Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 2

Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 27. júlí 1991 Fréttir Rækjuvinnsla: Nóg að gera hjá Dögun og Særúnu - tæpur mánuður liðinn frá uppsögnum á starfsfólki Óttast var um þrjá pilta á hálendi íslands: Hætt við leit vegna upplýsinga í gestabók „Formleg leit að piltunum þremur var vart hafin frekar er hægt að tala um eftir- grennslan og undirbúning leitar,“ sagði Þór Magnússon hjá Slysavarnafélagi Islands, þegar hann var spurður um þær ráðstafanir sem Slysa- varnafélagið gerði á fimmtu- daginn vegna tveggja Þjóð- verja og Islendings sem héldu fótgangandi í hálendisferð þriðjudaginn 16. júlí frá Haldi við Tungnaá. Að sögn Þórs hafði ekkert heyrst frá piltunum, en þeir ætl- uðu að láta heyra frá sér fyrir viku er þeir kæmu í Nýjadal. Slysavarnafélagið hafði sam- band við menn frá Orkustofnun og við menn er vinna að brúar- gerð norðan jökla. Haft var samband við fleiri er höfðu ver- ið á hálendinu og á þann hátt fengust staðfestar upplýsingar um dvöl piltanna í skálanum Þúfuveri. Jafnframt fengust þær upplýsingar að piltarnir höfðu farið yfir Þjórsá við illan leik, en vatnsföll voru mjög ill yfir- ferðar vegna vatnavaxta. „I ljósi þessara upplýsinga og fleiri var Landsstjórn Slysa- varnafélagsins kölluð saman síðla dags á fimmtudag. Þá strax var ákveðið að senda bíla frá Hellu, Hvolsvelli, Akureyri og Fnjóskadal til að kanna gestabækur í skálum. Okkur barst síðan tilkynning um að piltarnir höfðu verið í skála á Bleiksmýrardal sem er inndalur Fnjóskadals. Nöfn þeirra voru í gestabók og þar greinir frá að næsti áfangi ferðarinnar væri vestur yfir fjöllin niður í Garðs- árdal til Akureyrar. Því var undirbúningi allsherjarleitar hætt. Þessi atburður kennir okkur að ef farið er í ferðir sem þessa þá verða menn að fylgja áætlun og standa við að hafa samband á þeim tímum sem ákveðið er. Slíkt er frumskilyrði góðrar fjallamennsku ásamt því að taka ekki óþarfa áhættu,“ sagði Þór Magnússon hjá Slysa- varnafélagi íslands. ój Húsavík: „Rækjan og þorskurmn halda þessu gangandi“ - sagði Kristján Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Tæpur mánuður er liðinn frá því starfsfólki rækjuvinnslanna Dögunar á Sauðárkróki og Særúnar á Blönduósi var sagt upp. Óvissa ríkir um framtíð rækjuvinnslu í landinu en þessa dagana er nóg að gera hjá Dögun og Særúnu. Ómar Þór Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Dögunar, sagði í samtali við Dag að unnið væri 12 tíma á dag og vikuvinnslan á rækju væri um 25-35 tonn. Dög- un gerir út rækjuskipið Röst SK 17 en tekur einnig við rækju frá Jökli SK. Alls eru 25 manns á launaskrá hjá Dögun og sagðist Ómar halda að nóg yrði að gera fram í septembermánuð. Rækju- Loðskinn hf.: Lítur nokkuð vel út með verkeftiiíhaust - sumarleyfi starfs- fólks fram í miðjan ágúst Birgir Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Loðskinns hf. á Sauðárkróki, segir að nokkuð vel líti út með verkefni í haust og búast megi við að þurfí að fjölga starfsinönnum. Sumarfrí starfsfólks hófst þann 15. júlí sl. og stendur fram í miðjan ágúst. „Við erum að gera að vélum og undirbúa komandi vertíð. Það lítur nokkuð vel út með verkefni í haust. Við verðum þá jafnvel með ívið fleiri starfsmenn en að undanförnu,“ sagði Birgir. Hann sagði að unnið yrði fyrir hefð- bundna markaði, fyrst og fremst Ítalíu, Bretland og Danmörku. Birgir segir fyrirsjáanlega mikla fækkun sauðfjár vissulega áhyggjuefni fyrir skinnafyrirtæk- in í landinu. „Við fáum hins veg- ar litlu um það breytt. Það er að vísu betra að fækkunin verði smám saman en allt í einu. Við erum ekki byrjaðir að bregðast við þessu með innflutningi skinna. Það eru þó vissir mögu- leikar í því, sem verið er að kanna,“ sagði Birgir. óþh Árskógshreppur: Rinn sótti um hrepp- stjórann Umsóknarfrestur um stöðu hreppstjóra í Arskógshreppi er runninn út. Að sögn Elíasar I. Elíassonar, sýslumanns í Eyjafjarðarsýslu, barst aðeins ein umsókn um stöðuna. Elías kvaðst munu senda við- komandi sveitarstjórn, hrepps- nefnd Arskógshrepps, umsókn- ina til umsagnar. Það skýrist síð- an væntanlega á næstu dögum hvort þessi untsækjandi verður skipaður hreppstjóri. SS bátar hafa aflað vel og kvóta- staða þeirra ágæt. Ómar átti von á að kvótinn kláraðist fyrir 1. september ef myndi fiskast áfram eins vel og gert hefur. Að sögn Ómars eru litlar birgðir til af rækju hjá Dögun. „Annars mætti rækjuverðið vera betra og við vonumst til að það fari að síga upp. Birgðastaða hjá öðrum rækjuvinnslum er lítil og það má spyrja sig af hverju það er. Annað hvort er neyslan erlendis orðin þetta mikil eða grundvöllur kominn fyrir verð- hækkun,“ sagði Ómar Þór. Rækjan frá Dögun fer á markaði til Englands, Þýskalands og Dan- merkur auk þess sem Hagkaup kaupir rækju fyrir sína stórmark- aði. Aðspurður um hvort uppsagnir starfsfólk taki gildi í september sagði Ómar að verið væri að skoða þau mál ofan í kjölinn. „Útkoman fyrstu mánuði ársins er í skoðun og við vonumst eftir að stjórnvöld taki einhverjar ákvarðanir. Annars finnst mér vanta meiri samstöðu meðal rækjuframleiðenda í landinu. Hingað til hafa menn verið að kljást um hráefnið og sumir opn- að budduna meir en aðrir og safnað skuldum í leiðinni. Þetta er eins og hver annar fiskmarkað- ur þar sem verið er að bjóða í rækjuna," sagði Ómar Þór Gunn- arsson hjá Dögun á Sauðárkróki. -bjb Þegar bætur almannatrygginga vegna ágústmánaðar veröa greiddar út, munu lífeyrisþeg- ar meö tekjutryggingu fá uppbót, sem er í samræmi við kjarasamninga á vinnumarkaði um greiðslu orlofsuppbótar. Samkvæmt upplýsingum Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, Togarinn Kolbeinsey ÞH frá Húsavík kom til löndunar af Vestfjarðarmiðum í morgun. Aflinn er ágætur þorskur sem fer til vinnslu í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Togarinn stundar þorsk- og ýsuveiðar að mestu. deildarstjóra hjá Tryggingar- stofnun ríkisins, fá þeir fulla uppbót, kr. 7.371, sem hafa óskerta tekjutryggingu, heimilis- uppbót og sérstaka heimilisupp- bót. Tekjutryggingaraukinn skerðist svo í sama hlutfalli og þessir bótaflokkar hjá lífeyris- þega. Þeir sem ekki njóta tekju- Tveir togarar eru gerðir út frá Húsavík. Júlíus Havsteen ÞH er Höfði hf. gerir út og Kolbeinsey ÞH sem gerður er út af íshafi hf. Framkvæmdastjóri fyrirtækjanna er Kristján Ásgeirsson. Að sögn framkvæmdastjórans tryggingar fá því enga uppbót. Sem dæmi um upphæðir helstu bótaflokka almannatrygginga 1. ágúst nk. má nefna elli/örorkulíf- eyri (grunnlífeyrir) kr. 12.123, full tekjutrygging kr. 26.989, barnalífeyrir vegna 1 barns kr. 7.425 og fæðingarstyrkur kr. 24.671. óþh hefur útgerð skipanna gengið þolanlega. Það sem af er árinu hefur Kolbeinsey ÞH landað rúmlega 1700 tonnum af þorski og ýsu, en árskvóti togarans er liðlega 2000 þorskígildi. Júlíus Havsteen ÞH er á rækju og gengur vel. Árskvóti Júlíusar er 1200 þorskígildi sem Kolbeinsey ÞH hefur veitt að mestu. „Við gerum Kolbeinsey ÞH mest út á þorsk og ýsu. Að vísu fer togarinn í einn karfatúr á ári og þá er siglt með aflann. Við höfum ekki aðstöðu til að vinna karfa á Húsavík. Skipinu verður nú lagt í viku og sjómennirnir fara í frí. Fiskverkafólkið í Fisk- iðjusamlaginu fer síðan í vikufrí þegar togarinn heldur á miðin á ný. Ekkert frí verður gefið í rækjuvinnslunni. Fimm skip stunda rækjuveiðarnar um þessar mundir, fjögur stór og eitt lítið. Mannlífið á Húsavík gengur sinn vana gang. Að vísu eru aflabrögð smábáta með minna móti. Rækj- an og þorskurinn halda þessu gangandi. Mér sýnist að við náum að halda togurunum að veiðum út kvótaárið, en þá með tilfærslum á milli togaranna og trúlega verða fáein tonn keypt sem fyrr,“ sagði Kristján Ásgeirs- son, framkvæmdastjóri. ój Akureyri: 1130 manns komu á völlinn Ekki hafa komið jafn margir áhorfendur á knattspyrnuleik á Akureyri í sumar og á leik Þórs og KR í átta liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar sl. fímmt udagsk völd. Samkvæmt upplýsingum vall- arstarfsmanna borguðu 1130 manns sig inn á völlinni og hafa ekki fleiri sótt knattspyrnuleik á Akureyrarvelli á þessu sumri. Ef að líkum lætur fóru flestir þeirrra ánægðir heim, enda úrslit leiksins hagstæð fyrir stuðningsmenn norðanliðsins. óþh Þessir þrír fuglavinir, Arnar, Daði og Atli komu þessum æðarunga, sem bar sig illa við Höepfnersbryggju í vikunni, til hjálpar. Mynd. Gollj Tryggingastofnun: Tryggingarauki greiddur í ágúst

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.