Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 8

Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 27. júlí 1991 BÍLAR Volkswagen CaraveDe GL „Caravelle GL er ótrúlega rúmgóður fyrir 7 manns og farangursrýmið ríkulegt.“ Fyrsti Volkswagen sendibíllinn, sem hét Transporter, var kynntur árið 1949. Pað var umboðsmaður VW í Hollandi sem var upphafs- maður þess að VW hóf smíði bíl- anna sem hérlendis gengu undir nafninu „rúgbrauð" næstu 40 árin. Hollendingurinn Ben Pon hafði séð sérkennilegan pallbíl með stýrishúsið aftan við pallinn sem notaður var við flutninga í VW-verksmiðjunum í Wolfsburg og taldi hann mögulegt að selja farartæki þetta á almennum markaði i Hollandi. En hollensk yfirvöld töldu að bílstjórinn yrði í öllum tilfellum að sitja fremst í farartæki sínu og neituðu Pon um innflutningsleyfi. Pon hafði hins vegar rétt fyrir sér um þörf fyrir einfalt, ódýrt og rúmgott flutn- ingatæki í stríðstættri Evrópu þeirra tíma og liðlega 2 árum seinna, í mars 1950, hóf Volks- wagen smíði „rúgbrauðsins". Talsverðar endurbætur voru gerðar á VW-Transporter/ Caravelle (Caravelle er fólks- flutningabíllinn eða smárúta) á þessum 40 árum og ótalmargar útgáfur sáu dagsins Ijós, sendibíl- ar, fólksflutningabílar, pallbílar, sjúkrabílar, húsbílar o.s.frv. Bíll- inn var rúmgóður og lipur í akstri en þótti lengst af vélarvana, og vegna þess að vélin var afturí, var bíllinn dálítið viðkvæmur fyrir hliðarvindi. Þyngd vélarinnar yfir drifhjólunum gerði hann hins vegar duglegan í vondri færð. Vatnskæling var sett í boxervél- ina í stað Ioftkælingar fyrir nokkrum árum og við það minnkaði hávaðinn mikið, og mér þótti nýjasta útgáfa gamla góða „rúgbrauðsins" sérlega ánægjulegur bíll. Pað var því með nokkrum kvíða sem ég settist undir stýri í arftakanum, Volkswagen Cara- velle GL. Hér er um alveg nýjan bíl að ræða og þar er rækilega horfið frá fyrra byggingarlagi því þessi bíll er með vélina þversum að framan og drif á framhjólum. Margar gerðir eru fáanlegar eins og af fyrirrennaranum (reyndar eru þær víst 52), en bíllinn sem ég ók var Caravella GL fólks- flutningabíll með 7-8 sætum, teppalagður í hólf og gólf og Mælaborðið í Caravelle. ágætlega útbúinn að öllu leyti. Caravelle GL er ótrúlega rúm- góður fyrir 7 manns og farangurs- rýmið er einnig afar ríkulegt. Hurðirnar eru stórar og því auð- velt að komast inn og út. Renni- hurðin (hægt að fá rennihurðir á báðar hliðar) er ágæt og furðu létt í notkun þó hún sé stór. Gólf- ið í bílnum er lágt og mjög auð- velt að lesta hann og losa. Sætin eru sérlega þægileg og útsýnið er eins og best verður á kosið. Bíll- inn er allur klæddur innan eins og fínasti fólksbíll og má e.t.v. með réttu segja að 40 ára þróun flutn- ingatækis yfir í einstaklega rúm- góðan fólksbíl sé hér með lokið. Rýmið og lítil lyftihæð upp í bíl- inn eru að sjálfsögðu ekki minna virði í transporter gerðinni (sendibílnum). Enn er ótalin aöstaða öku- manns, sem er að flestu leyti svipuð og í fólksbílum frá Volks- wagen, nema útsýni er miklu betra. Öll stjórntæki eru vel stað- sett og vinna vel og léttilega. Loftræsi- og miðstöðvarkerfið er öflugt og bíllin er allur auðveldur og léttur í umgengni. Aksturseiginleikar „rúgbrauðs- ins“ voru á síðustu árum orðnir sérlega góðir og öruggir, (með fyrirvara um afturþyngdina) og því ekki auðvelt að bæta um Nýja „rúgbrauðið“ frá Volkswagen... ...og forverinn, VW Transporter, seni leit fyrst dagsins Ijós árið 1949. „Bíllinn er allur auðveldur og léttur í umgengni.“ betur. Sem betur fer hefur þó tekist að halda öllu hinu besta af eiginleikum gamla „rúgbrauðsins". Þannig hefur nýja Caravellan sér- lega góða aksturseiginleika, ligg- ur eins og „pönnukaka“ á beinu brautinni og ræður við ótrúlegan hraða í beygjum. Fjöðrunin, aðalsmerki forverans, er ekki síðri en áður, þó svo að þyngdar- dreifingin sé ójafnari í nýju Caravellunni, a.m.k. ólestaðri. Fáanlegar eru 4 vélargerðir: 4 strokka 1,9 1 dísel, 5 strokka 2,4 1 dísel, 4 strokka 2,0 1 bensín og 5 strokka 2,5 1 bensín. Allar eiga þær sameiginlegt að hafa mikla slaglengd sem eykur togkraft þeirra. Vélin í bílnum sem ég ók var 5 strokka 2,4 1 díselvél. Hún er 78 hö og skilar bílnum ágætlega áfram. Gírskiptingin, sem nú er tengd 5 gíra gírkassanum með stöngum, er mjög nákvæm og skemmtileg og þegar við bætist létt en þó nægilega nákvæmt vökvastýri er tæplega hægt að hugsa sér auðveldari og liprari bíl af þessari stærð. Hávaðinn frá vélinni er þó meiri en í gamla „rúgbrauðinu“, enda situr öku- maðurinn mun nær vélinni en áður og auk þess hafði tekist mjög vel að dempa hljóðið í gamla boxernum í afturendanum á „rúgbrauðinu“. Allir bílar sem VW framleiðir eru nú með þverstæða vél að framan og framhjóla- eða fjór- hjóladrif. Pessi nýi Volkswagen Caravelle/Transporter er bíll nýrra tíma. Hann er rýmri, auð- veldari í umgengni og öflugri en fyrirrennarinn, en e.t.v. ekki jafn mikill „Volkswagen" og sá gamli. Gerð: Volkswagen Caravelle GL, 4 dyra, 7-8 manna fólksbíll, vél að framan, framhjóladrif. Vél og undirvagn: 5-strokka, fjórgengis díselvél, vatnskæld, yfirliggjandi knastás, slagrýmmi 2370 cm2, borvídd 79,5 mm, slaglengd 95,5 mm, þjöppun 22,5:1, 78 hö við 3700 sn/mín., 164 Nm við 1800 sn/ mín., bein eldsneytis-innspýting. Drif á framhjólum. 5 gíra gírkassi. Sjálfstæð fjöðrun að framan með tvöföldum þverörmum og snerilfjöðrum (torsion) og demparar. Að aftan ská-armar, gorm- ar og demparar. Aflstýri (tannstangarstýri), aflhemlar, diskar að framan, skálar að aftan, handbremsa á afturhjólum. Hjólbarðar 215/65 R 15 T, eldsneytisgeymir 80 lítra. Mál og þyngd (styttri gerð): Lengd 465,5 cm; breidd 184,0 cm; hæð 194,0 cm; hjólahaf 292,0 cm; sporvídd 157,5/154,0 cm; eigin þyngd ca. 1.730 kg; hámarksþyngd 2.540 kg. Framleiðandi: Volkswagen AG, Wolfsburg, Þýskalandi. Innflytjandi: Hekla hf., Reykjavík. Umboð: Höldur hf., Tryggvabraut 12, Akureyri. Verð: Frá ca. kr. 1.320.000 eftir gerðum en verð á stuttum Caravelle GL gæti losað tvær millj. kr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.