Dagur - 15.12.1990, Side 5

Dagur - 15.12.1990, Side 5
Laugardagur 15. desember 1990 - DAGUR - 5 fréftir Krabbameinsfélagið með starfs- menn á þremur stöðum á landinu Krabbameinsfélögin á Ausf- urlandi réðu sér starfsmann í haust og fylgdu þar fordæmi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis frá því fyrir tveimur árum. Sem kunnugt er hefur Krabbameinsfélag Reykjavíkur haldið uppi umfangsmikilli starfsemi um langt árabil. Þar með eru þrjú krabbameinsfélög komin með ráðna starfsmenn auk heildar- samtakanna, Krabbameinsfé- lags íslands. Það var Krabbameinsfélag Austfjarða sem hafði frumkvæði að ráðningu starfsmanns í hluta- starf eystra og nýtur til þess stuðnings frá Krabbameinsfélagi Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar eystri. Frá næstu áramótum verð- ur helmingur kostnaðar greiddur af Happdrætti Krabbameinsfé- lagsins. Þuríður Backmann hjúkrun- arfræðingur var ráðin til starfsins. Á hún að annast fræðslu um krabbamein og varnir gegn því og ennfremur að veita krabba- meinssjúklingum og aðstandend- um þeirra stuðning og ráðgjöf. Skrifstofa verður í heilsugæslu- stöðinni á Egilsstöðum, sími (97-) 12262 og verður fyrst um sinn opin á þriðjudögum. Þar eru veittar nánari upplýsingar um starfsemina en hún á að ná til meginhluta Austurlands. Nú eru liðin tvö ár síðan Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis réð Halldóru Bjarna- dóttur hjúkrunarfræðing til fræðslustarfa og þjónustu við krabbameinssjúklinga og er hún í fullu starfi. Happdrætti Krabba- meinsfélagsins greiðir kostnaðinn að hálfu leyti. Reynslan af þessu starfi á Akureyri og í nærsveitum hefur verið mjög góð og varð Austfirð- ingum hvatning til að fara út á sömu braut. Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis var til Sauðárkrókur: Mikil uppbyging á aðstöðu skíðafólks á sér nú stað - snjótroðari keyptur úr Reykjavík húsa í Hafnarstræti en hefur nú fengið skrifstofuaðstöðu að Gler- árgötu 36, 3. hæð. Skrifstofan er opin kl. 13-16 frá mánudegi til föstudags og sfminn er (96) 27077. Höfuðstöðvar Krabb: meinsfé- lagsins eru að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Þar vinna um 50-60 starfsmenn Krabbameinsfélags íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur, við fræðslu, leit, rannsóknir og þjónustu við sjúkl- inga. Halldóra Bjarnadóttir starfsmaður Krabbameinsfélags Akureyrar og ná- grcnnis á nýrri skrifstofu félagsins að Glerárgötu 36. Mynd: Colli Menningar- og fræðslusamband alþýðu: Farandnámskeið fyrir atvinnulausa Félagsmálaráöherra hefur í samráöi í ráðgjafarnefnd vinnu- málaskrifstofu félagsmálaráðu- Húsavík: Bærinn tapar tólf millj- ónum króna Tapaðar innheimtukröfur bæjarsjóðs og bæjarfyrir- tækja á Ilúsavík að upphæð rúmlega 12,2 milljónir hafa verið afskrifaðar. Um er að ræða beinar af- skriftir á innheimtukröfum orkuveitna að upphæð rúnt- lega 5,2 milljónir. Óbeinar afskriftir útsvara, aðstöðu- gjalda, fasteignagjalda og við- skiptareikninga 15 aðila að upphæð rúmlega 3,8 milljónir og beinar afskriftir útsvara, aðstöðugjalda og viðskipta- reikninga 13 aðila að upphæð rúmlega 3,1 milljón. Gjaldþrot fyrirtækja mun vera aðalorsökin fyrir þessu tapi bæjarins. IM neytisins ákveðið að veita 4 milljónir króna til námskeiöa- halds fyrir atvinnulausa í sam- vinnu við Menningar- og fræðslusamband alþýðu. í framhaldi af þeirri tilraun sem gerð var á vegum Reykjavík- urborgar með tilstyrk félagsmála- ráðuneytisins og Atvinnuleysis- tryggingasjóðs, með námskeiðs- hald fyrir atvinnulausa, taldi ráð- gjafarnefnd vinnumálaskrifstofu æskilegt að hliðstæðum nám- skeiðum yrði komið á fót víðar um land. Ráðgjafarnefndin telur æskilegt að um væri að ræða far- andnámskeið sem haldið væri á þeim stöðum, sem þörf er á vegna atvinnuástandsins. Um væri að ræða stöðluð námskeið með föstum kjarna en verkhlut- inn gæti verið breytilegur eftir þörfum og aðstæðum á hverjum stað. Félagsmálaráðuneytið leitaði til Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu um það hvort það væri reiðubúið að standa fyrir slíku námskeiðshaldi. Stjórn M.F.A. samþykkti einróma að verða við erindinu og mun með fjögurra milljóna króna styrk hefja undirbúning farandnám- skeiðs fyrir atvinnulausa, sem haldin verða fyrri hluta næsta árs. Sjúkrahús Skagfirðinga: Á Sauðárhæðum í 30 ár Mikil uppbygging á aðstöðu skíðafólks á Sauðárkróki á sér nú stað. Skíðadeild Tindastóls hefur keypt snjótroðara og einnig er verið að gera upp gömlu flugstöðvarbygginguna sem skíðaskála á svæði félags- ins í Heiðarhnjúk. Áform eru um það í framtíðinni að kaupa nýja skíðalyftu, en trúlega verður það ekki á næstunni. Snjótroðarinn sem búið er að festa kaup á var áður notaður í Bláfjöllum, en er nýuppgerður og keyptur frá Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar. Að sögn Þorkels Þorsteinssonar, hjá skíðadeildinni, er troðarinn keyptur á 600 þús. krónur og veitir Sauðárkróksbær 400 þús. króna styrk til kaupanna. Hann sagði að von þeirra væri að geta keypt betri lyftu í framtíðinni því sú gamla væri komin til ára sinna. Gamla flugstöðin sem stóð á Sauðárkróksflugvelli er nú komin upp að rótum Heiðarhnjúks og hefur skíðafólk unnið við að ein- angra hana og laga að öllu leyti svo að hægt verði að snæða þar nesti sitt og fleira. Þorkell sagðist jafnvel búast við að farið yrði út í einhverja veitingasölu þar þegar frant liðu stundir. Snjótroðarinn kemur norður eftir áramót og þá verður einnig gengið frá þaki skálans, reiknað er með að opna aðstöðuna upp úr því, það er að segja ef snjór kem- ur að sögn Þorkels. Hann sagði skíðadeildina vonast eftir góðri þátttöku í skíðaíþróttinni í vetur og að stutt yrði við bakið á þeim vegna þessara framkvæmda og fjárfestinga sem stórbæta aðstöðuna þegar snjórinn kemur. SBG KflFORLÖGSBOK '• ':•••...... | c,n I [ÓNSSOV h f,;f ««(»'»«• JODYNUR II Hestar og mannlíf í Austur-Skaftafellssýslu Egill Jónsson bjó til prentunar Árið 1988 kom út fyrsta bindi að rit- verkinu Jódynur, sem hlaut mjög góðar viðtökur og staðfestir það hinn almenna áhuga fyrir meiri kynnurn á þessum landshluta. Hestar, menn og svaðilfarir voru hluti af daglega Irfinu og um það vilja menn fræðast. Sagt er frá Hóiahestunum, ræktun homfirskra - listaverk sett upp í tilefni þess Á næsta ári verða liðin 30 ár frá því Sjúkrahús Skagfirðinga fluttist upp á Sauðárhæðir og þegar þess verður minnst með hækkandi sól verður afhjúpað útilistaverk úr stáli eftir Sverrir Olafsson á lóð sjúkrahússins. Bygginganefnd og bæjarstjórn Sauðárkróksbæjar er búið gefa leyfi fyrir uppsetningu verksins, en það mun verða nokkrir metrar á hæð þegar búið er að setja það á sinn stall og efsti hlutinn snúast eftir vindátt. Að sögn Sæmundar Her- mannssonar, framkvæmdastjóra sjúkrahússins, fékkst styrkur úr listskreytingasjóði menntamála- ráðuneytisins fyrir kaupum á listaverkinu, en sjúkrahúsið fjár- magnar uppsetningu. Verkinu hefur verið valinn staður fyrir framan anddyri hjúkrunar- og dvalarheimilisins og verður að sögn Sæmundar, afhjúpað um leið og 30 ára afmælisins verður minnst með opnu húsi þegar líða fer á veturinn. SBG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.