Dagur - 11.04.1991, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 11. apríl 1991 - DAGUR - 5
Lýsing á hreinlætismálum og læknisþjónustu á Húsavík:
Fjöldi fólks ósammála eða sár
vegna ummæla í helgarviðtaM
„Hann þótti undraverður sem
fæðingarlæknir, og það gréri
margt sárið eftir meðhöndlun
hans. Hann var ævinlega góður
þegar til hans var leitað, jafnt
þó hann væri dauðuppgefinn
eftir erfið ferðalög,“ sagði
aldraður Húsvíkingur sem
kom við á skrifstofu Dags í
gærmorgun og rifjaði upp sam-
skipti sín við lækni þann sem
gagnrýndur er í helgarviðtali
Dags síðasta laugardag.
Mörgum öldnum Húsvíkingum
sárnaði greinilega iila við lestur
kafla í þessu viðtali þar sem
greint er frá miklum sóðaskap á
Húsavík og ástsæll læknir gagn-
rýndur. Vakti þessi kafli viðtals-
ins mikil viðbrögð og fólk hefur
hringt og komið á skrifstofu Dags
og mótmælt mörgu sem þar kem-
ur fram, en þó ekki kært sig um
að standa í opinberum deildum
um efni hans.
Vegna hinna miklu viðbragða
sem orðið hafa vegna fullyrðinga
í viðtalinu hafði Dagur samband
við Ragnheiði Bjarnadóttir sem
ólst upp á Húsavík, man þessa
tíma og var heimagangur í
læknisbústaðnum. Var Ragn-
heiður m.a. spurð um meintan
sóðaskap Húsvíkinga. „Það er
svo leiðinlegt að sagt sé að
Húsvíkingar hafi verið sóðar að
ég kemst bara ekki yfir þetta. Ég
var í sveit, bæði á Laxamýri og í
Múla og á Litluströnd, og svo
keyrði ég vörubíl fram í sveitirn-
ar og kom á marga bæi. Ég get
svarið það að hvergi varð ég vör
við neinn sóðaskap, hvorki á
bæjunum eða á Húsavík. Síst af
öllu sá ég að sóðalegra væri á
Húsavík en í sveitinni. Ég er því
reglulega sár fyrir okkar hönd
yfir þessum ummælum, eins
yndislegt samfélag og var á Húsa-
vík. Ég veit að sótthreinsunar-
tæki var til hjá lækninum og dag-
inn eftir að ég fermdist var ég
skorin upp við botnlangabólgu,
með sprunginn botnlanga, og það
komst engin baktería í þann
skurð.“
Ragnheiður sagðist hafa verið
nemandi í barnaskólanum þegar
honum var lokað vegna tauga-
veikinnar og vel muna er kven-
félagið beitti sér fyrir lagningu
vatnsveitunnar. Hún sagði að
ung stúlka hefði verið ráðin til að
gæta barna læknishjónanna en
hún hefði verið með bullandi
berkla án þess að neinn áttaði sig
á því og því hefðu börnin smitast.
Ragnheiður segist vita að ekki
hafi verið meiri berklar á Húsa-
vík en annars staðar og þar hafi
sóðaskap alls ekki verið um að
kenna.
Það er greinilegt að ekki eru
allir sammála þeim kafla helgar-
viðtalsins 6. apríl sl. sem lýsir
læknisþjónustu og hreinlætismál-
um á Húsavík fyrr á öldinni. IM
Norðurland eystra:
Kosningaskrifstofur |||[
Framsóknarflokksins ""
Aðalskrifstofa
Hafnarstræti 90, Akureyri,
opið alla virka daga
ki. 9-22.
Símar: 21180 - 26054 - 26425.
Kosningastjóri:
Sigurður P. Sigmundsson.
Verið velkomin í súpu og brauð í hádeginu. Frambjóðend-
ur á staðnum.
Dalvík:
Skrifstofan, Hafnarbraut 5, verður opin alla virka daga kl.
20-22. Sími 96-63191. Kosningastjóri: Óskar Pálmason.
Húsavík:
Skrifstofan, Garðarsbraut 5, verður opin alla virka daga kl.
20-22. Sími 96-41225. Kosningastjóri: Ævar Ákason.
Stuðningsmenn B-listans
* Við minnum á að utankjörstaðaatkvæðagreiðslan er
hafin.
* Hafið samband við kosningaskrifstofuna og takið þátt í
kosningastarfinu.
Framsóknarflokkurinn.
Margir sem þekktu til á þess-
um árum fullyrða að sóttvarnar-
tæki hafi verið til hjá umræddum
lækni og lofa hann fyrir leikni við
skurðaðgerðir við erfiðar aðstæð-
ur. Talið er að í viðtalinu rugli við-
mælandi saman berklum og tauga-
veiki þegar talað er um smit úr
drykkjarvatni. Það hafi verið
drifið í lagningu vatnsveitu sem
gengið hafi lygilega fljótt, og hafi
hún verið tekin í notkun sumarið
1926 eftir að fólk hafi lagt fram
mikla sjálfboðavinnu.
Orðinn fastur liður
á Akureyri:
Heiðar kynnir nýja
snyrtívörulínu
íYnju
Það hefur færst mjög í vöxt á
undanförnum árum að fagfólk
kynni snyrtivörur hvort sem um
er að ræða nýja snyrtivörulínu
eða snyrtivörur sem hafa verið á
markaðnum undanfarin ár.
Einn er sá aðili sem er þekkt-
astur fyrir brautryðjendastarf, á
þessu sviði og hefur hlotið
almenna viðurkenningu á undan-
förnum árum, það er Heiðar
Jónsson snyrtir. Heiðar hefur
verið tíður gestur á Akureyri
undanfarin ár og starfað fyrir
Snyrtistofuna Evu, en lengst af
hefur hann starfað fyrir Eddu
Hermannsdóttur íþróttakennara
og þá haldið námskeið og fyrir-
lestra.
Nú mun Heiðar heimsækja
verslun Eddu og Sigríðar Waage,
Ynju í Sunnuhlíð og miðla við-
skiptavinum þeirra af þekkingu
sinni.
Hann verður í versluninni
föstudaginn 12. apríl milli kl.
14.00 og 18.00. Heiðar mun einn-
ig verða með litgreiningar- og
snyrtinámskeið föstudag og laug-
ardag. Nánari upplýsingar fíiið
þið í síma 25977.
Kynning sem þessi hefur yfir-
leitt komið sér vel fyrir viðskipta-
vini verslana hvað varðar val á
tegundum og notkun þeirra.
Verslunin Ynja hefur nú hafið
sölu á LAYLA snyrtivörum auk
þess sem fyrir eru CLAUDE
LAGNY snyrtivörur.
(Fréttatilkynning).
Ljóbasamkeppni
Dags og MENOR
Menningarsamtök Norblendinga og dagblabib Dagur
hafa ákvebib ab efna til samkeppni í Ijóblist
Keppnin verbur í tveimur flokkum Ij'óba:
a) Hefðbundin Ijóö
b) Óbundin Ijób
Verblaun fyrir besta Ijó&ib í hvorum flokki eru íslenska alfræbiorbabókin.
Sérstök vi&urkenning fyrir anna& besta ljó&i& í hvorum flokki er íslandshandbókin
íslenska alfræbior&abókin er lit-
prentuð í þremur bindum og hefur
að geyma um 37 000 uppflettiorð
og lykilorð, auk um 4500 Ijós-
mynda, teikninga og korta og
taflna sem auka upplýsingagildi
hennar. Útgefandi er Örn og
Örlygur.
4 ' -'4k
. :■:
m'0
Þau ljó&, sem hljóta ver&laun e&a
vi&urkenningu, ver&a birt í Degi og
Fréttabréfi MENOR. Abstandendur
keppninnar áskilja sér einnig rétt til aö birta
önnur Ijóö, sem send veröa til keppninnar.
Engin mörk eru sett um lengd Ijóöanna í
keppninni.
Ljó&in skal senda undir dulnefni, en meö skal
fylgja rétt nafn, heimilisfang og símanúmer í
lokuöu umslagi, au&kenndu dulnefninu.
íslandshandbókin er tvö
bindi, rúmlega 1000 blað-
síður. Efni bókarinnar er
skipt eftir sýslum. í upphafi
hvers kafla er sýslukort,
sérstaklega teiknað fyrir
bókina. Utgefandi er Örn
og Örlygur.
Skilafrestur Ijóöa er til 26. apríl nk., sem er
sí&asti póstsendingardagur.
Utanáskriftin er;
Menningarsamtök Norölendinga
b/t Hauks Ágústssonar
Gilsbakkavegi 13
600 Akureyri
Menningarsamtök Norblendinga — Dagur