Dagur


Dagur - 27.03.1991, Qupperneq 8

Dagur - 27.03.1991, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 27. mars 1991 Nefnd um skipulag Byggðastofnunar og fyrstu aðgerðir í byggðamálum: Byggðastjómir - aukið sjálfstæði héraða undirstaða nýsköpunar í atvinnulífmu I útreikningum frá Byggða- stofnun kemur fram að brott- flutningur fólks frá lands- byggðinni nemur á árunum 1981 til 1990 um 10,700 manns. Á árinu 1988 fluttu 1,560 manns af landsbyggðinni til Faxaflóasvæðisins, sem eru mestu búferlaflutningar frá landsbyggð til höfuðborgar á einu ári frá því skráning um fólksflutninga innanlands hófst. í framreiknaðri mann- fjöldaspá þar sem tekið er mið af þróun síðustu ára verður stöðnun í fólksfjölgun á lands- byggðinni til aldamóta og eftir það tekur landsbyggðarfólki að fækka. Fækkun hefur þegar átt sér stað ef einstök ár eru athuguð og fækkaði íbúum landsbyggðarinnar á árunum 1984 til 1986 og aftur á árinu 1989. Þá hafði landsbyggðar- fólki ekki fækkað síðan 1945 og 1946 er miklar breytingar áttu sér stað á atvinnuháttum landsmanna. Byggðastofnun gerir ráð fyrir að kostnaður og óhagræði vegna búsetuþróunar í líkingu við fram- angreinda útreikninga korni ann- arsvegar fram í vannýtingu auð- linda og mannvirkja á lands- byggðinni en hinsvegar í því að byggja þurfi ný og kostnaðarsöm þjónustumannvirki á höfuðborg- arsvæðinu, sem í mörgum tilvik- um séu til staðar á öðrum stöðum á landinu. Slíkri samþjöppu byggðar fylgi auk þess hætta á vaxandi mengun sem kostnaðar- samt gæti orðið að komast hjá. í greinargerð nefndar, sem ríkis- stjórn Islands skipaði í byrjun desember 1989 til að gera tillögur um skipulag Byggðastofnunar og fyrstu aðgerðir í byggðamálum segir meðal annars að vandi atvinnulífsins sé af svipuðum toga víðast hvar á landsbyggð- inni. Bent er á að atvinnulífið sé tiltölulega einhæft eða öllu held- ur óheppilega samansett miðað við þá þróun sem á sér stað í sam- félaginu. Pær atvinnugreinar sem hafa verið í örum vexti séu yfir- leitt aðeins í örlitlum mæli fyrir hendi á mörgum stöðum en atvinnugreinar þar sem samdrátt- ur sé að eiga sér stað að sama skapi ríkjandi. Hinar nýju atvinnugreinar einkennist einnig af meiri kröfum um þekkingu meðan frumframleiðslugreinar, þar sem lítið sé unnið úr hráefn- um, séu einkum stundaðar á jað- arsvæðum. Fyrirtæki á lands- byggðinni séu yfirleitt smá og mörg störf krefjist ekki mikillar sérþekkingar hjá starfsmönnum. í hugmyndum nefndarinnar um skipulag Byggðastofnunar og fyrstu aðgerðir í byggðamálum kemur einnig fram að mikilvægt sé að menn geri sér grein fyrir því að breytingar verði að eiga sér stað í atvinnulífinu á landsbyggð- inni. Ljóst sé að ný störf verði einkum til í þjónustugreinunum sem sjáist best af því að á síðustu árum hafi öll ný störf orðið til í þessum greinum og bein fækkun orðið í öðrum atvinnugreinum. Frumframleiðslugreinarnar hafa ekki vaxtarmöguleika Landsbyggðin hefur fyrst og fremst byggt afkomu sína á land- búnaði og sjávarútvegi. Báðar þessar atvinnugreinar hafa tak- markaða og nánast enga vaxtar- möguleika, sem stafar af tak- mörkuðum markaðsmöguleikum fyrir landbúnaðarafurðir og tak- markaðri hráefnisöflun úr lífríki sjávar. Alvarlegt ástand blasir því við mörgum byggðarlögun verði ekkert aðhafst. Því er ekki nægjanlegt að hefjast handa við hagræðingu í rekstri sem leiðir oftast af sér fækkun atvinnutæki- færa þótt rekstrarafkoma geti batnað. Fara verður inn á ný svið í sjávarútvegi og leita allra leiða til nýsköpunar. Einnig verður að efla þjónustugreinarnar á lands- byggðinni og stuðla á þann hátt að aukinni fjölbreytni atvinnu- lífsins. Enginn formiegur samstarfsvettvangur í héraði tii mótvægis við miðstjórnarhlutverk höfuðborgarsvæðisins Nefndin um skipulag Byggða- stofnunar og fyrstu aðgerðir í byggðamálum gerir ráð fyrir að undirstaða þess að breytingar og nýsköpun í atvinnulífinu á lands- byggðinni eigi sér stað sé að auk- ið vald verði fært til héraða og samstarf sveitarfélaga fari vax- andi. Bent er á að allflestar opin- berar aðgerðir hafi einhver áhrif á þróun byggðar og leiðir það hugann að nauðsyn þess að byggðasjónarmið verði meira höfð til hliðsjónar við mat á aðgerðum hins opinbera. Sam- ræma verði aðgerðir hinna ýmsu fagráðuneyta og fagstofnana þannig að heildaráhrif verði þau sem stjórnvöld ætlast til. í stað þeirrar sterku miðstýringar sem núvernadi fyrirkomulag stjórn- kerfisins byggist á sé nauðsynlegt að færa ákvarðanatöku í auknum mæli heim í hérað þar sem heimaaðilar geti sjálfir samræmt aðgerðir hinna ýmsu aðila og þannig nýtt það fjármagn betur sem til ráðstöfunar er hverju sinni. Nefndin bendir á að heima í héraði sé enginn formlegur sam- starfsvettvangur fyrir hendi sem myndað geti mótvægi gagnvart höfuðborgarsvæðinu og dregið úr miðstjórnarhlutverki þess og möguleikar til valddreifingar því litlir. Byggðastjórnum verði komið á fót Varðandi fyrstu aðgerðir í byggðamálum leggur nefndin til að komið verði á fót byggða- stjórnum sem virki sem einskon- ar landshlutastjórn og byggðaráð í merkingunni framkvæmdaráð byggðastjórnar. Héraðsnefndir skulu mynda byggðastjórnir í hverju kjördæmi er leysi þau verkefni sem þeim verði falin með lögum. Öllum sveitarfélög- um innan viðkomandi kjördæma verði skylt að eiga aðild að byggðastjórn og á þann hátt myndi sveitarfélög samstarfs- vettvang um úrlausn ákveðinna verkefna sem þeim verða falin. 400 200 il. il—Iril— ■H—h-.li ili .1. iti ili 1, .li .1, 1 -200 -400 -600 -800- -1000 -1200 -1400. -1600 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 Myndin sýnir fjölda aðfluttra umfram brottflutta á landsbyggðinni árin 1971 til 1990. Nefndin gerir ráð fyrir að heima- mönnum verði falið að ákveða með hvaða hætti kosið verði' til byggðastjórna enda geti aðstæð- ur verið mismunandi í einstökum landshlutum. Verkefni byggða- stjórnar eiga meðal annars að fel- ast í því að gera tillögur um fram- kvæmdaröð og skipulag opin- berra verkefna í héraði jafnframt því að gerðar verði áætlanir á sviði byggða- og atvinnuþróunar. Byggðaráð verði sá aðili innan héraðs sem beri ábyrgð á því gangvart ríkisvaldinu að árangur verði í samræmi við þau markmið sem sett verða. Verkefni byggðastjórnar og héraðsmiöstöðvar Nefndin gerir ráð fyrir að byggðastjórnum verði falin ákveðin verkefni. í því sambandi má fyrst telja byggðaáætlanagerð fyrir viðkomandi landshluta. Samgöngumál eins og gerð hafna og flugvalla auk vegagerðar verði í umsjá byggðastjórna. Öll fræðslumál heyri undir byggða- stjórnirnar og einnig umsjón heilsugæslu og sjúkrahúsa sveit- arfélaga auk löggæslu, málefna fatlaðra og annarra samstarfs- verkefna ríkis og sveitarfélaga. Tillögur neftidar um skipulag Byggðastofii- unar og fyrstu aðgerðir í byggðamálum 1. Meira vald verði fært til hér- aða og samstarf sveitarfélaga aukið. Kjördæmin verði efld stjórn- sýslulega og efnahagslega þann- ig að þau verði fær um að takast á hendur aukin verkcfni og meiri ábyrgð á eigin málum. Héraðsnefndir skulu mynda byggðastjórnir í hverju kjör- dæmi um lausn verkefna sem þeim verða falin með lögum. 2. Komið verði á fót héraðsmið- stöðvum í öllum kjördæmum á landsbyggðinni. Héraðsmiðstöðvum verði komið á fót í kjördæmum lands- byggðarinnar. Þar verði aðsetur byggðastjórnar auk ýmissa opinberra aðila. Einnig hafa ráðuneyti og stofnanir þar full- trúa sína sem annist stjórnsýslu í umdæminu. Þessir aðilar geri sameiginlega byggðaáætlun fyr- ir landshlutann. 3. Stefnumótandi áætlanagerð með virkri þátttöku heima- manna verði tekin upp á sviði byggðamála. Byggðastofnun verði falið í samráði við forsætisráðherra að gera tillögur að stefnumótandi áætlun í byggðamálum til fjög- urra ára í senn. í tillögunum komi fram helstu þættir sem áhrif hafa á þróun byggðar, framkvæmdaáætlun fyrir opin- berar framkvæmdir og framtíð- arstefnu stjórnvalda í byggða- og atvinnumálum, er tekur tillit til svæðisbundinna áætlana sem unnar verða af heimamönnum í hverjum landshluta. 4. Meirihiuti nýrra starfa í opin- berri þjónustu verði til á landsbyggðinni. Byggðastefna stjórnvalda getur falið í sér aukin umsvif í opinberri starfsemi. Nefndin ieggur tii að stjórnvöld setji sér það markmið að meirihluti nýrra starfa í opinberri þjón- ustu verið til utan höfuðborgar- svæðisins. 5. Sveitarfélög verði sameinuð. Sveitarfélög verði stækkuð verulega. Til dæmis má miða við að atvinnusvæði verði eitt sveitarfélag. Stækkun sveitar- félaganna er forsenda þess að þau geti tekist á hendur þau verkefni sem eðlilegt er að fela stjórnvaldi í héraði. 6. Atvinnuþróunarfélög verði efld og atvinnuþróunarsjóðir verði styrktir í kjördæmum landsbyggðarinnar. Stofnuð verði atvinnuþróun- arfélög og atvinnuþróunarsjóðir í héruðunum. Atvinnuþróunar- félög verði grundvallareiningar við skipulega atvinnuuppbygg- ingu í héraði. Tiltekinn hluti af tekjum vegna stóriðju renni meðal annars til þessa verkefn- is. 7. Jöfnun raforkuverðs og sam- eining orkufyrirtækja. Tafarlaust verði gerðar þær ráðstafanir sem tryggi að raf- orkuverð verði eitt og hið sama til allra dreifiveitna, og að raf- orkuverð í smásölu verði jafnað til sambærilegrar notkunar. Rafmagnsveitur ríkisins og Landsvirkjun verði sameinuð í eitt orkuöflunar- og dreifingar- fyrirtæki þar sem ríkið eigi meirihluta. 8. Skipting farþegaflutninga verði endurskoðuð og samræmd. Skipulag farþegaflutninga á sérleyfisleiðum á landi og í lofti verði endurskoðað og samræmt með það að markmiði að bæta þjónustu og auka hagkvæmni. 9. Byggðasjónarmiða verði gætt í almennri efnahagsstjórn. öruggur rekstrargrundvöllur sjávarútvegsfyrirtækja er meg- inforsenda þess að byggð þróist með eðlilegum hætti. Hér á landi er enginn annar atvinnu- vegur sem getur greitt þá beinu styrki sem sjávarútvegur í ná- grannalöndunum nýtur. 10. Fjárhagur Byggðastofnunar verði efldur. Eginfjárstaða Byggðastofn- unar hefur rýrnað óeðlilega rnikið, meðal annars vegna óhagstæðra aðstæðna í þjóðfé- laginu. Því er höfuðnauðsyn að eiginfjárstaða stofnunarinnar verði tryggð sem best til þess að hún geti sinnt því umfangsmikla hlutverki sem henni er ætlað. Að síðustu verði öll atvinnuþró- un, nýsköpun í atvinnulífi og málefni atvinnuþróunarfélaga á vegum viðkomandi byggða- stjórna. Nefndin leggur til að komið verði á fót héraðsmið- stöðvum þar sem byggðastjórnir hafi aðsetur auk fulltrúa ýmissa opinberra aðila sem annist stjórnsýslu og þjónustu í hverju umdæmi. Nefndin leggur til að héraðsmiðstöðvum verði komið á fót á ísafirði, Sauðárkróki, Akur- eyri, Egilsstöðum, Selfossi, Borgarnesi og í Keflavík. Byggðastofnun verði falið að hafa frumkvæði að því að koma á fót héraðsmiðstöðvum í sam- vinnu við heimamenn og aðra aðila er málið varðar. Samræmdar áætlanir hins opinbera og héraðsmiðstöðva Samkvæmt hugmyndum nefndar- innar um skipulag Byggðastofn- unar og fyrstu aðgerðir í byggða- málum felst hlutverk ríkisvalds- ins fyrst og fremst í því að móta stefnu í þessum málaflokki. Þar sem slík stefnumótun er pólitísk hlýtur hún fremur að fara fram innan ríkisstjórnar og á Alþingi en í stofnunum. Ef markmið ríkis- stjórnar eru skýr hvað byggðamál varðar auðveldar það starf hjá þeim aðilum sem hafa fram- kvæmd byggðamála með höndum. Fjárveitingar verði í samræmi við mótaða byggða- stefnu og stefnt verði að því að verulegum hluta fjárveitinga verði skipt milli einstakra verk- efna af heimaaðilum. Nefndin leggur áherslu á að meginmark- mið með þessari endurskipulagn- ingu sé að samræma aðgerðir hins opinbera í héraði og auka atvinnuþróunarstarfsemi enn frekar með þeim. Málið snýst um að tengja þróunarstarfsemi í héruðunum áætlanagerð á vegum hins opinbera. Eitt meginverk- efni Byggðastofnunar verði því að samræma áætlanagerð í opin- bera geiranum með sérstakri áherslu á áætlanagerð í lands- hlutum. Hlutverk héraðsmið- stöðva verði að gera hagrænar áætlanir og samræma opinberar aðgerðir hver í sínu héraði. Meirihluti nýrra opinberra starfa verði utan höfuðborgarsvæðisins Á tímabilinu frá 1981 til 1988 urðu til um 7,500 ný störf í opin- berri þjónustu. Um 2,500 þessara starfa urðu til á landsbyggðinni en um 5000 á höfuðborgarsvæð- inu. í skýrslu nefndarinnar segir að til þess að snúa þessari þróun við þurfi stjórnvöld að setja sér það markmið að meirihluti nýrra starfa í opinberri þjónustu verði utan höfuðborgarsvæðisins. Lagt er til að þessu markmiði verði náð á þann hátt að ráðuneyti og stofnanir hins opinbera geri grein fyrir því í fjárlagabeiðni hverju sinni hvernig þær hafi náð eða hyggist ná þeim markmiðum sem sett eru fram varðandi staðsetn- ingu nýrra starfa utan höfuðborg- arsvæðisins. Nefndin bendir á að á þennan hátt megi auka skil- virkni, bæta þjónustu og skapa

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.