í
auðlindum sjávarins. Staða
atvinnunrála sé slík að einskis
megi láta ófreistað til að bæta úr
síauknu atvinnuleysi og þá ekki
síst því ófrenrdarástandi að fisk-
vinnslustöðvar skorti hráefni
viku eftir viku. IM
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga:
Kaup og sala staðfest
Stjórn KEA samþykkti sl.
þriðjudagskvöld annars vegar
að kaupa 48,7% hlut Dalvíkur-
bæjar í Utgerðarfélagi Dalvík-
inga hf. og hins vegar að selja
64% hlut fyrirtækisins í Sölt-
unarfélagi Dalvikur hf. til
Samherja hf. á Akureyri.
Fyrir fundinum lá bréf frá tíu
aðilum á Dalvík þar sem þeir
óskuðu eftir því að kaupa hlut
KEA í SFD á sama verði og
sömu kjörum og Samherji hf.
Bókun stjórnar KEA um þetta er
Húsavík:
Eldur í viftu
Eldur kviknaði í feiti á eldavél
og kveikti í viftu í einbýlishúsi
á Húsavík síðdegis á þriðju-
dag.
Heimilisfólki tókst að slökkva
eldinn í viftunni með duftslökkvi-
tæki en mikill reykur var kominn
í húsið. Skemmdir urðu í eldhús-
inu af sóti, og slökkviduft barst
um allt hús. Að sögn heimilis-
föðurins kom sér vel að hafa
slökkvitæki við hendina, en það
hefði mátt vera halontæki því
mikill óþverri var að fá duftið út
um allt. „Við sluppum eins vel og
hugsast gat frá þessu óhappi,"
sagði maðurinn, en nóg var að
gera við hreingerningar á húsinu
í gær. IM
eftirfarandi: „Með vísan til þess
að bæjarstjórn Dalvíkur hcfur
samþykkt að bjóða bréfriturum
til viðræðna um atvinnuuppbygg-
ingu á Dalvík og mun vegna sölu
á hlutabréfum sínum í UD hafa
verulegt fjárnragn til ráðstöfunar
í því skyni, telur stjórn KEA rétt
að selja Samherja hf. hlutabréf
sín í SFD með tilliti til þess að sú
ráðstöfun ætti ennfremur að
verða til eflingar atvinnulífi á
Dalvík."
Stjórn KEA samþykkti enn-
frenrur að ganga til samninga um
kaup á hlutabréfum Dalvíkur-
bæjar í ÚD á grundvelli bráða-
birgðasamnings frá 8. apríl sl.
Kaupfélagsstjóra var falið að
ganga frá samningum og undir-
rita þá.
í Ijósi þessara samþykkta sam-
þykkti stjórn KEA eftirfarandi
bókun um stefnu félagsins varð-
andi útgerð og fiskvinnslu á veg-
um þess. „Útgerð og fiskvinnsla á
vegum Kaupfélags Eyfirðinga
verði rekin sem ein heild. Hrá-
efnisöflun fyrir fiskvinnslu félags-
ins verði tryggð með því að
togarar á vegum þess landi afla
sínum að langmestu leyti til eigin
vinnslustöðva. Kostnaður við
hráefnisöflun verði lækkaður
með því að færa saman aflakvóta
af skipum og leggja eða selja þau
skip sem kvóti verður færður af.“
Ekki náðist í Magnús Gauta
Gautason, kaupfélagsstjóra
KEA, í gær. óþh
Þó svo að margir hafí vonast til þess að veturinn væri að baki og vorið á næsta leiti, er Ijóst að svo er ckki í bili að
minnsta kosti. Líklegt má telja að flestir þeir fullorðnu séu búnir að fá sig fullsadda af snjónum í bili en þeir yngri
kunna alltaf jafn vel við sig í snjónum. Mynd: kl
Samherji kaupir 64% í Söltunarfélagi Dalvíkur hf.:
Vonumst til að koma rekstri
fyrirtækisins yfir núllið
segir Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja hf.
A stjómarfundi KEA sl. þriðju-
dagskvöld var staðfestur samn-
ingur um kaup Samherja hf. á
Akureyri á 64 prósenta eign-
arhlut Kaupfélags Eyfirðinga í
Söltunarfélagi Dalvíkur hf.
Kaupverð er 62 milljónir
króna sem greiðist á tíu árum
með jöfnum hálfs árs afborg-
unum. Fyrsta afborgun er 1.
apríl á næsta ári. Vextir eru
fimm prósent.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja hf.,
sagði í gær að ekki væri búið að
dagsetja nákvæmlega hvenær
Samherji tæki yfir rekstur fyrir-
tækisins í samvinnu við Dalvíkur-
bæ, en það yrði væntanlega eftir
páskana.
Þorsteinn sagði það mat nýrra
eigenda Söltunarfélagsins að
rækjuverksmiðja þess þurfi að
Finnbogi Baldvinsson hefur
verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Söltunarfélags Dalvíkur
hf. Hann hefur undanfarið ár
starfað sem framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar
hf., en af því starfi mun hann
láta um mánaðamótin apríl-
maí.
„Þetta leggst vel í mig,“ sagði
Finnbogi í samtali við Dag í gær,
„en það er ljóst að þetta verður
erfitt verkefni. Markmið nýrra
eigenda og stjórnenda fyrirtækis-
vinna allt að 1500 tonn til að
rekstur hennar geti gengið. Á sl.
ári var innlögð rækja hjá fyrir-
tækinu hins vegar nálægt 680
tonnum.
í yfirlýsingu frá Þorsteini Má
Baldvinssyni fh. Samherja hf.,
dagsettri 8. apríl sl., lýsti hann
markmiðum fyrirtækisins með
kaupum á 64 prósentum í Sölt-
unarfélaginu með þeim orðurn í
fyrsta lagi að styrkja stöðu Sam-
herja hf. til lengri tíma litið og í
öðru lagi að taka þátt í rekstri
öflugrar rækjuvinnslu sem starf-
rækt yrði á Dalvík.
Spurður um þessi markmið
sagði Þorsteinn Már. „Það er
alveg ljóst að til lengri tíma litið
vonumst við til að snúa rekstri
þessa fyrirtækis þannig að það
komist yfir núllið."
Þorsteinn Már sagði aðspurður
vel koma til greina að reka Sölt-
unarfélagið í samvinnu við annan
ins eru skýr, að Söltunarfélag
Dalvíkur hf. verði rekið af krafti
sem rækjuverksmiðja. Ég væri
ekki að taka þetta að mér nerna
fyrir það að ég hef trú á þessu.“
Finnbogi er sjávarútvegs-
fræðingur að mennt og hefur eins
og áður segir gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra HO hf. í rúmt ár.
Áður vann hann hjá Framleiðni
sf. í Reykjavík.
Hann er Akureyringur, bróðir
Þorsteins Más Baldvinssonar,
framkvæmdastjóra Samherja hf.
óþh
eða aðra aðila en Dalvíkurbæ.
„Við höfum ekki fastmótaðar
hugmyndir urn þetta. Fyrirtækið
var að tapa vcrulegum fjárhæð-
um og næsta verkefni er að leita
leiða til að snúa þessum rekstri úr
tapi í hagnað. Um það mun mál-
ið snúast.
Það er Ijóst að við komurn inn
í þetta á erfiðum tíma, vegna
þess að búið er að ráðstafa veru-
legum hluta rækjukvótans og
skipin búin að ganga frá samning-
um um löndun."
Hann sagði alveg augljóst að
þyrfti aukið hlutafé til að leysa úr
bráðum fjárhagsvanda Söltunar-
félagsins en á þessari stundu gæti
hann ekki sagl hversu mikið
þyrfti að auka það.
Spurningunni utn hvort Sam-
herji ætlaði sér að flytja bolfisk-
kvóta Dalborgarinnar á önnur
skip fyrirtækisins svaraði Þor-
steinn Már: „Nei, það er ekki
hugmyndin."
Þorsteinn Már sagði engar
hugmyndir uppi um, samfara
uppstokkun í rekstri SFD. að
segja upp öllum starfsmönnum í
vinnslu SFD og á Dalborg EA.
„Við munum fara ofan í þennan
rekstur og sjá hvað þarf til að
hann batni. Það verkefni kemur
að mestu í hlut nýs framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins,“ sagði Þor-
steinn Már Baldvinsson. óþh
Næsta blað kemur út mið-
vikudaginn 18. apríl.
Athygli auglýsenda er vakin
á því að auglýsingar í það blað
þurfa að hafa borist auglýs-
ingadeild fyrir kl. 11.00
þriðjudaginn 17. apríl nk.
Söltunarfélag Dalvíkur:
Finnbogi ráðinn
framkvæmdastjóri