Dagur - 15.12.1990, Síða 24
Fyrirætlanir um byggingu íþróttahúss KA:
Stærð hússins um 2200 fermetrar
og kostnaður um 140-150 millj. kr.
- málið komið til bæjarráðs til umíjöllunar og afgreiðslu
Fyrirætlanir um byggingu
íþróttahúss á félagssvæði KA á
Akureyri hafa nú í vikunni ver-
ið kynntar íþrótta- og tóm-
stundaráði Akureyrarbæjar
svo og bæjarráði sem hefur
málið til umfjöllunar. Teikn-
ingar af þessu húsi eru nú
fyrirliggjandi og samkvæmt
þeim verður húsið um 2200
fermetrar að stærð. Að sögn
formanns KA gæti kostnaður
við íþróttahúsið orðið um 140-
150 milljónir króna.
Sigmundur Pórisson, formaður
KA, segir að ýmis minni háttar
atriði eigi eftir að yfirfara varð-
andi teikningar af húsinu en
stærðum þess verði ekki breytt frá
því sem nú er.
Drög að rammasamningi milli
Akureyrarbæjar og KA um þessa
framkvæmd hafa legið fyrir síðan
í vor en viðræður hafa á undan-
förnum mánuðum staðið milli
fulltrúa KA og skipaðra fulltrúa
bæjarráðs. Eins og fyrr segir er
málið nú komið til bæjarráðs til
umfjöllunar og afgreiðslu.
„Við áætlum að framkvæmdir
við þetta hús geti hafist með vor-
inu en þess ber að gæta að nú á
málið eftir að hljóta afgreiðslu hjá
Akureyrarbæ og síðan að fá
afgreiðslu hjá aðalstjórn KA. En
gangi þetta allt eftir ráðgerum við
að byrja í vor og að húsið komist
í notkun 1992 eða 1993. Það eru
okkar óskir,“ sagði Sigmundur.
Samkvæmt drögum að ramma-
samningi milli félagsins og bæjar-
Tiu umsóknir bárust um stöou
sveitarstjóra í Raufarhafnar-
hreppi. Að sögn Sigurbjargar
Jónsdóttur, núverandi sveitar-
stjóra, óskaði meirihluti um-
ins greiðir bærinn 75% af bygg-
ingarkostnaði hússins. Þennan
hluta skal bærinn greiða á næstu
fimrn árum en engin ákvæði eru
um hvernig þessum greiðslum
skal skipt milli ára.
Sigmundur sagðist vonast til að
málið sé nú komið langleiðina.
„Ég er bjartsýnn á að málið fái
afgreiðslu á næstu dögum af bæj-
arins hálfu þannig að hægt verði
að fjalla um það endanlega hjá fé-
laginu," sagði Sigmundur. JÓH
sækjenda nafnleyndar og vildi
hún því ekki gefa upp nöfn
hinna.
„Þetta eru jafnvel fleiri
umsóknir en við reiknuðum með,
Raufarhöfn:
Tíu umsóknir um
stöðu sveitarstjóra
Múlagöngin væntanlega opnuð fyrir umferð á morgun:
Loksins komið á tryggu vegasambandi
milli Ólafsíjarðar og Evjafjarðar
- formleg vígsla snemma á næsta ári
AUar líkur eru á því aö jarð-
göngin um Ólafsfjarðarmúla
verði opnuð fyrir umferð á
morgun, sunnudaginn 16. des-
ember. Morgundagurinn verð-
ur því að öllum líkindum
skráður með stóru letri í sam-
göngusögu Ólafsfjarðar.
Þegar Dagur fór í prentun í
gær var ekki ákveðið með tíma-
setningu á opnun ganganna. Þá
var ekki alveg ljóst hvort Stein-
grímur J. Sigfússon, samgöngu-
ráðherra, myndi verða viðstadd-
ur opnun ganganna, en góðar lík-
9 dagar
ur voru á að hann kæmi norður.
Formleg vígsla ganganna verður
snemma á næsta ári.
Lokafrágangur ganganna hefur
gengið mjög vel. Síðustu daga
hafa menn frá Rafiðn á Akureyri
unnið af kappi við að setja upp
lýsingu í göngin. Því verki var að
mestu lokið í gær. Þá hafa starfs-
menn Vegagerðinnar unnið að
því að setja upp glitskilti beggja
vegna í göngunum og verður því
verki lokið fyrir opnunina á
morgun.
Þóroddur Sveinsson, jarðrækt-
arfræðingur á Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins, hefur
verið ráðinn tilraunastjóri við
Tilraunastöðina á Möðruvöll-
um. Þóroddur tekur við starf-
inu um áramót af Jóhannesi
Sigvaldasyni.
Þóroddur er búfræðingur frá
Hvanneyri árið 1975. Hann lauk
bústjórnarprófi frá landbúnaðar-
tækniskólanum í Árósum í Dan-
mörku tveim árum síðar og
tækniprófi á jarðræktarsviði frá
Að þessum verkþáttum lokn-
um er fátt annað eftir en að setja
upp huröir fyrir gangamunnana,
sem verður gert í byrjun janúar,
og leggja síðara slitlagið á gólf
ganganna. Beðið verður með það
til vorsins.
Sigurður Oddsson, umdæmis-
tæknifræðingur og Guðmundur
Svafarsson, umdæmisverkfræð-
ingur hjá Vegagerð ríkisins á
Akureyri voru í Múlagöngunum í
gær og yfirfóru verkið áður en
Vegagerðin tekur við göngunum
sama skóla árið 1979. Árið 1985
lauk Þóroddur síðan BS-prófi í
landbúnaðarvísindum frá ríkis-
háskólanum í Norður-Dakota í
Bandaríkjunum og MS-prófi í
jarðræktarfræðum frá sama skóla
árið 1987.
„Ég tel þetta vera mjög spenn-
andi verkefni og hlakka til að
takast á við það,“ sagði Þóroddur
í samtali við Dag.
Þóroddur sagði að í stórum
dráttum fælist starf tilraunastjóra
í því að hafa yfirumsjón með til-
úr hendi verktakafyrirtækisins
Krafttaks sf.
Sigurður sagði í samtali við
Dag að menn væru auðvitað
mjög ánægðir með að þessum
stóra áfanga í samgöngumálum
væri náð. Tryggvi Jónsson, stað-
arstjóri Krafttaks sf., tók undir
það og sagði að menn væru kátir
yfir því að nú væri farið að sjást
fyrir endann á jarðgangagerð-
inni. „Við erum mjög fegnir að
komast í jólafrí," sagði Tryggvi.
óþh
raunum á Möðruvöllum og laða
að verkefni til stöðvarinnar og fá
menn í samvinnu um þau. Hann
sagði að Rannsóknastofnun land-
búnaðarins stefndi að því að efla
starfsemi Tilraunastöðvarinnar á
Möðruvöllum. Búið væri að
leggja niður tvær tilraunastöðvar
og hluti af starfsemi þeirra yrði
fluttur að Möðruvöllum. „Við
gerum ráð fyrir því að um áramót
verði auglýst staða fóðurfræðings
og Bjarni Guðleifsson hefur ver-
ið ráðinn í fullt starf við tilrauna-
stöðina,“ sagði Þóroddur. óþh
miðað við fjölda umsækjenda hjá
öðrum sveitarfélögum sem aug-
lýst hafa eftir sveitarstjóra á
árinu,“ sagði Sigurbjörg.
Hreppsnefnd mun nú fara yfir
umsóknirnar og ræða við um-
sækjendur en stefnt er að því að
ráða í stöðuna snemrna á næsta
ári. SS
Hofshreppur:
„Mætum nýju
árimeð
bjartsýiiT
- segir Jón sveitarstjóri
„Við niætum nýju ári með
bjartsýni og trúum ekki
öðru en einhverjir vilji taka
rekstur fiskvinnslunnar upp
á sína arnta þcgar frain líða
stundir,“ segir Jón Guð-
mundsson, sveitarstjóri
Hofshrepps.
Að sögn Jóns hefur sveitar-
félaginu gengiö vel aö greiða
niöur skuldir á þessu ári, en í
vor voru sveitirnar þrjár í
kringum Hofsós sameinaðar í
eina. Hann sagði að búið væri
að greiða skuldirnar niður um
sem nemur fjórum milljónum
meira en samningar gerðu ráð
fyrir.
„Skuldir sveitarfélagsins
lækka og atvinnuástand á
árinu hefur veriö þokkalegt
miðað við það sem stundum
hefur verið. Óvissan í sam-
bandi við fiskvinnsluna er
verst fyrir okkur, cn við trúum
ekki öðru cn einhver vilji taka
þann rekstur að sér þegar þar
að kemur," sagði Jón.
íbúum á Hofsósi hefur held-
ur fjölgað á þessu ári að sögn
Jóns og ástandið að því leyti til
gott. Næstkomandi sunnudag
veröur kveikt á jólatrénu við
barnaskólann að venju, en
það er úr Hólaskógi. SBG
Tilraunastöðin á Möðruvöllum í Hörgárdal:
Þóroddur Sveinsson hefur
verið ráðinn tilraunastjóri
- „tel þetta vera mjög spennandi verkefni,“ segir Póroddur