Dagur


Dagur - 26.03.1991, Qupperneq 1

Dagur - 26.03.1991, Qupperneq 1
74. árgangur Akureyri, þriðjudagur 26. mars 1991 59. tölublað ttw#* er'* ^gfvW M HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Akureyrarbær og KEA: Listagilið að komast í höfti? - staðið verður við samþykkt um stækkun bókasafnsins Viðræðunefndir Akureyrar- bæjar og Kaupfélags Eyfírð- inga hafa nú komist niður á samningsgrundvöll um kaup- verð og kjör á húseignum KEA í Grófargili, þ.e. Sam- lagshúsi, Kctilhúsi, Smjörlíkis- gerð og Flóru. Málið er nú að komast á þann rekspöl að það verði lagt fyrir stjórn Kaupfé- lagsins og bæjarráð. Björn Jósef Arnviðarson, sem verið hefur í forsvari fyrir við- ræðunefnd bæjarins, sagði að samningsgrundvöllurinn væri fyr- ir hendi. Þá sagði hann að sú staða hefði komið upp að eign- irnar við sunnanvert Grófargilið, Smjörlíkisgerð og Flóra, yrðu væntanlega keyptar af einstakl- ingum, annað hvort beint af KEA eða Akureyrarbæ, eftir því hvernig málin þróuðust. „Mér finnst nauðsynlegt að það komi fram í þessu sambandi að hér er ekki verið að tala um að annað hvort verði ráðist í Listagil eða stækkun Amtsbókasafnsins. Það hefur aldrei staðið annað til en að byggt verði við Amtsbóka- safnið og Héraðsskjalasafnið. Málið snýst eingöngu um það hvort menn ætli að byggja við bókasafnið og byggja þar að auki menningarmiðstöð við safnið eða hvort byggt verður við safnið og menningarmiðstöðin reist annars staðar,“ sagði Björn Jósef. Hann sagði að samþykkt bæjarstjórnar frá 29. ágúst 1987 hefði falið í sér stækkun bóka- safnshússins og við þá samþykkt yrði staðið. Hins vegar væri hægt að spara stórfé með því að reisa menningarmiðstöðina í Grófar- gili, eins og hugmyndirnar snúast um í dag. SS Óvíst er hvort landfestar Harðbaks EA verða leystar klukkan 21 í kvöld eins og ráðgert er. I gær virtist vera að hlaupa harka ■ kjaradeilu sjómanna og ÚA og því alls óvíst um framhald málsins. Mynd: Goiií Fyrsti togarinn stöðvast vegna uppsagna hjá ÚA: Tólf menn vantar til að Harðbakur komist út Ekki er útlit fyrir annað en að deila sjómanna á ísfísktogur- um Utgerðarfélags Akureyr- Akureyri: Vinnuslys að Óseyri 2 Maður var fluttur á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í gærmorgun eftir að hann féll úr stiga við húsið Oseyri 2. Þetta var laust fyrir kl. 10. Maðurinn kvartaði um eymsli í baki, en ekki var talið að meiðsl hans væru alvarlegs eðlis. Tveir skíðamenn voru fluttir á slysadeild um helgina. Á föstu- dag slasaðist skíðamaður á fæti en í andliti á laugardag. Að sögn lögreglunnar á Akur- eyri var helgin með rólegasta móti. Aðeins tveir gistu fanga- geymslur lögreglunnar vegna ölv- unar. óþh inga hf. við útgerðina sé að harðna. Sjómenn hjá Ú.A. skora á starfsbræður á svæðinu að ganga ekki í störf hjá félag- inu meðan deilan varir, en í dag stöðvast tveir togarar félagsins vegna uppsagna. Harðbakur EA landaði hjá ÚA í gærmorgun. Konráð Alfreðsson, formaður sjómanna- félags Eyjafjarðar, segir að brott- för hafi verið boðuð á Harðbak klukkan 21.00 í kvöld, en ljóst að meirihluti mannanna muni ekki mæta til skips þar sem þeir séu búnir að segja upp. Yfirmenn skipsins hafa lengri uppsagnar- frest en hásetar, sem hafa eina viku. í gær var ljóst að tólf undir- Rammasamningur um byggingu íþróttahúss á félagssvæði KA undirritaður í dag: Áætlað að taka húsið í notkun fyrir 1. október fyrsta skóflustungan að húsinu tekin á laugardag Rammasamningur milli Akur- eyrarbæjar og Knattspyrnufé- lags Akureyrar um byggingu íþróttahúss á félagsvæði KA verður undirritaður í dag. Skóflustunga að húsinu verður tekin næstkomandi laugardag kl. 14 og þar með hefjast fram- kvæmdir við húsið en sam- kvæmt áætlunum bygginga- nefndar verður húsið tekið í notkun fyrir 1. október í haust. Bygginganefnd kynnti fram- kvæmdaáætlunina í gær og þar kom fram að áætlað er að þann 6. júlí verði húsið rifið og utanhúss- frágangi lokið en sfðla sumars verði unnið að frágangi innan- húss og húsið tekið í notkun fyrir 1. október. Heildarstærð þessa mannvirkis er um 2500 fm. Akureyrarbær tekur þátt í kostnaði við 2200 fm. og greiðir 75% af áætluðum byggingarkostnaði þess hluta, eða 110 milljónir króna á næstu 5 árum. Heildarbyggingarkostnað- ur við þessa 2200 fm. er 140-150 milljónir króna en KA tekur á sínar herðar tengibyggingu, frá- gagn lóðar og fleira. Að mati bygginganefndar- manna verður ekki vandkvæðum bundið að koma húsinu upp fyrir fyrrnefndan tíma. Þegar hafa vissir verkþættir verið boðnir út með góðum árangri. Fyrir skömmu var boðinn út gröftur og jarðvegsskipti og fékkst tilboð í verkið sem er um 54% af kostn- aðaráætlun. Fram kom að í þessu tilfelli gaf verktakinn, Guðmund- ur Hjálmarsson, 700 þúsund króna afslátt af verkinu sem framlag til félagsins vegna bygg- ingarinnar. Sigmundur Þórisson. formaður bygginganefndarinnar, sagði það tvímælalaust hagkvæmt að byggja húsið á svo skömmum tíma. Ætlunin væri að ná hlut félagsins í verkinu með sjálf- boðavinnu og ekki síst með hag- kvæmum útboðum á verkþáttum. Rammasamningurinn við Akureyrarbæ segja bygginga- nefndarmenn að sé lykillinn að þessari framkvæmd því ætlunin er að selja samninginn og inn- leysa á þann hátt fjármagn til framkvæmdarinnar strax. JÓH menn myndu sitja heima, og að Harðbakur komist ekki í veiði- ferðina. Búið er að tilnefna menn úr áhöfnum ísfisktogara Ú.A. í nefnd til að fara yfir stöðuna, afla gagna og setja upp kröfur í vænt- anlegum viðræðum við félagið, ef af þeim verður í bráð. Ályktun sem nefndin sendi frá sér í gær hljóðar svo: „Togarasjómenn á Akureyri, sem eiga í kjaradeilu við Ú.A., fara þess vinsamleg- ast á leit við sjómenn á svæðinu að þeir gangi ekki í störf þeirra á meðan á deilunni stendur." Konráð segir að algjör sam- staða sé hjá sjómönnunum um að láta frekar af störfum hjá ÚA en að taka þau laun sem félagið hef- ur boðið, þ.e. hækkun heima- löndunarálags úr 30 í 40 prósent. Krafan um að ræða hækkun fisk- verðs hafi ekki verið tekin til greina. f morgun kom Sólbakur EA 305 til Akureyrar. Ekki er útlit fyrir annað en að hann stöðvist einnig vegna uppsagna. Eitt af því sem sjómenn ræða mikið um er að Kaldbakur EA sé eini ísfisktogari ÚA sem náði landsmeðaltali hásetahlutar ís- fisktogara í fyrra. Háseti sem hefði farið alla túrana hefði þá fengið 2,2 milljónir í brúttó- árslaun. Suðvestanátt í dymbilviku Veðurstofa Islands gerir ráð fyrir að sunnanvindar leiki um Norðlendinga fram eftir dymb- ilvikunni. í gær var ráðandi sunnan og suðaustan átt um norðanvert landið með tilheyrandi hlýindum og leysingum. Veðurstofan gerir ráð fyrir að vindur snúist til suð- vestanáttar á morgun og skírdag. Búist er við björtu veðri, en eitthvað mun kóina. óþh 95J Valdimar Bragason, fram- kvæmdastjóri Ú.D., segir að eftir viðræður við áhöfn Björgvins á laugardag hafi verið ákveðiö að kanna hvort samkomulag geti orðið í deilunni, og halda áfram viðræðum en sjómenn hjá ÚD hafa ekki sagt upp. EHB Sigþór ÞH gerður út frá Sandgerði: Hér fæst betra verð' - segir Hörður Pórhallsson, skipstjóri og útgerðarmaður Sigþór ÞH 100, sem er 170 tonna fískveiðiskip með 421 tonna þorskígildiskvóta fyrir utan síldar- og rækjukvóta, er gert út frá Sandgerði. Vísir hf., sem er skrásett samkvæmt fyrirtækjaskrá á Húsavík, gerir bátinn út. „Við erum ekki formlega iluttir suður með fyrirtækið en allt stefnir í þá átt. Ég sem skipstjóri og útgerðarmaður er fluttur til Keflavíkur og því eru 75% hlutafjár í eigu Suðurnesja- manna,“ sagði Hörður Þór- hallsson. Hörður segir að þeir á Sigþóri ÞH hafi síðastiiðin 10 ár veitt all- an vertíðarfisk fyrir Suðurlandi og augljóst sé að ekki sé mögu- legt að gera út frá Norðurlandi þegar litið sé til kvóta og skulda- stöðu fyrirtækisins. „Aflaleysi í þorskveiðum fyrir Norðurlandi ásamt dýrri sókn og lágu fiskverði á Húsavík ræður hér mestu um. Ég vil ekki kenna fiskverkunarfyrirtækjunum ein- göngu um lágt fiskverð heldur einnig lélegri gæðum. Fiskmark- aðirnir á Suðurlandi gera útslag- ið. Hér fæst betra verð fyrir aflann,“ sagði Hörður Þórhalls- son, skipstjóri og útgerðarmaður Sigþórs ÞH 100. ój

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.