Dagur - 22.11.1990, Qupperneq 1
73. árgangur Akureyri, fimmtudagur 22. nóvember 1990 225. töiublað
kalflö
hressir
livajia
Hraðfrystihúsið á Hofsósi úrskurðað gjaldþrota:
„Þetta er alveg hræðilegt“
- segir formaður verkalýðsfélagsins
Hraðfrystihúsið hf. á Hofósi
var í gær úrskurðað gjaldþrota
af skiptaráðanda, Sigríði Frið-
jónsdóttur sýslufulltrúa á Sauð-
árkróki. Stjórn fyrirtækisins
fór fram á gjaldþrotaskipti í
síðustu viku m.a. á þeirri
forsendu að hvorki hefur feng-
ist fjármagn til hlutafjáraukn-
ingar né kvótakaupa.
Skiptaráðandi lauk í gær við að
kanna ástæður fyrir ósk um gjald-
þrotaskipti og úrskurðaði fyrir-
tækið gjaldþrota í framhaldi af
því. Ekki hefur verið ákveðið
með fyrsta skiptafund, en búið er
að skipa bústjóra til bráðabirgða.
Það er Ásgeir Björnsson, lög-
fræðingur í Reykjavík, og mun
hann taka ákvarðanir um hvort
leigja eigi reksturinn áfram og
aðrar framkvæmdir í sambandi
við Hraðfrystihúsið.
„Þetta er alveg hræðilegt og
maður veit ekkert hvað gerist.
Fiskiðja Sauðárkróks er með
reksturinn á leigu til áramóta,
en eftir það er bara óvissa. Ef
starfsemin stöðvast og frystihús-
inu verður lokað er ekkert fyrir
fólkið sem vinnur þarna annað að
gera en skrá sig á atvinnuleysis-
skrá. Töluvert er um að bæði
húsbóndinn og húsmóðirin vinni
í frystihúsinu og það er ekki gott
segja hvað gerist hjá þeim fjöl-
skyldum komi til lokunar. Fólk
lifir bara í voninni um að rekstur-
inn haldist áfram, því að þó svo að.
það vildi flytja héðan burt er erf-
itt að losna við hús og annað,‘"
sagði Agnes Gamalíasdóttir, for-
maður Verkalýðsfélagsins Ársæls
á Hofsósi, í gær þegar ljóst var
orðið með gjaldþrotið.
Á bilinu 50-60 manns vinna hjá
Hraðfrystihúsinu hf., en FISK
hefur verið með reksturinn á
leigu síðan í sumar. Endurskoða
á leigusamninginn mánuði áður
en leigutíminn er úti, svo að
fljótlega upp úr næstu mánaða-
mótum ætti eitthvað að liggja fyr-
ir með hvort Fiskiðjan leigir
áfram. SBG
Lend við lend á vetrardegi.
Mynd: Golli
Kaupfélag Eyfirðinga:
Rekstraralkoman jákvæð uni 139
milljónir fyrstu níu mánuði ársins
Línudeilan í Blöndudal:
Samkomulag
um legu
línunnar
- enn ekki samist
um bætur
Landsvirkjun og bændur á
Syðri- og Ytri-Löngumýri hafa
nú komist að samkomulagi um
iegu tengilínu við Blönduvirkj-
un í gegnum land bændanna.
Væntanlega fer málið sem
skipulagsmál fyrir hreppsnefnd
Svínavatnshrepps á næstunni
og eftir afgreiðslu þar þarf
skipulagsstjórn ríkisins síðan
að taka lögnina til samþykktar
ef hreppsnefnd samþykkir.
Þorgeir Andrésson, hjá línu-
deild Landsvirkjunar, sagði í
samtali við Dag að búið væri að
ná samkomulagi um legu línunn-
ar og hefði Landsvirkjun þurft að
breyta fyrirhugaðri leið sinni lítil-
lega. Ennþá hefur samt ekki ver-
ið samið um bætur til handa land-
eigendum en fyrr er ekki hægt að
hefja framkvæmdir, nema með
éignarnámi.
Verktakinn sem leggur línu-
slóðann, á stutt eftir í landi
Höllustaða og verður þá að
hverfa frá og bíða þar til öll
skipulags- og bótamál eru gengin
í gegn. Jarðsvegsskipti og undir-
stöðubygging ganga einnig vel,
en sá verktaki á þó töluvert meira
eftir. Línan öll er um 12 km á
lengd og þar af skal hún liggja um
5 km leið í landi Löngumýrarbæj-
anna og trúlega verður ekki hægt
að byrja í þeirra landi fyrr en
næsta vor. SBG
Rekstrarafkoma Kaupfélags
Eyfirðinga er jákvæð upp á
139 milljónir króna eftir skatta
fyrstu níu mánuði ársins. Eigið
fé félagsins er nú rúm 36%
af niðustöðu efnahagsreikn-
ings og heildarvelta án virðis-
aukaskatts er röskar 6 þúsund
milljónir króna og hefur aukist
um tæp 8% á milli ára. Heild-
arlaunagreiðslur félagsins
nema á þessum tíma 860 millj-
ónmum og hafa hækkað um 17
milljónir króna milli ára.
Þessar upplýsingar koma fram
í milliuppgjöri Kaupfélags Ey-
firðinga sem nú er lokið. I milli-
uppgjörinu kemur fram að verg-
ur hagnaður er nú 438 milljónir
„Félagið er vitaskuld ánægt
með þau skilaboð sem við
fáum frá Húsvíkingum með
þessari samþykkt bæjarstjórn-
arinnar. Flugleiðir hafa aukið
tíðni ferða til Húsavíkur og við
höfum fundið frá bæjarbúum
að þeir meta þessa þjónustu-
aukningu,“ segir Einar Sig-
urðsson, upplýsingafulltrúi
Flugleiða, vegna samþykktar
bæjarstjórnar Húsavíkur í
fyrradag þar sem mælt er ineð
að Flugleiðir „fái tækifæri til
að sýna hvers félagið er megn-
ugt í að efla samgöngur við
króna á móti 368 milljónum á
sama tíma í fyrra. Áð sögn
Magnúsar Gauta Gautasonar,
kaupfélagsstjóra er þessi bati
fyrst og fremst að þakka að tekist
hefur að lækka rekstrarkostnað,
en ekki að tekjur hafi aukist
verulega. Fjármagnsliðir eru nú
samtals til gjalda að upphæð 187
milljónir og hafa lækkað um 129
milljónir á milli ára. Hagnaður
Kaupfélags Eyfirðinga af reglu-
legri starfsemi er nú 85 milljónir
en á sama tíma í fyrra var tap
uppá 96 milljónir króna þannig
að afkoma í reglulegri starfsemi
hefur batnað um 181 milljón
króna á milli ára.
Fjármunamyndum í rekstri
varð 130 milljónir en var neikvæð
héraðið,“ eins og segir í sam-
þykktinni. Þar segir jafnframt
að telji samgönguráðhcrra
skynsamlcgt að veita öðru
flugfélagi hlutdeild í markaðin-
um á flugleiðinni mæli bæjar-
stjórnin með Flugfélagi
Norðurlands.
„Það er rétt hjá bæjarstjórn
Húsavíkur að benda á stærð
markaðarins. Sé litið til þess að
milli Reykjavíkur og Húsavíkur
verði flogið tvisvar á dag, alla
daga vikunnar, þá er um að ræða
10 farþega í ferð miðað við far-
þegafjölda á þessari leið í dag.
um um 19 milljónir í fyrra. Að
sögn Magnúsar Gauta má rekja
þennan bata í rekstri félagsins að
hluta til hagstæðari yrti skilyrða,
eins og hóflegra kjarasamninga
Stjórn Kaupfélags Eyfírðinga
ákvað á fundi sínum í gær að
nýta sér forkaupsrétt sinn á
nýjum hlutabréfum í Útgerð-
arfélagi Akureyringa. KEA er
annar stærsti hluthafinn í
Útgerðarfélaginu og mun því
áfram eiga 9,02% í því.
Ég held að Húsvíkingar hafi gert
sér grein fyrir því að þessum
markaði verði þjónað eingöngu
með minni flugvélum ef margir
fái möguleika á þessari leið. Við
höfum fengið eindregin skilaboð
frá Húsvíkingum í skoðana-
könnunum að þeir vilja fljúga
með stórum vélum á þessari leið
og það verður því erfiðara sem
honum er skipt meira,“ sagði
Einar.
Sigurður Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lands, segir það ekki koma sér á
óvart þó að menn séu í þessu efni
hikandi við að mæla með
og lækkandi verðbólgu, en einnig
hafa margvíslegar ráðstafanir
sem gerðar voru í lok síðasta árs
og einnig á fyrri hluta þessa árs
skilað verulegum árangri. ÞI
Sem kunnugt er verður hlutafé
í ÚA nú aukið um 50,5 miiljónir
króna að nafnverði. KEA hefur
samkvæmt eignarhlut sínum í
fyrirtækinu forkaupsrétt að 4,5
milljónum króna. Félagið nýtti
sér líka forkaupsrétt sinn í útboð-
inu fyrr á þessu ári og keypti þá
fyrir sömu upphæð. JÓH
nýbreytni. „Húsvíkingar þekkja
Flugleiðir og vita hvað þeir hafa
þar og ég er ekkert hissa þótt þeir
gefi Flugleiðum einhvers konar
traustsyfirlýsingu. En ég er jafn-
framt ánægður með að bæjar-
stjórn skuli mæla með okkur þar
fyrir utan,“ sagði Sigurður.
Samgönguráðherra óskaði
umsagnar bæjarstjórnar Húsa-
víkur og Flugráðs á umsóknum
um flugleyfi á áðurnefndri flug-
leið. í samtali við blaðið sagðist
ráðherrann reikna með að
ákvörðun muni liggja fyrir í síð-
asta lagi um mánaðamót. JÓH
Samþykkt bæjarstjórnar Húsavíkur vegna umsókna um flúgleyfi:
Félagið er vitaskuld ánægt með
þessi skilaboð frá Húsvíkmgum
- segir upplýsingafulltrúi Flugleiða
Hlutaíjáraukning í ÚA:
KEA nýtir forkaupsrétt sinn