Dagur - 15.12.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 15.12.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 15. desember 1990 af erlendum vetfvangi ____________JL Ignaz Semmelweis og barnsfararsóttin: Barátta við dauðann og samverkamenn Enda þótt Ignaz Semmelweis tækist að lækka dán- artíðni við fæðingar niður í brot af því sem áður var, neituðu vísindamenn þeirra tíma að fallast á kenningar hans. Sagan af Semmelweis er saga mikilmennis, sem að lokum gefst upp við að sanna heiminum að hann hafi rétt fyrir sér. Mjólkursamlag KEA Akureyri Simi 96-21400 Jólagjöf hestamannsins fæst hjá okkur! Reiðbuxur, mikið úrval. Skálmar á góðu verði. Loðfóðraðir gallar. Beisli, hringaméll, múlar. Sindrastangir, venjulegar stangir skeifur og ótal margt fleira, til dæmis allt til járninga. Hestasport Helgamagrastræti 30 Sími 21872. Opið alla virka daga frá 10-18 og á laugardögum frá 10-12. Þegar Scmmelweis ákvað að berjast fyrir málstað fæðandi kvenna, var ástandið þannig að á sumum fæð- ingarstofum lést þriðja hver kona af barnsfararsótt. Hér virðir hann fyrir sér eitt margra fórnarlamba á Aligc- meine Krankenhaus í Vín. (Myndin er úr kvikmynd sem gerð var eftir leikriti Jens Björneboes, „Semmel- weis“.) frjálsar hendur til að reyna kenn- ingar sínar. Dánartíðnin lækkaði svo að ótrúlegt var, niður í 0,85 prósent, en var ennþá tíu til fimmtán prósent í Vín og Prag. Árið 1855 var Semmelweis skipaður prófessor við háskólann í Pest. Hann kvæntist, eignaðist fimm börn og setti upp eigin lækningastofu. Kenningar hans um orsakir barnsfararsóttar höfðu nú hlotið viðurkenningu í Ungverjalandi og heilbrigðisyfir- völd fyrirskipuðu öllum sjúkra- húsum að taka upp þær fyrir- byggjandi aðferðir sem Semm- elweis hafði barist fyrir árum saman. Árið 1861 gaf hann út höfúð- verk sitt, þar sem hann skilgreinir þá reynslu sem hann hafði öðlast í baráttu sinni við barnsfararsótt- ina. En þrátt fyrir það að í bók- inni væru nákvæmar tölulegar upplýsingar sem sönnuðu gildi hreinlætisreglnanna, varð hún ekki til þess að kenningar hans hlytu neina viðurkenningu á alþjóðavettvangi. Hann sendi eintök af henni til allra kunnustu fæðingarlækna og læknafélaga er- lendis, en viðbrögðin voru al- mennt neikvæð. Andstaðan lamaði hann Semmelweis tók nærri sér þá miklu andstöðu sem hann varð að þola allt frá því hann setti fram fyrstu hugmyndir sínar um smitefni og gildi handþvottar. Ófagleg og miskunnarlaus gagn- rýni á ritverk hans varð að lokum til að lama hann. Eignir hans voru uppurnar og hann tók jafn- vel að efast um að hann hefði í rauninni rétt fyrir sér. Afleiðing- arnar urðu áköf þunglyndisköst, og 1865 var hann lagður inn á geðsjúkrahús í Vín, þar sem góð- vinur hans var yfirlæknir. Áður en Semmelweis fór frá Buda hafði hann framkvæmt krufningu og þá fengið skeinu á hendi. Þetta varð til þess, að hann fékk ákafa blóðeitrun sem gerði hann ennþá ringlaðri en áður og hann lést 13. ágúst, skömmu eftir komuna til Vínar. Krufning leiddi það í Ijós, að Semmelweis hafði látist af völd- um þess sjúkdóms sem hann hafði varið ævinni til að berjast við. Og kaldhæðni örlaganna var ekki þar með öll. Daginn áður voru sóttvarnalyf í fyrsta skipti notuð við uppskurð. Þar var að verki enski læknirinn Joseph Lister og notaði hann karbolsýru til sótthreinsunar. Að baki lá, að Louis Pasteur var farinn að sýna fram á að bakteríur gætu verið smitberar. (Jörgen Gundcrsen yfírlæknir í Fakla 1/90. - I*.J.) Flestar konur ólu börn sín í heimahúsum en fátæklingum, einkum í borgum, var vísað inn á sjúkrahús sveitarfélaganna. Um nokkurt skeið létust meira en 100 konur mánaðarlega af barnsfar- arsótt á fæðingardeildinni við Allgemeine Krankenhaus í Vín, þar sem Semmelweis starfaði. Hann þjáðist með þeim konum sem höfðu barnsfararsótt og neit- aði að sætta sig við að svo margar þeirra ættu ekki afturkvæmt til síns heima. Semmelweis tók snemma að gruna að eiturefni sem bærust mann frá manni gætu verið skýringin á hinni háu dánartíðni en þetta var á þeim tímum þegar enn var ekki fyrir hendi tækni- þekking til að sanna slíka tilgátu. Á sjúkrahúsinu voru tvær fæð- ingardeildir. Deild A var við hliðina á krufningarsalnum. Æfingum læknisfræðinema var þannig háttað, að fyrst æfðu þeir fæðingaraðstoð á líkunum í krufningarsalnum og reyndu síð- an þekkingu sína inni á fæðingar- deildinni - án þess að þvo sér um hendurnar áður. í þessari deild var dánartíðnin nærri 20 prósent. í fæðingardeild B unnu ljósmæð- Ignaz Semmelweis (1818-1865) ur sem ekkert komu í krufningar- salinn. Þar var dánartíðnin að- eins á milli 5 og 7 prósent. Dauði vinar hans gaf til kynna hver orsökin var Árið 1847 lést náinn vinur og samstarfsmaður Semmelweis, Kolloetschka, eftir að hann hafði skorið sig þegar hann var að kryfja lík konu sem dáið hafði af barnsfararsótt. Semmelweis tók lát vinarins nærri sér. Þegar Koll- oetschka var krufinn, tók Semm- elweis eftir því að sömu sýkingar- einkenni var að sjá á innri líffær- um hans og hjá þeim konum sem létust af barnsfararsótt. Þá hug- kvæmdist honum að vinurinn hlyti að hafa smitast af sömu eit- urefnum og völd væru að barns- fararsóttinni á fæðingardeildinni. Þetta varð til þess, að Semm- elweis setti strangar reglur um handþvott - með sótthreinsandi klórkalksupplausn, nokkuð sem hann hafði lært af kamarmokur- unum. Árangurinn varð eftirtekt- arverður. Dánartíðnin lækkaði úr 18 prósentum niður í rúmlega eitt prósent. Það eðlilega hefði verið, að hreinlætið hefði nú ver- ið aukið um allt sjúkrahúsið. En því miður neitaði yfirmaður Semmelweis að taka upp siði sem yngri samstarfsmaður átti uppá- stunguna að. Margir læknar héldu því líka fram að of erfitt væri að fara eftir þessum hrein- lætisreglum og unnu á ýmsan hátt gegn Semmelweis. Þeir unnu m.a. skemmdarverk á tilraunum með kenningar hans með því að sleppa því að þvo hendur sínar. Viðurkennt í Ungverjalandi Árið 1848 flæddi frjálslynd bylt- ingaralda í stjórnmálum yfir Evr- ópu, sem m.a. varð til þess, að Metternich fursti var settur frá völdum í Austurríki. Staða Semmelweis á sjúkra- húsinu styrktist þó síður en svo við það að hann lagðist á sveif með byltingarmönnum og íhalds- söm stjórn sjúkrahússins svaraði með því að reka hann. Þá sótti hann um stöðu sem kennari í fæðingarhjálp við háskólann, en var hafnað. Semmelweis ákvað þá að snúa aftur til Ungverjalands. Þar var hann ráðinn yfirlæknir við sjúkrahús í Pest, og þegar barns- fararsótt braust út sem faraldur á fæðingardeildinni, fékk hann Hann lést 13. ágúst 1865, 47 ára að aldri. Nafn hans er meðal þeirra sem hæst ber í sögu læknis- fræðinnar en hann var misskilinn og unnið gegn honum af flestum stéttarbræðrum hans á þeim tíma. Hann dó á geðveikrahæli. Dánarorsökin var raunar sjúk- dómurinn sem hann hafði varið lífi sínu til að berjast við - blóð- eitrun. Eitthvað á þessa leið lýkur leiðsögumaðurinn í Semmelweis- safninu í Buda - öðrum helmingi Budapest - máli sínu, þegar safn- ið hefur verið skoðað. í Ung- verjalandi er réttilega litið á Ign- az Semmelweis sem eitt helstu mikilmenna sem landið hefur fóstrað og safnið var sett upp þar sem hann bjó þegar hann var prófessor í fæðingarhjálp. Meira en hundrað létust mánaðarlega Þegar Semmelweis hóf störf sem fæðingarlæknir fyrir 150 árum, var Evrópa undirlögð af smitandi sjúkdómum. 25 prósent allra barna dóu áður en þau náðu sex ára aldri, og ævialdurinn var að meðaltali 33 ár. Okum eins OG MENN! Aktu eins oq þú vilt að aorir aki! uar0"

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.