Dagur - 09.06.1990, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 9. júní 1990
Unglingar í
sumarvinnu
Nú þegar sumarið er komið fyrir alvöru streyma flestir unglingar út ó
vinnumarkaðinn, það er ef þeir hafa verið svo heppnir að fá vinnu í
sumar. Þeir sem eru í unglingavinnunni og aðrir krakkar sem vinna úti
mega vel við una þegar veðrið er gott, en aðrir mega dúsa inni. Við
skruppum einn eftirmiðdag í miðbœinn og hittum nokkra krakka að
störfum.
ia fyri
u útgr
flík
i eru a
lutverk
Suthe
woosie
i/lark Rc
ick. - Ai
(5 Duflai
idarísk I
'4. - Dem
af Ch:
imsins st
öö, sem
aldrifjaöa c
Umsjón: Hlynur Hallsson leecham s.
og Hildigunnur Þrainsdottir nynd meö :
Fínt í góðu veðri
Fyrst hittum við Lilju Björg Hauks-
dóttur, þar sem hún var að
afgreiða brauð í brauðvagnin-
um í göngugötunni.
„Ég var í Verkmenntaskólan-
um í vetur og verð að vinna hér
í sumar. Ég byrja klukkan sjö á
morgnana og vinn til eitt eða
þá frá eitt til sjö á kvöldin. Ég
byrja í bakaríinu á morgnana
og kem svo hingað niður í bœ.
Það er fínt að vera hér í góðu
veðri. Ég var að vinna í vetur
með skólanum um helgar í
bakaríinu. Það var ekki erfitt að
fá vinnu þegar skólinn var
búinn.“
- Ætlar þú að taka þér
sumarfrí?
„Nei, það geri ég ekki nema
um verslunarmannahelgina. Þá
œtla ég í Húnaver eða á Mel-
gerðismela ef það verður
eitthvað þar. Ég hef tvisvar farið
á útihátíð, í fyrra skiptið á mel-
ana og svo í Húnaver.
Ég veit ekki hvað ég œtla að
vinna lengi. Kannski fer ég til
Englands nœsta vetur sem „au-
pair“ en það er ekkert ákveðið
enn."
- Hvaða brauð kaupir fólk
nú mest hérna í brauð-
vagninum?
„Kringlur, snúða og vínar-
brauð," sagði Lilja Björg en við
kvöddum og gengum út á torg.
Fólk kaupir mest af kringlum, snúðum og vínarbrauðum.
Raka og slá
Á torginu hittum við Höllu Berg-
lindi sem er að vinna í öðrum
söluvagni, pylsuvagninum.
„Ég var að klára áttunda
bekk f Gagganum. Ég hef verið
að vinna á kvöldin um helgar í
vetur með skólanum. Núna er
ég að vinna frá ellefu til sex. Svo
fer ég að vinna uppi á golfvelli.
Það verður fínt að komast í úti-
vinnu, ég var f vinnuskólanum
síðasta sumar og það var nú
bara ágœtt. Ætli ég verði ekki í
því að raka og slá og svoleiðis.
Ég spila Ifka golf sjálf svo
kannski fœr maður tœkifœri til
að œfa sig. Já, já ég er búin að
hafa áhuga á goifi svolftið lengi
og finnst gaman að spila.“
- Kaupir fólk mikið af pylsum
í góða veðrinu?
„Já, já það gerir það. Annars
er mest að gera á nœturnar um
helgar. Jú kúnnarnir eru ágœtir,
misjafnlega ágœtir um helgar."
Það er mikið að gera, og á eftir að verða meira þegar líður á sumarið.
Gaman og nóg að gera
í Pedromyndum voru tvœr
stelpur við afgreiðslustörf og
höfðu nóg að gera þegar við
litum þangað inn, en gáfu sér
þó tíma til að spjalla við okkur.
Kristfn Einarsdóttir var í 9. bekk í
Glerárskóla og Þórgunnur Stein-
unn var á öðru ári í Verk-
menntaskólanum.
- Hvenœr byrjuðuð þið að
vinna hér?
Kristfn: „Ég byrjaði fyrir viku, og
verð að vinna hér í allt sumar. í
september fer ég svo til Þýska-
iands og œtla að vera í
mánuð, bara að skemmta mér.
Það verður gott að taka sér
sumarfrí. Vonandi fer ég í skóla
nœsta vetur, ég er búin að
sœkja um Menntaskólann.
- Hvernig finnst þér að vinna
hér?
„Það er bara gaman og nóg
að gera. Þetta er að vísu svolít-
ið þreytandi þegar svona gott
veður er. Ég hef verið að vinna
úti, í unglingavinnunni og að
passa börn.“
- En þú Þórgunnur, œtlar þú
að taka þér frí í sumar?
„Ég hugsa að ég taki mér
vikufrí, og býst við að fara þá til
Reykjavíkur. Um verslunar-
mannahelgina fer ég sjálfsagt
með nokkrum krökkum eitthvað
út á land. Við erum að hugsa
um að leigja okkur sumarbú-
stað og vera útaf fyrir okkur. Ég
hef alltaf verið að vinna um
verslunarmannahelgi og aldrei
komist neitt. Mér finnst fínt að
vinna hér, og það er yfirleitt
mikið að gera og á eftir að
verða meira. Það er ekki mikið
um íerðamenn enn sem komið
er en þeir eiga eftir að koma
seinna í sumar.
Já, ég var að vinna með
skólanum í vetur, það var
ágœtt að hafa vasapening, ég
hef alltaf unnið með skólanum."
Mest að gera á nœturnar um helgar.