Dagur - 13.11.1990, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 13. nóvember 1990
fréffir
Öxnadalsheiðarsamningurinn:
„Við mimum hiklaust
kæra menn í óle\fi“
- segir formaður Skotveiðifélags Akrahrepps
„Veiðileyfasala verður komin í
gang fyrir næstu helgi og við
munum hiklaust kæra þá menn
sem fara án veiðileyfis í rjúpu á
þessu svæði og teljum okkur
vera í fullkomnum rétti með
það,“ sagði Kári Gunnarsson,
formaður Skotveiðifélags
Akrahrepps, þegar Dagur
innti hann eftir afstöðu til yfir-
lýsinga félaga í Skotveiðifélagi
Éyjafjarðar um að fjölmenna
upp á Öxnadalsheiði um næstu
helgi.
í blaðinu á laugardaginn lýstu
þeir Gísli Ólafsson formaður
Skotveiðifélags Eyjafjarðar og
Asgrímur Ágústsson meðstjórn-
andi því yfir að þeirra félagar
muni fjölmenna upp á Öxnadals-
heiði um næstu helgi til að láta á
það reyna hvort leiga Skotveiði-
félags Akrahrepps á rjúpnaveiði
á Silfrastaðaafrétt standist en
félagið og hreppsnefnd Akra-
hrepps gerðu með sér leigusamn-
ing þess efnis að skotveiðifélagið
ræður yfir öllum rétti til rjúpna-
veiði á Silfrastaðaafrétt. Ætlunin
er að skipta afréttinni niður í
svæði og selja veiðileyfi. Pessu
vilja félagar í Skotveiðifélagi
Eyjafjarðar ekki hlíta og segja
kæru í þessu máli á sínar hendur
vera fagnaðarefni. Það stefnir því
í kærumál vegna þessa leigu-
samnings og þá er spurningin
hvorir hafa réttinn sín megin.
Báðir aðilar standa á sínu, en
aðeins annar getur unnið málið.
Síðastliðinn vetur bannaði
Akrahreppur rjúpnaveiði á
Silfrastaðaafrétt, en skipti sér
samt ekkert af þeim er ekki hlíttu
banninu. í tilefni af því leitaði
Fréttablaðið Feykir á Sauðár-
króki eftir áliti Sigurðar Líndals,
lagaprófessors. Sigurður sagði þá
m.a. að ef Akrahreppingar gætu
sannað að landið hefði á sínum
tíma verið eignarland Silfrastaða-
bónda þá væri það sín túlkun að
hreppurinn væri í rétti. Þannig er
nefnilega mál með vexti að
hreppurinn keypti landið á sínum
tíma af Steingrími Jónssyni
bónda á Silfrastöðum, í sam-
vinnu við aðra bændur. Fram til
1920 voru síðan að tínast inn
peningar frá bændum fyrir þeirra
hluta af afréttinni. Fyrir flestum
þessara kaupa eru til þinglýst
afsöl að sögn Brodda Björnsson-
ar, oddvita Akrahrepps.
Flvað gerist um næstu helgi
verður tíminn að leiða í ljós. Allt
stefnir í að þarna verði um kæru-
mál að ræða. SBG
Um sameiningu Presthóla- og
Öxafjarðarhrepps:
Tölumar í Öxaíjaröar-
hreppi ekki marktækar“
- segir Stefán Rögvaldsson,
bóndi að Leifsstöðum
Stefán Rögnvaldsson, bóndi
að Leifsstöðum í Öxafjarðar-
hreppi, hafði samband við Dag
vegna fréttar sem birtist í blað-
inu 3. nóvembcr undir fyrir-
sögninni „Meirihluti íbúa vill
sameiningu.“ í fréttinni er
fjallað um sameiningu Prest-
hóla- og Öxarfjarðarhrepps.
- í fréttinni segir að í Öxarfjarð-
arhreppi hafi 27 verið samþykkir,
1 mótfallinn og 4 sátu hjá, Þessar
niðurstöður fundarins'eru réttar,
en hins vegar ber þess að geta, að
þcir sem greiddu atkvæði voru
aðeins frá 14 heimilum af 24 í
Öxafjarðarhreppi. Þessar tölur
eru því ekki marktækar. Eg hef á
tilfinningunni, að þeir sem sátu
heima séu mótfallnir sameining-
unni. Trúlega hafa ekki allir
fengið fundarboðið t.d. vantaði
alla frá þeim bæjum sem lengst
eru frá Kópaskeri. Ég er sann-
færður um að ef þetta fólk hefði
mætt, þá hefði atkvæðagreiðslan
farið á annan veg,“ sagði Stefán
Rögnvaldsson að Leifsstöðum.
ój
Landsvirkjun:
Tilboð í leiðara og einangrara
Sl. föstudag var Saga Akureyrar, 1. bindi, kynnt á Amtsbókasafninu á Akureyri. Bókin er nýlega komin út og sögu-
ritarinn er Jón Hjaltason, sagnfræðingur. Á myndinni sem tekin er í Amtsbókasalninu á kynningunni eru Halldór
Jónsson bæjarstjóri, Jón Hjaltason söguritari, Lárus Zophaníasson forstöðumaður Amtsbókasafnsins og Þröstur
Ásmundsson formaður menningarmálanefndar Akureyrar. Mynd: Goili
Þrjú lægstu tilboðin í einangr-
ara voru frá Ohio-Brass sem
bauð 112.182 Bandaríkjadali,
Sicamex bauð 173.291.740 lírur
og Italisolatori 177.147.660 lírur.
Blöndulína er tengih'na milli
Blönduvirkjunar og Byggðalínu,
en Hamraneslínan er tenging
Búrfells við Hamranés. Reiknað
er með að. hefja uppsetningu
þeirra í vor, en verið er að leggja
línuslóða og konta fyrir undi.r-
stöðum. SBG
Landsbyggðarþjónusta SÁÁ:
Göngudeild á hjólum Ivrir
alkóhólista og
Nýlega voru opnuð tilboð
sem bárust í leiðara og ein-
angrara í Blöndulínu og Hamra-
neslínu, en áætlað er að hefja
uppsetningu þeirra næsta vor.
Kærkominn gestur að Sólborg, Rúnar Þór Pétursson, mætti á föstudaginn með gítarinn sinn og lék fyrir vistmenn
við góðar undirtektir allra er á hlýddu. Mynd: Goiií
Tilboðin sem bárust voru
báöar línurnar og þrjú lægstu
leiðarann áttu Reinolds cabl
sem bauð 579.760 Bandaríkj
dali, Feral-Hydrö bauð 3.394.8J
norskar krónur og Southwii
602.601 Bandaríkjadali.
Landsbyggðarþjónusta SÁÁ
var sett á laggirnar fyrir ári og
er þetta nokkurs konar göngu-
deild á hjólum. Ráðgjafar
SÁÁ fara um landið, flytja
fyrirlestra fyrir alkóhólista og
almenning og bjóða upp á
cinkaviðtöl. Um þessar mund-
ir eru ráðgjafarnir staddir í
Ólafsfirði.
Það eru þeir Guðmundur Örn
Ingólfsson og Jóhann Örn Héð-
insson sem annast þessa fræðslu á
landsbyggðinni á vegum SÁÁ.
Þeir eru búnir að fara víða og
hafa nú verið á ferð um Norður-
land og lýkur henni í Ólafsfirði.
Guðmundur sagði í samtali við
Dag að þeir dveldu vikutíma á
hverjum stað. Þeir halda fyrir-
lestra fyrir efstubekkinga í
grunnskólum og einnig fyrir alkó-
hólista og aðstandendur og hafa
viðtökurnar verið góðar. Einnig
bjóða þeir upp á einkaviðtöl og
hafa 20-30 manns komið í þau á
hverjum stað.
„Það vekur óneitanlega athygli
að ekkert skipulagt forvarnar-
starf er til staðar á vegum sveitar-
félaganna þrátt fyrir að mikið sé
búið að ræða um slíkt síðastliðin
tuttugu ár. Og við erum ekki
bara að tala um unglinga því það
vantar líka fræðslu fyrir 20 ára og
eldri,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að þcir félagarnir
hefðu mætt miklum skilningi og
horfðu til þess að geta unnið
markvisst að forvörnum og
fræðslu í áfengisntálum á lands-
byggðinni. Félagsmálaráð sveit-
arfélaga, verkalýðsfélög á
stöðunum og fleiri aðilar styðja
þetta framtak og markmiðið er
að þessi þjónusta SÁÁ verði í
boði hálfsárslega í sveitarfélög-
um á landsbyggðinni.
Guðmundur gat þess að lokunr
að eftir áramót yrðu þcir á ferð-
inni á Austjörðum og my.ndu
fikra sig norður og síðan yestur
og enda á Húsavík í mars eða
apríl. SS
Kj ördæmisþing Sj álfstæðisflokksins
á Norðurlandi vestra:
Uppstillingin sam-
þykkt samhljóða
Kjördæmisþing Sjálfstæðis-
flokksins á Norðurlandi vestra
var haldið í Sjálfstæðishúsinu á
Blönduósi um síðustu helgi.
Þar var samhljóða samþykkt
uppstilling á lista flokksins fyr-
ir alþingiskosningarnar á næsta
ári og enginn grundvöllur
fannst fyrir prófkjöri.
Listi flokksins sem samþykktur
var á þinginu lítur þá svona út: 1.
Pálmi Jónsson 2. Vilhjálmur
Égjlsson 3. sr. Hjálmar Jónsson
4. Runólfur Birgisson 5. Sigfús
Jónsson 6. Ingibjörg Halldórs-
dóttir 7. Adolf H. Berndsen 8.
Þóra Sverrisdóttir 9. Árdís
Björnsdóttir 1Ö. sr. Gunnar
Gíslason.
Guðmundur Skarphéðinsson,
nýkjörinn formaður kjördæmis-
ráðs, sagði þingið hafa verið fjöl-
mertnt og hugur í fólkí áð viríná á
í komandi kosningum. Þorsteinn
Pálsson mætti á laugardaginn og
ræddi um viðhorf í stjórnmáluni
og ýmsar ályktanir voru gerðar.
Aðallega voru þær um atvinnu- og
samgöngumál, en einnig almennt
um byggðamál.
í nýrri stjórn kjördæmisráðs
eru auk Guðmundar: Þorgrímur
Daníelsson, Óskar Húnfjörð,
Birna Guðjónsdóttir og Guðný
Friðriksdóttir. SBG