Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 19

Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 19
Laugardagur 27. júlí 1991 - DAGUR - 19 Popp Magnús Geir Guðmundsson Svörtu kaggarnir, frá vinstri: Valur Halldórsson, Guðbrandur Siglaugsson, Konráð V. Sigursteinsson og Kristján Ingimarsson. Myndir: Golli „Skítugir um hendurnar rokkband" - Svörtu Kaggarnir í spjalli Hér á Akureyri hefur oröið ánægjuleg aukning í dægurlífinu nú síðustu misserin. Hefur meöal annars myndast nokkuð sterkur kjarni hljómsveita, sem hefur ver- ið þó nokkuð duglegur við að halda tónleika. I dag er þar fremst meðal jafn- ingja hljómsveitin Svörtu Kagg- arnir, sem smátt og smátt hefur verið að færa sig upp á skaftið síðan hún varð til fyrir um einu og hálfu ári. Hljómsveitin, sem skip- uð er þeim Guðbrandi Siglaugs- syni taktgítarleikara, Konráði V. Sigursteinssyni sólógítarleikara, Vali Halldórssyni trommuleikara og Kristjáni Ingimarssyni bassa- leikara og söngvara, hyggst nú innan skamms leggja af stað til landsfrægðar með því að spila í Húnaveri nú um verslunar- mannahelgina. Af því tilefni mætti umsjónar- maður Poppsíðunnar á æfingu hjá þeim í Gagnfræðaskóla Akureyrar fyrr í vikunni og átti við þá stutt spjall. Þaö lá beinast við að spyrja fyrst, hvernig það væri komið til að þeir spiluðu í Húnaveri. Kristján: „Það var í stuttu máli þannig að Jakob Magnússon kom til mín niður í bæ rétt áður en byrjað var að auglýsa Húna- vershátíðina og bauð okkur að vera með.“ - Hve lengi og hvenær komið þið fram? „Við fáum að spila í klukku- tíma, en á hvaða degi vitum við ekki ennþá.“ - Hvað með prógrammið, hvernig er það uppbyggt? „Það eru um þrjátíu lög á því, þar af eru um 17-18 frumsamin og kringum 13 eftir aðra.“ - Hvernig urðu Svörtu Kagg- arnir til? Konráð: „Við Kiddi vorum í annarri hljómsveit sem þróaðist út í Svörtu Kaggana. Brandur kom svo inn um áramótin og nú fyrir skömmu skiptum við um trommara og Valur kom inn.“ - Hverjir semja tónlist og texta: Kristján: „Það koma allir við sögu við lagagerðina, en ég og Brandur semjum textana." - Hvernig eru textarnir? Guðbrandur: „Þetta snýst um að passa sig á að hafa ekki of marga sérhljóða í línu og þær geta orðið 14 ef þær eru nógu stuttar. (Hlátur) - Hvernig viljið þið skilgreina tónlistina ykkar? Konráð: „Er þetta ekki bara skítugir um hendurnar rokk.“ (Fleiri skilgreiningar eins og rokkabilly með nýbylgju-jass og rappívafi heyrast en Konráðs- kenning verður ofaná, sem sagt „skítugir um hendurnar rokk.“) Að lokum strákar. Hver er stefnan? „Að fara í hljóðver og taka upp plötu og komast á toppinn." Umsjónarmaður þakkar þeim „Köggum" kærlega fyrir spjallið og óskar þeim góðs gengis í Húnaveri. Ætlum okkur stóra hluti í Húnaveri um verslunarmannahelgina. Af vandræðagangi: Guns ’n’ Roses enn í sviðsljósinu Það nýjasta í hinni endalausu framhaldsögu af Guns ’n’ Roses er það annars vegar, að nú eru tvær dagsetningar uppi sem hugsanlega gætu orðið útgáfu- dagur fyrir nýju plöturnar tvær Use your lllusion I og II, þ.e. nú 29. júlí eða 12. ágúst. Þetta ber þó að taka með fyrirvara eftir það sem á undan er gengið. Hins vegar er það sem verra er, að hljómsveitin hefur enn og aftur komist í vandræði og enn eina ferðina er það söngvarinn W. Axl. Rose, sem hlut á að máli. Á tónleikum, sem hljómsveitin hélt nú fyrir skömmu fór allt í bál og brand þegar Rose í miðjum klíðum henti sér niður af sviðinu og réðst að Ijósmyndara, sem var í óleyfi að taka myndir. Að vonum brá öðrum tónleikagest- um við að sjá söngvarann koma fljúgandi og brutust út mikil slagsmál, þar sem hátt í sextíu manns slösuðust, þar á meðal aðstoðarmaður Slash gítar- leikara, sem fékk höfuðáverka eftir að flösku var kastað í hann. Þá urðu miklar skemmdir á tón- leikasalnum og sömuleiðis urðu tæki hljómsveitarinnar fyrir barð- inu á ólátunum. Ekki er Ijóst hver eftirmálin verða af þessum ólátum, en tals- maður hljómsveitarinnar vísar allri ábyrgð á hendur aðstand- endum tónleikastaðarins og sak- ar þá um lélegt eftirlit. Það hefði verið búið að gera þeim Ijóst að hljómsveitin vildi ekki að myndir yrðu teknar fyrir framan sviðið, en því hefði greinilega ekki verið sinnt sem skyldi. Það fylgir ekki sögunni hver viðbrögð tónleikahaldaranna urðu, en Ijóst má vera að þau hafa ekki verið góð. Voru tónleikarnir nán- ar tiltekið haldnir í borginni St. Louis og var nýlega búið að opna staðinn sem þeir fóru fram í sem kann að einhverju leyti að vera ástæðan fyrir lélegri gæslu. Þess má svo að lokum geta að nú fyrir skömmu kom út nýtt lag með Guns ’n’ Roses, sem kallst You could be mine og er það úr myndinni Terminator 2. með Arnold Schwartzenegger í aðal- hlutverki. Spurning vikunnar Hvað hyggstu gera um verslunarmannahelgina? Spurt á Akureyri Þrúður Gunnarsdóttir, 15 ára: „Ef ég verð ekki að vinna fer ég hugsanlega í Kverkfjöll. Mig langar ekki á útihátíð og efast um að ég fengi leyfi til þess. Ef ég fer ekki í Kverkfjöll fer ég eitthvað annað í útilegu." Guðmundur Freyr Sveinsson, 14 ára: „Ég fer til Reykjavíkur að heimsækja vini og kunningja. Ég ætlaði ekki að fara á útihátíð að þessu sinni og hefði sjálf- sagt ekki mátt það.“ Guðný Sif Jakobsdóttir, 15 ára: „Ætli ég verði ekki að vinna um helgina. Ég hefði farið í Vagla- skóginn ef ég væri ekki að vinna en alls ekki í Húnaver." Harpa Hafbergsdóttir, 16 ára: „Ég fer kannski í Húnaver, a.m.k. hef ég aldur til þess. Flestir vinir mínir ætla í Húna- ver þannig að líklega mun ég skemmta mér þar um helgina." Helgi Valur Másson, 16 ára: „Ég er að hugsa um að vera heima og fá mér bjór yfir sjón- varpinu. Ég hef engan áhuga á að fara á útihátíð en ef allt ann- að klikkar fer ég í Húnaver, þar sem mannskapurinn verður."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.