Dagur - 27.03.1991, Síða 1
74. árgangur Akureyri, miðvikudagur 27. mars 1991 60. tölublað
Vel í fc 1 >t 1 klæddur 1 im fKá BERNHARDT .141 II 1 1 d. Thc Taikir-l.i.ik enrabudin
1 1 HAFNARSTRÆTI92 - 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Ahugi
Öxaríjarðarhreppur:
i á borun vinnslu-
holu í Bakkahlaupi
- „við erum tilbúin til að leggja til
fjármagn til þessa verks,“ segir Ingunn
St. Svavarsdóttir sveitarstjóri
Hugsanlegt er að boruð verði
svokölluð vinnsluhola í Bakka-
hlaupi í Öxarfirði í sumar. A
fjárlöguni er gert ráð fyrir að
8,5 milljónum króna verði var-
ið til þess að bora rannsóknar-
holu í Bakkahlaupi. Með slíkri
holu væri ekki unnt að nýta
það heita vatn sem kraumar
þar í iðrum jarðar, en sveitar-
stjórn Öxarfjarðarhrepps hef-
ur lýst áhuga á að leggja fram
fjármagn á móti ríkinu til þess
að þarna verði boruð vinnslu-
hola.
Mikilvægt skref í uppbyggingu Háskólans á Akureyri stigið í gær:
Öxarfjarðarhrepps, er nú í
Reykjavík þar sem hann er að
kanna möguleikann á að í stað
rannsóknarholu verði ráðist í
borun vinnsluholu.
„Við erum tilbúin til að leggja
fjármagn til þessa verks því að-
eins að þarna gæti orðið um
vinnsluholu að ræða. Hún myndi
koma okkur mjög til góða,“ sagði
Ingunn St. Svavarsdóttir, sveitar-
stjóri Öxarfjarðarhrepps. óþh
Miklar skemmdir hafa verið unnar á húsinu að Lækjargötu 3 á Akureyri. Húsið er í eigu nokkura lífeyrissjóða og
það hefur staðið niannlaust um tíma. Ibúar í innbænum hafa áhyggjur af að börn skaði sig þarna, því þau sækja í
að skríða inn í húsið hvar allt er löðrandi í glerbrotum.
Gæðastjómunarbrautin fékk grænt ljós
„er í samræmi við okkar björtustu vonir,“ segir forstöðumaður rekstrardeildar HA
Ljóst er að 8,5 milljóna fram-
lag ríkisins nægir ekki til þess að
bora vinnsluholu í Bakkahlaupi
og segir Ólafur G. Flóvenz hjá
Orkustofnun það vart nægja til
meira en borunar 6-800 metra
djúprar rannsóknarholu.
Björn Benediktsson, oddviti
Þegar tilboð í gatnagerð í 2.
áfanga Giljahverfis á Akureyri
voru opnuð hjá yfirverkfræð-
ingi Akureyrarbæjar kom í Ijós
að Guðmundur Hjálmarsson
var með lægsta boðið, kr.
17.632.850, eða 81,9 prósent af
kostnaðaráætlun.
Önnur tilboð sem bárust voru
frá Möl og Sandi hf., kr.
19.600.700, eða 91 prósent af
„Þetta er mjög ánægjulegt.
Tilkoma gæðastjórnunarbraut-
kostnaðaráætlun, Verkval hf.
bauð kr. 24.905.550, 115,6% af
áætlun, og Verkval hf. einnig
frávikstilboð upp á 23.015.250,
106,9% af áætlun. Kostnaðar-
áætlun Akureyrarbæjar hljóðaði
upp á kr. 21.540.000.
Guðmundur Guðlaugsson,
yfirverkfræðingur, segir að
bæjarráð Akureyrar muni taka
afstöðu til tilboðanna eftir páska.
EHB
ar er eitt af þeim skrefum sem
okkur eru mjög mikilvæg.
Þetta er líka mál sem þarf að
taka mikið á í atvinnulífinu og
því held ég að þetta hafi verið
góð ákvörðun á þessum tíma,“
sagði Stefán Jónsson, for-
stöðumaður rekstrardeildar
Háskólans á Akureyri í gær
eftir að menntamálaráðuneyt-
ið hafði veitt heimild til að
hefja kennslu á gæðastjórnun-
arbraut næstkomandi haust.
Þetta nám kemur til viðbótar
því námi sem nú er boðið upp
á í rekstrardeild skólans þann-
ig að nú býðst í fyrsta sinn
fjögurra ára nám við deildina.
Menntamálaráðuneytið sendi
Háskólanum á Akureyri staðfest-
ingu á þessu síðdegis í gær en í
bréfinu segir:
„Vísað er til tillagna nefndar
um viðbótarnám við rekstrar-
deild Háskólans á Akureyri, dag-
sett 24. nóvember 1990. Að
athuguðu máli samþykkir ráðu-
neytið fyrir sitt leyti að nám á
gæðastjórnunarbraut í samræmi
við tillögur nefndarinnar hefjist á
haustönn 1991 enda verði kostn-
aði vegna námsins haldið innan
ntarka fjárveitinga til háskólans á
fjárlögum. Varðandi viðbótar-
nám í markaðsfræðum mun ráðu-
neytið gera tillögur við gerð fjár-
laga ársins 1992 um fjárveitingu
til undirbúnings þess náms.“
„Þetta er í samræmi við okkar
björtustu vonir og eru mjög
ánægjulegar fréttir. Það hefur
verið kannað hver áhugi er á
þessu námi og hann er talsverður
og sem dæmi má nefna að á
nýlegri kynningu um háskólanám
var mikið spurt út í þetta nám,“
sagði Stefán.
í stuttu máli má segja að þetta
viðbótarnám verði byggt ofan á
það rekstrarnám sem fyrir er við
skólann þannig að nemendur
hafa nú þann valkost að halda
áfram að tveggja ára námi við
deildina loknu, bæta við sig
tveimur árum til viðbótar og
ljúka háskólaprófi í gæðastjórn-
un. Stefán segir að á þessari nýju
braut verði kenndar fjölmargar
greinar, þar á meðal gæðastjórn-
un og gæðaeftirlit, en í öðrum
greinum verði kennslan miðuð út
frá þessum viðhorfum. Gæða-
stjórnun- og eftirlit verði þannig
rauði þráðurinn í kennslugrein-
um á brautinni.
Stefán segir að bjartsýni hafi
ríkt um að leyfi fengist til að
hefja kennslu á þessari braut í
haust. Þannig hafi undirbúnings-
vinna verið hafin þó svo svar
hafi ekki legið fyrir. Nú verði
strax hafist handa við að móta
námið fyrir næsta vetur en Stefán
sagðist reikna með að nemendur
á fyrsta ári geti orðið um tólf
talsins. Námið verði strax auglýst
en umsóknarfrestur um nám við
Háskólann á Akureyri rennur út
þann 1. júní. JÓH
Athyglisverðar niðurstöður níu ára
uppgræðslurannsókna á Auðkúluheiði:
Við græðum ekki upp hálendið
með grasfræi og áburði
- segir Ingvi Þorsteinsson, náttúrufræðingur á Rala
Giljahverfi 2:
Tilboð opnuð í gatnagerð
Togarasmíði í athugun
hjá Skagstrendingi hf.
- áætlaður kostnaður um 900 milljónir króna
Ingvi Þorsteinsson, náttúru-
fræðingur á Landnýtingardeild
Rala, segir að níu ára upp-
græðsla á Auðkúluheiði og
rannsóknir henni tengdar hafi
leitt í Ijós að án árlegrar áburð-
ardreifingar sé tómt mál að
tala um uppgræðslu á hálendi
íslands. Hins vegar gefi árleg
áburðardreifing mikla og góða
uppskeru. Niðurstöður rann-
sóknanna voru kynntar á
fræðslufundi Hins íslenska
náttúrufræðifélags í Reykjavík
sl. mánudagskvöld.
Á undanförnum níu árum hef-
ur Landgræðsla ríkisins haft með
höndum uppgræðslu á 1650 hekt-
örum á Auðkúluheiði, með öðr-
um orðum á virkjunarsvæði
Blöndu. Rannsóknaþátturinn
hefur verið á hendi Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins en
verkið var unnið fyrir Lands-
virkjun samkvæmt samningi við
heimamenn vegna virkjunar
Blöndu.
„í heild liefur árangurinn af
landgræðslustarfinu, hvað varðar
t.d. þekju lands og uppskeru,
verið betri en menn þorðu að
vona. Hins vegar kemur í ljós að
jafnvel eftir níu ára árlega áburð-
arnotkun er ekki hægt að sleppa
einu ári úr í áburðardreifingu, þá
hrynur uppskeran. Land sem
áburður var borinn á í fjögur ár
samfleytt, en hefur síðan ekki
fengið áburð, er nú nánast hreinn
mosi.
Við áttum von á því að geta
sleppt úr árum í áburðargjöf.
Þess vegna hefur þessi niðurstaða
valdið okkur nokkrum vonbrigð-
um. Ég tel að hún segi okkur þá
sögu að við græðum ekki upp há-
lendið með áburði og grasfræi.
Okkur vantar tegundir sem vinna
köfnunarefni og þurfa ekki
árlega áburðargjöf. Sem stendur
höfum við ekki aðgang að þeim,“
segir Ingvi.
Ingvi segir að hér sé um að
ræða viðamesta átak í land-
græðslu á hálendi íslands. Mikið
magn upplýsinga hafi safnast,
sem komi að góðum notum við
frekari rannsóknir í sambandi við
landgræðslu, hvort sem er á
hálendi eða láglendi.
Þó svo að þessar niðurstöður
landgræðslu síðustu ára á Auð-
kúluheiði liggi nú fyrir er verk-
efninu ekki þar með lokið. Samn-
ingur Landsvirkjunar og heima-
manna gerir ráð fyrir allt að 3000
ha uppgræðslu á svæðinu.
Ingvi Þorsteinsson tekur fram
að þakka beri þann áhuga og
fjárhagslegan stuðning sem
Landsvirkjun hafi sýnt upp-
græðslunni og rannsóknum sem
tengjast henni. óþh
Skagstrendingur hf. hefur
undirritað samning við norska
skipasmíðastöð um smíði á
togara fyrir fyrirtækið. Áætl-
aður kostnaður við smíði
skipsins er um 900 milljónir
króna. Skagstrendingur hf.
verður að úrelda tvo togara til
að mega kaupa nýja togarann.
Smíði nýja togarans getur haf-
ist í byrjun maí að sögn Sveins
Ingólfssonar framkvæmdastjóra
Skagstrendings. Samningur
Skagstrendings og norsku skipa-
smíðastöðvarinnar er viljayfirlýs-
ing, sem Skagstrendingur hefur
nokkurn tíma til að staðfesta.
Nýi togarinn verður sextíu
metra langur og á bilinu 1000 til
1200 brúttórúmlestir. Skag-
strendingur hf. hefur áhuga á að
standa við samning um smíði
togarans en fyrirtækið hefur
fengið öll tilskilin leyfi til kaup-
anna. Togarinn Hjörleifur og
annað hvort Arnar eða Örvar
verða úreldir og veiðiheimildir
þeirra færast yfir á nýja togarann.
kg