Dagur - 15.12.1990, Síða 12

Dagur - 15.12.1990, Síða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 15. desember 1990 Hólmfríður S. Benediktsdóttir, sópransöngkona, gift þriggja barna móðir ó Húsavfk sem varð fertug í haust, lauk í sum- ar mastersnómi f einsöng fró Indiana University í Blooming- ton. Það flýgur margt í gegnum hugann við að frétta af svona konu: Mikið er hún dugleg! >Etli þetta hafi ekki verið erfitt? ÆW\ hún sé ekki hamingjusöm í dag þegar slíkum ófanga er nóð? Svona konu er gaman að tala við og spyrja svolítið um lífið og tilveruna og hvað konur geta ó sig lagt þó að þœr hafi mörgu að sinna. Og nú er magister Hólmfríður komin í helgarviðtalið. Henni er að vísu hólfilla við að vera kölluð magister opinberlega og hún var í upp- hafi bara beðin um smóviðtal. Skyldi hún vera svolítið hlé- drœg inn við beinið? En við œtluðum að tala um list og hvað Hólmfríður vœri að gera núna. að er ekki hægt að ganga að listinni eins og að því að vaska upp eða taka til því nauðsyn- legt er að vera í vissu andlegu ástandi til að geta komið list frá sér. Það hefur ekkert breyst frá því í gamla daga, allir þurfa að vinna og vinna mikið. Fyrir fólk sem verið hefur í dýru námi, eins og ég hef verið, er ekki um annað að gera en að vinna meira. Undanfar- in ár hef ég kennt ýmiss konar tónlist, allt frá blokkflautuleik til tónmenntakennslu í grunnskólanum en það er, held ég, eitt erf- iðasta fag sem hægt er að kenna. I fyrra var ég að kenna ensku við Framhaldsskólann og að berjast við að koma saman kór þar, auk þess að vera með kór í Barnaskólanum og þeytast svona út um allt. Það er mjög slít- andi að kenna við marga skóla í einu, þvf kennslustundirnar eru ekki nema brot af því sem gera þarf. En ég fékk ráðningu í fulla stöðu á Akur- eyri og er þar með 19 söngnemendur. Þeir eru bæði unglingar og eldra fólk og ég lít á þetta sem algjör forréttindi að fá eingöngu að kenna söng. Þetta er upp til hópa mjög gott fólk og áhugasamt, fyrir utan það að samstarfsmenn mínir á Akureyri eru margir alveg frábærir karakterar. Það er gaman að kynnast þessu fólki sem hefur gengið í gegn- um það sama og ég, hefur farið erlendis og menntað sig og hefur hlustað mikið á tón- list. Ef maður heldur að það sé nóg að mennta sjálfan sig og hlusta ekki á neina aðra þá er maður, held ég, einhvers staðar inni í búri og getur ekki gefið frá sér þá útgeislun sem þarf ef ætlunin er að vera listamaður. Það er dálítið meira en það að iðka listina sem gera þarf.“ Passar ekki við lífíð á Húsavík Snemma sumars 1987 átti Dagur viðtal við Hólmfríði. Þá var hún að fara út til Bloom- ington til ársdvalar. Öll fjölskyldan fór út með henni, Magnús Magnússon, kennari sem einnig stundaði nám við kennarahá- skólann þar, og börnin þeirra þrjú. í viðtal- inu kom fram að Hólmfríður er kennari að mennt. Hún stundaði söngnám við Tónlist- arskóla Kópavogs samhliða kennslustörfum á Húsavík, en þar hafði hún m.a. starfað sem skólastjóri Tónlistarskólans. Hólmfríð- ur lauk áttunda stigs prófi árið 1980. f Bloomington dvaldi hún sumrin 1984 og 1986 og sótti einkatíma hjá prófessor Roy Samuelsen. „Ég held að svona undir niðri hafi ég allt- af ætlað að verða söngkona. Ég man eftir mér einni heima þegar ég tók alveg rosaleg- ar rokur, en ég hef alltaf haft háa rödd, skræka rödd eins og margir vinir mínir segja. Það að verða söngkona er bara eitthvað sem passar ekki við lífið hér á Húsavík. Einu sinni var sagt við mig að maður þyrfti að líta til stjarnanna til að komast upp í trjákrónurnar, og ég hef kannski litið dálítið mikið til stjarnanna. Ég ætlaði alltaf að fara eitthvað erlendis til að læra, það kom aldrei neitt annað til greina. En þegar maður hefur eignast þrjú börn og vill sinna þeim, þá verður það að sitja fyrir. Því er þetta búið að vera allt öðruvísi námsferli hjá mér heldur en hjá fólki sem fer í nám yfirleitt. Þetta hefur tekið langan tíma og hefur að mestu leyti verið gert í sumarfríum. Nú er ég búin að vera sex sumur úti, en sumarskólarnir eru starfræktir á tvöföldum hraða svo þetta var eins og versta síldarver- tíð. Ég óska engum þess að fara í gegnum svona nám. Þetta er mjög slítandi og hefur kostað blóð, svita og tár. Allt snýst um sönginn og fjölskylduna Við höfunt öll mikla skel, sérstaklega þau sem eru alin upp í litlu samfélagi þar sem einstaklingurinn á helst ekki að skara fram úr eða vera öðruvísi, allir eiga að vera eins. Undanfarin þrjú sumur hef ég verið undir handleiðslu söngkennara sem heitir Klara Barlow. Það eru ekki mörg ár síðan hún fór að kenna við háskólann en hún á sér mikla og dramatíska sögu, eins og svo margar konur sem ákveða að verða listakonur. Sumar hverjar hafa þurft að gefa börnin sín og skilja við manninn sinn til að sinna list sinni óháðar. Eftir miklar sviptingar komst Klara inn úr skelinni minni og þá gat ég fyrst farið að vinna sem söngvari. í sumar var ég ein úti og fékk afskaplega harða meðferð hjá henni. En það þýðir ekkert annað. Það verður að gefa sig allan í þetta ef ætlunin er að koma því til skila sem þarf að gera í söngnum. Söngurinn má ekki vera nein hálfvelgja og það þarf að túlka bæði gleði og sorg. Klara syngur enn þessi dramatísku óperuhlutverk sem hún var þekktust fyrir, en hún söng víða og var velþekkt þó að hún yrði ekki heimsfræg frekar en svo margir góðir söngvarar í dag. Hún kom mér líka í skilning um það að fertugur söngvari er alls ekki gamall söngvari. Það eru mjög mörg verkefni í söngbókmenntunum sem enginn á að syngja fyrr en viðkomandi hefur náð fertugsaldri. Nú snýst mitt líf um sönginn og fjölskyld- una og það er ekkert annað sem kemst að.“ Vildi frekar kaupa nótur - Varstu ekki útskrifuð með pompi og pragt, í svartri skikkju með ferkantaðan hatt? „Nei, elsku besta ég tímdi nú ekki að fara að leigja mér einhvern búning. Leigan kost- ar um 200 dollara og ég vildi frekar kaupa nótur fyrir peningana. Ég vildi líka komast heim sem fyrst, fór í síðasta prófið klukkan átta um morguninn og ,svo af stað heim sama dag. Próf skipta mig ekki svo miklu máli, þó að ég næði alveg fínasta prófi sem gaman er að hafa. Það sem skipti mig máli var að ég næði þeim árangri sem mér.fyndist vera viðunandi í söngnum. Ég hef lært tónlist frá því ég var sjö ára gömul en þá sendi faðir minn mig í píanó- nám. Allt þetta píanónám svo og tónmennta- kennaraprófið hjálpaði mér fyrst og fremst að ná þessari háskólagráðu. Söngnám er óendanlegt. Kennarinn minn segir mér að ég verði að syngja á sviði og læra nokkur óperuhlutverk til þess að ná þroska sem söngvari. Það er í óperunni sem maður gefur sig allan - verður sú persóna; sem maður syngur - þá rennur leiklist og sönglist saman í eitt.“ Hvers vegna ekki að prófa að fara á tónleika? „Munurinn á söng og hljóðfæraleik er fyrst og fremst sá að söngurinn hefur textann, „orðin“. Þess vegna nær söngur til allra og á að gera það. Fólk á ekki að þurfa að fara í skóla til að geta notið þess að hlusta á söng. Ég held að fólki líði betur ef það lætur eftir sér að fara á tónleika og njóta tónlistar. Þetta er mín skoðun en að sjálfsögðu eru ekki allir sama sinnis og ég. Það hafa allir gott af því að læra og ég vitna oft í sr. Friðrik A. Friðriksson. Við Magnús minn heimsóttum hann einu sinni þegar hann var orðinn háaldraður og löngu hættur prestsskap, en þá var hann að læra hebresku og sagðist alltaf vera að læra eitthvað nýtt því það kæmi í veg fyrir hrörn- un heilans. Ég hef alltaf tekið mark á svona mönnum sem líta virkilega til stjarnanna, þeir hugsa hátt og vita að nafli heimsins er ekki eingöngu hér á Húsavík." - Veistu hvar hann er? „Nei, ég veit það ekki, sjálfsagt þar sem hlutirnir eru að gerast, í eldhúsinu, á sjónum, í frystihúsinu, í skólanum, á leik- sviðinu, svo eitthvað sé nefnt.“ - Hvernig fannst þér að koma heim í sumar og mæta öllum þeim væntingum sem fjölskylda gerir til konunnar, þegar þú varst búið að ná þessum áfanga og árangri ( söngnum? „Þegar söngkonan kom heim dreif fjöL skyldan hana í útilegu austur á land. En ég hef ekki orðið vör við neinar væntingar Húsvíkinga í þá átt að þá langi til að hlusta á mig syngja, a.m.k. hafa þeir lítið beðið mig um það. Ég hef lítið sungið síðan ég kom heim í sumar.“ Megum ekki jarðbinda okkur „Ég er og verð afskaplega mikill Húsvíking- ur. Nú fer ég á hverjum miðvikudagsmorgni með alveg frábærum bílstjóra til Akureyrar, af því ég keyri ekki sjálf en legg líf mitt í hendur bílstjóranna sem ég veit að koma mér á áfangastað. Ég kem heim síðdegis á föstudögum og á leiðinni til Húsavíkur Hólmfríður í Húsavíkurkirkju, en þar ætlar hún að syngja á tónlcikum eftir áramótin. Mynd: IM

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.