Dagur - 28.12.1990, Qupperneq 9
r'O'T' j-
AC - Cii »
r(i Föstudagur 28. desember 1990 - DAGUR - 9
ííí---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
íþróttaannáll ársins 1990 verð-
ur með svipuðu sniði og í fyrra.
Rennt verður yfir það helsta
sem gerðist í íþróttaheiminum
norðanlands á árinu og nokkrir
einstaklingar segja frá því sem
þeim er minnisstæðast. í stað
þess að fjalla um það helsta
sem gerðist í hverri grein verð-
ur litið á hvern mánuð fyrir sig.
JANÚAR
■ Prátt fyrir árstíma var ýmis-
legt að gerjast í knattspyrnu-
heiminum. Halldóri Áskelssyni
var boðið að fara og æfa með
belgíska 1. deildarliðinu Lokeren
og feðgarnir Sigurður Lárusson
og Lárus Orri Sigurðsson ákváðu
að skipta úr ÍA yfir í Þór. Heimir
Guðjónsson ákvað að skipta úr
KR yfir í KA, Gústaf Ómarsson
úr Leiftri í Breiðablik og Guð-
bjartur Magnason úr Prótti Nes-
kaupstað í Tindastól. Þá skipti
Henning Henningsson úr FH í
KS og Hörður Benónýsson ákvað
að leika með Leiftri en hann var
áður búinn ákveða að þjálfa 4.
deildarlið HSÞ-b. Leiftursmenn
misstu hins vegar Hafstein
Jakobsson sem ákvað að skipta í
KA. Loks var Viðar Sigurjóns-
son var endurráðinn þjálfari
HSÞ-b og Örnólfur Oddsson ráð-
inn þjálfari Einherja á Vopna-
firði.
■ Nýtt knattspyrnulið var stofn-
að á Sauðárkróki. Liðið hlaut
það þjóðlega nafn Þrymur og
ákvað að taka þátt í 4. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu. Þá
ákvað Narfi frá Hrísey að senda
lið í 4. deildina.
■ Konráð Þorsteinsson, úr
TBA, var valinn í unglingalands-
lið íslands í badminton. Hann fór
með liðinu til Austurríkis og
keppti þar á Evrópumóti ungl-
ingalandsliða í lok mánaðarins.
■ í mánuðinum bárust fréttir af
því að árið áður hefði verið eitt
besta ár í sögu sundsins á Akur-
eyri. Akureyrska sundfólkið
bætti 74 Akureyrarmet og 4 ungl-
ingamet á árinu.
■ Nýr skíðaþjálfari var ráðinn
til Ólafsfjarðar og var það sænsk
kona að nafni Viktoría
Westberg.
■ Misklíð kom upp í körfu-
knattleiksliði Tindastóls á Sauð-
árkróki. Ákveðið var að Bo
Heiden yrði sendur heim en hann
hafði verið óánægður með þá
ákvörðun að láta Kára Marísson
hætta með liðið.
■ Þorvaldur Örlygsson var kjör-
inn íþróttamaður Norðurlands af
lesendum Dags.
FEBRÚAR
■ KA-menn náðu góðum árangri
á Afmælismóti Júdósambands
íslands. Komu þeir heim með 6
verðlaun, 2 gull, 2 silfur og 2
brons.
■ Helgi Jónsson frá Akureyri
setti íslandsmet í bekkpressu á
íslandsmóti í greininni. Helgi
keppti í 52 kg flokki og lyfti 72 kg
sem var bæði unglinga- og full-
orðinsmet. Norðlendingar stóðu
sig einnig vel á Unglingameist-
aramóti Islands í kraftlyftingum
sem haldið var í Kópavogi. Þeir
unnu tvo flokka af fjórum og
hlutu silfurverðlaun í hinum
tveimur.
■ Þorvaldur Örlygsson skoraði
fyrsta mark sitt fyrir Nottingham
Forest í ensku 1. deildinni og
Eyjólfur Sverrisson kom inn á
sem varamaður í leik Stuttgart og
argentíska iandsliðsins skipuðu
21 árs leikmönnum og yngri.
Eyjólfur skoraði tvö mörk í 3:2
sigri Stuttgart.
■ KA vann annað punktamót
KSÍ í innanhússknattspyrnu. Lið-
ið lagði Fram 8:6 í úrslitaleik.
■ Stefán Arnarson knattspyrnu-
markvörður ákvað að skipta í
Tindastól úr KR, Hinrik Þór-
hallsson var ráðinn þjálfari 4.
deildarliðs UMSE-b og Erling
Aðalsteinsson skipti í Völsung.
Austri frá Raufarhöfn ákvað að
senda lið í 4. deild íslandsmótsins
í knattspyrnu og Völsungar frá
Húsavík ákváðu að vera með í 3.
deildinni en það hafði verið
óvíst.
■ Þrír blakmenn úr KA, Stefán
Jóhannesson, Stefán Magnússon
og Sigurður Arnar Ólafsson,
ákváðu að keppa með landsliðinu
á Smáþjóðaleikunum á Möltu en
þeir ætluðu ekki að gefa kost á
sér vegna mikils kostnaðar sem
því var samfara.
■ Gísli Sigurðsson, UMSS, sigr-
aði á íslandsmótinu í fimmtar-
þraut og bætti eigið íslandsmet
verulega. Þóra Einarsdóttir,
UMSE, sigraði í kvennaflokki á
sama móti.
■ Handknattleiksdómararnir
Guðmundur Lárusson og Guð-
mundur Stefánsson frá Akureyri
komust í sviðsljósið þegar þeir
dæmdu leik Vals og Gróttu á
alþjóðlegu móti í Garðabæ. Þor-
björn Jensson, þjálfari Vals, var
svo óánægður með dómgæsluna
að hann gekk af lcikvelli með lið
sitt og hlaut þriggja mánaða
leikbann fyrir vikið.
MARS
■ Fiinleikastúlkur frá Akureyri
náðu ágætum árangri á móti í
almennum fimleikum á Seltjarn-
arnesi. Stúlkurnar voru á aldrin-
■ UMSE vann 8 meistaratitla og
21 verðlaun alls á Meistaramóti
íslands í frjálsum íþróttum
innanhúss, 22 ára og yngri, sem
fram fór í Laugardalshöll.
■ Vetraríþróttahátíð var sett á
Akureyri. Veðurguðirnir voru í
aðalhlutverki á hátíðinni lengi
vel en hún þótti heppnast ákaf-
lega vel að öðru leyti.
■ KA eignaðist sína fyrstu
íslandsmeistara í karlaflokki í
júdó, þá Baldur Stefánsson og
Frey Gauta Sigmundsson. Þeir
voru jafnframt fyrstu Akureyr-
ingarnir til að verða íslandsmeist-
arar síðan Jón Hjaltason vann
það afrek árið 1979.
■ í Sjallanum á Akureyri fór
fram íslandsmót unglinga og B-
mót fullorðinna í vaxtarrækt.
Akureyringar unnu þrenn gull-
verðlaun á mótunum, Jóhann V.
Gunnarsson í -70 kg flokki ungl-
inga, Auður Hjaltadóttir í opn-
um flokki kvenna og Guðmundur
Marteinsson í +80 kg flokki
karla.
Óðinn Árnason og Guðmundur
Pétursson.
■ Norðlendingar áttu góðu
gengi að fagna á Unglingameist-
aramóti íslands á skíðum og áttu
þeir menn í efstu sætum í flestum
greinum. Þá höfðu Akureyringar
mikla yfirburði í flokkasvigi á
sama móti og unnu fjórfalt, eða í
öllum flokkum. Akureyringar
gerðu einnig góða hluti á skíða-
landsmótinu í Bláfjöllum. Valdi-
mar Valdemarsson og Guðrún
H. Kristjánsdóttir urðu íslands-
meistarar í stórsvigi og Haukur
Eiríksson í 30 km göngu og tví-
keppni. Einnig sigraði a-sveit
Akureyrar í boðgöngu karla.
Bikarkeppni SKI lauk með lands-
mótinu og urðu Valdemar og
Guðrún bikarmeistarar í alpa-
greinum og Haukur í skíða-
göngu. Þá áttu Akureyringar tvo
sigurvegara í yngri flokkum,
Hörpu Hauksdóttur í flokki 15-
16 ára stúlkna og Hildi Þorsteins-
dóttur í flokki 13-14 ára stúlkna.
■ Metþátttaka var á Andrésar
■ Þorvaldur Örlygsson var val-
inn íþróttamaður Akureyrar
1989 með miklum meirihluta
atkvæða.
■ Sveit Norðurlandskjördæmis
eystra vann glæsilegan sigur í
Skólakeppni FRÍ í frjálsum
íþróttum sem haldin var í
Reykjavík.
■ Völsungar urðu íslandsmeist-
arar í 3. deild handboltans er þeir
unnu stórsigur á Víkingi-b í
úrslitaleik, 34:24.
■ Freyr Gauti Sigmundsson
vann silfur- og bronsverðlaun á
Norðurlandamóti 21 árs og yngri
í júdó sem fram fór í Finnlandi.
Freyr Gauti vann brons í -78 kg
flokki og silfur í opnum flokki.
■ 9 Grenvíkingar voru valdir í
landslið í borðtennis.
■ Júdómenn úr KA náðu frá-
bærum árangri á íslandsmóti
drengja yngri en 15 ára í Grinda-
vík. Þeir unnu 11 titla af 17 en
Ármenningar komu næstir með 3
titla.
■ Akureyringar áttu þrjá efstu
menn í tveimur flokkum í
íslandsgöngunni. Haukur Eiríks-
son sigraði í flokki 17-34 ára og
Sigurður Aðalsteinsson í flokki
35-49 ára.
■ KA-menn urðu síðan meistar-
ar meistaranna í knattspyrnu
með 1:0 sigri á bikarmeisturum
Fram á gervigrasinu í Laugardal.
íslandsmótið í knattspyrnu hófst
í mánuðinum og byrjuðu bæði
Akureyrarliðin illa í 1. deildinni.
■ 150 keppendur frá 11 félögum
mættu til leiks á Hængsmótinu,
íþróttamóti fyrir fatlaða sem
Lionsklúbburinn Hængur sér um
framkvæmdina á. Mótið var jafn-
framt íslandsmót fatlaðra.
■ Erlingur Kristjánsson, KA,
var kjörinn besti varnarmaðurinn
Auður Hjaltadóttir stóð sig frábærlega í vaxtarræktinni og varð íslands-
nicistari í 52ja kg flokki.
Akureyrskt skíðafólk gerði það gott á árinu. Valdimar Vaidemarsson og
Guðrún H. Kristjánsdóttir urðu íslandsmeistarar í stórsvigi og bikarmeistar-
ar í alpagreinum. Valdimar var auk þess kjörinn skíðamaður ársins.
um 10-14 ára og komu þær heim
með 7 gullverðlaun.
■ Körfuknattleiksmaðurinn
James Lee hætti með Tindastól
eftir að hann meiddist.
■ Akureyringar unnu 4 gull og 1
brons á íslandsmótinu í kraftlyft-
ingum. Helgi Jónsson var í mikl-
um ham á mótinu og setti 7
íslandsmet, 5 fullorðinsmet og 2
unglingamet.
■ Völsungar tryggðu sér sigur í
b-riðli 3. deildar Islandsmótsins í
handknattleik og sæti í 2. deild
með því að bursta Fram-b 32:24 á
Húsavík.
■ Körfuknattleiksmaðurinn Eirík-
ur Sigurðsson úr Þór lagði skóna
á hilluna eftir aukaleik Þórs og
Víkverja um sæti í úrvalsdeild-
inni sem Þór vann með yfirburð-
um. Eiríkur lék 330 leiki fyrir Þór
á 20 ára ferli.
■ Þröstur Guðjónsson var
sæmdur Gullmerki íþróttasam-
bands fatlaðra.
APRIL
■ Tveir Akureyringar urðu
íslandsmeistarar í vaxtarrækt,
Auður Hjaltadóttir í -52 kg
flokki og Hanna Birna Sigur-
björnsdóttir í -57 kg flokki.
■ Guðrún H. Kristjánsdóttir sló
í gegn á alþjóðlegum skíðamót-
um í tengslum við Vetraríþrótta-
hátíðina. Hún vann þrjú mót
sem haldin voru sömu helgina.
■ Fjórir Akureyringar voru
sæmdir Gullmerki ÍSI í lokahófi
Vetraríþróttahátíðarinnar á
Akureyri, þeir Þröstur Guðjóns-
son, Ingólfur Ármannsson,
Helgi Jónsson var atkvæðamikill í lyftingunum og setti fjölmörg íslandsmet.
Andar leikunum í Hlíðarfjalli.
742 þátttakendur mættu til leiks
og er þetta stærsta skíðamót sem
haldið hefur verið á landinu.
Akureyringar og Siglfirðingar
hlutu langflest verðlaun á leikun-
um.
■ Þróttarar hótuðu að mæta
ekki til leiks í úrslitaleik Bikar-
keppninnar í blaki, milli KA og
Þróttar, ef hann yrði á Akureyri
eins og ákveðið hafði verið. Eftir
mikla rekistefnu var leikurinn
færður til Húsavíkur og unnu
Þróttarar öruggan sigur í þremur
hrinum. Skömmu áður höfðu
Þróttarar tryggt sér Islandsmeist-
aratitilinn.
■ Tryggvi Heimisson frá Akur-
eyri varð íslandsmeistari í
ólympískum lyftingum eftir
harða keppni við Bubba Mort-
hens í 75 kg flokki.
á lokahófi 1. deildarfélaganna í
handknattleik. Erlingur varsíðan
endurráðinn sem þjálfari hand-
knattleiksliðs KA.
■ Eyjólfur Sverrisson skoraði
fyrir Stuttgart í 4:0 sigri á
Núrnberg.
■ Tindastóll varð íslandsmeist-
ari í körfuknattleik stúlkna.
Úrslitakeppnin fór fram á Sauð-
árkróki.
■ Sturla Örlygsson var ráðinn
þjálfari úrvalsdeildarliðs Þórs í
körfuknattleik.
■ Helgi Jónsson krækti í brons-
verðlaun á Evrópumótinu í kraft-
lyftingum sem haldið var í Vals-
heimilinu. Hann keppti í -52 kg
flokki og lyfti samtals 317,5 kg.
■ Grenivíkurskóli var útnefndur
„besti borðtennisskóli landsins"
eftir að stúlkur úr skólanum unnu
báða stúlknaflokkana á Grunn-