Dagur - 11.04.1991, Síða 2

Dagur - 11.04.1991, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 11. apríl 1991 fréftir Ljoðasamkeppni Dags og MENOR: Skflafrestur tfl 26 Skilafrestur í Ljóðasamkeppni Dags og Menningarsamtaka Norðlendinga rennur úr 26. apríl næstkomandi, en það er síðasti póstlagningardagur. Ljóðin skal senda til Hauks Ágústssonar, formanns MENOR, Gilsbakkavegi 13, 600 Akureyri, og er fólk vin- samlegast beðið að hafa skila- frestinn í huga. Tveir flokkar eru í þessari sam- keppni, annar nær yfir Ijóð sem falla að hefðbundnu formi og hinn tekur yfir óbundin ljóð. Fyrstu verðlaun í hvorum flokki eru vegleg, íslenska alfræðiorða- apríl bókin, og einnig er íslandshand- bókin veitt sem viðurkenning í hvorum flokki. Ljóðin skulu vera vélrituð og auðkennd með dulnefni en rétt nafn höfundar ásamt heimilis- fangi og símanúmeri skal fylgja með í lokuðu umslagi. Þriggja manna dómnefnd mun fara ræki- lega yfir öll ljóðin og fá dóm- nefndarmenn ekki að vita nöfn höfunda fyrr en úrslit liggja fyrir. Dómnefnd lýkur störfum fyrir hvítasunnu og fer verðlauna- afhendingin fram í Gamla Lundi 20. maí. Þar mun formaður dóm- nefndar gera grein fyrir niður- stöðunum. SS ,Þurfum við að fylla öll rörin Aðaldalur: Fræðslufimdur um breytingaskeið Kvenfélag Aðaldæla stendur fyrir opnum fræðslufundi um breytingaskeið karla og kvenna, krabbamein, bein- Harður árekstur varð á mótum Þingvallastrætis og Byggða- vegar miðvikudaginn 3. apríl sl. um kl. 17.30 og auglýsir lög- reglan á Akureyri eftir vitnum að atburðinum. þynningu og fleira. Fundurinn verður haldinn að Ýdölum þriðjudaginn 16, apríl nk. og hefst kl. 20:30. árekstri vinsamlegast beðin að gefa sig fram við lögregluna á Akureyri. SS Framsögumenn á fundinum eru Jónas Franklín, kvensjúk- dómafræðingur og Halldóra Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðing- ur. Þau svara einnig fyrirspurn- um fundarmanna. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir, bæði karlar og konur. í fundarhléi verður selt kaffi. í byrjun febrúar stóð Sorop- timistaklúbbur Húsavíkur >og nágrennis fyrir slíkum fræðslu- fundi á Húsavík. Þrátt fyrir leið- indaveður mættu 140 manns á þann fund, en þó færri en vildu. Þingeyingum gefst nú annað tækifæri til upplýsingar um þessi málefni, en mjög vel var látið af fyrirlestrinum á Húsavík. IM Lögreglan á Akureyri: Vitni vantar að hörðum árekstri Sauðárkrókur: Fréttablaðið Feykir 10 ára - veglegt afmælisblað gefið út Fréttablaðið Feykir átti tíu ára afmæli í gær og í tilefni afmælisins kom út veglegt afmælisblað. Feykir er óháð fréttablað sem er gefið viku- lega út á Sauðárkróki. Rit- stjóri er Þórhallur Ásmunds- son og hefur hann ritstýrt Feyki s.I. þrjú ár. í afmælisblaði Feykis líjta aðstandendur blaðsins yfír far- inn veg og birtar eru fleygar setningar úr fréttum og greinum blaðsins frá tíu ára ferli. í stjórn blaðsins sitja Jón F. Hjartarson form., Sæmundur Hermanns- son, Hilmir Jóhannesson, Sigurður Ágústsson og Hjálmar Jónsson. Feykir er orðinn fastur í sessi sem vettvangur fyrir umræður og fréttir líðandi stundar á Norðurlandi vestra. Blaðið á fréttaritara í Austur- og Vestur- Húnavatnssýslu en í Skagafirðj sér Þórhallur ritstjóri um frétt- irnar en hann er fyrrverandi blm. á Degi. Dagur óskar afmælisbarninu og aðstandendum til hamingju á þessum merku tímamótum. kg Ungbændaráðstefna: Framtíðin er fólgin í umhverfisvænum búskap - norrænir ungbændur vilja standa vörð um dreifbýlið Að sögn Daníels Snorrasonar, lögreglufulltrúa, bar óhappið að með þeim hætti að Lancer fólks- bifreið var ekið austur Þingvalla- strætið. Þegar bifreiðin kom að gatnamótum Byggðavegar var vélsleða ekið yfir gatnamótin þvert í veg fyrir bílinn. Til að reyna að koma í veg fyrir árekst- ur þurfti ökumaður Lancersins að sveigja frá og yfir á öfugan vegarhelming en lenti þá á Honda bifreið sem ekið var í gagnstæða átt. Töluvert tjón varð á ökutækj- um og eru vitni að þessum Flugleiðir gefa landsmönnum kost á vorferðum til þriggja erlendra borga á frábæru verði. Nýtt VOR-fargjald til Kaupmannahafnar er kr. 26.690.- fyrir utan llugvallar- skatt. Gjaldið til London og Amsterdam er kr. 26.250.- Þessi fargjöld gilda frá öllum áfangastöðum Flugleiða á ís- landi, hvort sem farþegar hefja ferð frá Keflavík eða einhverj- um áætlunarflugvöllum félags- ins úti á landi. Ráðstefna ungra bænda á Norðurlöndum var haldin að Laugarvatni dagana 21.-26. mars sl. Ungmennafélag íslands sá um undirbúning og skipulag ráðstefnunnar sem fjallaði um umhverfís- og offramleiðslumál í landbúnaði. Flugleiðir bjóða þetta fargjald í tengslum við útkomu og kynn- ingu á sumarferðabæklingi félagsins „Út í heim“ í næstu viku. Fyrstu 500 farþegarnir sem bóka sig á þessu fargjaldi og gista á einu af samningshótelum Flug- leiða í Kaupmannahöfn, London og Amsterdam um helgi meðan pláss leyfir, fá þriðju gistinóttina þar fría og þeir sem leigja bíl í viku hjá samningsbílaleigu Flug- leiða, fá einn dag frían. Allir millilandafarþegar Flug- leiða ferðast í nýjum og glæsileg- í ályktunum ráðstefnunnar kennir margra grasa og víða er komið við sem sjá má á þeim ályktunum sem gripnar eru út úr löngum lista fundarsamþykkta: „Ungir bændur á Norðurlönd- um vilja standa vörð um hinar dreifðu byggðir landanna og vekja á því athygli yfir hvaða um farkostum félagsins og geta valið sér ferðadag við hæfi, því á gildistíma þessa fargjalds fljúga Flugleiðir daglega til Kaup- mannahafnar, 5 sinnum í viku til London og 3-4 sinnum í viku til Amsterdam. VOR-gjaldið gildir frá 8. apríl og síðasta ferð heim til íslands á þessu fargjaldi er 31. maí. Há- marksdvalartími er 30 dagar en lágmarkstími er enginn, en dvelja verður erlendis aðfararnótt sunnudags. Bóka þarf farmiða og greiða samtímis. kostum landsbyggðin býr þar sem mannlíf er persónulegra, þar sem minna álag er á umhverfinu og þar eigi öllum að geta liðið vel þar sem tengsl hins daglega lífs við það sem lifir og vex er meira en í þéttbýlinu. Til að tryggja landbúnaðinum framtíð þarf að stefna að umhverfisvænum búskap sem skal hafa að markmiði að skila landinu í betra ástandi til næstu kynslóða og standa vörð um þær auðlindir sem fyrir eru og arð- ræna þær ekki. Ungir bændur á Norðurlönd- um vilja leggja á það áherslu að staða landanna í frjálsri samein- aðri Evrópu getur orðið veik og að mikilvægt sé að löndin fram- leiði eigin mat sem stuðlar að sjálfstæði þessara þjóða og ekki hvað síst íslands þar sem með því er sjálfsákvörðunarréttur styrkt- ur og um leið staðið vörð um þjóðmenningu landanna, en svo mikilvægu hlutverki gegnir land- búnaðurinn og landsbyggðin að þau verða að viðhaldast. Möguleikar Norðurlandanna eru miklir og margir vannýttir og er ástæða fyrir landsbyggðarfólk að vera bjartsýnt vegna allra þeirra lífsgæða sem í boði eru við að búa í hinum dreifðu byggðum í framtíðinni vilja menn vinna saman, trúa á árangur, Norður- löndum og landbúnaði þeirra til heilla.“ ój Miðgarður: Söngveisla á laugardag Karlakórinn Heimir í Skaga- fírði stendur fyrir stórkonsert í Miðgarði n.k. laugardag. Þar koma fram þrír aðrir kórar auk Heimis og taka alls um hundr- að og sjötíu söngmenn þátt í dagskránni. Á söngskemmtuninni koma fram: Karlakórinn Söngbræður úr Borgarfirði en kórstjórnandi er Sigurður Guðmundsson. RARIKkórinn, sem er blandað- ur kór úr Reykjavík og söngstjóri er Violetta Smith. Rökkurkór- inn, sem er blandaður kór úr Skagafirði en söngstjóri er Sveinn Árnason. Lagaval söngdagskrárinnar verður fjölbreytt og ættu unnend- ur kórsöngs að finna eitthvað við sitt hæfi. Að lokinni söng- skemmtuninni verður dansleikur þar sem hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi. kg Flugleiðir bjóða hagstætt vorfargjald til þriggja borga Evrópu: Sama verð M ölliun stöðum Flugleiða innanlands

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.