Dagur - 13.11.1990, Qupperneq 9
Þriðjudagur 13. nóvember 1990 - DAGUR - 9
Handknattleikur:
Erfítt hjá KA-mönnum
- en þó 7 marka sigur á ÍR
KA-mcnn sigruöu ÍR-inga
með 7 marka mun, 27:20, þeg-
ar liðin mættust í VÍS-keppn-
inni í handknattleik á Akureyri
á föstudagskvöldið. Sigur KA
var þó alls ekki jafn sannfær-
andi og tölurnar gefa til kynna
því IR-ingar höfðu forystuna
fyrstu 40 mínútur leiksins.
Staðan í leikhléi var 13:14 ÍR í
vil.
ÍR-ingar spiluðu með þrjá
varnarmenn úti á móti skyttunum
og þetta virtist koma KA-mönn-
um í opna skjöldu. Sóknarlcikur
þeirra var ákaflega fálmkenndur
framan af og varnarlcikurinn
slakur. ÍR-ingar réðu því ferðinni
allan fyrri hálfleikinn og náðu
mcst 4 marka forystu, 7:3. KA-
menn náðu nokkrum sinnum að
jafna í framhaldinu og komust
síðan yfir í fyrsta skipti þegar 17
mínútur voru til leiksloka. 18:17.
Munaði þar mestu að vörnin
small saman og þcgar við bættist
ágæt markvarsla Axcls Stcfáns-
sonar var eftirleikurinn auðveld-
ur. IR-ingar virtust fara á taugum
pg munurinn jókst smátt og smátt
þar til flautaö var af.
Lcikurinn í heild var slakur og
handboltinn ekki í háum gæða-
flokki. KA-menn áttu slæman
dag ef síðustu mínúturnar eru
undanskildar. Vörnin. sem hcfur
verið aðall liðsins til þessa, var
götótt allan fyrri hálfjeikinn en
batnaði þegar á lcið og var ágæt
síðustu mínúturnar. I sókninni
var Hans drjúgur á köflum og
Sigurpáll sýndi ágæt tilþrif og
mikið öryggi í vinstra horninu.
Þá varöi Axel vel. alls 13 skot,
þar af 10 i seinni hálfleik.
ÍR-liðið sýndi mikla baráttu en
náði ekki að halda haus út allan
leikinn. Hallgrímur Jónasson
varði ágætlega í markinu en í
sókninni bar mest á Róbert Rafns-
syni sem skoraði mörg falleg
mörk.
Sigurpáll Aðalsteinsson skorar eitt
af mörkum sínum og ullar á mark-
manninn í leiðinni. Mymi: Goiii
Mörk KA: Hans Guðmundsson II/.’.
Sigurpnll Aöalslcinssnn 6. Guöniundur
Guönnmdsson 4. Erlingur Krisljánsson
.’. Pclur Bjarnason 2. Jóhanncs Bjarna-
son I.
Miirk ÍR: Róbcrl Raliisson 6. Ólaíur
Gylfason 5/1. Maltliías Matlhiasson 4.
Jóhann Ásgrímsson 3, Frosti Guölaugs-
son 2.
Dómarar: Gunnar Viöarsson og Sigur-
gcir Svcinsson. Voru hvorki hclri nc
vcrri cn aörir á vcllinum.
Handknattleikur, 2. deild:
Slakt á Húsavík
Völsungur sigraði ÍH 20:17 í 2.
deild Islandsmótsins í hand-
knattleik á Húsavík á föstu-
dagskvöldið. Staðan í leikhléi
var 14:9. Leikurinn var frekar
slakur af hálfu beggja liða.
Völsungar léku þokkalega í
fyrri hálfleik og eftir að jafnræði
hafði verið með liðunum í byrjun
sigldu þeir framúr og náðu 5
marka forystu fyrir hlé. í seinni
hálfleik datt leikur Völsunga nið-
ur og Hafnfirðingarnir náðu að
saxa á örlítið á forskotið.
„Þetta var lélegur leikur hjá
okkur. En við fengum tvö stig og
það skiptir mestu máli. Við
stefndum á að vera í hópi 6 efstu
liða og á meðan við erum á þessu
róli er þetta í lagi," sagði Arnar
Guðlaugsson, þjálfari Völsungs.
Haraldur Haraldsson var
drýgstur Völsunga í þessum leik
og skoraði 6 mörk. Ásmundur
Arnarsson og Vilhjálmur Sig-
mundsson skoruðu 5 hvor, Helgi
Helgason 2 og Tryggvi Guð-
mundsson og Kristinn Wium 1
hvor.
Hjá ÍH skoruðu Jón Þórðarson
og Hilmar Barðason 4 mörk hvor
og Ingvar Reynisson 3.
alsdeildin í körfuknattleik:
ir misstu mann-
Ur leik KA og IS í 1. deild karla.
Mynd: Golli
Blak, 1. deild karla:
Fyrsti ósigur KA-manna
„Ég er mjög óánægöur með
okkar leik. Við spiiuðum
ónákvæmt og einbeitingin var
léleg hjá okkur,“ sagði Hauk-
ur Valtýsson, fyrirliði KA, eft-
ir að lið hans hafði tapað fyrir
ÍS í fimm hrinu leik á Akureyri
á laugardaginn. KA-menn
komust í 2:1 og voru yfír lengst
af í 4. hrinu en misstu hana
niður og Stúdentar unnu síðan
5. og síðustu hrinuna nokkuð
örugglega,
KA-menn byrjuðu á því að
vinna 15:12 en stúdentar svöruðu
með 15:9 sigri. Þeir komust síðan
í 12:3 í 3. hrinu en með mikilli
baráttu náðu KA-menn að jafna
og tryggja sér sigur, 16:14. Þeir
voru síðan yfir framan af 4. hrinu
en stúdentar náðu að jafna 9:9 og
komast yfir. KA-menn jöfnuðu
aftur, 12:12 en þá komu þrenn
mistök í röð og því þurfti eina
hrinu til viðbótar. Hana unnu
stúdentar 15:7 og tryggðu sér þar
með sigur í leiknum.
Það var fyrst og fremst liðs-
heildin sem brást hjá KA-mönn-
um í þessum leik. Stúdentar voru
mun ákveðnari og liðsheildin
virkaði samstæðari hjá þeim. Þeir
vörðust vel aftur á vellinum og
KA-menn náðu ekki að brjóta þá
niður. „Blokkin skilaði ekki
nægilega miklu hjá okkur, við
skoruðum ekki nægilega mikið úr
henni. Svo vorum við að gera
einföld mistök sem ekki eiga að
sjást og því fór sem fór,“ sagði
Haukur Valtýsson.
ínn á bekkinn
öpuðu 94:101 fyrir Njarðvík
þegar gengið var til búningsklef-
anna.
I seinni hálfleik náðu Þórsarar
8 stiga forystu í upphafi, 55:47 en
Njarðvíkingar náðu að jafna
59:59, náðu síðan forystunni og
héldu henni til leiksloka að
undanskildum stuttum kafla þar
sem Þórsarar komust stigi yfir,
75:74.
Það sem setti mark sitt á þenn-
an leik var fyrst og fremst frá-
munalega léleg dómgæsla. Allan
seinni hálfleikinn og stóran hluta
þess fyrri voru þeir gráklæddu í
aðalhlutverkum og þá er illa
komið. Þórsarar fóru verr út úr
viðskiptum sínum við þá og mátti
t.d. Cedric Evans yfirgefa völlinn
snemma í fyrri hálfleik með fimm
villur. A.m.k. tvær af þeim voru
dæmdar algerlega út í bláinn.
Auk hans fengu Konráð Óskars-
son og Jón Örn Guðmundsson
báðir 5 villur. Við þetta bættist
svo að Guðmundur Björnsson
var frá stóran hluta seinni hálfleiks
vegna meiðsla og því vart við því
að búast að liðið ynni leikinn.
Þeir áttu þó ágætan dag að mörgu
leyti. Jón Örn Guðmundsson átti
stórleik í fyrri hálfleik en dalaði í
þeim seinni. Guðmundur var
sterkur þegar hans naut við og
Konráð góður undir lokin. Þá var
Evans sterkur í vörninni en náði
sér ekki á strik í sókninni.
Hjá Njarðvíkingum var Rodney
Robinson góður en hann fór þó
ekki í gang fyrr en Cedric Evans
var farinn af velli. Teitur Örlygs-
son og Friðrik Ragnarsson léku
einnig ágætlega.
Stig Þórs: Jón Örn Guðmundsson 23,
Konráð Óskarsson 23, Guðmundur
Björnsson 15, Cedric Evans 12, Högni
Friðriksson 8, Björn Sveinsson 7, Davíð
Hreiðarsson 2. Hclgi Jóhannesson 2,
Ágúst Guðmundsson 2.
Stig UMFN: Rodncy Robinson 32, Frið-
rik Ragnarsson 18, Teitur Örlygsson 17,
ísak Tómasson 14, Ástþór Ingason 8,
Gunnar Örlygsson 6, Kristinn Einarsson
4, Hreiðar Hreiðarsson 2.
Dómurar: Árni Freyr Sigurlaugsson og
Helgi Bragason. Dæmdu ótrúlega illa.
Haraldur Haraldsson var atkvæða-
mestur Völsunga.
Blak, 1. deild kvenna:
Völsungur lagði ÍS
- en KA hársbreidd frá sigri
Völsungur sigraði ÍS 3:1 í 1.
deild kvenna í blaki á Húsavík
á föstudagskvöldið. Leikurinn
var mjög góður, sérstaklega af
hálfu Völsungsliðið sem lék
sennilega sinn besta leik það
sem af er tímabilinu.
Leikurinn var jafn og var hart
barist í flestum hrinum. Völs-
ungsstúlkurnar unnu þá fyrstu
15:13 og þá næstu 15:8. Þá bitu
Handknattleikur, 2. deild:
Þór ekki í vai)d-
ræðum með IH
Þórsarar sigruðu ÍH 26:15 í 2.
deild íslandsmótsins í hand-
knattleik á laugardag. Leikur-
inn fór fram í Iþróttahöllinni á
Akureyri. Staðan í leikhléi var
13:9.
Þórsarar höfðu undirtökin all-
an tímann en gekk þó illa að
hrista ÍH-inga af sér í fyrri hálf-
leik. í seinni hálfleik skoruðu ÍH-
ingar fyrsta markið en síðan
komu fjögur í röð frá Þórsurum
og þar með var allur vindur úr
gestunum. Þeir komust lítið
áleiðis gegn Þórsvörninni og þeg-
ar staðan var 22:15 skoruðu Þórs-
arar aftur fjögur mörk í röð og
tryggðu sér stórsigur.
ÍH-liðið er slakt og Þórsarar
þurftu ekki á toppleik að halda til
að tryggja sér tvö stig. Þeir léku
þó ágætlega á köflum en duttu
niður þess á milli. Liðið er mjög
jafnt en þó ber að geta tveggja
manna, markvarðarins Hermanns
Karlssonar sem varði 15 skot, þar
af 2 víti, og Sævars Árnasonar
sem var frískur í horninu og skor-
aði grimmt úr hraðaupphlaupum.
Hjá ÍH var fátt um fína drætti en
markvörðurinn Rósmundur
Magnússon varði þó oft ágæt-
lega.
Mörk Þórs: Sævar Árnason 10, Páll
Gíslason 5, Rúnar Sigtryggsson 5/3, Jó-
hann Samúclsson 3, Ólafur Hilmarsson
2, Aðalstcinn Pálsson 1.
Mörk ÍH: Ingvar Rcynisson 5/2, Barði
Barðason 3, Hilmar Barðason 2. Björn
Hannesson 2, Jón Þórðarson 2/1, Þórar-
inn Þórarinsson 1.
Dómarar: Guömundur Lárusson og Arn-
ar Kristinsson. Dæmdu vel.
stúdi'nur frá sér og unnu 15:11 en
Völsungur tryggði sér bæði stigin
með 15:4 sigri í síðustu hrinu.
Eins og fyrr segir var þetta
mjög góður leikur hjá Völs-
ungsliðinu en það tapaði fyrr í
haust 0:3 fyrir ÍS í Reykjavík.
Ásdís Jónsdóttir og Jóna Óskars-
dóttir léku vel fyrir Völsung en
annars var þetta sigur liðsheildar-
innar.
KA nálægt sigri
ÍS vann nauman sigur á KA, 3:2,
þegar liðin mættust í 1. deild
kvenna í blaki í íþróttahöllinni á
Akureyri á laugardag. Leikurinn
var mjög jafn og spennandi og
KA-liðið hafði alla möguleika á
að tryggja sér sigur en stúdínur
skoruðu 4 síðustu stig leiksins og
tryggðu sér sigurinn.
KA-liðið vann fyrstu hrinu
15:12 en ÍS þá næstu 15:11. Þær
náðu síðan forystunni með 15:6
sigri en KA jafnaði, 15:12. Mikil
barátta var í síðustu hrinu og
komst KA-liðið í 14:12. Það
dugði hins vegar ekki því ÍS-liðið
náði að jafna og vinna 16:14.
Leikurinn var mjög spennandi
og ágætlega leikinn. KA-liðið lék
sennilega sinn besta leik þrátt
fyrir ósigurinn og hefur verið
stígandi í liðinu upp á síðkastið.
Birgitta Guðjónsdóttir er sterkur
smassari og var áberandi í KA-
liðinu en annars var það jafnt.