Dagur - 15.12.1990, Page 15
Laugardagur 15. desember 1990 - DAGUR - 15
-i
af erlendum vetfvangi
Nýju varðhundarnir geta
hringt til lögreglunnar
vjuiþjom.
hlýleg jólagjöf
Tölvuvædd viðvörunarkerfí munu í framtíðinni
fæla innbrotsþjófa frá með því að gelta eins og óðir
hundar af slátrarakyni. Reyni þjófarnir eigi að síð-
ur að brjótast inn, hringir kerfíð til lögreglunnar,
öryggisþjónustunnar, nágrannans eða á vinnustað
húseigandans.
Tölvutæknin er að valda byltingu
í gerð þjófavarnarkerfa og örygg-
isbúnaðar í heimahúsum. Til
þessa hafa góð viðvörunarkerfi
verið svo dýr, að það hefur að-
eins verið á færi stórra fyrirtækja
að kaua þau, fyrirtækja, sem haft
hafa efni á að verja miklu fé til
öryggisráðstafana. En nú hefur
rafeindatæknin gert góð þjófa-
varnarkerfi svo ódýr, að það er
orðið á færi einstaklinga að
kaupa þau. Afleiðingin er sú, að
það verður miklu auðveldara að
tryggja sig fyrir innbrotum jafnt í
heimahúsum sem á vinnustað eða
í sumardvalarhúsum.
Eldri viðvörunarkerfi voru
yfirleitt þannig gerð, að komið
var fyrir rafleiðslum með snerti-
rofum við allar þær dyr og
glugga, sem hugsanlegt var að
innbrotsþjófur reyndi við. Um
leið og samband rofnaði á ein-
hverjum rofanum fór kerfið að
klingja - en til að komast að því
um hvaða rofa væri að ræða,
þurfti oftast að leita um alla
bygginguna.
Pannig verður þetta ekki í
framtíðinni. Nýjustu tölvutengdu
þjófavarnarkerfin gera þegar í
stað grein fyrir því hvaða dyr
hafa verið brotnar upp eða hvaða
gluggi. Auk þess er hægt að for-
rita kerfið þannig, að það hringi
sjálfkrafa til lögreglunnar, ná-
grannans eða í hvaða annað
símanúmer sem vera skal. Þegar
einhver svarar, heyrist vélræn
rödd kerfisins og hún skýrir frá
því að innbrot hafi verið framið
og hvar.
Þjófavarnarkerfí
með margskonar búnaði
Nýjustu viðvörunarkerfi er einn-
ig hægt að gera þannig úr garði,
að þau geti gert viðvart um að
eldsvoði sé í uppsiglingu. Þau
geta þá hringt til slökkviliðsins,
strax á eftir til lögreglunnar og
síðan á læknavaktina, allt á mjög
skömmum tíma. Verði slys í
heimahúsi eða á vinnustað, getur
kerfið hringt á sjúkrabíl án þess
að þurfi að eyða tíma í að leita
uppi rétta símanúmerið. Þá er
hægt að stilla kerfið þannig, að
það vari við t.d. vinnueftirlitið, ef
ástæða er til.
Margir innbrotsþjófar eru svo
harðsoðnir að þeir láta það ekki á
sig fá, þótt þeir heyri gaul eða
hringingu þjófabjöllu. Þeir vita
að það líða nokkrar mínútur
áður en lögreglan er komin á
vettvang og annað fólk aðhefst
sjaldnast nokkuð þó að þjófa-
bjalla heyrist klingja.
En eitt er það sem allir inn-
brotsþjófar óttast, og það eru
varðhundar. Þess vegna eru nú
framleidd vióvörunarkerfi, sem
gelta eins og óðir slaktarar, ef til-
raun er gerð til innbrots. Kerfið
getur líka numið hreyfingar loft-
strauma og breytingar á þeim í
því húsnæði sem vaktað er.
Eitt hið allra fullkomnasta
þjófavarnarkerfi, sem nú fæst í
Bandaríkjunum, er með inn-
rauða skynjara, sem hiti verkar
á. Kerfið skiptir því húsnæði sem
vaktað er upp í ákveðin svæði og
sýnir því aðeins viðbrögð, að
hita.uppspretta færist úr einu
svæði yfir í annað. Þannig gerist
t.d. ekkert þó að hitastillir á upp-
hituninni bili.
Tækið tekur einnig tillit til
stærðar varmauppsprettunnar og
með hve miklum hraða hún fer.
Því getur köttur eða hamstur
hlaupið um án þess að nokkuð
gerist, en sé maður á ferð lætur
tækið samstundis vita.
Tölvugelt hræðir þjófínn
Tækið getur ennfremur gelt eins
og óður hundur. Hljóðin koma
ekki frá segulbandi. Vegna
endurtekninga á því væri hætta á
að upp kæmist hvers kyns væri.
Röddin hefur verið tekin upp á
vélamál og tölva sendir það frá
sér í gegnum hátalara. Afleiðing-
in er sú, að geltið getur haldið
áfram í það óendanlega og inn-
brotsþjófar geta með engu móti
Umgengni við gæludýr
vinnur gegn hjartasjúkdómum
Fólk sem umgengst gæludýr fær
síður blóðtappa en aðrir. Og sé
blóðtappamyndun þegar til
staðar, eru líkurnar til að lifa af
meiri hjá gæludýraeigendum.
Prófessor James Lynch við
háskólann í Maryland í Banda-
ríkjunum hefur sett fram athygl-
isverða kenningu varðandi þetta.
Of hár blóðþrýstingur eykur
hættuna á blóðtappamyndun,
segir Lynch. Blóðþrýstingurinn
vex, þegar mönnum finnst þeir
lítils háttar og utanveltu, t.d. ef
mönnum finnst allir aðrir dugleg-
ir og þýðingarmeiri en þeir
sjálfir. Aftur á móti lækkar blóð-
þrýstingurinn, ef mönnum finnst
þeir hafa miklu hlutverki að
gegna.
Fólk sem umgengst dýr finnur
venjulega að hann eða hún hefur
einhverja þýðingu fyrir aðra lif-
Nú hefur sannast, að það er hollt að
eiga húsdýr. Eigi menn húsdýr, sem
þeim þykir vænt um, eiga þeir síður
á hættu að fá hjartaáfall.
andi veru. Það hefur það á til-
finningunni, að fjórfættum eða
tvívængjuðum vini þykir vænt um
það. í návist dýranna þarf enga
uppgerð eða látalæti og í félags-
skap þeirra verður auðveldara að
slaka á en í umgengni við annað
fólk. (Fakta 2/90. -Þ.J.)
í framtíðinni geta innbrotsþjófar
ekki verið vissir um hvort það er
ekta hundur sem geltir innan dyra
eða hvort það er varðhundur í tölvu-
líki. Hvort tveggja er jafn bölvað:
Ekta hundur bítur, hinn hringir til
lögreglunnar.
gert sér grein fyrir hvort það er
raunverulegur hundur eða vél-
rænn, sem heyrist til að hurðar-
baki.
Enn sem komið er eru það
einkum amerísk fyrirtæki sem
nota sér þessa tækni. Ástæðan er
sú, að þar er tíðni innbrota í sum-
ar tegundir fyrirtækja margföld á
við það, sem annars staðar
þekkist. Samkvæmt skýrslum
FBI getur fjórði hver Banda-
ríkjamaður átt von á því að verða
rændur á næstu tíu árum.
Útsmognir innbrotsþjófar geta
auðveldlega opnað flestar gerðir
læsinga, og atvinnuþjófar gætu
kannað nokkur hundruð íbúða á
viku til að meta það, hvar borgi
sig að brjótast inn. Þar sem svona
er ástatt, er ekki lögð höfuð-
áhersla á að ná 100 prósent
öryggi gegn innbrotum. En
öryggisþjónustufyrirtækin leggj a
þess í stað áherslu á að selja
útbúnað sem gerir heimili við-
skiptavinarins ekki eins fýsilegt
atlögu fyrir þjófinn og hann kjósi
þá fremur að brjótast annars
staðar inn.
Síðar meir kemur vafalaust að
því, að almennir húseigendur
geta fest kaup á öryggisbúnaði
sem athugar fingraför eða
raddbeitingu áður en hægt er að
opna - tækni, sem til þessa hefur
aðeins verið notuð af bönkum og
öðrum peningastofnunum.
Þá fer að verða erfitt að vera
innbrotsþjófur - nema þá að þeir
taki að þróa hátæknibúnað til
innbrota. Fullkomið öryggi gegn
innbrotum næst aldrei.
(Björn A. Johnsen í Fakta 2/90. - Þ.J.)
UMfv&m
SÆNSK
GÆÐANÆRFÖT
FYRIR ■ ALLA- FJÖLSKYLDUNA
« Stinga ekki
jllr fínustu merinóuli
jMjög slitsterk
* Má þvo viö' 60°C
111EYFJORÐ
WWW Hjalteyrargötu 4 Simi 22275
tíl
í kvöld 15. desember
★
Opið til kl. 21.00
mánudaginn 17. desember
HAGKAUP
Akureyri
HJÓLBARÐAR
Erum með mikið úrval
af dekkjum fyrir allar
gerðir ökutækja.
Veitum alhliða hjól-
barðaþjónustu.
0<?>
***&#$&
RAC.
GEYMAR
Mælum gamia
rafgeyma.
Seljum
nýja
rafgeyma
ísetning
staðnum