Dagur - 13.11.1990, Qupperneq 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 13. nóvember 1990 218. tölubiað
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Loðnuveiðarnar:
Loðnu vart fyrir vestan
Kcnnarar við Lundarskóla fóru til Reykjavíkur í náms- og kynnisferð sl. föstudag. Foreldrar bnrnanna í skólanum
tóku að sér alla kennslu þennan dag sem hcppnaðist með ágætum. Mynd; Goiii
Aukakjördæmisþing KFNE á Húsavík:
Þrjú efstu sæti listans óbreytt
- 167 fulltrúar völdu 7 frambjóðendur í bindandi kosningum
Loðna hefur fundist út af Vest-
fjörðum og eru nokkur loðnu-
Karlmaður á Akureyri:
Úrskurðaðurí 30
daga gæsluvarðhald
Karlmaður á miðjum aidri
er í gæsluvarðhaldi á Akur-
eyri eftir að hann var hand-
tekinn af lögreglunni á
Akureyri sl. föstudag vegna
meintra sifjaspella. Málið er
talið mjög alvarlegt og hefur
maðurinn verið úrskurðaður
til 30 daga gæsluvarðhalds-
vistar meðan mál hans er í
rannsókn.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar á Akureyri barst kæra á
hendur manninum fyrir meint
sifjaspell sl. fimmtudag. Dag-
inn eftir var ntaðurinn hand-
tekinn. Eftir fyrstu yfirheyrslu
var maðurinn úrskurðaður til
30 daga gæsluvarðhaldsvistar.
Ekki fengust nánari upplýsing-
ar um máliö enda er það allt á
mjög viðkvæmu stigi, að sögn
Daníels Snorrasonar, rann-
sóknarlögreglumanns.
Húsavík:
Iraibrotíblómabúð
Innbrot var framið í verslun
á Húsavík aðfaranótt sunnu-
dags og þaðan stolið fjár-
munum. Annars var allt
rólegt um helgina að sögn
lögreglu.
Innbrotið var framið í
Blómabúðina Muru. Farið var
inn um glugga á austurhlið
hússins, brotin upp skrifborðs-
skúffa og þaðan stolið nokkr-
um tugum þúsunda króna.
Eftir er að meta skemmdirnar
sem unnar voru við innbrotið
en þær eru ekki miklar utan
þeirra sem gerðar voru til að
ná fjármununum. Kveikt hafði
verið á kertum víða urn versl-
unina, en sem betur fer höfðu
þjófarnir þá fyrirhyggju að
slökkva á kertunum áður en
þeir yfirgáfu innbrotsstað.
Rannsókn innbrotsins er á
frumstigi,___________IM
Haraldur og Guðlaugur hf.:
Samið um bygg-
ingu 10 íbúða
Bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt þá ákvörðun hús-
næðisnefndar bæjarins að
ganga til samninga við Har-
ald og Guðiaug hf. um bygg-
ingu íbúða fyrir félagsiega
íbúðakerfið.
Um er aö ræða tíu íbúðir í
litlu fjölbýlishúsi við Vestur-
síðu 16 - 18. Húsnæðisnefndin
var búin að samþykkja að
ganga til santninga við Harald
og Guðlaug, en meirihluti
bæjarstjórnar vísaði þcirri
ákvörðun nefndarinnar til
bæjarráðs, sem hefur nú sam-
þykkt hann. EHB
I skip komin á miðin. AÖ sögn
I Hjálmars Viihjálmssonar, sem
er um borð í rannsóknarskip-
inu Bjarna Sæmundssyni, er
loðnan blönduð, en fremur
smá.
Eftir því sem næst verður kom-
ist eru norðlensku loðnuskipin
ekki komin vestur, en búist er
við að þau leggi í 'ann um miðja
þessa viku. Loðnuveiðin hefur
minnkað töluvert á svæðinu út af
Langanesi, en þær fréttir bárust í
gær að þar hefði aftur orðið vart
við góða loðnu.
Að sögn Sverris Leóssonar,
útgerðarmanns Súlunnur EA, er
ætlunin að Súlan fari á miðin fyrir
vestan og er við það miðað að
hún landi í Krossanesverksmiðj-
unni um leið og hún verður til-
búin í slaginn.
Hluti af tækjabúnaði verk-
smiðjunnar var prófaður um
helgina, en hún var þó ekki
prufukeyrð að því marki sem
stefnt var að. óþh
Framsóknarmcnn á Norður-
landi eystra héldu kjör-
dæmisþing og aukakjördæmis-
þing á Húsavík um síðustu
helgi. Á aukakjördæmisþing-
Innbrotafaraldur var á Akur-
eyri um helgina að sögn rann-
sóknarlögreglunnar á Akur-
eyri. Tveir piltar á tvítugsaldri
hafa verið handteknir og sæta
nú 7 daga gæsluvarðhalds
meðan máíin eru í rannsókn.
Aðfaranótt sunnudagsins sl.
var brotist inn í Sundlaugina á
Akureyri. Tveir ungir menn voru
handteknir á staðnum og færðir í
fangageymslu. Er líða tók á
sunnudaginn fóru að berast til
lögreglunnar á Akureyri tilkynn-
ingar um innbrot og þjófnaði.
Auk sundlaugarinnar var brotist
inn í Háskólann, í skrifstofu- og
verslunarhúsnæði að Furuvöllum
13, hvar brotist var inn hjá Skafta
hf., Hljóðmyndum, Fræðsluskrif-
stofu Norðurlands, Sálfræðideild
skóla og inn á skrifstofu Kristínar
Aðalsteinsdóttur, kennara. Jafn-
framt var bifreið stolið við
Hamragerði, sem fannst
óskemmd. Töluverðar skemmdir
urðu á öllum innbrotsstöðum.
Huröum var sparkað upp en litlu
stolið. „Strax beindist grunur að
mönnunum tveimur sem hand-
teknir voru við innbrotið í sund-
inu fór fram prófkjör um skip-
an frambjóðenda í sjö efstu
sæti framboðslista Framsókn-
arflokksins í kjördæminu, til
alþingiskosninganna í vor.
lauginni. Þeir eru utanbæjar-
menn, nýsloppnir af Litla-Hrauni
með reynslulausn. Krafa var lögð
fram um gæsluvarðhald og dóm-
ari hefur úrskurðað mennina í 7
Þrjú efstu sæti framboðibstans
verða óbreytt frá síðustu alþing-
iskosningum. Þau Guðmundur
Bjarnason, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, og Valgerður
daga gæsluvarðhald, meðan verið
er að upplýsa öll málsatvik,"
sagði Daníel Snorrason, rann-
sóknarlögreglumaður á Akur-
eyri. ój
Sverrisdóttir, alþingismaður,
hlutu nærri einróma kosningu í
fyrstu tvö sætin. Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, Öngulsstöðum,
skipar þriðja sæti listans.
I fjórða sæti er Guðmundur
Stefánsson, framkvæmdastjóri
ístess hf. á Akureyri, Daníel
Árnason, fyrrverandi sveitar-
stjóri á Þórshöfn í 5. sæti, Guð-
laug Björnsdóttir frá Dalvík í 6.
sætinu og Bjarni Aðalgeirsson,
útgerðarmaður, í 7. sætinu.
Á kjördæmisþinginu á laugar-
dag fór fram kjör til stjórnar
kjördæmissambandsins og í mið-
stjórn Framsóknarflokksins.
Stjórn kjördæmissambandsins
skipa Hákon Hákonarson, for-
niaður, Þuríður Vilhjálmsdóttir,
Guðlaug Björnsdóttir, Sigurgeir
Aðalgeirsson, Kolbrún Þormóðs-
dóttir, Þorsteinn Sigurðsson, Ari
Teitsson og Valdimar Bragason.
I varastjórn kjördæmissambands-
ins eru Guðlaug Björnsdóttir,
Egill H. Bragason, Kristján Karl
Kristjánsson og Sigfríður Þor-
steinsdóttir. í miðstjórn voru
kjörin þau Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, Ari Teitsson, Jóhannes
Geir Sigurgeirsson, Hákon Há-
konarson og Bjarni Áðalgeirs-
son. Fulltrúar yngri manna í
mðstjórn eru Bragi V.
Bergmann, Kristján Karl
Kristjánsson og Sigfús Karlsson.
Tuttugu og fimm manns, víðs-
vegur úr kjördæminu, gáfu kost
á sér í framboð á aukakjör-
dæmisþinginu. Eitt hundrað sex-
tíu og sjö fulltrúar flokksfélaga í
kjördæminu tóku þátt í auka-
kjördæmisþinginu, sem fór fram
á Hótel Húsavík.
Sjá nánar um kjördæmisþingið-
á bls. 5 EHB
Eyjafjarðarsveit:
Utankj örstaðakosniiig
hófst á föstudag
Atkvæðagreiösla utan kjör-
staða, vegna sveitarstjórnar-
kosninga í sveitarfélögunum
sem um áramótin sameinast í
Eyjafjarðarsveit, hófst síðast-
liðinn föstudag. Kosið er hjá
hreppstjórunum í sveitarfé-
lögunum þremur auk þess sem
kosið er hjá öllum sýslumönn-
um landsins og borgarfógetan-
um í Reykjavík.
Kosningarnar fara fram næst-
komandi laugardag og eru tveir
listar í kjöri. Kosnir verða sjö
aðalmenn í hina nýju sveitar-
stjórn sem tekur við um áramót.
Að sögn Harðar Adólfssonar,
formanns yfirkjörstjórnar, er
gert ráð fyrir að kosið verði í fé-
lagsheimilunum þremur, þ.e.
Laugarborg í Hrafnagilshreppi,
Freyvangi í Öngulsstaðahreppi
og Sólgarði í Saurbæjarhreppi.
Kjörfundur skal lögum sam-
kvæmt standa frá kl. 9 til kl. 23
en heimilt er að hætta kjörfundi
fyrr ef mjög dregur úr kjörsókn
þegar fram á kvöld kemur. Hörð-
ur sagðist reikna með að atkvæð-
um úr kjördeildunum þremur
verði blandað saman og þau talin
á einum stað.
Um 650 manns eru á kjörskrá í
hreppunum þremur. JÓH
Innbrotafaraldur á Akureyri:
Tveir ungir menn gripnir og
úrskurðaðir í 7 daga gæsluvarðhald