Dagur - 28.12.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Föstudagur 28. desember 1990
Föstudagur 28. desember 1990 - DAGUR - 11
skólamótinu í borðtennis í Laug-
ardalshöll.
■ Sigurður Matthíasson, spjót-
kastari, var kjörinn íþróttamaður
UMSE 1989.
■ Birgitta Guðjónsdóttir,
UMSE, varð íslandsmeistari í
sjöþraut kvenna. Gunnlaugur
Skúlason, UMSS, varð íslands-
meistari í 10 þúsund m hlaupi
karla.
■ Guðmundur Benediktsson,
knattspyrnumaður úr Þór, skor-
aði bæði mörk íslands í tveimur
æfingaleikjum drengjalandsliðs-
ins gegn Skotum sem lauk báðum
með 1:1 jafntefli. Guðmundur
kom einnig inná í leik Þórs og
Vals í 1. deildinni og varð þar
með yngsti leikmaðurinn sem
leikið hefur í 1. deild, 15 ára og
290 daga.
■ Akureyrarliðin náðu sér ekki
á strik í 1. deildinni og voru jafn-
an í botnbaráttu. Það þótti tíð-
indum sæta að íslandsmeistarar
KA töpuðu fjórum fyrstu leikjum
sínum. í 2. og 3. deild varð fljót-
lega ljóst að norðanliðin myndu
eiga erfitt uppdráttar.
■ Handknattleiksmaðurinn Jó-
hann Samúelsson skipti úr Vík-
ingi í Þór.
■ Freyr Gauti Sigmundsson,
KA, hlaut bronsverðlaun á Opna
Gautaborgarmótinu í júdó 14-18
ára.
■ Körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls gekk frá samningum við Dr.
Milan Rozanek frá Tékkóslóvakíu
um að þjálfa liðið. Einnig var
rætt við rússneskan leikmann
sem ákvað að leika með Tinda-
stól en hætti síðar við.
■ Pro Kennex badmintonmótið
var haldið á Akureyri en það er
stærsta badmintonmót sem þar
hefur verið haldið. Flestir bestu
spilarar landsins voru meðal þátt-
takenda.
■ Óðinn var sigursæll á Sund-
meistaramóti Norðurlands sem
fram fór í Mývatnssveit og vann
stigakeppni félaganna með yfir-
burðum.
■ Akureyringurinn Örn Arnar-
son var valinn í landsliðið sem
tók þátt í Evrópumeistaramóti
unglingalandsliða í golfi í Grafar-
holti.
■ Arctic Open golfmótið var
haldið á Jaðarsvelli á Akureyri í
leiðindaveðri. Á annað hundrað
þátttakendur mættu til leiks, þar
af um 30 útlendingar. John
Drummond sigraði með yfirburð-
um í keppni án forgjafar en Jón
B. Hannesson í keppni með
forgjöf. Jón Baldvinsson, sendi-
ráðsprestur í London, fór holu í
höggi á mótinu og hlaut að laun-
um nýja og glæsilega bifreið.
■ UMSE hlaut 4 gull, 4 silfur og
5 brons á Meistaramóti íslands í
frjálsum íþróttum í Mosfellsbæ.
■ Þór sigraði í keppni b-liða á
Tomma-mótinu í knattspyrnu
sem haldið er á hverju ári fyrir 6.
flokk í Vestmannaeyjum. Þórsar-
arnir ungu létu ekki þar við sitja
því bæði a- og b-lið þeirra
tryggðu sér sæti í úrslitum Polla-
móts KSÍ og Eimskips sem er
óopinbert íslandsmót 6. flokks í
knattspyrnu. A-liðið gerði sér
síðan lítið fyrir og sigraði í úrslita-
keppninni en B-liðið hafnaði í 4.
sæti.
■ Sigurbjörn Hreiðarsson frá
Dalvík var valinn í drengjalands-
liðið í knattspyrnu. Er hann fyrsti
Dalvíkingurinn sem er valinn í
landslið í knattspyrnu. Seinna í
mánuðinum varð Sigurjón E.
Sigurðsson fyrsti leikmaður
Hvatar frá Blönduósi til að verða
valinn í unglingalandslið.
■ Guðmundur Benediktsson lék
mjög vel með íslenska drengja-
landsliðinu í knattspyrnu á
Norðurlandamóti í Finnlandi.
Árangur norðanliðanna var dapur í knattspyrnunni ef Magni frá Grenivík er
undanskilinn. Liðið tryggði sér glæsilegan sigur í 4. deild Islandsmótsins og
hér skorar Kristján Kristjánsson, þjálfari og markahæsti maður liðsins.
Guðmundur þótti yfirburðamað-
ur í íslenska liðinu og vakti mikla
athygli. Hann var iðinn við kol-
ann í markaskoruninni og varð
þriðji markahæsti maður
mótsins.
■ KA dróst á móti búlgarska lið-
inu CSKA Sofia í Evrópukeppni
meistaraliða í knattspyrnu. Tveir
miðar voru eftir í pottinum, Sofia
og Bayern Múnchen.
■ Essó-mót KA í knattspyrnu
fyrir 5. flokk var haldið á Akur-
eyri en það er stærsta mót sem
haldið er fyrir einn flokk á ís-
landi. Þátttakendur voru á sjötta
hundrað frá 21 félagi en um 1000
manns komu við sögu við fram-
kvæmd mótsins. Þórsarar héldu
Pollamót öldunga í annað sinn og
mættu 18 lið til leiks.
■ Seinni umferð 1. deildar karla
í knattspyrnu hófst og sátu KA
og Þór í tveimur neðstu sætun-
um.
■ Landsmót UMFÍ fór fram í
Mosfellsbæ. Veður var með ein-
dæmum leiðinlegt en metþátt-
taka var á mótinu sem heppnað-
ist vel að flestu leyti. UMSE
hafnaði í 3. sæti í stigakeppni
félaganna.
■ Fyrsta íslandsmótið í þríþraut
var haldið að Hrafnagili í Eyja-
firði. Sigurvegarar urðu Haukur
Eiríksson og Birna Björnsdóttir.
■ Kristján Gylfason náði besta
árangri frá upphafi á Akureyrar-
mótinu í golfi. Hann lék 72 holur
á 301 höggi og sigraði með yfir-
burðum í karlaflokki. Andrea
Ásgrímsdóttir vann í kvenna-
flokki, Haukur Dór Kjartansson
í unglingaflokki og Guðjón E.
Jónsson í öldungaflokki án for-
gjafar. Árni Björn Árnason sigr-
aði í keppni með forgjöf. 123
keppendur tóku þátt í mótinu og
hafa þeir aldrei verið fleiri.
■ Fyrri hluti Landsmótsins í
golfi fór fram á Jaðarsvelli og
heppnaðist mjög vel, árangur var
góður og veður frábært. Ólafur
Ingimarsson frá Húsavík sigraði í
2. flokki karla og Fjóla Stefáns-
dóttir frá Akureyri í 2. flokki
kvenna.
■ Matthías Sigvaldason varð
fyrsti Ólafsfirðingurinn til að fara
holu í höggi en það gerði hann á
Meistaramóti Ólafsfjarðar í golfi.
■ Handknattleiksmaðurinn
Hans Guðmundsson ákvað að
skipta í KA.
■ Tækniráð Júclósambandsins
valdi þá einstaklinga sem skör-
uðu fram úr hvað tæknilega getu
varðar á síðasta keppnistímabili.
Þrenn af fernum verðlaunum
fóru til KA-mannanna Freys
Gauta Sigmundssonar, Smára
Stefánssonar og Fjólu Guðna-
dóttur.
ÁGÚST
■ Mikið var að gerast í manna-
ráðningum hjá norðlenskum
íþróttafélögum í ágústmánuði.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
réði til sín erlendan leikmann,
Tékkann Ivan Jonas sem m.a.
hefur leikið með tékkneska
landsliðinu. Körfuknattleiksdeild
Þórs gekk frá samningi við
bandaríska leikmanninn Cedric
Evans, handknattleiksdeild KA
samdi við 39 ára gamlan Tékka,
Pavel Mikes að nafni og hand-
knattleiksdeild Þórs skrifaði und-
ir þriggja ára samning við danska
þjálfarann Jan Larsen. Fljótlega
eftir ráðningu hans tóku Þórsarar
þátt í aukakeppni 4 liða um 2 sæti
í 1. deild. Liðið sat eftir í 2. deild
ásamt HK en Haukar og Grótta
fóru upp.
■ Úlfar Jónsson og Karen
Sævarsdóttir urðu íslandsmeist-
arar í golfi á Landsmótinu sem
fram fór á Jaðarsvellinum á
Akureyri. Ólafur Gylfason frá
Akureyri sigraði í 1. flokki karla
og Rakel Þorsteinsdóttir, GS, í 1.
flokki kvenna. Keppendur á mót-
inu voru alls 307 talsins og hafa
aldrei verið fleiri. Garnla kempan
Björgvin Þorsteinsson gerði sér
lítið fyrir og fór holu í höggi á
mótinu.
■ A-sveit Akureyrar hafnaði í 3.
sæti í Sveitakeppni íslands í golfi
sem fram fór í Grafarholti. Þá
sigraði Örn Arnarson frá Akur-
eyri glæsilega í flokki 15-18 ára á
Unglingameistaramóti íslands í
golfi sem fram fór á Hólmsvelli
við Leiru.
Akureyringurinn Guðmundur Bencdiktsson átti frá-
bært ár í knattspyrnunni og skoraði fjölmörg mörk
fyrir yngri landslið íslands. Hann dvaldi um tíma hjá
Ekeren í Belgíu og Stuttgart í Þýskalandi og hefur
þegar fengið formlegt tilboð frá Ekeren.
KA-menn unnu óvæntan sigur á CSKA Sofia í Evrópukeppni meistaraliða. Hafsteinn Jakobs-
son t.v. skoraði eina mark leiksins.
■ Hvöt og Magni tryggðu sér
sæti í úrslitakeppni 4. deildar í
knattspyrnu með sigri í Norður-
landsriðlunum tveimur.
■ Þór varð Akureyrarmeistari í
knattspyrnu þegar liðið sigraði
KA 3:1 í framlengdum leik. Þór
tryggði sér einnig Akureyrar-
meistaratitil í knattspyrnu
kvenna með því að sigra KA 2:1
á Akureyrarvelli.
■ Hlauparinn síungi, Sigurður
P. Sigmundsson gerði sér lítið
fyrir og vann Reykjavíkurhálf-
maraþonið. Hann skeiðaði fyrst-
ur í mark á tímanum 1:10.26 og
var um þremur mínútum á undan
næsta.manni.
■ Húsvíkingar gerðu það gott á
meistarmótunum í frjálsum
íþróttum. Arngrímur Arnarson
hlaut þrenn gullverðlaun, ein
bronsverðlaun og sérstakan verð-
launaskjöld á meistaramóti 14
ára og yngri á Selfossi og í flokki
15-18 ára vann Hákon Sigurðsson
fern gullverðlaun í hlaupagrein-
um.
■ Kári Elíson setti íslandsmet í
bekkpressu í 75 kg flokki, lyfti
175 kg og bætti eigið met um 1
kg. Lyftingamenn héldu til
Grímseyjar og slógu þar upp
bekkpressumóti. Hæst bar þar
afrek Helga Jónssonar sem sló 17
ára gamalt met Kára Elísonar í
56 kg flokki, lyfti 85,5 kg. Hinn
14 ára gamli Jóhann Sigurðsson
setti einnig met í flokki 17 ára
drengja, lyfti 62,5 kg í 110 kg
flokki.
SEPTEMBER
■ A-sveit GA vann glæsilegan
sigur í Sveitakeppni íslands í
golfi 15-18 ára sem fram fór í
Vestmannaeyjum.
■ Haraldur Júlíusson, GA, setti
met á syðri helmingi Jaðarsvallar
á Norðúrlandsmótinu í golfi.
Hann lék á 31 höggi eða 4 undir
pari en fyrra metið, 33 högg, átti
Islandsmeistarinn Úlfar Jónsson.
Akureyringar urðu sigursælir á
mótinu, unnu 5 flokka af 8.
■ íslandsmótinu í knattspyrnu
lauk og er óhætt að tala um svart
sumar í sögu norðlenskrar knatt-
spyrnu. Þórsarar féllu í 2. deild
með 0:1 ósigri fyrir ÍA á Akur-
eyrarvelli. Þórsarar léku síðast í
2. deild 1982. KA-menn enduðu í
8. sæti deildarinnar og voru einu
stigi frá falli.
■ Tvö lið frá Norðurlandi féllu í
3. deild, KS og Leiftur. Liðin
léku í Ólafsfirði í síðustu umferð
og vann Leiftur stóran sigur, 4.1.
Það dugði þó ekki til þar sem
Grindvíkingar unnu óvæntan sig-
ur á Fylki og tryggðu sér þar með
áframhaldandi veru í deildinni.
Mark Dufficld lýsti því yfir að
hann hyggðist reyna fyrir sér á ný
í 1. deild og gekk síðar til liðs við
Víði. Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Tindastóls, lýsti því einnig yfir að
tímabilinu loknu að hann væri
hættur með liðið.
■ TBA féll mjög örugglega í
4. deild en liðinu gekk einstaklega
illa í 3. deildarkeppninni og vann
aðeins einn leik. Einherji frá
Vopnafirði féll einnig í 4. deild.
■ Magni frá Grenivík tryggði
sér íslandsmeistaratitilinn í 4.
deild og sæti í 3. deild með 2:1
sigri á Skallagrími á Grenivík.
Magni var vel að sigrinum
komið, var greinilega með lang-
sterkasta lið deildarinnar enda
var það eina lið landsins sem ekki
tapaði leik á íslandsmótinu í ár.
Seinna í mánuðinum var Kristján
Kristjánsson endurráðinn þjálfari
liðsins en hann lék einnig með
því um sumarið og var með
markahæstu mönnum deildarinn-
ar. Hvöt frá Blönduósi átti lengi
vel ágæta möguleika á sæti í 3.
deild en Skallagrímur hafði betur
á endasprettinum.
■ Guðmundur Benediktsson,
Þór, og Þórður Guðjónsson, KA,
voru í aðalhlutverkum þegar
íslendingar töpuðu 2:3 fyrir Eng-
lendingum á EM í knattspyrnu 18
ára og yngri. Þórður skoraði bæði
mörk Islands úr vítaspyrnum sem
Guðmundur fiskaði. Guðmundur
þótti besti maður vallarins í
lciknum. Guðmundur var ekki
búinn að segja sitt síðasta orð því
hann skoraði eitt mark og lagði
upp önnur tvö þegar ísland sigr-
aði Wales 6:0 í Evrópukeppni 16
ára yngri.
■ KA-menn gerðu sér lítið fyrir
og sigruðu CSKA Sofia 1:() í fyrri
leik liðanna í Evrópukeppni
meistaraliða á Akureyrarvelli.
Það var Hafsteinn Jakobsson sem
Körfuknattleikslið Þórs og Tindastóls mættu til leiks með nýja útlendinga.
Cedric Evans t.v. og Ivan Jonas. Tindastóll er nú í efsta sæti úrvalsdeildar-
innar og Jonas hefur skorað flest stig allra.
I *
skoraði mark KA cn Akureyrar-
liðið var mun sterkari aðilinn í
leiknum og hefði hæglega getað
unniö stærri sigur. Með þessum
sigri varð KA fyrst íslenskra
félagsliða til að vinna sigur í sín-
um fyrsta leik í Evrópukeppni.
■ Alfreð Gíslason var valinn í
heimsliðið í handknattleik sem
leikur gegn úrvalsliði Norður-
landa í Gautaborg 8. janúar nk.
OKTOBER
■ KA-menn féllu úr leik í
Evrópukeppni meistaraliða í
knattspyrnu er þeir töpuðu 0:3
fyrir CSKA Sofia í Búlgaríu.
Leikhléið í leiknum varð 35 mín-
útna langt þar sem rafmagn fór af
leikvanginum og þurftu KA-ntenn
að bíða í búningsherbergjunum í
svartamyrkri.
■ Guðntundur Benediktsson
hélt uppteknum hætti í lands-
leikjunum. Hann skoraði mark
íslands í 1:1 jafntefli gegn Belg-
um f Belgíu. Hann hélt síðar til
Belgíu þar sem hann æfði með 1.
deildarliðinu Ekeren og kom aft-
ur lieim með samningstilboð upp
á vasann. Með honum til Ekeren
fórSigþór Júlíusson frá Húsavík.
■ Ormarr Örlygsson var ráöinn
þjálfari knattspyrnuliðs KA. Páll
Gíslason skipti í KA úr Reyni.
Sigurður Lárusson var ráðinn
þjálfari knattspyrnuliðs Þórs
næstu þrjú árin. Viöar Sigurjóns-
son, þjálfari HSÞ-b, ákvað að
ganga til liös við Þór og Aðal-
steinn Aðalsteinsson úr Víkingi
var ráðinn þjálfari Leifturs i
Ólafsfirði.
■ Friörik Friðriksson, mark-
vörður Þórs, var kjörinn knatt-
spyrnumaður Akureyrar.
■ ísjandsmótið í blaki fór af stað
og bar þar helst til tíðinda að
Völsungur sendi lið í 1. deild
kvenna eftir nokkurt hlé.
■ Pétur Guðmundsson. körfu-
knattleiksmaður, gekk til liðs við
Tindastól sem mætti til leiks með
gífurlega sterkt lið. Einar Einars-
son úr Keflavík hafði einnig
gengið til liðs við Stólana.
■ Fjórir Akureyringar voru
valdir í landslið í sundi. Elsa
María Guðmundsdóttir var valin
Arnar Guðlaugsson:
Frábær árangur
hjá Hákoní
„Hér heima finnst mér hæst bera
frábæran árangur hjá Hákoni
Sigurðssyni sem varð fjórfaldur
íslandsmeistari á Meistaramótinu
í frjálsum íþróttum og var valinn
í unglingalandslið,“ sagði Arnar
Guðlaugsson, þjálfari handknatt-
leiksliðs Völsungs á Húsavík.
Arnar nefndi einnig ágætan
árangur 5. flokks Völsungs sem
vann Norðurlandsriðilinn í knatt-
spyrnunni annað árið í röð.
„Okkur leiðist ekkert að setja
Akureyringana aftur fyrir okkur.
Síðan unnum við þriðju deildina
í handboltanum á síðasta ári og
það er auðvitað mjög eftirminni-
legt.“
Af öðrum íþróttaviðburðum
nefndi Arnar árangur síns gamla
félags, Fram, í knattspyrnunni,
ekki síst í Evrópukeppninni, og
Heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu. „Annars fannst mér
þetta heldur dauft íþróttaár þeg-
ar á heildina er litið,“ sagði Árn-
ar Guðlaugsson.
Nói Björnsson:
Fafl Þórs skelflleg
niðurstaða
Nóa Björnssyni, fyrirliða Þórs í
knattspyrnu, var einungis eitt
ofarlega í huga þegar hann var
spurður um markverðustu
atburði ársins í íþróttaheiminum:
„Fall Þórs í 2. deild. Það var
skelfileg niðurstaða. Eg er nokk-
urn veginn búinn að ná mér núna
en þetta var hátt fall,“ sagði Nói.
Hann sagðist hafa séð fallið fyrir
þegar Þór tapaði á heimavelli fyr-
ir FH í 14. umferð. Ekki vildi
hann nefna neitt armað minnis-
stætt. „Þetta yfirgnæfir allt
annað. En ég tel að það sé bjart
framundan hjá okkur og á von á
góðu sumri á næsta ári,“ sagði
Nói Björnsson.
SigurðurP. Sigmundsson:
Ágættgengihjámínu
félagí og sjálfUm mér
„Ef við lítum fyrst á Norðurland
er mér efst í huga ágætt gengi hjá
mínu félagi og sjálfum mér. Eg
átti gott „comeback" og er t.d.
minnisstætt þegar ég vann hálf-
maraþonið og Víðavangshlaup
íslands. Krakkarnir stóðu sig vel
og við áttum ágæta byrjun á
Landsmótinu,“ sagði Sigurður P.
Sigmundsson, formaður UFA.
„A landsvísu er mér minnisstætt
metkastið hjá Einari Vilhjálms-
syni í undankeppni Evrópumeist-
aramótsins og eins vonbrigðin
daginn eftir þegar verr gekk. Þá
má nefna íslandsmet Péturs
Guðmundssonar í kúluvarpinu,"
sagði Sigurður.
Gylfi Kristjánsson:
Landsmótið í golfi
minnisstæðast
Landsmótið í golfi er efst í huga
Gylfa Kristjánssonar, blaða-
manns og liðsstjóra körfuknatt-
leiksliðs Þórs, en hann var móts-
stjóri á Landsmótinu. „Það er
manni minnisstætt fyrir margra
hluta sakir. Þetta var fjölmenn-
asta Landsmót frá upphafi, fram-
kvæmdin gekk sérlega vel og
veðrið var frábært framanaf en
mótið endaði síðan í hálfgerðu
fárviðri. Þá man ég vel eftir leik
Þórs og Njarðvíkur í körfubolta
sem fram fór í Njarðvík. Þeir
höfðu ekki tapað lengi á heima-
velli og Þór vann leikinn örugg-
lega sem kom skemmtilega á
óvart eftir slæmt gengi Þórsara.
Lélegt gengi Akureyrarliðanna í
knattspyrnunni og boltaíþróttun-
um yfir höfuð kemur líka upp í
hugann. Heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu verður mér helst
minnisstæð fyrir hvað hún var
leiðinleg," sagði Gylfi.
Þorleifur Ananíasson:
1. deildarsæti Leeds
langmerkilegast
Þorleifur Ananíasson er liðsstjóri
handknattleiksliðs KA og áhuga-
maður um ensku knattspyrnuna.
Hann var snöggur til svars. „Mér
er efst í huga þegar Leeds komst
í 1. deild í Englandi. Það er ekki
spurning," sagði Þorleifur. „Það
var þungu fargi af mér létt enda
búinn að naga allar neglur í
burtu. Þá fannst mér sérstaklega
gaman þegar KA vann ÍBV í
Eyjum í handboltanum á síðasta
tímabili en það hafði ekki gerst í
nokkur ár. Eg er ekki vonsvikinn
yfir neinu sérstöku enda er þetta
bara leikur og menn ættu ekki að
taka ósigra of nærri sér.“
Guðbrandur Guðbrandsson:
Velgengni Arsenal og
frammistaða Eyjólfs
Guðbrandi Guðbrandssyni,
knattspyrnumanni úr Tindastól
var efst í huga velgengni Tinda-
stólsliðsins í sumar miðað við
mannabreytingar sem á því urðu.
„Þá er mér ofarlega í huga vel-
gengni Arsenal á síðasta tímabili
og sérstaklega minnisstæður sigur
liðsins á Liverpool fyrir
skömmu."
Guðbrandur nefndi einnig
góða frammistöðu Eyjólfs Sverr-
issonar hjá Stuttgart og uppgang-
inn í körfuknattleiknum á
Króknum. SBG
Þorsteinn Þorvaldsson:
Dapurt gengi
norðanfiðanna
„Dapurt gengi norðanliðanna í
knattspyrnunni er mér ofarlega í
huga. Þetta má að mörgu leyti
rekja til aðstöðuleysis og menn
verða að fara að taka saman
höndum til að bæta úr því,“ sagði
Þorsteinn Þorvaldsson í Ólafs-
firði. Þorsteinn sagðist vera
hræddur um að sumarið væri vísir
að því sem koma skyldi ef ekkert
yrði að gert því aðstaðan á suð-
vesturhorninu batnaði sífellt.
„Það eina sem stendur upp úr er
að við spiluðum okkar fyrsta leik
á nýjum grasvelli. Þá má einnig
nefna glæsilegan árangur Magna
frá Grenivík.“
Þorsteinn bætti því við að hann
væri bjartsýnn á framtíð íslenska
landsliðsins í handknattleik.
„Mér sýnist Þorbergur vera að
gera góða hluti og á réttri leið.
Við verðum bara að gefa þeim
nægan tíma,“ sagði Þorsteinn
Þorvaldsson.
Jón Ingólfsson:
Heimsmeistara-
keppnin og Leeds
„Af erlendum vettvangi er það
sennilega Heimsmeistarakeppnin
í knattspyrnu, sérstaklega frammi-
staða Kamerúnmanna. Þá er
mjög eftirminnilegt að Leeds
vann sér sæti í ensku 1. deildinni.
Við ættum eiginlega að hafa það
númer eitt,“ sagði Jón Ingólfsson
á Grenivík. Af innlendum vett-
vangi nefndi Jón sigur Magna í 4.
deildarkeppninni og ágætan
árangur íslensku félagsliðanna í
Evrópukeppnunum í knatt-
spyrnu.
í a-landslið en Hlynur Tuliníus,
Gísli Pálsson og Þorgerður
Benediktsdóttir í unglingalands-
liðið.
Nóvember
■ Eyjólfur Sverrisson komst á
beinu brautina hjá Stuttgart.
Hann komst í byrjunarlið gegn
Köln og átti þátt í tveimur mörk-
um í 3:2 sigri. Var hann fastur
maður í liðinu eftir þetta og stóð
sig vel.
■ Knattspyrnumaðurinn Bjarni
Jónsson skipti úr KA í Stjörnuna
og Þórður Guðjónsson úr KA í
ÍÁ. Sverrir Sverrisson úr Tinda-
stól ákvað liins vegar að skipta í
KA og Ólafur Adólfsson ákvað
að fara af Króknum og á
Skagann. Siguróli Kristjánsson,
leikmaður Þórs, var ráðinn þjálf-
ari knattspyrnuliðs Reynis frá
Árskógsströnd. Þórsararnir Ólaf-
ur Þorbergsson og Sverrir Heini-
isson skiptu báðir í Magna Greni-
vík og Rósberg Óttarsson úr
Reyni í Leiftur.
■ Guðmundur Benediktsson var
enn á faraldsfæti því honum var
boðið til æfinga hjá Stuttgart.
Þáði hann boðið og dvaldist hjá
félaginu í hálfan mánuð.
■ Sundfélagið Óðinn hafnaði í
2. sæti í 2. deild Bikarkeppninnar
í sundi. SFS sigraöi. Seinna í
mánuðinum kom síðan í Ijós að
Óðinn hafði hlotið sæti í I. deild
þar sem liðið hlaut fleiri stig en
þaö sent var í næst neðsta sæti í 1.
deild.
■ Júdómenn úr KA náðu góð-
um árangri á Haustmóti Júdó-
sambandsins og unnu m.a. tvenn
gullverðlaun. Það voru Freyr
Gauti Sigmundsson og Baldur
Stefánsson sem sigruðu í sínum
flokkum.
■ Alfreð Gíslason lýsti því yfir
að hann væri hugsanlega á
heimleið og myndi þá leika með
KA næsta vetur. Alfreð leikur nú
með spænska liðinu Bidasoa.
■ íslandsmótið í handknattleik
og körfuknattleik var í fullum
gangi og þar vakti sérstaka
athygli geysileg velgengni Tinda-
stóls í körfunni og Þórs í 2. deild
handboltans. Kristinn Hreinsson,
fyrirliði handknattleiksliðs Þórs,
handarbrotnaði í leik með liði
sínu.
DESEMBER
■ KA-menn gerðu það gott í
Sveitakeppni Islands í júdó í
Grindavík. Þeir unnu tvo flokka
en máttu sætta sig við 3. sæti í
þeim þriðja. Var þetta sjötta árið
í röð sem KA sigrar í drengja-
flokknum.
■ Lífið lék viö Eyjólf Sverrisson
hjá Stuttgart. Hann var í byrjun-
arliði allan mánuðinn, skoraöi
sigurmark Stuttgart gegn 2.
deildarliði í þýsku bikarkeppn-
inni og síðar annað sigurmark
gegn Frankfurt í deildakeppn-
inni.
■ Knattspyrnumaðurinn Luka
Kostic ákvað að skipta úr Þór í
ÍA. Halldór Áskelsson tilkynnti
opin félagsskipti úr Val. Ástæðan
var óánægja með framkomu
stjórnar knattspyrnudeildar Vals
í hans garð. Þá skipti Þorvaldur
Jónsson, markvörður Lcifturs, í
Breiðablik.
■ KA-menn fóru á stúfana og
leita nú að erlendum leikmönn-
um til að leika með knattspyrnu-
liðinu næsta sumar. Kjartan Ein-
arsson skipti úr KA í ÍBK.
■ Sundfélögin Óðinn á Akur-
eyri og Vestri á ísafirði syntu
maraþonboðsund í 24 klukku-
stundir. Vestri hafði betur og
synti 106 kin gegn 104 Óðins-
manna.
■ Akureyringurinn Valdimar
Valdemarsson var kjörinn skíða-
maður ársins.
■ Akureyrskir golfarar nutu
góðs af veðurblíðunni og slógu
upp aðventumóti og jólamóti.
Rafn Kjartansson fór holu í
höggi í seinna mótinu.