Dagur - 20.07.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 20. júlí 1990 - DAGUR - 3
skapur á Norðurlandi?
Þorsteinn Steingrímsson
Hóli Presthólahreppi:
Sprettan víða léleg
„Það er rétt byrjað að slá hér
hjá okkur, en ég veit að bænd-
ur frammi í Þistilfirði eru
komnir eitthvað iengra,“ sagði
Þorsteinn Stcingrímsson,
bóndi á Hóli í Presthóla-
hreppi.
„Sprettan er hér víða léleg.
Vorið var kalt og langvarandi
þurrkar. Það var mjög kalt hér
meginhiutann af júní og fram
undir hundadagana. Síðan hefur
verið hlýtt. Vætuna vantar til-
finnanlega. Það er ekkert gagn af
svona dropa og dropa, það þarf
duglega rigingu. Síðasta sumar
var líka mjög lélegt í sprettu og
mér þykir hart ef þetta sumar
verður ekki pínulítið skárra.“
óþh
Kjartan Sigurðsson,
Grímsstöðum II Mývatnssveit:
Sprettan stoppaði
í kuldakasti
„Það liggur auðvitað vel á mér
í blíðunni, en ég er reyndar
ekki enn byrjaður að heyja. Ég
bíð eftir að túnin verði nægi-
lega vel sprottin,“ sagði Kjart-
an Sigurðsson, Grímsstöðum
II í Mývatnssveit.
„Heyskapur er eitthvað byrj-
aður hér í Mývatnssveit, en þó
ekki í miklum mæli. Sprettan er
mjög misjöfn. Segja má að hún
hafi algjörlega stoppað í kulda-
kastinu seinnipart júní og byrjun
júlí. En túnin hafa tekið vel við
sér þessa síðustu daga.
Það er allur gangur á því hvort
heyskapur er hafinn hér á þessum
tíma. Fyrir þrem árum var ég
búinn að slá töluvert á þessum
tíma, en í fyrra var þetta á svip-
uðu róli.“ óþh
Friðrik Jónasson,
Helgastöðum í Reykjadal
„Þetta er eins og í gamla daga“
„Þetta hefur verið alveg dá-
samlegt síðustu daga, svona
með því besta sem maður hef-
ur þekkt. Þetta er eins og var í
gamla daga, t.d. árið 1939,“
sagði Friðrik Jónasson, bóndi
á Helgastöðum í Reykjadal.
„Ég byrjaði heldur seint á
slætti, eða um 10. júlí. Sumir hér
í Reykjadal byrjuðu nokkru fyrr
á slætti, menn eru misjafnlega
bráðir. Sprettan er orðin góð
núna. Hún var ekki snemma til,
en núna er hún orðin prýðileg.
Verkunin á heyinu er góð, að
minnsta kosti þessa dagana.
Menn eru misjafnlega langt
komnir á veg með heyskapinn.
Ef tíð helst góð ætti að vera unnt
að ljúka honum á um þrem vik-
um.“ óþh
Ólafur B. Óskarsson,
Víðidalstungu í
Þorkelshólshreppi:
„Vel á veg
kommn“
„Ég hygg að hér í sveit séu allir
eitthvað byrjaðir og sumir eru
kannski um það bil hálfnaðir.
Hér var eitt stykki slegið 29.
júní, en almennt byrjaði slátt-
ur viku af júlí. Ef tíð helst
áfram góð ætti ég að geta lokið
heyskap í næstu viku,“ sagði
Ólafur Ólafsson, bóndi á
Bjarnastööum í Bárðardal.
„Heyskapur hefur gengið
alveg afskaplega vel. Að undan-
förnu hefur verið alveg eindæma
góð heyskapartíð. Það jaðrar við
að heyið þorni af ljánum. Hægt
hefur verið að hirða hey í góða
súgþurrkun eftir einn dag.
Spretta er mjög misjöfn. Tún
sem komin voru vel af stað í
sprettu um miðjan júní eru góð,
en þau tún sem komin voru
styttra þegar hlýnaði eiga nú
langt í land með sprettu. Hér í
sveit er mjög lítið kal, en ég veit
til þess að út í sveitum, t.d. í
Kinn ber töluvert á kali.“ óþh
Ingunn Guðmundsdóttir, Ási í Áshreppi:
„Hefur vantað vætu“
„Þetta hefur gengið alveg
þokkalega nema hvað það hef-
ur vantað vætu. Hún er komin
núna þannig að sumir hafa
stoppað á meðan,“ sagði Ing-
unn Guðmundsdóttir á Ási í
Áshreppi.
„Það var mjög góð heyskapar-
tíð um daginn, enda alltaf þurrk-
ur. Margir eru búnir að heyja þó
nokkuð og ég held að mér sé
óhætt að segja að þetta gangi vel,“
sagði Ingunn og svo virtist sem
bændur í Austur-Húnavatnssýslu
væru bara ánægðir með gang
mála í heyskapnum. Tíðin er
betri en í fyrra og sláttur vel á veg
kominn þótt enn sé töluvert eftir.
SS
Húseyjarkvísl:
Öllum að óvörum beit
Þessi fjögurra ára hnáta, sem heitir Helga Guðjónsdóttir, dró sinn fyrsta fisk
á dögunum úr Leirutjörn. Um var að ræða 2,5 punda lax og gerði Helga sér
lítið fyrir og landaði flskinum nánast hjálparlaust.
Fyrripart þessarar viku voru
komnir um 40 laxar á land úr
Húseyjarkvísl í Skagafirði,
flestir mjög vænir og góðir.
Veiði hefur verið fremur dræm
undanfarna daga eftir góða
byrjun. Hins vegar hefur verið
hin besta veiði á silungasvæð-
inu.
Þar setti þrettán ára gutti frá
Akureyri í 13 punda lax á dögun-
um og náði honum eftir um
klukkustundar streð. Það þykir
nokkrum tíðindum sæta ef menn
setja í lax á silungasvæði Húseyj-
arkvíslar, en stráksi lét sér hvergi
bregða og bar sig fagmannlega að
í barningnum við laxinn, þrátt
fyrir að vera með útbúnað sem
vart verður talinn heppilegur í
veiði á slíkum stórhvelum.
Enn rólegt í Þistilfírði
Veiði er lítið hafin í ánum í Þistil-
firði. Að sögn Maríu Jóhanns-
dóttur á Syðra-Álandi byrja
leigutakar Hölknár, sem eru
Svisslendingar, að veiða í næstu
viku. Þeir hafa verið að veiðum í
Ormarsá og síðan er ferðinni
haldið í Hölkná. Þá hefur einn
Svisslendingur Hafralónsá á leigu
og mun hann hafa rennt fyrir lax
í júní og náð þá einum sjö. Hann
mun og vera að veiðum í ánni
núna, en ekki hefur frést af gengi
hans. María sagði að silungsveiði
sá stórí á
væri nú orðið lítil í Hölkná. „Ég
flutti á þessa jörð árið 1955 og þá
gat maður séð stórar torfur af
bleikju í hyljunum. En það er
mikið til horfið, hvað sem
veldur,“ sagði María.
Um 2200 fískar náðst
á silungasvæðum
Laxár í Aðaldal
Óhætt er að segja að líflegt hafi
verið í urriðaveiðinni í Laxá í
Aðaldal. í fyrrakvöld voru
komnir 1570 fiskar á land á efra
silungasvæðinu, að sögn Sólveig-
ar Jónsdóttur á Arnarvatni. Hún
kvað þetta mjög góða veiði og
menn væru hinir ánægðustu með
árangurinn. í veiðihúsinu Rauð-
hólum í Laxárdal fengust þær
upplýsingar að á neðra silunga-
svæði Laxár væru nú komnir 637
fiskar á land. Þetta er svipuð
veiði og á sama tíma í fyrra.
Stærsti urriðinn sem til þessa hef-
ur veiðst á neðra svæðinu er um 7
pund.
Svarfaðardalsá
Svarfaðardalsá var opnuð fyrir
veiði 10. júlí sl. Jón Halldórsson í
Sportvík á Dalvík, sem selur
lausa veiðidaga í ána, segist ekki
hafa nákvæmar fregnir af veið-
inni það sem af er, en þó hafi
nokkrir veitt vel þessa fyrstu
daga. Veiðin hefur verið mest á
neðri svæðunum en búast má við
að fari að lifna yfir fremri
svæðum. Jón sagðist ekki hafa
heyrt af veiði á laxi úr Svarfaðar-
dalsá enn sem komið er.