Dagur - 20.10.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 20. október 1990
Borgarafundur JC Akureyrar um atvinnumál:
„Vonleysi má ekki skjóta rótum“
- sagði Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar í framsöguræðu
„Eyjafjöröur hefur sem betur
fer upp á marga kosti að
bjóða. Vonleysi má ekki
skjóta rótum. Við verðum að
koma í veg fyrir fólksflótta.
Staðreyndin er sú að þegar á
reynir geta allir gert aðeins
betur í starfi og leik. Fyrir-
tæki okkar verða að leggja
áherslu á að hámarka arð-
semi sína til að standast þá
hörðu samkeppni sem nú er á
flestum sviðum. Við verðum
ávallt að vera vakandi fyrir
því að bæta okkur og nýta
nýja möguleika,“ sagði
Sigurður P. Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar, í fram-
söguerindi sínu á borgara-
fundi JC Akureyrar um
Sigurður P. Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar, sagði á
borgarafundi um atvinnumál
á Akureyri í fyrrakvöld að
kostnaður Eyfirðinga vegna
álmálsins sé að líkindum orð-
inn 6-7 milljónir króna. Iðn-
aðarráðuneyti hafl skuld-
bundið sig til að greiða liluta
af þessum kostnaði en þær
greiðslur hafl ekki borist enn.
í svari við fyrirspurn á fund-
inum sagði Sigðurður að beinn
kostnaður Iðnþróunarfélagsins
vegna lóðarinnar á Dysnesi sé 2
milljónir króna. Þar sé um að
ræða kostnað vegna mælinga á
lóðinni, teikninga, útreikninga
um vatnsöflun, hafnarmann-
virki og annað slíkt. Gerður
hafi verið samningur við mark-
atvinnumál í fyrrakvöld þar
sem þingmenn kjördæmisins
sátu fyrir svörum.
Sigurður vék í máli sínu
nokkuð að framtíðarmöguleik-
um í atvinnumálum. Hann
sagði stjórnvöld miklu ráða um
framtíð Slippstöðvarinnar og
Álafoss en nauðsynlegt sé að
knýja á um skýr svör við því
hvaða möguleika þessi fyrirtæki
hafi til þess að treysta afkomu
sína.
Sigurður sagði uppbyggingu
Háskólans á Akureyri mjög
stórt mál fyrir Eyjafjarðarsvæð-
ið og Norðurland. Undir þetta
tóku margir fundarmanna sem
áherslu lögðu á að skólanum,
sem og framhaldsskólunum,
verði tryggðar sem mestar fjár-
aðsskrifstofu iðnaðarráðuneyt-
isins og Landsvirkjunar um að
ráðuneytið greiði um helming
þessa kostnaðar en þessar
greiðslur hafi enn ekki borist.
Sigurður sagði að ef með væri
talið öll laun starfsmanna
félagsins, ferðakostnaður,
fundahöld, móttaka gesta og
annað þá væri þessi upphæð
komin í um 6 milljónir. Við
þetta megi síðan bæta kostnaði
sveitarstjórnamanna á svæðinu
vegna málsins og lauslega áætl-
að sé heildarkostnaðurinn því
um 6-7 milljónir.
„Við ætlum nú að taka þessar
tölur nákvæmlega saman, fara
með þær til iðnaðarráðuneytis
og kanna hvort ekki verður
unnt að fá verulegan hluta þessa
kostnaðar endurgreiddan,"
sagði Sigurður. JÓH
veitingar til uppbyggingar.
Mikill tími fór á fundinum í
að ræða álmálið og þá niður-
stöðu að þetta fyrirtæki mun
ekki rísa við Eyjafjörð. Árni
Steinar Jóhannsson krafði þing-
mennina svara við því hvort
þeir segi já við álveri á Keilis-
nesi. Þeirri spurningu svöruðu
Árni Gunnarsson, Halldór
Blöndal og Valgerður Sverris-
dóttir játandi en Valgerður tók
fram að hún setti þau skilyrði að
átak verði gert í byggðamálum.
Þingmennirnir Málmfríður Sig-
urðardóttir, Steingrímur J. Sig-
fússon og Stefán Valgeirsson
sögðust hins vegar segja nei við
álveri á Keilisnesi en Steingrím-
ur sagðist svara þessu á þennan
veg miðað við núverandi
aðstæður.
Steingrímur og Árni voru
báðir þeirrar skoðunar að setja
hefði átt þau skilyrði í álmálinu
í upphafi að útiloka Reykjanes
sem möguleika fyrir verksmiðj-
una. „Þarna voru fyrstu og
stærstu mistökin í málinu en
síðan voru það að mínu mati
mistök að þrengja hringinn svo
fljótt niður hvað varðar staði úti
á landsbyggðinni að aðeins
stóðu tveir eftir,“ sagði Stein-
grímur.
Fátt var um nýjar hugmyndir
í atvinnumálum á þessum fundi
en nokkrir þingmanna lögðu
áherslu á að hugmyndir þurfi að
koma frá heimamönnum sjálf-
um. Á það var bent á fundinum
að tryggja þurfi aukið fjármagn
innan heilbrigðiskerfisins enda
sé sé í því kerfi um að ræða
stærstan hluta af íslensku fjár-
lögunum. Flutningur stofnana
út á land bar einnig á góma svo
og uppbygging nýrra opinberra
stofnana. Þar var bent á um-
hverfisstofnun sem Steingrímur
J. sagði að borist hefði í tal í
ríkisstjórn þar sem mikill vilji sé
til að finna henni stað á Akur-
eyri. JÓH
Kostnaður Eyfirðinga vegna álmálsins:
Gæti í heild verið
6-7 milljóiiir króna
Nýr þáttur í helgarblaði:
Gamlar ljósmyndir
- lesendur beðnir að bera kennsl á fólkið
Við ætlum að glugga í mynda-
safn Hallgríms Einarssonar og
sona í helgarblaði Dags í vetur.
Á Minjasafninu á Akureyri
eru fjölmargar myndir geymd-
ar og hefur reynst erfítt að
flokka sumar þeirra því ekki
hefur tekist að bera kennsl á
fólkið sem er á þeim.
Minjasafnið hefur oft reynt að
fá fólk til að skoða myndirnar og
athuga hvort það kannast við
fyrirsæturnar og þótt það hafi
borið einhvern árangur er þetta
afar viðamikið verkefni. Dagur
ætlar nú að leggja safninu lið og
birta eina mynd í öðru hverju
helgarblaði ásamt hausateikn-
ingu og eru lesendur beðnir að
merkja við þá sem þeir geta nafn-
greint og senda Minjasafninu á
Akureyri upplýsingarnar.
Birting gamalla mynda, sem
teknar eru allt frá aldamótunum
1900 og fram til 1940-50, ætti líka
að hafa fróðleiks- og skemmtana-
gildi fyrir lesendur. Þarna má sjá
hina ýmsu tískustrauma í fatnaði,
andlitssnyrtingu og hárgreiðslu.
Og svo er aldrei að vita nema les-
endur rekist á kunnugleg andlit.
Kristján Ragnarsson, formað-
ur Landssambands íslenskra
útvegsmanna, og Jóhann Sig-
urjónsson, sjávarlíffræðingur á
Hafrannsóknastofnun, verða
gestir aðalfundar Útvegs-
mannafélags Norðurlands,
sem haldinn verður nk. þriðju-
dag, 23. október kl. 10 f.h. að
Hótel KEA á Akureyri.
Auk venjulegra aðalfundar-
Fyrsta myndin í þessari syrpu
birtist á blaðsíðu 16 í blaðinu í
dag. SS
starfa mun Kristján Ragnarsson
skýra fundarmönnum frá því sem
efst er á baugi í málefnum
útgerðarinnar um þessar mundir
og Jóhann Sigurjónsson mun
ræða um ýmislegt er lýtur að
hvölum, en eins og sjómenn hafa
tekið eftir að undanförnu ber
óvenju mikið á hvölum inni á
fjörðum og miðunum úti fyrir
Norðurlandi um þessar mundir.
óþh
Útvegsmannafélag Norðurlands:
Kristján Ragnarsson og
Jóhann Siguijónsson á
aðalfundi á þriðjudag
fréffir
Haustlauf falla.
Mynd: KL
Hvammstangi:
Brotist inn í Söluskálann
Brotist var inn í Söluskálann á
Hvammstanga aðfaranótt
föstudags. Ekki var Ijóst hve
miklu hafði verið stolið þegar
blaðið fór í prentun, en að
sögn Sigurðar Þorvaldssonar,
eins af rekstraraðilum skálans,
var eitthvað tekið bæði af pen-
ingum og vörum.
Lögreglan á Blönduósi rann-
sakar málið, en Sigurður sagði að
svo virtist vera sem þjófarnir
hefðu haft lykil að skálanum, því
engin merki voru þess að hurð
eða gluggi hefðu verið brotin upp
og engar skemmdir unnar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
brotist er inn í Söluskálann á
Hvammstanga, því þetta er
þriðja innbrotið þar á nokkrum
árum. Það síðasta var árið 1988.
SBG
Ný stjórnmálasamtök,
Heimastjórnarsamtökin, stofnuð:
„Hefði aldrei dottið til
hugar að svo stór
alda myndi rísa upp“
- segir Stefán Valgeirsson, alþingismaður
Heimastjórnarsamtökin er
heiti nýrra stjórnmálasamtaka,
sem hafa verið stofnuð. Sam-
tök jafnréttis og félagshyggju
hafa haft frumkvæði að stofn-
un þeirra. Fyrsti kynningar-
fundur á hinum nýstofnuðu
samtökum verður í Vín við
Hrafnagil nk. föstudagskvöld.
Grunnurinn að stofnun Heima-
stjórnarsamtakanna var lagður á
leynilegum fundi á Selfossi um
síðustu helgi og að sögn Stefáns
Valgeirssonar, alþingismanns,
stendur þar að baki fólk úr öllum
stjórnmálaflokkum. „Það eru
fjölmargir úr öllum flokkum sem
hafa komið að máli við okkur og
skorað á okkur að bjóða aftur
fram. Mér hefði aldrei dottið til
hugar að svo stór alda myndi rísa
upp,“ sagði Stefán.
Stefán sagði að í stórum drátt-
um myndu Heimastjórnarsam-
tökin hafa stefnumið Samtaka
jafnréttis og félagshyggju að leið-
arljósi.
Hann sagðist ekki vita hvort
Ásgeir Hannes Eiríksson, þing-
maður Borgaraflokksins, yrði
þarna í eldlínunni. „Fólk úr
hverju kjördæmi velur sér forystu
og fólk á framboðslista.
Hugmyndin er að boðið verði
fram í öllum kjördæmum, en
Stefán vill ekki segja til um hvort
hann leiði lista samtakanna í
Norðurlandskjördæmi eystra,
það verði ákvörðun stuðnings-
manna þeirra í kjördæminu.
„Það verður kjörin fram-
kvæmdanefnd fyrir samtökin.
Þetta er ekki eiginlegur stjórn-
málaflokkur. Þetta eru samtök
fólks sem þolir ekki það misrétti
sem viðgengst," sagði Stefán.
Hann sagðist vera raunsær á
gengi samtakanna. „Það fer eftir
svo mörgu, t.d. forystu í hverju
kjördæmi. Ég er mjög bjartsýnn í
mörgum kjördæmunum, ef fer
svo fram sem horfir," sagði Stefán
Valgeirsson. óþh
Sauðárkrókur:
Stuðlað
að bættri
umferðar-
menningu
Á mánudaginn næstkomandi
hefst sjö daga eftirlit lögregl-
unnar á Sauðárkróki til að
stuðla að bættri umferðar-
menningu á götum bæjarins.
Ákveðin atriði verða tekin fyr-
ir á hverjum degi og bílstjórar
áminntir ef þeir brjóta af sér.
„Við ætlum að taka alla næstu
viku í þetta og leggjum áherslu á
ákveðin atriði á hverjum degi.
Við tökum stöðvunarskyldubrot,
bílbelti og ljós, athugum skrán-
ingarspjöld, skoðun og radar-
mælingar verða einhverjar. í lokin
ætlum við síðan að skoða málin
og sjá hvort okkur hefur orðið
eitthvað ágengt, þvt hér er ýmis-
legt í umferðinni sem betur mætti
fara,“ sagði Björn Mikaelsson,
yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki,
um komandi umferðarátak lög-
reglunnar þar í bæ. SBG