Dagur - 28.12.1990, Blaðsíða 12

Dagur - 28.12.1990, Blaðsíða 12
rr- _ nnnftn _ noor lerlmaaoh RC i.inohntao'4 12 - DAGUR - Föstudagur 28. desember 1990 Rafvirkjar — Rafverktakar Próf í fagtæknilegum áföngum til löggildingar í rafvirkjun verður haldið í Tækniskóla íslands, mánudaginn 7. janúar 1991 kl. 13.00-14.30. Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um að þeir hafi lokið námskeiðunum eða sambærilegu námi. Rafmagnseftirlit ríkisins. VIÐ STYÐJUM FLUGELDASÖLU HJÁLPARSVEITAR SKÁTA AKUREYRI HAFTÆKN! HF. ÞJÓNUSTA VIÐ SIGLINGA- OG FISKILEITARTÆKI Furuvöllum 1 ■ 600 Akureyrl ■ Símar: 27222 & 985-27222 poppsíðan Þa áramot nalgast - Nokkrir valinkunnir einstaklingar tjá sig um tónlistaráriö 1990 og velja bestu plötur ársins Þegar áramót fara í hönd er það oft viðleitni manna að setja sig í stellingar og iíta yfir farinn veg á árinu sem er að líða. í því sam- bandi setja menn saman alls kyns annála um fréttir, erlendar og innlendar, íþróttir, menningar- viðburði o.fl. samanber frétta- myndaannála í sjónvarpinu og fréttaannál Dags. Poppsíðan vill ekki vera neinn eftirbátur í þess- um efnum en í stað þess að vera með einn allsherjar annál um poppviðburði ársins þá fékk umsjónarmaður nokkra valin- kunna einstaklinga til að tjá sig um hvernig þeim hafi líkað dæg- urtónlistin á árinu 1990 auk þess að velja 10 bestu plöturnar á árinu. Það er svo rétt að taka það fram að listarnir fimm auk lista Poppsíðunnar sem fær að fljóta með eru ekki nein vinsældakosn- ing og ber því ekki að taka þeim sem slíkum. Að lokum vil ég óska lesendum Poppsíðunnar gleðilegs nýs árs og þakka fyrir árið sem er að líða. þau hafa verið vanmetin og plat- an fengið mun minni spilun en hún á skilið." - Var eitthvað sérstakt sem kom þér á óvart eða olli þér von- brigðum? „Það kom mér á óvart hversu vel heppnaðar plöturnar með Pogues og Waterboys eru. Sér- staklega plata Pogues sem er stórt skref fram á við miðað við síðustu plötu sem var alls ekki nógu góð. Vonbrigði eru engin sérstök sem ég man eftir, nema kannski hvað varðar ýmislegt í íslenskri útgáfu. Mérfinnst menn ekki nógu gagnrýnir á sjálfa sig og því er hljóðritað allt of mikið af efni sem er ekki frambærilegt." - Voru einhver lög sem hrifu þig meir en önnur? „Já, t.d. af plötunum sem ég valdi get ég nefnt A man is in love með Waterboys, House of the Gods með Pogues og Bubba- lagið Blóðbönd og þá má líka nefna lagið hans Gary Moore, Still got the Blues, að ógleymdu lagi Risaeðlunnar, Hope.“ ið sem við sendum í Eurovision sem stenst kröfur." - Var eitthvað sérstakt sem kom þér á óvart á árinu og eitt- hvað sérstakt sem olli þér von- brigðum? „Eins og má greina af því sem ég sagði áðan þá olli nær öll íslenska útgáfan mér vonbrigð- um á árinu. Sérstaklega varð ég þó fyrir vonbrigðum með nýju plötu Ný danskrar, en með til- komu Jóns Ólafssonar og Stef- áns Hjörleifssonar í hljómsveit- ina hefur hún þróast á verri veg að minu mati. Það var margt sem olli mér vonbrigðum af erlendum plötum m.a. plata Steve Winwood sem ekkert nýtt hafði fram að færa, sömuleiðis var nýja plata Crosby, Stills og Nash slök og Bruce Hornsby nær ekki að uppfylla þær væntingar sem ég gerði til hans. Það var helst platan hans Dan Fogelberg sem kom þægi- lega á óvart en flest annað var eins og ég bjóst við.“ BRIDGE íslandsbankamót Mótið verður haldið sunnudaginn 30. desember og hefst kl. 10.00 f.h. Spilað verður í Alþýðuhúsinu við Skipagötu, 4. hæð. Spilaður verður tvímenningur með Mitchell-fyrir- komulagi og spilað um silfurstig. Þá er keppt um farandbikar auk bikara í 1., 2. og 3. sætið, sem íslandsbanki gefur. Auk þess verður fjöldi aukavinninga. Ókeypis kaffi meðan spilað er. Keppnisgjald er kr. 2.000.- á par. Skráning á staðnum. Allir velkomnir. ÍSLANSBANKI BRIDGEFÉLAG AKUREYRAR. Skemmtiklúbburinn Lif og fjor Jólatrésskemmtun fyrir börn verður í Bláhvammi, Skipagötu 14 laugardaginn 29. desember kl. 14.-17. ☆ ☆ ☆ Áramótafagnaður verður laugardaginn 29. desember kl. 22.00-03.00. Húsið opnað kl. 21.30. Hljómsveit Bigga Mar sér um fjörið. Mætum vel og kveðjum árið saman. Munið félagsskírteinin. Stjórnin. Kristján Sigurjónsson, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV „Hvað erlendar plötur varðar finnst mér þær hvorki betri né verri en undanfarin ár, mér finnst það vera sammerkt með síðustu tíu árum að engar byltingar hafa orðið. Maður finnur ekki svo mik- inn mun á plötum sem koma út í dag og plötum sem komu út 1985 samanborið við að það var gífurlegur munur á plötum sem komu út árið 1965 og sem komu út árið 1970. Tónlistarlega séð er þetta þvl jafnara og lítill munur á þótt tæknilega fari mönnum fram. íslenska tónlist dæmi ég að- eins út frá því sem hefur komist á fóninn hjá mér eða undir geisl- ann og ég hef haft löngun til að spila aftur, en þær þrjár sem eru á listanum falla einmitt undir það. Reyndar var það enn ein sem hefði getað komist inn á listann en það er platan með Manna- kornum en í heildina fannst mér hún ekki nógu góð þótt mjög góð lög séu á henni. Platan hennar Bjarkar og Tríós Guðmundar Ingólfssonar finnst mér mjög skemmtileg og mikil spilagleði sem einkennir hana. Platan hans Bubba er kannski ekki mjög frumleg en hún er mjög vel gerð og Bubba hefur farið mikið fram í textasmíði og finnst mér það stærsti kostur þessarar plötu. Lögin eru hvorki betri né verri en áður en eru þó mörg mjög góð. Platan með Islandica gladdi mig mjög því aö þetta er fyrsta þjóðlagaplatan sem gerð er af einhverjum metnaði síðan Þursa- flokkurinn var og hét. Mér finnst Sigfús Arnþórsson, afgreiðslumaður í Hijómdeild KEA og tónlistarmaður „Þegar litið er yfir árið má segja að það hafi verið þokkalegt ár tónlistarlega séð. Það var nærri því enginn sem gerði neitt sem kom virkilega á óvart nema Gary Moore og þótt þó nokkrar aðrar plötur hafi komið út þá var ekkert á þeim sem hreif mig sérstak- lega. Hvað íslenska tónlist varðar sérstaklega finnst mér vera fátt um fína drætti. Samkeppnin er svo hörð að menn eru hættir að þora að breyta út af því sem þeir hafa verið að gera áður af ótta við að tapa unnum vinsældum. Hér áður fyrr þótti það til minnkunar ef ný plata þótti lík því sem viðkomandi hafði gert áður og það talið merki um stöðnun. Nú er aðalsmerkið að sama for- múlan sé notuð aftur og aftur og þykir bara hið besta mál. Það eru einna helst Langi Seli og Skugg- arnir sem hafa hrifið mig, og þótt þeir hafi skorið sér nokkuð þröngan stakk þá líkar mér sá stakkur vel og platan þeirra, Rott- ur og kettir, er sú eina íslenska sem hefur hrifiö mig á árinu.“ - Voru einhver sérstök lög sem hrifu þig meir en önnur á árinu? „Still got the Blues með Gary Moore og endurgerð Traveling Wilburys á gamla slagaranum Nobody’s Child eru mér minnis- stæð af erlendum lögum ársins. Af íslenskum er Eitt lag enn nátt- úrlega lag ársins og er fyrsta lag- Guðrún Gunnarsdóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 2 „Árið 1990 hefur almennt verið ágætt, hið ágætasta tónlistarár. Mér finnst íslensku plöturnar hafa komið vel út á árinu, vera vandaðri en þær hafa oft verið áður, þótt ekki sé mikið um nýnæmi nema ef vera skyldi hjá Smekkleysuhljómsveitunum. En almennt finnst mér sem sagt íslensku plöturnar betri en oft áður og minna um drasl. Ekkert af erlendu útgáfunni fannst mér standa sérstaklega upp úr en platan hans Paul Simon kom mér þægilega á óvart því að ég hélt að hann gæti ekki komið með neitt eins gott og síð- asta platan hans Graceland reyndist vera, en mér finnst Rhythm of the Saints betri. Það kom líka á óvart hversu margir af erlendu tónlistarmönnunum eru undir áhrifum frá löndum Afríku og Suður-Ameríku í tónlist sinni á plötum ársins. Sú plata sem kom mér þó mest á óvart var platan hans Bob Dylan, Under the red sky, en til þessa hefur mér þótt Dylan leið- inlegur en þessi plata finnst mér mjög vel heppnuð. Hvað eftir- minnileg lög varðar þá sitja sér- staklega þrjú lög í mér, Nostra- damus með Ný danskri, Sonnett- an með Bubba og Baby með Bobby McFerrin."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.