Dagur - 15.12.1990, Page 19
Laugardagur 15. desember 1990 - DAGUR - 19
daaskrá fiölmiðla
Á dagskrá Sjónvarpsins, laugardaginn 15. des. kl. 21.35 er þátturinn „Fólkiö í landinu". Útvarpsmaöurinn Jón
Björgvinsson ræöir við Ijósmyndarann og (slandsvininn Max Schmidt um fag hans og feril. Samver annaðist
dagskrárgerð.
bœkur
Eva Luna
segir firá
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Eva Luna segir frá
eftir skáldkonuna Isabel
Allende.
í bókinni eru 23 smásögur um
jafnmörg tilbrigði ástarinnar.
Hér segir af skuggalegum stiga-
mönnum og háttprúðum hefð-
armeyjum sem elskast með ærsl-
um og glæframönnum sem stíga í
vænginn við annálaðar sómakon-
ur; tinandi gamalmenni hefja upp
langþráð bónorð, mæðgur keppa
um hylli farandsöngvara, draum-
ar rætast og skýjaborgir hrynja.
Isabel Allende er íslenskum
lesendum að góðu kunn fyrir
skáldsögur sínar Hús andanna,
Ast og skuggar og Eva Luna, en
Eva Luna segir frá er nýjasta bók
hennar, kom út á frummálinu
fyrr á þessu ári og er íslenska
útgáfan meðal þeirra fyrstu í Evr-
ópu.
Tómas R. Einarsson þýddi
bókina úr spænsku.
Eva Luna segir frá er 218 bls.
að stærð.
Minningar úr
Mýrdal
Eyjólfur Guðmundsson bóndi og
rithöfundur á Hvoli í Mýrdal
(1870-1954) varð þjóðkunnur
maður er bók hans Afi og amma
kom út 1941. Á eftir fylgdu minn-
ingabækurnar Pabbi og mamma,
Vökunætur og eigin ævisaga,
Lengi man til lítilla stunda. Hin
nýja bók, Minningar úr Mýrdal,
tekur upp þráðinn þar sem henni
sleppir.
Éað er Þórður Tómasson safn-
vörður í Skógum sem býr verkið
til prentunar. Bókin hefst þar
sem ungur kennari kemur til
starfs í æskubyggð 1893 og er
brátt einnig önnum kafinn í
félagsmálum, langferðum,
verslun, bústörfum, fjölþættu lífi
líðandi stunda.
„Hér er lýst sveit sem er að
vakna af svefni til nýrrar aldar og
framfara, sagt er frá eftirminni-
legu fólki og margvíslegum
örlögum. Frásögnin einkennist af
notalegri glettni, mannlegri hlýju
og glöggri yfirsýn atburða. Þetta
er hluti af þjóðarsögu, hugþekk
og eftirminnileg heimild," segir
m.a. í frétt frá útgáfunni.
mm---------------------
Ég vildi ganga
í buxum
Iðunn hefur gefið út skáldsöguna
Eg vildi ganga í buxum eftir Lara
Cardella. Bók þessi kom út á
Ítalíu í fyrra og varð þar tilefni
heitra deilna. Hún hefur síðan
orðið metsölubók í fjölmörgum
löndum og hvarvetna kveikt um-
ræður um hlutskipti kvenna og þá
þagnarmúra sem rísa um mál sem
koma við kviku.
Hér er á ferðinni nærfærin og
einlæg lýsing á uppvexti og
þroska Annettu, stúlkunnar sem
vill afneita hefðbundnu hlutverki
konunnar og ganga í buxum. En
það gera engir í samfélagi sveita-
þorpsins nema karlmenn og
dræsur, og fálmkennd uppreisn
Annettu verður skammlíf og
afleiðingarnar átakanlegar.
Nanna Rögnvaldsóttir þýddi
bókina.
Bubbi
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Bubbi eftir Silju
Aðalsteinsdóttur og Ásbjörn
Morthens.
Bubbi Morthens fór fyrst af
alvöru að láta að sér Jcveða í
íslensku tónlistarlífi fyrir 10
árum, og vakti þá dæmafáa
athygli. Margir töldu að þar hefði
verið brotið í blað í íslenskri
dægurtónlist. Vinsældir hans hafa
ekki dvínað síðan. Bókin varpar
ljósi bæði á feril Bubba og merki-
legan þátt í íslensku menningar-
lífi. I henni segir Bubbi frá
bernsku sinni og uppvexti, mis-
heppnaðri skólagöngu og litrík-
um tíma sem farandverkamaður,
frá árunum í rokkinu en líka frá
freistingum dópsins, sorginni og
ástinni.
í bókinni, sem er 286 bls., eru
á annað hundrað ljósmyndir,
fjöldi texta er birtur, og sömu-
leiðis er þar að finna ítarlega
plötu- og lagaskrá.
Undan
illgresinu
IÐUNN hefur gefið út nýja bók
eftir Guðrúnu Helgadóttur. Und-
an illgresinu nefnist hún og er
hörkuspennandi og leyndar-
dómsfull bók fyrir börn og ungl-
inga. Guðrún Helgadóttir segir
hér sögu sveipaða mögnuðum
dularblæ af nærfærni, hlýju og
hárfínni kímni.
í kynningu útgefanda á efni
bókarinnar segir: „Enginn gat
vitað yfir hvaða leyndarmáli
gamla gráa húsið bak við stóru
gömlu trjákrónurnar bjó. Marta
María hafði ekki átt heima lengi í
þessu dulúðuga húsi þegar for-
vitni hennar vaknaði. Skrýtnu
íbúarnir á efri hæðinni valda
henni heilabrotum og ýmsir
furðulegir hlutir eiga sér stað.
Það er heldur ekki einleikið hvað
hana svimar oft í kollinum. Hvað
er á seyði? Enginn segir neitt,
enginn veit neitt fyrr en einn góð-
an veðurdag þegar minnst
varir...“
Norðanpiltar
á Uppanum
Kvöldin 16da, 17da, 18da, og
19da desember munu Norðan-
piltar leika á efri hæð Uppans.
Hljómsveitina skipa að þessu
sinni Guðbrandur Siglaugsson,
Guðmundur Stefánsson, Jón
Laxdal Halldórsson og Kristján
Pétur Sigurðsson. Leikur þeirra
pilta hefst laust fyrir klukkan
ellefu og verður efnisskráin
blanda af notuðu og glænýju efni.
Sjónvarpið
Laugardagur 15. desember
14.30 íþróttaþátturinn.
14.30 Úr einu í annað.
14.55 Enska knattspyrnan.
Bein útsending frá leik Manchester City
og Tottenham Hotspur.
16.45 RAC-rallið.
17.05 HM í dansi í Köln.
17.40 Úrslit dagsins.
17.50 Jóladagatal Sjónvarpsins (15).
Söngelski jólasveinninn.
18.00 Alfreð önd (9).
18.25 Kisuleikhúsið (9).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Poppkorn.
19.20 Háskaslóðir.
19.50 Jóladagatal Sjónvarpsins.
Fimmtándi þáttur endursýndur.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Líf í tuskunum (7).
Klukkan 7 í haust.
21.05 Fyrirmyndarfaðir (2).
(The Cosby Show.)
21.35 Fólkið í landinu.
Auga ljósmyndarans.
Jón Björgvinsson ræðir við Max Schmid,
ljósmyndara sem er með ísland á heilan-
um.
21.55 Ég veit af hverju fuglinn i búrinu
syngur.
(I Know Why the Caged Bird Sings.)
Bandarísk sjónvarpsmynd, byggð á sögu
eftir Mayu Angelou.
Myndin segir frá æskuárum blökkustúlku
í Suðurríkjum Bandaríkjanna og því mis-
rétti sem svertingjar eru beittir.
Aðalhlutverk: Diahann Carroll, Esther
Rolle og Ruby Dee.
23.30 Perry Mason - Feiga frúin.
(The Murdered Madam.)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1988.
Kona er myrt á heimili sínu. Eiginmaður
hennar er sakaður um að hafa banað
henni en ekki er allt sem sýnist. Lögfræð-
ingurinn Perry Mason skerst í leikinn og
leysir málið af sinni alkunnu snilld.
01.15 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 16. desember
13.40 Meistaragolf.
14.40 Ég er einn heima.
í þættinum er fjallað um aðstæður 6 til 12
ára bama á íslandi og rætt við fólk sem
vinnur með börnum og hefur áhuga á vel-
ferð þeirra.
15.15 Póstþjónusta í 500 ár.
(Und ab geht die Post.)
Skemmti- og fræðsluþáttur frá þýska
sjónvarpinu, gerður til að minnast 500 ára
afmælis þýsku póstþjónustunnar.
Fjöldi skemmtikrafta kemur fram í
þættinum og sýndir em kaflar úr sögu
póstsins í fjómm löndum, þ.á m. á íslandi.
17.25 Sunnudagshugvekja.
17.40 Jóladagatal Sjónvarpsins (16).
- Nauðlendingin.
17.50 Stundin okkar.
18.20 Ég vil eignast bróður (1).
(Jeg vil ha dig.)
Mnd í þremur þáttum um litla stúlku sem
langar að eignast stóran bróður en það
reynist ekki eins auðvelt og hún hafði
gert ráð fyrir.
18.45 Táknmálstréttir.
18.50 Dularfulli skiptineminn (2).
(Alfonzo Bonzo.)
19.15 Fagri-Blakkur (6).
(The New Adventures of Black Beauty.)
19.45 Jóladagatal Sjónvarpsins (16).
20.00 Fréttir, veður og Kastljós.
20.55 Ófriður og örlög (10).
(War and Remembrance.)
21.45 í 60 ár.
Ríkisútvarpið í nútíð og framtíð.
22.00 Hundurinn sem hló.
(Hunden som log.)
Myndin segir frá Jójó, vinum hans og
hundinum King, sem veikist og bíður
dauða síns.
Félagamir ákveða að gleðja hann áður en
hann deyr.
22.55 Súm-hópurinn.
Þáttur um Súmarana og hlut þeirra i
íslenskri myndlist.
23.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 17. desember
17.40 Jóladagatal Sjónvarpsins.
17. þáttur: Eldsneytislaus á elleftu
stundu.
Jólin nálgast og Hafliði og Stina em
komin aftur á byrjunarreitinn. Hvað er
til ráða þegar flugsjampóið er búið?
17.50 Töfraglugginn (7).
18.45 Táknmálsfréttir.
18.50 Fjölskyldulíf (5).
(Families.)
19.15 Victoria (2).
19.50 Jóladagatal Sjónvarpsins.
Sautjándi þáttur endursýndur.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Litróf.
í þættinum verður m.a. litið inn í safnað-
arheimili Akureyringa, rætt við Fanneyju
Haukdsdóttur arkitekt og Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur lag af nýútkomn-
um diski sínum.
21.25 íþróttahornið.
Fjallað um íþróttaviðburði helgarinnar og
sýndar svipmyndir úr knattspyrnuleikj-
um í Evrópu.
21.55 Boðoröin (3).
(Decalogue.)
Pólskur myndaflokkur frá 1989 eftir Krzy-
stoff Kieslowski, einn fremsta leikstjóra
Pólverja.
Aðalhlutverk: Daniel Olbrychski og Maria
Pakulnis.
23.00 Ellefufréttir.
23.10 Þingsjá.
23.25 í 60 ár.
Upphaf útvarps á íslandi.
00.05 Dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 15. desember
09.00 Med Afa.
10.30 Biblíusögur.
10.55 Saga jólasveinsins.
11.15 Herra Maggú.
11.30 Tinna.
12.00 í dýraleit.
(Search for the Worlds Most Secret
Animals.)
12.30 Loforð um kraftaverk.
(Promised A Miracle.)
Átakanleg mynd byggð á sönnum
atburðum.
Ung hjón eiga sykursjúkan son. Predikari
nokkur sannfærir hjónin um að Guð hafi
læknað drenginn og að hann gangi heill
til skógar. Foreldrar hans hætta allri lyfja-
gjöf, en án lyfja getur drengurinn ekki lif-
að lengi.
Aðalhlutverk: Judge Reinhold og Ros-
anna Arquette.
14.10 Eðaltónar.
14.50 Svona er Elvis.
(This is Elvis.)
Athyglisverð mynd byggð á ævi rokkkon-
ungsins sem sló í gegn á sjötta áratugn-
um.
Aðalhlutverk: David Scott, Paul Boensch
m, og Johnny Harra.
16.30 Todmobil á Púlsinum.
17.00 Falcon Crest.
18.00 Popp og kók.
18.30 A la Carte.
19.19 19.19.
20.00 Morðgáta.
21.00 Fyndnar fjölskyldumyndir.
(America’s Funniest Home Videos.)
21.40 Tvídrangar.
(Twin Peaks.)
22.35 Banvæna linsan.#
(Wrong is Right.)
Það er Sean Connery sem fer með hlut-
verk sjónvarpsfréttamanns sem ferðast
um heimsbyggðina á hælum hryðjuverka-
manns með kjamorkusprengju til sölu í
þessari gamansömu spennumynd.
Aðalhlutverk: Sean Connery, George
Grizzard, Robert Conrad og Katharine
Ross.
Bönnuð bömum.
00.35 Ofsinn við bvítu línuna.#
(White Line Fever.)
Leikarinn Jan-Michael Vincent fer hér
með hlutverk ungs uppgjafa flugmanns
sem hyggst vinna fyrir sér sem tmkkari.
Aðalhlutverk: Jan-Michael Vincent, Kay
Lenz, Slim Pickens og Don Porter.
Stranglega bönnuð börnum.
02.00 Von og vegsemd.
(Hope and Glory.)
Falleg mynd um ungan dreng sem upplif-
ir striðið á annan hátt en gengur og
gerist.
Aðalhlutverk: Sarah Miles, David Haym-
an, Derrick O’Connor og Sammi Davis.
03.50 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 16. desember
09.00 Geimálfamir.
09.25 Naggarnir.
09.50 Sannir draugabanar.
10.15 Lítið jólaævintýri.
10.20 Mímisbrunnur.
(Tell Me Why).
10.50 Saga jólasveinsins.
11.10 í frændgarði.
(The Boy in the Bush.)
Jack er átján ára gamall þegar hann er
rekinn úr skóla fyrir prakkarastrik og
sendur á ástralskan bóndabæ. Við fylgj-
umst með Jack komast til manns og
reyna að ávinna sér sess i samfélaginu.
12.00 Popp og kók.
12.30 Lögmál Murphy's.
13.25 ítalski boltinn.
Bein útsending.
15.15 NBA karfan.
16.30 Laumufarþegi til tunglsins.
(Stowaway to the Moon.)
Myndin segir frá ellefu ára strák sem
laumar sér inn í geimfar sem er á leiðinni
til tunglsins.
Aðalhlutverk: Lloyd Bridges, Michael
Link, Jeremy Slade og John Carradine.
18.00 Leikur að ljósi.
(Six Kinds of Light.)
18.30 Viðskipti í Evrópu.
(Financial Tiraes Business Weekly).
19.19 19.19.
20.00 Bernskubrek.
(Wonder Years.)
20.40 Lagakrókar.
(L.A. Law).
21.40 Inn við beinið.
22.30 Barátta.#
(Fighting Back.)
Myndin lýsir einstöku sambandi kennara
og vandræðaunglingsins Tom, sem getur
hvoiki lesið né skrifað og er þekktur smá-
afbrotamaður.
Aðalhlutverk: Paul Smith og Lewis Fitz-
Gerald.
00.10 Frægð og frami.
(W.W. and the Dixie Dancekings.)
Burt Reynolds er hér í hlutverki smá-
krimma sem tekur við stjórn sveitatón-
listarmanna sem ferðast um Suðurriki
Bandarikjanna.
Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Ned Beatty
og Conny van Dyke.
01.40 Dagskrárlok.
Stöð 2
Mánudagur 17. desember
16.45 Nágrannar.
(Neighbours.)
17.30 Saga jólasveinsins.
17.55 Depill.
18.00 Lítið jólaævintýri.
18.05 í dýraleit.
18.30 Kjallarinn.
19.19 19.19.
20.15 Dallas.
21.15 Sjónaukinn.
21.55 Á dagskrá.
22.15 Öryggisþjónustan.
(Saracen.)
23.10 Tony Campise og félagar.
Seinni hluti jassþáttar þar sem Tony
Campise, ásamt þeim Bill Ginn, Evan
Arredondo og Al’BuffMannion, leikur af
fingrum fram.
23.45 Fjalakötturinn.
Alexander Nevski.#
Aðalhlutverk: Nikolai Cherkasov, Nikolai
Okhlopkov, Alexander Abrikosov og
Dmitri Orlov.
01.30 Dagskrárlok.