Dagur - 22.11.1990, Síða 16

Dagur - 22.11.1990, Síða 16
Akureyri, fimmtudagur 22. nóvember 1990 Stakfell ÞH-360: „Sjómönnum gert skylt að eiga lög- heimili á Þórshöfn“ - segir Magnús Helgason, útgerðarstjóri „Við eigum nægan kvóta og útgerðin gengur bærilega. Nei, ekki er rétt að til uppsagna hafí komið hjá útgerðinni að undanförnu. Vissulega verða mannabreytingar hjá okkur sem og öðrum útgerðarfyrir- Suður-Þingeyj arsýsla: Heimtur heldur slakar - ljóst að fé hefur fennt í haust Heimtur eru mjög misjafnar en yfirleitt heldur slakar í Suð- ur-Þingeyjarsýslu, að sögn Stefáns Skaftasonar, ráðunaut- ar í Straumnesi. Stefán sagði að ekki hefði ver- ið tekið saman hve mikið fé vant- aði, það væri yfirleitt aldrei gert, en hann heyrði á hljóðinu í bænd- um að töluverð vöntun væri. Heimtur munu vera mjög slæmar í Mývatnssveit og Reykjahverfi og einnig slæmar í Bárðardal og Fnjóskadal. Bændur þar hafa verið að leita að fé sínu fram að þessu og fundu nokkur lömb ný- lega. Mývetningar hafa líka verið að fara öðru hvoru til að leita að fé. Áhlaupið í haust var mjög slæmt á afréttum og svo mikinn snjó setti í heiðar að Stefán sagði alveg ljóst að eitthvað af fé hefði fennt. Stefán sagði að bændur yrðu kannski ekki fyrir mjög tilfinnan- legu fjárhagslegu tjóni þó að fé vantaði af fjalli eftir að kvóta- kerfið kom til, en bændur kynnu því illa að vita af fé lifandi á afréttum þegar vetur gengi í garð. IM tækjum. Að undanförnu hafa nokkrir sjómenn af Stakfellinu ÞH-360 hætt störfum vegna þess að við höfum gert sjó- mönnum okkar skylt að eiga lögheimili hér á Þórshöfn,“ sagði Magnús Helgason, útgerðarstjóri. Að sögn Magnúsar hefur utan- sveitarmönnum, sjómönnum á Stakfellinu ÞH-360, ekki verið sagt upp störfum. Hins vegar þurfa þeir að taka ákvörðun um búsetufluttning til Þórshafnar fyrir 1. desember vilji þeir halda skipsrúmi. „Nokkrir hafa kosið að gefa eftir skipsrúm sitt vegna þessa nýja ákvæðis og róa því á önnur mið. Nýir hafa komið í stað þeirra er fóru og eiga nú lög- heimili hér á Þórshöfn. Já, rétt er að nokkrir eiga nú lögheimili á efri hæð lögreglustöðvarinnar, en það er húsnæði í eigu útgerðar- innar. Heimilisfang þeirra verður á þessum stað þar til annað hús- næði fæst, sem verður fyrir ára- mót. Þessi ráðstöfun um manna- hald er liður í endurskipulagn- ingu útgerðarinnar og nær yfir alla okkar sjómenn,“ sagði Magnús Helgason frá Þórshöfn. ój Þótt vetur sé löngu genginn í garð samkvæmt almanakinu, hefur tíðarfarið að undanförnu ekki fylgt því. Enn er víða unnið að ýmsum „sumarverkum" eins og malbikunarframkvæmdum. Mynd: Goiií Hugmyndin um flutning Fínullar hf. til Akureyrar: „Það er eftir litlu að sækjast „Þarna er alls kyns misskiln- ingur á ferðinni. Það hefur aldrei verið rætt í stjórn Fínull- ar að flytja verksmiðjuna eitt né neitt enda ekkert hlaupið að því. Þar að auki er eftir mjög litlu að sækjast þar sem um mjög lítið fyrirtæki er að ræða,“ segir Bjarni Einarsson, aðstoðarforstjóri Byggðastofn- unar og stjórnarformaður Fín- Sóttu eitt lamb inn á hálendi: Ekki hagnaðarvon sem ræður í svona tilfeUum - segir Tryggvi Höskuldsson, bóndi á Mýri Tryggvi Höskuldsson á Mýri í Bárðardal og Sveinbjörn Tryggvason, sonur hans, fóru fyrir nokkrum dögum í leiðangur inn með Skjálfanda- Hækkar Rafveita Akureyrar raforkuverð? „Veitan heftir þörf fyrir hækkun umfram orkukaup“ - segir Svanbjörn Sigurðsson, rafveitustjóri Hækkar verð á raforku á næstu misserum? Þessa spurn- ingu ber sífellt oftar á góma í viðræðum manna. „Trúlega kemur til hækkunar um n.k. áramót,“ sagði Svanbjörn Sig- urðsson, rafveitustjóri á Akur- eyri. Að sögn Svanbjörns er ráðgert að Landsvirkjun hækki verð á raforku um n.k. áramót. Verð- hækkun Landsvirkjunar kallar á hækkun hjá Rafveitu Akureyrar. Hver hækkunin verður er ekki vitað í dag, en trúlega verður hún undir 10%. Verðskrá RVA hækkaði síðast í október fyrir rúmu ári og þá um 10%. „Já, hækkun verður í krónum talið, en í raun er um lækkun að ræða þegar litið er til verðlagsþróunar á íslandi. Rafveita Akureyrar hefur þörf fyrir hækkun umfram orkukaup vegna aukins rekstrar- kostnaðar. Sú hækkun verður óveruleg. Nú bíðum við ákvarð- anatöku Landsvirkjunar. Á mál- um verður tekið í næsta mán- uði,“ sagði Svanbjörn Sigurðs- son. ój fljóti til þess að leita að einu lambi sem sést hafði í svoköll- uðu Syðra-Fljótsgili í leitum í haust en ekki náðst. Þeir feðg- ar náðu lambinu og komu því til byggða en um 60 km eru frá Mýri að Syðra-Fljótsgili og var því um talsvert ferðalag að ræða. Tryggvi sagði að erfitt hafi ver- ið að athafna sig við gilið en að endingu fór Sveinbjörn austur yfir fljótið og þaðan sá hann lambið niðri í gilinu. í samein- ingu tókst þeim að koma lambinu upp úr gilinu þar sem þeir náðu því og óku til byggða á fjórhjóli. Lambið reyndist úr Mývatns- sveit en þar sem það var komið vestur yfir Skjálfandafljót varð að lóga því enda er fljótið varn- arlína fyrir útbreiðslu sauðfjár- sjúkdóma „Manni finnst andstyggilegt að hugsa til þess að skepnur verði úti og því fórum við f þennan leiðangur. Það var ekki hagnað- arvon sem réð í þessari ferð. Það versta fannst manni þó að lóga varð lambinu en við því var ekk- ertaðgera,“sagðiTryggvi. JÓH segir stjórnarformaður fyrirtækisins ullar hf. í Mosfellsbæ, vegna fyrirspurna formanns Lands- sambands kanínubænda til atvinnumálanefndar Akureyr- ar um hugsanlegan flutning fyrirtækisins í bæinn. Bjarni segir að saumastofan Drífa á Hvammstanga hafi nú tekið að sér, að hluta til, sauma- skap á flíkum fyrir Fínull hf. og framtíðarsýnin sé sú að allur saumaskapur fyrir fyrirtækið flytjist þangað. Bjarni segir að í verksmiðjunni sjálfri starfi nú þrír starfsmenn og til viðbótar tveir skrifstofumenn. í lítilli saumastofu sem rekin er við hlið verksmiðjunnar eru 3-4 starfsmenn. Bjarni segir að flutningur á verksmiðjunni muni kosta 30-50 milljónir króna. Til viðbótar verði að þjálfa nýtt starfsfólk á vélarnar þannig að nokkurn tíma taki að koma framleiðslunni í gott horf á ný. Um eignaraðild í fyrirtækinu sagði Bjarni ekki rétt að kanínu- bændur eigi meirihlutann í því. Landssambandið eigi 35,1% og einstakir bændur 1,7%. en Kanínu- miðstöðin í Njarðvík, sem reynd- ar er ekki til lengur, eigi 3,5%. Því sé hægt að segja að bændur eigi 40,3% en Álafoss á 19,3%, Byggðastofnun 33,4% og Fram- kvæmdasjóður íslands 7,0%. „Þetta fyrirtæki er á horriminni og það vantar stórlega fé til að geta staðið undir markaðssetn- ingu erlendis sem er eina vonin til að hægt sé að ná hagnaði af þessu fyrirtæki. En því miður er þetta fyrirtæki ekki það sem bjargar Ákureyri. Það væri hægt að tala um flutning á því ef fyrirtækið væri farið að ganga það vel að bæta þurfi við nýrri spunasam- stæðu,“ sagði Bjarni. JÓH Aflabrögð á Norðurlandi: Ufsaafliim hefur aukist - veruleg aukning í rækju á árinu Heildaraflinn á Norðurlandi fyrstu tíu mánuði ársins var 274.690 tonn. Á sama tímabili í fyrra veiddust 200.285 tonn þannig að hér er um mikla aukningu að ræða. Þetta skýr- ist með meiri ioðnuveiði á þessu ári en ef Ioðnan er tekin út úr þessum tölum standa eftir 121.081 tonn á þessu ári á móti 120.164 tonnum í fyrra. Aukn- ingin er þannig aðeins um 1.000 tonn þegar loðnunni sleppir. Lítum á þær tegundir sem hafa sveiflast mest milli ára. í októ- berlok höfðu Norðlendingar veitt 65.291 tonn af þorski á móti 70.703 á síðasta ári. Ufsaaflinn hefur hins vegar aukist úr 8.246 tonnum í 12.754 en grálúðan dregist saman úr 14.199 tonnum í 10.859. Þá kemur loðnan með sín 153.609 tonn á móti 80.121, rækjuaflinn hefur aukist úr 9.783 tonnum í 13.077 og hörpudiskur úr 21 tonni í 857. Af einstökum verstöðvum er samdráttur í þorskafla mest áber- andi á Siglufirði, Húsavík, Kópa- skeri og Hrísey. Ufsinn hefur víðast hvar sótt á, mest hvað magn varðar á Akureyri og í Ólafsfirði eða um þúsund tonn á hvorum stað. Samdráttur í grá- lúðuafla er fyrir hendi í flestum verstöðvum norðanlands. Hin mikla aukning í rækjuafla er að mestu bundin við verstöðv- ar við Skagafjörð og Húnaflóa en einnig er mikil aukning á Siglu- firði, Dalvík og í Ölafsfirði. Hörpudiskurinn er einskorðaður við Hvammstanga og Blönduós. SS BYGGINGAVÖRUR LÓNSBAKKA LEIÐIN ERGREIDt

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.