Dagur - 28.12.1990, Blaðsíða 18

Dagur - 28.12.1990, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Föstudagur 28. desember 1990 íþróttir n Akureyrarmótið í handknattleik: Auðvelt hjá KA-mönnum Erlingur Kristjánsson og lærisveinar hans voru ekki í vandræðum með Þórs- ara. Seinni leikur liðanna fer fram í kvöld og hefst kl. 20.30. Mynd: Goiii KA vann næsta auðveldan sig- ur á Þór þegar liðin mættust í fyrri leik Akureyrarmótsins í handknattleik föstudaginn fyr- ir jól. KA-menn höfðu yfir- burði allan tímann og unnu 6 marka sigur, 27:21. Seinni leikur liðanna fer fram í kvöld og þurfa Þórsarar að leika mun betur þá ef þeir ætla að eiga einhverja von um sigur. Þórsarar áttu afleita byrjun í leiknum á föstudaginn og sáu reyndar aldrei til sólar allan fyrri hálfleikinn. KA-menn skoruðu 5 fyrstu mörkin og þurftu lítið að hafa fyrir hlutunum. Það segir sitt um sóknarleik Þórsara að' þegar 18 mínútur voru liðnar höfðu þeir skorað 2 mörk, bæði úr vítaköstum. KA-menn náðu 8 marka forystu, 10:2, áður en Þórsarar rönkuðu við sér og minnkuðu muninn í 5 mörk fyrir hlé, 13:8. í seinni hálfleik leystist leikur- inn upp í hálfgerða vitleysu en KA-menn héldu Þórsurum ætíð í öruggri fjarlægð og sigur þeirra var aldrei í hættu. Pétur Bjarnason var bestur KA-manna, einkum í fyrri hálf- leik en þá var hann ntjög frískur. Þá var Axel góður í markinu. Þórsarar léku sennilega sinn versta leik í vetur og var Jóhann Jóhannsson sá eini sem eitthvað sýndi. Mjólkursamlag KEA Akureyn Simi 96-21400 - sigruðu Þór 27:21 Mörk KA: Pétur Bjarnason 8, Guð- mundur Guðmundsson 6, Erlingur Kristjánsson 3, Jóhannes Bjarnason 3/1, Hans Guðmundsson 3/1, Jón Egill Gísla- son 2, Þorvaldur Þorvaldsson 1, Höskuldur Þórhállsson 1. Mörk Þörs: Jóhann Samúelsson 8/5, Jóhann Jóhannsson 6, Atli Rúnarsson 3. Rúnar Sigtryggsson 2, Páll Gíslason 1. Sævar Sigurðsson 1. Dóniarar: Guðmundur Lárusson og Arn- ar Kristinsson. JMJ-bikarinn til varðveislu í eitt ár og auk þess glæsilega verð- launapeninga sem gel'nir eru af Ragnari Sverrissyni kaupmánni í Herradeild JMJ. Búast má við skemmtilegri keppni og eru handknattleiks- unnendur hvattir til þess að mæta í Skemmuna og hvetja „sína" menn til dáða. Um kvöldið ætla handbolta- snillingarnir og fleiri að koma sam- an í Hamri og skemmta sér á dansleik með hljómsveitinni Hreinum sveinum. Dansleikur- inn hefst kl. 21.00 og eru allir Þórsarar og aörir velunnarar félagsins velkomnir. Veitingar verða seldar á staðnum en aðgangur er ókeypis. -KK JMJ-mótið í handbolta í Skemmuimi á morgun - Alfreð Gíslason og Þorbjörn Jensson mæta til leiks Hið árlega JMJ-mót í hand- bolta fer fram í íþróttaskemm- unni á Akureyri á morgun laugardag og hefst kl. 13.00. Fimm lið mæta til leiks að þessu sinni, fjögur frá Þór og eitt frá KA. Þarna eigast við bæði ungir og upprennandi handboltasnilling- ar, svo og eldri og reyndari leik- menn, sem margir hverjir mega muna sinn fífil fegri. Frá Þór taka þátt 2. flokkur, meistaraflokkur og tvo old boys lið en frá KA mætir old boys lið félagsins til leiks. Sem fyrr segir fer mótið fram í Skemmunni að þessu sinni en margir þchra sem taka þátt í mótinu nú, átcu einmitt sína allra bestu spretti í íþróttinni í því húsi hér á árum áður. Má þar nefna snillinga eins og Alfreð Gíslason landsliðsmann sem leikur sem atvinnumaður á Spáni og Þor- björn Jensson fyrrurn fyrirliða landsliðsins og núverandi þjálf- ara Vals. Þetta mun jafnfrarht vera þriðja JMJ-mótið sem Tobbi tekur þátt í. í mótinu leika allir við alla og stendur mótið eitthvað fram eftir degi. Sigurliðið fær að iaunum Knattspyrna: Bautamótið á sunnudag Bautamótinu í innanhússknatt- spyrnu, sem átti að fara fram í gær, hefur verið frestað þar til á sunnudag. Mótið fer fram í íþróttahöllinni á Akureyri og hefst keppni kl. 9 um morgun- inn. 16 lið hafa skráð sig til leiks og verður leikið í fjórum riðlum. 8 liða úrslit hefjast kl. 17 og 4 liða úrslit kl. 19. Kl. 20 verður leikið um þriðja sætið og úrslitaleikur- inn fer síðan fram kl. 20.30. íþróttir FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR I díig fcr friirn Akuivyramiöt í frjiíls-: um íþróttum innanhúss í (þróttahöll- inni og hefst þaö kl. 12. Á Húsavtk fer frani Jólamót Völsungs og á Sauð- árkróki Héraðsmót UMSS. Á morg- un fer fram Héraðsmót UMSE á Akureyri og á sunnuúag Geislamótið í Aðaldal. Á mánudag fer Gamlárs- hlaupið fram á Akureyri í annað sinn. Hlaupið hefst kl. 14 norðan cða sunn- an við bæinn. HANDKNATTLEIKUR I kvöld leika KA og Þórseinni leikinn i Akurcyrarmóti meistaraflokks. Leikurinn fer fram í íþróttahöllinni og hefst kl. 20.30. Á morgun fer síðan JMJ-mótið frant í IþrÓttaskemmunni eins og fram kemur annars staðar á síðunni. KNATTSPYRNA Bautamótið í innanhússknattspyrnu fer fram á sunnudag í fþróttahöllinni á Akureyri. SKAUTAR Á laugardag verður jóladagskrá á skautasvcllinu á Akureyri sem hefst kl. 17. Vcrður m.a. boðið upp á list- hlaupssýningu. VIÐ STYÐJUM FLUGELDASÖLU H JÁLPARSVEITAR SKÁTA AKUREYRI HERRADEILD

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.