Dagur - 01.06.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 1. júní 1991
Fiskeldi Eyjafjarðar hf.
Aðalfundur
Fiskeldis Eyjafjarðar hf.
verður haldinn að Freyjulundi, Arnarneshreppi þriðju-
daginn 4. júní nk. kl. 16.00.
Stjórnin.
Húsnefnd Hamars óskar eftir
starfskrafti til starfa
í Hamri félagsheimili Þórs.
Starfstími er júní, júlí, ágúst starfið felst í daglegum
rekstri Hamars ásamt öðrum verkefnum.
Upplýsingar um starfið eru veittar í Hamri laugar-
daginn 31. maí milli 13 og 15.
Húsnefnd Hamars.
Iðnráðgjafi
Norðurlands vestra
Starf iðnráðgjafa Norðurlands vestra er laust til
umsóknar.
Skrifstofa iðnráðgjafa er á Blönduósi. Starfið felst í
ráðgjöf fyrir fyrirtæki, aðstoð við þróunarverkefni og
hvers konar eflingu atvinnulífs á svæðinu.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun á við-
skipta- eða atvinnuþróunarsviði og/eða starfs-
reynslu í atvinnurekstri (stjórnun).
Starfið krefst frumkvæðis og sjálfstæðis auk þess
sem því fylgja ferðalög.
Óskað er eftir að umsóknir séu skriflegar.
Umsóknarfrestur er til 20. júní nk.
Upplýsingar gefa Knútur Aadnegard, formaður Iðn-
þróunarfélagsins, í síma 95-35669 (á kvöldin og um
helgar) og Unnur G. Kristjánsdóttir, iðnráðgjafi í
síma 95-24981 og 95-24357.
Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra.
AKUREYRARBÆR
Lausar
ken narastöðu r
Við BARNASKÓLA AKUREYRAR, vantar
bekkjarkennara, smíðakennara og sérkennara í
1/i stöður, hannyrðakennara í Vz stöðu og heimil-
isfræðikennara í Vz stöðu.
Upplýsingar í síma 96-24449.
Við GLERÁRSKÓLA, vantar bekkjarkennara,
raungreinakennara, myndmenntakennara,
smíðakennara og heimilisfræðikennara í 1/i stöð-
ur og tónmenntakennara í V2 stöðu.
Upplýsingar í síma 96-21395.
Við LUNDARSKÓLA, vantar hannyrðakennara í
V2 stöðu.
Upplýsingar í síma 96-24888.
Við SÍÐUSKÓLA, vantar bekkjarkennara,
dönskukennara og enskukennara í 1/i stöður,
tónmenntakennara í V2 stöðu og íslensku-
kennara í % stöðu.
Einnig er staða yfirkennara laus til eins árs.
Upplýsingar í síma 96-22588.
Við GAGNFRÆÐASKÓLA AKUREYRAR, vant-
ar sérkennara í 1/i stöður, enskukennara, smíða-
kennara og vélritunarkennara í V2 stöður og
kennara í heimilisfræðum í % stöðu.
Upplýsingar í síma 96-23398.
Umsóknarfrestur er til 24. júní.
Einnig veittar upplýsingar hjá skólafulltrúa í síma
96-27245.
Skólafulltrúi.
Úr
Davíös-
húsi
Kæru lesendur, nær og fjær!
Enn vil ég þakka fyrir mig.
Á afmælisdegi móður minnar
(Jónínu Sigmundsdóttur frá
Hvammsgerði í Selárdal og
Vopnafirði. Hún varð áttatíuog-
einsársgömul þriðjudaginn
tuttugastaogáttunda blessunin;
jafnlöng tvö orðin þarna og lífið
virðist stutt að baki þegar horft
er um þá frægu öxl: æviskeið
allt ein andrá hneppt í
skuggsjá) var bara blíðan í
bænum: Akureyrarveðrið!
Og eftir sólfagran dag heið-
ríkjunnar hartnær ómögulegt að
mjaka sér inn úr asparilmi
kvöldsins: andrúmsloftið kattar-
þófar á kínversku silki. . .
Ég verð þó að biðja ykkur að
strjúka smásinu og gráma yfir
Ijósgræn lauf trjánna, eins og
þau eru hárnákvæmlega núna,
augnablik það sem tekur að
lesa þennan litla texta.
Best væri að framkalla laufin
í lit og birta í orða minna stað
þessa dýrlegu tíð ...
Áfram veðrið, áfram veginn!
Bjarkarstíg 6,
600 Akureyri.
Krossmessa á vori.
Nokkur orð gegn doðanum,
„mot sveda och verk“ eins og
sviinn segir.
Það sem ég hefi upp á að
bjóða er án efa ósköp léttvægt
og lítilfjörlegt, eins og gengur.
Ljóðorð og geislafiskar um
sólina og vorið, tákngræn ský
og tálblátt gras . . .
Fæst víst lítið fyrir slíkt í búð-
inni!
Á því safni í dag augnaði ég
gegnum íslending-ísafold 1970
(allan árganginn (leitaði meðal
annars uppi og Ijósritaði minn-
ingargrein mína um James
Marshall Hendrix: aðeins um
látinn liberalista)) og guð minn
góður: hvað hefur svosum gerst
hér síðan!
Nóg um það, ástand sund-
laugar, hagfót menningar og
framfærslukostnaðar.
Hvorki stund né staður til að
reikna út fermetrafjölgun né
fasteigna ditó þó svo fækkað
hafi um einn í bænum síðustu
tíu árin og tvo síðan sextíuog-
níu.
Þrátt fyrir það á ég fullt í.fangi
með jarðsambandið stundum
þegar svo ber undir: hugsanir
mínar æða á óstjórnlegum
hraða sem leiftur gegnum heila-
hvelin og gildir þá öllu að tengja
rétt hina ósýnilegu þræði svo
kvikni Ijós og verði.
í dag sá ég grasið grænka og
heyrði það syngja, og fyrstur
Akureyringa sá ég fífil í ár: gló-
andi sóló fyrir sunnan Amtið!
Og hverfur nú sinan með
hverri klukkustund.
Ekki skaðaði heldur það
milda regn seinnipartinn.
Gróðrarskúr.
Ó unaður vaxtar og grósku,
fjarri allri flatneskju fram-
kvæmdaleysisins!
Ég horfði út um gluggann á
safnaðarheimilinu um sjöleytið í
kvöld og datt ekkert annað í
hug þegar ég sá Sigurhæðir
sálmaskáldsins heldur en að
lýsa stiganum sem hafði verið
slengt upp á nýtt þak niður-
níðslunnar (en nenni því svo
ekki) eða trjánum fyrir sunnan
húsið sem virtist hafa verið tyllt
niður í morgun: krónurnar svo
naknar og hreinar eftir regnið
og strákpjakkur í bolta í úðan-
um.
Heiðin, eins og áður, fyrir
handan; ósköp heiðarleg grey-
ið.
Pollur úfinn.
Og mér verður Ijóst þegar ég
lít í almanakið að það eru marg-
ir helgidagar framundan á kirkj-
unnar vegum: Bænadagar,
Uppstigningardagur og Pan-
kratíusmessa, sjálf Hvítasunn-
an og svo Þrenningarhátíðin.
Ja, drottinn minn dýri!
En dýrð sé guði í upphæðum,
svo á Sjónarhæð sem í Þórunn-
arstræti hyrnu og Glerárþorpi.
Og algjör óþarfi að hugsa
fram í Skerplu á Hörpu.
Núna vildi ég helst stöðva
klukkuna (horfi enn út um kjall-
araglugga þjóðskáldsins, á
þessa klassísku svörtu og tá-
grönnu fingur trjánna teygja sig
og teygja og bera loks við
blágrá blæbrigði himins gegn-
um Ijósið á Ijósastaurnum) og
blanda geði við rökkrið þegar
skyggir eins og núna . . .
Þetta á bilinu tíu mínútur í
ellefu og fimm mínútur yfir og
núna korteri seinna er alveg
orðið dimmt.
Lágskýjað.
Norðan andvari.
Spáð kólnandi.
Sjaldan að marka veður-
spána í sjónvarpinu enda horfi
ég aldrei á hana.
Snyríivöruverslunin L^OUVj Kaupangi
Sokkabuxur munstraðar og einlitar, margir litir. /^*=5SS5i^fc
Hnésokkar, margir litir. Gammosíur með blúndu. I
Samfellur og sundbolir. Sokkabönd og sokkar.
Bindi og bindisnœlur.
Nýr og fróbœr sumarilmur t.d.:
Blue summer - Chanaz - Passy - Sweety - Rendez Vous
Mikið úrval af snyrtivörum t.d.:
Barbara Gould - Kean & Lo - Lumene - No 7.
Og nú loksins á íslandi,
eitt frábœrasta merki í snyrtivörum
ÍSABELLE LENCRAY.
Nýkomin frábœr sending af Lou nœrfötum
frá stœrðum 70 A til 105 D.
Öðruvísi belti.
Lfttu inn.
Nœg bílastœði.
Viltu losna við stórmarkaðs-stressið og
versla í þœgilegu umhverfi?
in Cóav
Snyrtivöruverslunin V^ULLý Kaupangi,
Opið mán.-föst. 10-12 og 13-18. Laug. 10-12. Sími 11209.